Helgarpósturinn - 14.05.1987, Blaðsíða 6

Helgarpósturinn - 14.05.1987, Blaðsíða 6
Firestone radial hjólbarðarnir tryggja öryggi þitt og annarra FIRESTONE radial hjólbarðarnir eru framleiddir undir ströngu gæðaeftirliti sem tryggir öryggi þitt og fjölskyldu þinnar. Sérstæð lögun og mynstur gefa frábært grip og mýkt bæði á malarvegum og malbiki, sem veitir hámarks öryggi og þægindi í akstri, innanbæjar sem utan. FIRESTONE eru einu radial hjólbarðarnir sem eru sérhannaðir jafnt til aksturs á malarvegum og malbiki. Og þeir eru úr níðsterkri gúmmíblöndu sem endist og endist og endist... UMBOÐSMENN UM LAND ALLT! JOFUR HF Dagbókin hennar Dúllu Kæra dagbók. Við Bella fórum með bekknum okkar í Þjóðleikhúsið um daginn. Það var svolítið nýtískuleg ballett- sýning og söngur („Ég dansa við þig“ hét það), svo það voru nú mest stelpur sem fóru. Mér fannst ofsa- lega gaman! Ég vissi ekki að það gæti verið svona spennandi að fara í leikhús. Það er líka eitthvað svo fullorðinslegt. Einn dansarinn í ballettinum klæddi sig ALVEG úr á sviðinu. Svakalegt, maður. Ég skil ekki hvernig hann þorði að vera svona allsber fyrir framan alla ... Ég skil heldur ekki almennilega hvers vegna þetta var haft svona. Líklega er þetta eitthvað listrænt. Ég er allt í einu farin að hafa svo- lítinn áhuga á stjórnmálum — kannski af því að Þ. (sem ég er skot- in í) veit svo mikið um þau og ég verð að geta talað við hann án þess að gera mig að algjöru fífli. Og veistu hverju ég komst að? Það er með þessa flugstöð, sem búið er að sýna og tala um í öllum blöðum og „vörpum". (Flugstöð getur sko vel verið pólitík, þegar menn eru ekki sammála um hana.)Ég las um dag- inn, að það er ekkert búið að borga hana!!!! íslendingar SKULDA hana alla. Fengu bara lán einhvers staðar í útlöndum (sem er nú alltaf verið að tauta yfir, er það ekki?) fyrir þeim hluta sem við borgum. Kanar borga nefnilega part af þessu líka. Mér finnst þetta ofsalega merki- legt. En samt er ekkert talað um þetta neins staðar. Bara sýndar flott- ar myndir af húsinu og talað við rosa glaða farþega og svoleiðis. Al- veg gæti ég gengið í dýrum leður- dressum daginn út og inn, ef ég þyrfti ekki að borga fyrir þau. Mér finnst þetta alveg eins ... Það er bara verst að Þ. verður örugglega ekki sammála mér. Ég sá að minnsta kosti einhverja sjálf- stæðismenn vera að monta sig með flugstöðina fyrir kosningar og Þ. er í Heimdalli. Vesen alltaf í þessu lífi. Ég hugsa bara að ég ræði ekkert um þetta við hann. Pabbi varð hins veg- ar æðislega glaður með mig, þegar ég sagði honum hvað mér fyndist um þetta. Svo sagði hann að eina sparnaðartillaga mömmu í stjórn- málunum væri sú að hætta við flug- stöðvarbygginguna, sem löngu væri tilbúin. Hún vildi líklega láta skila henni aftur. Maður skyldi ætla að mamma væri orðin vön honum, eftir öll þessi trilljón ár, en hún varð voða æst og sagði að hann sneri út úr öllum kvennamálum. Varla er nú flugstöð neitt sérstakt kvennamál ... Nema náttúrulega öll ilmvötnin og snyrti- vörurnar, sem fást þar! (Létt grín, auðvitað. Þó ég sé nú vitlaus, og allt það ...) Ég sá ofsalega merkilegt viðtal við fatlaða stelpu um daginn. Hún er öll í því að yrkja ljóð. Ég er viss um að Þ. þætti flott ef ég færi að yrkja, en ætli ég sé nógu frumleg? Bless, Dúlla. PS Fyrsta tilraun: ÞÖGNIN síminn hringir aldrei hann þegir máttlaus dyrabjallan hangir ónotuð .. . á hjartataugunum IÞROTTIR Kom, sá og sigraði — ekki Eftir 8 mánaða streð er fjölmiðla- keppninni í getraunum loks lokið. Yfirburðasigurvegari eftir 33 um- ferðir varð Bylgjan sem náði alls 197 réttum eða 5,97 að meðaltali (49,7%). Ég óska Bylgjumönnum til LAUS ALUR RETTA ROÐ Allir í rétta röð. Nýtt og fullkomið tölvustýrt símaborð tryggir snögga sím- svörun og afgreiðslu eftir réttri röð. Þegar þú hringir í Hreytil og heyrir lagstúf, veistu aö þú hefur náð sambandi við skiptiborðið og faerð afgreiðslu von bráðar. Hafnarfjörður, Garðabær og Mosfellssveit. Höfum opnað nýjar biðstöðvar við Ásgarð í Garðabæ, Esso-stöðina við Reykjavíkurveg í Hafnarfirði og við Þverholt í Mosfellssveit. Þetta tryggir enn betri þjónustu. Höfuðborgarsvæðið er nú eitt gjaldsvæði. Nú getur Hreyfill ekið þér frá Laxnesi að Bessastöðum eða frá Austurvelli í Straumsvík á innanbæjartaxta Reykjavíkur UREVF/LL 68 55 22 hamingju og góða ferð á Wembley. í öðru sæti lenti tippari DV með 188 rétta (5,70%), í þriðja sæti Tíminn með 187 (5,67), í fjórða sæti Dagur með 185 (5,6), í fimmta sæti Morg- unbladið með 183 (5,55), í sjötta sæti HP með 180 (5,45), í sjöunda sæti Pjóðviljinn með 178 (5,39) og lestina rak Ríkisútvarpið með 177 (5,36 eða 44,7%). Næsta ótrúlegir yfirburðir Bylgjumanna og ljóst að DV í öðru sæti náði hlutfallslega svipuðum árangri og sigurvegarinn í fyrra, litla Alþýðublaðið. I mini- keppni hinna útskúfuðu sigraði Al- þýðublaðið Helgarpóstinn með 8 réttra mun eftir 32 umferðir. Meðal- skor Alþýðublaðsins varð 5,65 eða 47,13% og hefði spámaður þess þá lent í fjórða sæti fjölmiðlakeppninn- ar að öllum líkindum. Þessum þætti í sögu HP er þá Iok- ið. Haldið var út í þetta af þrjósku eftir að íslenskar getraunir höfðu meinað okkur að vera með því auð- vitað gefur HP ekki eftir fyrir henti- stefnu og samtryggingu. Undirritað- ur þakkar þeim mörgu sem höfðu samband og hvöttu til dáða. -fþg BORNIN Börnin eiga auövitaö aö vera í belt- um eða barnabílstólum i aftursæt- inu og barnaöryggislæsingar á hurðum. IP 6 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.