Helgarpósturinn - 02.04.1987, Page 42
HELGARDAGSKRÁIN
Föstudagur 3. apríl
18.00 Nilli Hólmgeirsson.
18.25 Stundin okkar — Endursýning.
19.10 I deiglunni — Endursýning.
19.30 Poppkorn.
20.00 Fréttir og veöur.
20.40 Göngum í reyklausa liðiö.
20.50 Unglingarnir í frumskóginum.
21.35 Mike Hammer.
22.25 Kastljós.
23.10 Einskis manns land (No Man's
Land). Svissnesk-frönsk bíómynd frá
árinu 1984. Leikstjóri Alain Tanner. Aö-
alhlutverk Hugues Quester, Myriam
Méziéres, Jean-Philippe Ecoffey og
Betty Berr. Beggja vegna landamæra
Frakklandsog Sviss búa einstaklingar
sem ekki una hag sínum af ýmsum
ástæðum. í von um betri tíð leiðist
þetta fólk út í að smygla varningi,
fólki og peningum milli landanna.
Milli tollstöðva landanna liggur skógi
vaxið einskis manns lands og er þar
vettvangur smyglaranna að nætur-
lagi.
01.00 Dagskrárlok.
Laugardagur 4. apríl
15.00 Iþróttir.
18.00 Spænskukennsla.
18.30 Litli græni karlinn.
18.40 Þytur í laufi.
19.00 Hóskaslóöir (Danger Bay).
19.30 Smellir.
20.00 Fréttir og veöur.
20.30 Lottó.
20.35 Fyrirmyndarfaöir (The Cosby
Show).
21.10 Gettur betur — Spurningakeppni
framhaldsskóla — Úrslit.
21.55 Paul Young — hljómleikar.
22.50 Hiti og sandfok (Heat and Dust)
★★★. Bresk bíómynd frá árinu 1983.
Leikstjóri James Ivory. Aöalhlutverk
Julie Christie, Greta Scacchi og
Christopher Cazenove, Susan Fleet-
wood og fleiri. Myndin gerist á Ind-
landi á nýlendutímanum og nú á dög-
um. Bresk kona á ástarævintýri meö
indverskum höföingja og lendir í
ógæfu í kjölfar þess. Hún lýsir reynslu
sinni í bréfum til systur sinnar. Sextíu
árum síðar erfir ung frænka hennar
bréfin sem vekja áhuga hennar. Hún
ferðast til Indlands og fetar á sinn hátt
í fótspor ömmusystur sinnar.
01.05 Dagskrárlok.
Fimmtudagur 2. apríl
§ 17.00 Myndrokk.
§ 18.00 Knattspyrna.
19.05 Spæjarinn. Teiknimynd.
19.30 Fréttir.
20.00 Opin lína.
20.25 Ljósbrot.
21.00 Morögáta.
§ 21.55 Af bæ í borg (Fterfect Strangers).
§ 22.25 Haldiö suöur ó bóginn (Going
South) ★★. Bandarísk gamanmynd
frá árinu 1978 með Jack Nicholson,
John Belushi og Mary Steenburgen
í aðalhlutverkum. Leikstjóri er Jack
Nicholson. Myndin gerist um 1860
og leikur Jack Nicholson seinhepp-
inn útlaga sem dæmdur hefur veriö
til hengingar. Ung kona bjargar hon-
um frá snörunni og vill giftast hon-
um og annast hann, en hún er ekki
öll þar sem hún er séð.
§ 00.10 Af ólíkum meiöi (Tribes) ★★★.
Bandarísk ádeilumynd í léttari kant-
inum með Darren McGavin og Earl
Holliman í aðalhlutverkum. Leik-
stjóri er Joseph Sargent. Ungur
sandalahippi meö sítt hár er kvaddur
í herinn. Liðþjálfa einum hlotnast sú
vafasama ánægja að breyta honum
í sannan bandarískan hermann, föð-
urlandi sínu til sóma.
01.35 Dagskrórlok.
Föstudagur 3. apríl
§ 17.00 Lífsbaráttan (Staying Alive) ★★.
Bandarísk kvikmynd frá 1983 meö
John Travolta og Cynthia Rhodes
(Flashdance) í aðalhlutverkum.
Travolta leikur dansara sem er staö-
ráöinn í því að veröa með þeim bestu
og komast á Broadway. Tónlist er
eftir Bee Gees og leikstjóri er Sylv-
ester Stallone.
§18.30 Myndrokk.
19.05 Feröir Gúliívers. Teiknimynd.
19.30 Fréttir.
20.00 Opin lína.
20.20 Klassapíur (The Golden Girls).
§ 20.45 Geimálfurinn.
§21.15 Þú snýrö ei heim ó ný (You Cant
Go Back Home Again) ★★★. i þess-
ari bandarísku sjónvarpsmynd öðl-
ast sjálfsævisöguleg bók Thomas
Wolfe nýtt líf. Myndin gerist um
1920 og segir frá baráttu ungs rithöf-
undar, sem er staðráöinn í því að
vinna sér sess meðal hinna þekktu
og ríku. Aöalhlutverk leika Chris
Sarandon, Lee Grant, Hurt Hatfield
og Tammy Grimes.
§ 22.35 Stranda ó milli (Coast to Coast)
★★. Dyan Cannon leikur eiginkonu
á flótta undan manni sínum í þessari
gamanmynd frá árinu 1980. Skilnaö-
ur getur veriö dýrt spaug og því vill
læknirinn, maöur hennar, heldur láta
loka hana inni á geösjúkrahúsi. Leik-
stjóri er Joseph Sargent.
§ 00.05 Myrkraherbergið (The Dark
Room). Áströlsk kvikmynd með
Svet Kovich, Alan Cassel og Anna
Jemison í aöalhlutverkum. Mögnuö
spennumynd um mann nokkurn
sem tekur sór unga ástkonu. Sonur
hans, sem er á svipuðum aldri og
stúlkan, veröur gagntekinn þeirri
hugsun að koma upp á milli þeirra
og beitir til þess öllum ráöum. Leik-
stjóri er Paul Harmon.
§ 01.35 Myndrokk.
§ 03.00 Dagskrórlok.
Laugardagur 4. apríl
§ 09.00 Lukkukrúttin. Teiknimynd.
§ 09.20 Högni hrekkvísi. Teiknimynd.
§ 09.40 Penelópa puntudrós. Teikni-
§ 10.30 Garparnir. Teiknimynd.
§ 11.00 Fréttahorniö. Fréttatími barna og
§ 11.10 Teiknimynd.
§ 11.30 Fimmtón ói’la. Nýr myndaflokkur
§ 12.00 Hlé.
§ 16.00 Ættarveldiö (Dynasty).
§ 16.45 Draugasaga (Ghost Story) ★.
Bandarísk kvikmynd byggö á skáld-
sögu Feter Straub meö Fred Astaire,
Douglas Fairbanks jr. og Melvyn
Douglas í aöalhlutverkum. Leikstjóri
er John Irvin.
§ 18.30 Myndrokk.
19.05 Hardy gengiö. Teiknimynd.
19.30 Fróttir.
20.00 Undirheimar Miami (Miami
§ 20.50 Benny Hill.
§ 21.15 Kir Royal.
§ 22.15 Vitnið (Witness) ★★★. Bandarísk
kvikmynd frá 1985 með Harrison
/ Ford og Kelly McGillis í aðalhlutverk-
um. Leikstjóri er Fteter Weir. Lög-
reglumaður er myrtur og eina vitnið
er átta ára drengur úr Amish trúar-
hópnum. Lögreglumaðurinn John
Book fær málið í sínar hendur og
leitar skjóls hjá Amish fólkinu þegar
lífi hans og drengsins er ógnað.
§ 00.00 Krydd í tilveruna (A Guide for the
Married Woman) ★★. Bandarísk
kvikmynd frá árinu 1978 meö Cybill
Shepherd, Charles Frank og Barbara
Feldon í aðalhlutverkum. Ungri hús-
móður finnst líf sitt vera heldur til-
breytingarsnautt og leitar ráða hjá
vinkonu sinni. Viö það verður líf
hennar svo skrautlegt að henni
finnst sjálfri nóg um.
§ 01.30 Myndrokk.
§ 03.00 Dagskrórlok.
©
Föstudagur 3. apríl
07.03 Morgunvaktin.
09.05 Morgunstund barnanna.
MEÐMÆLI
Rétt er að benda á tonleika
Sinfóníuhljómsveitar íslands
(í kvöld) á Rás 1 en þar
leikur einleik með hljóm-
sveitinni gríska undrabarnið
Dimitri Sgouros. Á Stöð 2 er
a.m.k. ein góð bíómynd,
Vitnið, og sömuleiðis ein góð
í Ríkissjónvarpinu, Hiti og
sandfok (Heat and Dust).
10.30 Sögusteinn.
11.05 Samhljómur.
12.20 Hódegisfréttir.
14.00 Miödegissagan.
14.30 Nýtt undir nólinni.
15.20 Landpósturinn.
16.05 Dagbókin.
16.20 BarnaútvarpiÖ.
17.05 Síðdegistónleikar.
17.40 Torgið.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Daglegt mól.
19.35 Bein lína til stjórnmólaflokkanna.
20.00 Tónskóldatími.
20.40 Framboöskynning stjórnmóla-
fiokkanna.
21.00 Kvöldvaka.
21.30 Sígild dægurlög.
22.20 Lestur Passíusólma.
22.30 Vísnakvöld.
23.10 Andvaka.
00.10 Næturstund í dúr og moll.
01.00 Dagskrórlok.
Laugardagur 4. apríl
07.03 ,,Góðan dag, góðir hlustendur".
09.30 I morgunmund.
10.25 Óskalög sjúklinga.
11.00 Vísindaþótturinn.
11.40 Næst ó dagskró.
12.00 Hér og nú.
14.00 Sinna.
15.00 Tónspegill.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Að hlusta ó tónlist.
18.00 Islenskt mól.
19.00 Kvöldfréttir.
19.35 Bein lína til stjórnmólaflokkanna.
20.00 Harmoníkuþóttur.
20.30 Ókunn afrek.
21.00 (slensk einsöngslög.
21.20 Á réttri hillu.
22.20 Lestur Passfusólma.
22.30 Tónmól.
23.10 Danslög.
00.05 Miðnæturtónleikar.
01.00 Dagskrórlok.
L
Föstudagur 3. aprll
06.00 I bltið.
09.05 Morgunþóttur.
12.20 Hódegisfróttir.
12.45 Á milli mála.
16.05 Hringiöan.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Lög unga fólksins.
21.00 Merkisberar.
22.05 Fjörkippir.
23.00 Á hinni hliöinni.
00.10 Næturútvarp.
02.30 UngæÖi.
Laugardagur 4. apríl
01.00 Næturútvarp.
06.00 I bítiö.
09.03 Tfu dropar.
11.00 Lukkupotturinn.
12.45 Listapopp.
14.00 Poppgótan.
15.00 Viö rósmarkið.
17.00 Savanna, Ríó og hin trfóin.
fMMMMMMá
18.00 Frótíir á ensku.
18.10 Tilbrigöi.
19.00 Kvöldfróttir.
19.30 MeÖ sfnu lagi.
20.00 Rokkbomsan.
21.00 Á mörkunum.
22.05 Snúningur.
00.05 Næturútvarp.
Föstudagur 3. apríl
07.00 —09.00 Á fætur meö Sigurði G.
Tómassyni.
09.00—12.00 Póll Þorsteinsson ó lóttum
nótum.
12.00-12.10 Fréttir.
12.10—14.00 Á hódegismarkaði meö
Þorsteini J. Vilhjólmssyni.
14.00—16.00 Pótur Steinn á róttri bylgju-
lengd.
17.00—19.00 Ásta R. Jóhannesdóttir í
Reykjavfk sfödegis.
19.00—22.00 Tónlist úr ýmsum óttum.
22.00—03.00 Haraldur Gíslason.
03.00—08.00 Næturdagskró Bylgj-
unnar.
Laugardagur 4. apríl
08.00—12.00 Valdfs Gunnarsdóttir.
12.00—12.301 fróttum var þetta ekki
helst.
12.30—15.00 Ásgeir Tómasson ó léttum
laugardegi.
15.00—17.00 Vinsældalisti Bylgjunnar.
17.00—19.00 Laugardagspopp ó Bylgj-
unni.
19.00—21.00 Rósa Guðbjartsdóttir.
21.00—23.00 Anna Þorlóksdóttir í laug-
ardagsskapi.
23.00 — 04.00 Þorsteinn Ásgeirsson,
nótthrafn Bylgjunnar.
04.00—08.00 Næturdagskró Bylgj-
unnar.
Útrás FM 88.6
Laugardagur 4. apríl
09.00—10.00 FB mætir og þenur sig.
(FB).
10.00—10.55 FB þenur sig áfram og fer
sfðan heim. (FB)
11.00—12.00 MR kemur meö þótt f nesti.
(MR)
12.00—12.55 MR hjóipar landanum aö
melta. (MR)
13.00—14.00 MS-ingar: Þorkell og
Björn. (MS)
14.00—14.55 Auöunn Ólafsson heldur
ófram með glans. (MS)
15.00-16.55 Iðnskólinn. (IR)
16.00-18.00 FÁ sór um þátt. (FÁ)
18.00-18.55 FÁ sór um sjólfan sig. (FÁ)
19.00—20.55 Hvað ætlar þú að veröa.
(FG)
21.00—22.00 MR blandar fyrstu blöndu
kvöldsins. (MR)
22.00-23.00 MR sór um þóttinn. (MR)
23.00-01.00 Kokteill meö Kingo. (IR)
01.00—08.55 Næturvaktin: MS lætur
móöan mósa. (MS)
JVRlp eftir Helga Mó Arthúrsson
Boöberar sjálfstœöis
SJÓNVARP
Af prakkarastrikum
eftir Jónfnu Leósdóttur
Liðin vika var vika fjöimiðla og Alberts
Guðmundssonar. Og af því atburðir gerð-
ust hratt og atburðarásin var óvenjuleg
komu sérkenni fjölmiðla og veikleikar ber-
lega í ljós. í þessum darraðardansi sannaði
útvarp yfirburði sína. Það liðu til að mynda
ekki margar mínútur frá því að fyrrverandi
iðnaðarráðherra, Aibert Guðmundsson,
gaf ljósmyndara Þjóðviljans á kjaftinn þar
til þjóðinni var kunnugt um atburðinn. Út-
varp var á staðnum og Albert, sem skaust
á rakarastofu eftir árásina, sat enn í snyrt-
ingu þegar fréttin barst út á öldum ljósvak-
ans.
Útvarp var með beinar sendingar frá
fundum og uppákomum hvers konar sem
áttu sér stað í vikunrti. Og þegar umfjöllun
sjónvarps og dagblaða, auk útvarps er tek-
in saman þá er ljóst að fjölmiðlun er kom-
in á allt annað stig en hún var t.d. fyrir ári.
Afsögn Alberts Guðmundssonar og
stofnun Borgaraflokksins er stærsti atburð-
ur sem átt hefur sér stað eftir að nýjar ljós-
vakastöðvar fóru að láta að sér kveða og
samkeppni harðnaði á þeim markaði. Nið-
urstaðan er það sem almenningur kallar
„fjölmiðlafár" og má búast við því að í
framtíðinni verði það daglegt brauð, a.m.k.
þegar sviptingar verða í þjóðlííinu. Og þeg-
ar hraðinn er mikill sannar útvarp yfir-
burði sína, enda þótt sjónvarp sé e.t.v.
áhrifaríkari miðill.
Fréttastjóri sjónvarps, Ingvi Hrafn Jóns-
son, telur sig hafa lent í „hakkavél" Morg-
unblaðsins fyrir frammistöðu sína í rabb-
þætti við Albert Guðmundsson, sem þjóðin
öll horfði á. Og hann svaraði fyrir sig. Fyrst
í þætti hjá Hermanni Gunnarssyni á Bylgj-
unni, þar sem hann tilkynnti að hann velti
fyrir sér afsögn í kjölfar ummæla höfundar
Reykjavíkurbréfs s.l. sunnudag, og síðar
þegar hann á Bylgjunni svaraði Morgun-
blaðinu í hádegisfréttatíma s.l. mánudag.
Hér verður ekki lagður dómur á frammi-
stöðu Ingva Hrafns í sjónvarpi, en ummæli
hans í útvarpi eru athyglisverð. Þau eru at-
hyglisverð fyrir þær sakir að þau má skilja
sem yfirlýsingu um það, að Morgunblaðið
skipti ekki eins miklu máli og áður. Aðeins
það að Ingvi Hrafn skuli svara fyrir sig full-
um hálsi staðfestir þá breytingu sem er að
verða í fjölmiðlun. Morgunblaðið er ekki
lengur sú kirkja — og ritstjórarnir páfar —
sem blaðinu mátti óneitanlega líkja við.
Ella hefði Ingvi Hrafn ekki ullað á „páf-
ann“!
Dagblöð, flokksblöð, og sérstaklega
Morgunblaðið, sem er stórfyrirtæki og
verður að skila eigendum sínum arði hlýt-
ur nú að taka til endurskoðunar þau grund-
vallarsjónarmið sem ristjórnarstefna blaðs-
ins byggir á. Annars dagar blaðið uppi. Það
heldur e.t.v. tæknilegum yfirburðum á sínu
sviði, en veldi þess á opinberum skoðana-
markaði er ógnað. Blaðið er bundið af því
að vera boðberi sjálfstæðisstefnunnar og
geldur þess nú í samkeppni við Ijósvaka-
miðla.
Boðberar sjálfstæðis eiga hins vegar
framtíðina fyrir sér.
Spennandi tímar eru fyrir höndum á fjöl-
miðlasviðinu. Vonandi verða yfirburðir út-
varps nýttir áfram. Það knýr aðra fjölmiðla
til að hugsa dæmið upp á nýtt.
Að undanförnu hefur mér þótt reglulega
erfitt að sitja heima í stofu og fylgjast með
viðtölum í tengslum við langþreytt Alberts-
mál, án þess að geta sjálf fylgt nokkrum
ágengum spurningum eftir. Þetta hefur ör-
ugglega átt við um fleiri.
Eitt af því sem farið hefur í taugarnar á
mér, er síðasta prakkarastrik Jóns Bald-
vins. Það er þó raunar eitt af smáatriðun-
um í þessu alvarlega máli, en samt sem áð-
ur er ergilegt að kollegarnir skuli ekki núa
kratanum pínulítid upp úr því að snúast
180 gráður á 2—3 sólarhringum. Ég á við
eftirfarandi:
Á meðan mesta óveðrið gekk yfir í leik-
ritinu um manninn, flokkinn og stólinn,
vildi formaður Alþýduflokksins alls ekki tjá
sig um farsann í fjölmiðlum. Sagði þetta
innanhússerjur íhaldsins. Allir gátu þó séð
og heyrt, að verið var að fjalla um grund-
vallaratriði svo sem siðferðilegar kröfur til
stjórnmálamanna og trúnað og traust á
milli þeirra og almennings. Vissulega eru
þetta óskráðar reglur en ekki lagabálkar í
ótal liðum — en mikilvægustu lögmálin í
lífinu eru einmitt oft þau óskráðu. Það var
þess vegna hallærislegt hjá foringjum
hinna flokkanna að þykjast vera stikkfrí,
þó það kæmi manni kannski ekkert mjög
á óvart. Stjórnmálaumræða hér á landi hef-
ur a.m.k. ekki hingað til snúist um grund-
vallaratriði eins og hugmyndafræði og sið-
fræði!
Loks kom þó Jón Baldvin fram í sviðsljós-
ið í alveg ágætu sjónvarpsviðtali, þar sem
hann skilgreindi atburðina m.a. á þann
veg, að fólk einblíndi þessa dagana mest á
persónulegu hlið málsins. Sagði hann al-
menning fullan samúðar með beygðum
manni, aðsópsmikilli og stoltri dóttur
o.s.frv. o.s.frv. Mjög sannfærandi skilgrein-
ing og allt í fína lagi með það.
Þess vegna verður manni illa við að
heyra þennan hinn sama krataforingja —
örfáum sólarhringum síðar — gera eitt alls-
herjar stólpagrín að „tilfinningaskýringu"
annarra pólitíkusa í ljósi úrslita nýjustu
skoðanakannana. Þá er eins og Jón hafi
aldrei heyrt aðra eins bölvaða dellu og að
almenningur taki þessa dagana tilfinninga-
lega afstöðu til svokallaðs Albertsmáls. Og
við sem heyrðum þetta fyrst af öllu afhans
eigin vörum!
Hæðnislegar athugasemdir formannsins
fengu þrátt fyrir þetta að flæða yfir oss og
allt um kring, án þess að fréttamenn gerðu
neitt í því að herma söguskýringuna upp á
hann sjálfan. Þeir gleyptu bara við þessu
hallærislega bragði eins og lýsisskeiðinni á
morgnana og kveiktu alls ekki á perunni.
Heima sátu áhorfendur, fundu þráabragð-
ið, en urðu að kyngja.
Þetta er vissulega algjört smáatriði í hin-
um mikla ólgusjó, en nógu fjári pirrandi
þrátt fyrir það.
42 HELGARPÓSTURINN