Helgarpósturinn - 14.05.1987, Blaðsíða 15

Helgarpósturinn - 14.05.1987, Blaðsíða 15
Atli Heimir Sveinsson skrifar um sí- gilda tónlist í blaðið. Hann er í hópi kunnustu og hæfustu tónsmiða í land- inu. Elín Edda dýfir fjöður á síður Helgar- póstsins þegar listdanssýningar eru á döfinni. Hún er sjálf dansari og mynd- listarkona. Friðrik Þór Guðmundsson blaða- maður. Hann hefur starfað við blaða- mennsku um árabil. Friðrik er mennt- aður í stjórnmálafræðum. Guðbergur Bergsson er myndlistar- gagnrýnandi HP og braut blað í umfjöll- un um þessa listgrein þegar hann hóf skrif í blaðið fyrir fimm árum. Guðberg- ur er kunnur rithöf.undur og þýðandi. Guðmundur Arnlaugsson hefur skrifað um skák í blaðið frá fyrsta tölu- blaði þess. Hann er virtur skákdómari. Gunnar Smári Egilsson blaðamaöur. Hann hóf störf í blaðamennsku fyrir nokkrum árum og var á Tímanum áður en hann kom á HR Helgi Skúli Kjartansson gagnrýnir fræðirit af ýmsu tæi fyrir blaðið, auk annarra bókmennta. Helgi Skúli er kunnur sagnfræðingur. Hermann Lárusson er sérfræðingur HP í bridge. Hermann er sjálfur liðtækur í íþróttinni og þekktur spekúlant (fræð- unum. Jim Smart Ijósmyndari hefur unnið við blaðið nánast frá byrjun. Hann er af mörgum talinn færasti portrett-ljós- myndari á landinu. Jóhanna Sveinsdóttir blaðakona skrifar nú um mat fyrir HP, eins og hún hefur gert af og til síðustu ár. Matkráka hennar er rómuð fyrir óvenjulega frum- legar og góðar uppskriftir. Jón óskar myndlistarmaður, er útlits- teiknari HP. Hann hannaöi útlit blaðsins í upphfi og sneri fyrir allnokkru aftur til starfa á HP eftir myndlistarnám í New York. Jón örn Marinósson og Jónsbók hans birtast lesendum HP á annarri síöu blaösins. Jón örn er einn flinkasti penni landsins. Hann er tónlistarstjóri Ríkisút- varpsins. Sigurður A. Magnússon hefur skrif- að um leiklist fyrir Helgarpóstinn. Sig- urð er óþarft að kynna, svo rómaður rit- höfundur sem hann er. Sölvi Sveinsson gagnrýnir barnabæk- ur fyrir HP, en blaðið var reyndar fyrst fjölmiðla til að leggja sérstaka áherslu á þá umfjöllun. Sölvi er íslenskukennari við Fjölbraut í Ármúla. ► i Vernharður Linnet skrifar um djass í blaöið og hefur gert frá upphafi. Fáir ís- lendingar eru honum fróðari um þessa geggjuðu tegund tónlistar eins og reyndar hefur glöggt mátt sjá í pistlum hans í HP í fjölmörg ár. Ólafur Angantýsson kvikmynda- gagnrýnandi. Ólafur lagði stund á kvik- myndafræði jafnhliða fjölmiðlafræði við Stokkhólmsháskóla og lauk þar námi 1985. óskar Guðmundsson blaðamaður. Hann er gamall haukur í fréttum og hef- ur komið víða við á löngum fjölmiðla- ferli. Sigmundur Ernir Rúnarsson rit- stjórnarfulltrúi kom til HP haustið 1983 eftir störf á DV og áður Vísi. Hann er kunnur fyrir viðtöl sín og greinar, auk innlits í Sjónvarpið í fyrra.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.