Helgarpósturinn - 02.04.1987, Síða 44
athygli vakti frétt
dögunum um að hópur fólks kæmi
saman í hádeginu einu sinni í viku
til þess að neyta saman matar og
biðja bænar. Það mun hafa verið
Helgi S. Guðmundsson, markaðs-
fulltrúi, sem átti frumkvæðið að
þessum stundum en hann er á fram-
boðslista Framsóknarflokksins í
Reykjavík. Annars er allra flokka
fólk þátttakendur í þessum bæna-
stundum, m.a. margir úr atvinnulíf-
inu. Um 50 manns eru í þessum hópi
og hafa þegar verið settir á laggirn-
ar hópar út úr þessum stóra. Þar á
meðal er einn hópur sem hittist á
morgnana til bænahalds og annar
sérstakur kvennahópur. ..
l DV í gær er fieilsíðu frásögn af
frumsýningu Islenska dans-
flokksins á ballettnum ,,Ég dansa
við þig“, sem frumsýndur var fyrir
skömmu. Sex stórar myndir eru
birtar með greininni og á þeim má
þekkja dansara flokksins, höfund
ballettsins, þjóðleikhússtjóra og
fleiri góða gesti, sem fögnuðu sýn-
ingunni í kampavíni. Hins vegar
sést hvergi í Nönnu Ólafsdóttur,
listdansstjóra Þjóðleikhússins, sem
þjálfað hefur Islenska dansflokkinn
síðastliðin sex ár. Ástæðan mun
vera sú að innan dansflokksins ríkir
nú ,,valdabarátta“ og hefur Nanna
ekki verið að störfum í allan vetur.
Málið er á viðkvæmu stigi, enda
hægara sagt en gert að sleppa ein-
um þjálfaðasta listdansara íslend-
inga úr greipum sér. Lýsir þetta
kannski einna best þeirri óánægju
dansaranna, að hafa ekki eigið hús-
næði og bitnar þessi óánægja því
fyrst og fremst á þjálfaranum, sem
enga sök á þó á vanda dansflokks-
ins. . .
jf^^Í^argir framsóknarmenn,
fyrrverandi, eru meðal áköfustu
stuðningsmanna Borgaraflokks-
ins, þar á meðal fólk sem hefur þótt
meðal helstu kosningasmala Fram-
sóknar í borginni. Til þeirrar sögu
hafa verið nefnd Guðrún Flosa-
dóttir, Jón Gunnarsson og Alvar
Óskarsson. Enn fleiri framsóknar-
menn, sem haldið hafa á smurkönn-
um kosningamaskínunnar og próf-
kjörsvéla hjá Framsóknarflokknum
eru sagðir styðja framboðið, en ekki
treysta sér til að vinna opinberlega
fyrir Albert, af ótta við harkaleg við-
brögð gamla flokksins...
44 HELGARPÓSTURINN
s
^^^tefnuskrain hjá Borgara-
flokknum varð til með álíka skjót-
um hætti og framboðslistarnir. Byrj-
að var að vinna stenfuskrána strax á
laugardaginn, þegar framboðsraun-
irnar voru afstaðnar. Meðal þeirra
sem unnu að stefnuskránni í vinnu-
hópi voru Benedikt Bogason,
Júlíus Sólnes, Jón Valur Jens-
son, Kristján Ingvarsson, Hregg-
viður Jónsson, Ingvar Níelsson,
Ragnheiður Óiafsdóttir, Hulda
Jensdóttir, Baldur Hafsteinsson,
Ásgeir Hannes Eiríksson og
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir.
Hér er um að ræða ítarlegt stefnu-
plagg, sem tekur til velflestra mála-
flokka íslenskrar stjórnmálaum-
ræðu. Lokið var við gerð stefnu-
skrárinnar á sunnudaginn og um
leið og hún var tilbúin vélrituð, var
hún lesin upp í kosningamiðstöð-
inni í Skeifunni. . .
Þ,
ær styttast ekkert raðirnar af
nauðungaruppboðsauglýsingum
Lögbirtingablaðsins. Einstaklingar
og fyrirtæki lenda tugum og hundr-
uðum saman í vanskilum, ekki síst
við Gjaldheimtuna í Reykjavík.
Meðal fyrirtækja sem nú skulda
skattinn sinn eru Veitingar h.f. í
Ármúla, 2.8 milljónir, Hraðfrysti-
stöðin hf, 4.1 milljón, Stálsmiðjan
hf, 2.5 milljónir, Jón Loftsson hf,
3.3 milljónir, Kristján Ó. Skag-
fjörð hf, 6.1 milljón og B.Ó.T. hf við
Hverfisgötu, 1.7 milljónir. Vonandi
að ráðamenn þessara fyrirtækja
hafi einmitt rétt í þessu verið að
borga skuld sína, því Jón borgar-
fógeti Skaftason hótar uppboði 9.
apríl.. .
Victor VPC II - nú er harði diskurinn 30 Mb í stað 20 Mb áður, en verðið er óbreytt.
LEYNDARMÁUÐ
að baki góðri tölvu er hugvit, tœkni og góð þjónusta
VICTOR og Einar J. Skúlason hf. eru fyrirtœki sem þú getur treyst
VKTT n
Til að góð tölva standi undir nafni þarf hún að hafa að
baki samhent þjónustulið sem bregst fljótt og vel við
ófyrirsjáanlegum vandamálum, sem skotið geta upp
kollinum á meðan fólk er að ná tökum á tækninni.
Victor einmenningstölvurnar hafa fyrir löngu sannað
ágæti sitt. Reynslan sýnir að þær eru vandaðar, sterk-
byggðar og hafa lága bilanatíðni. Síðastliðna 9 mánuði
hafa liðlega 1200 nýjar Victor tölvur verið teknar í
notkun hér á landi og segir það meira en nokkur orð
um álit íslenskra athafnamanna á Victor. Ánægðir við-
skiptavinir eru okkar bestu meðmæli.
Þjónustudeild Einars J. Skúlasonar hf. hefur á að skipa
þaulreyndu og vel menntuðu starfsfólki sem leggur
metnað sinn í að veita nákvæmar upplýsingar og
trausta þjónustu.
Victor tölvan er mjög ríkulega útbúin. Hún hefur
vinnsluminni í fullri stærð, þ.e. 640 kb., raunverulegan
16 bita örgjörfa (8086) og er ákaflega hraðvirk. Victor
fylgist vel með nýjungum og kappkostar að vera leið-
andi í þróun einmenningstölva.
Victor kynnir nýjungar:
★ Nýtt lyklaborð
★ Nýtt stýrikerfi: MS DOS 3.2
★ Nýr 30 Mb. harður diskur.
Kynntu þér Victor nánar - það borgar sig.
VICT.R
Einar J. Skúlason hf. i
Grensásvegi 10, sími 68-69-33