Helgarpósturinn - 20.08.1987, Page 4

Helgarpósturinn - 20.08.1987, Page 4
Nýtt húsnæði Listasafns íslands verður tekið í notkun fyrir næstu áramót. Þar bíða nýs forstöðumanns mörg ögrandi verkefni. MYNDLISTARHEIMURINN NÝR FORSTÖÐUMAÐUR LISTASAFNS ÍSLANDS BRÁÐUM SKIPAÐUR DEILT UM HVAÐ RÁÐI MESTU; MANNGERÐ, FLOKKSSKÍRTEINI, HÆFILEIKAR, ÆTTARTENGSL EÐA VINÁTTA LISTASAFNIÐ Á TÍMAMÓTUM Starf forstöðumanns Listasafns íslands er laust til um- sóknar. Myndlistarmenn segja að oft hafi ríkt spenna fyrir veitingu forstöðumannsstarfs við íslenskt listasafn — en aldrei sem nú. Spennan sé yfirþyrmandi. Þeir nefna þunga undiröldu og reyndar flest annað sem tilheyrir, þegar íslendingar eigast við í aðstæðum sem þessum; flokkadrætti, ættaríg og munnsöfnuð. EFTIR SIGMUND ERNI RÚNARSSON MYNDIR JIM SMART Það er mikið í húfi. Starf forstöðu- manns Listasafns íslands er fráleitt innantómur titill á mögru embætti, heldur fer þar — ef vill — hæst- ráðandi í þeirri grein íslenskra lista er lýtur að sjónmenntum. Hann er í oddaaðstöðu hvað varðar kaup rík- isins á listaverkum og í raun höfund- ur þess yfirlits í ísienskri myndlist sem síðar verður horft til. Hann á aukinheldur að kynna íslenska list og listamenn út á við með þeim hætti sem hann telur rétt hverju sinni. LISTASAFNIÐ Á TÍMAMÓTUM Listasafn íslands á sér aldarlanga sögu, þó svo safnið sjálft hafi ekki öðlast samastað fyrr en 1951. Dr. Selma Jónsdóttir var þá ráðin fyrsti sérstaki starfsmaður þess og síðar skipuð fyrsti forstöðumaður þess með sérstökum lögum um safn- ið áratug síðar, 1961. Dr. Selma féll frá fyrir fáeinum vikum. Listasafn Islands stendur á nokkrum tíma- mótum, bæði vegna fráfalls Selmu, og svo vegna væntanlegra flutninga þess í sérhannað húsnæði við Frí- kirkjuveg. Frestur til að sækja um forstöðu- mannsstöðuna rennur út annan föstudag. í lögum um safnið er kveðið á um að menntamálaráð- herra sé einráður um að skipa í stöð- una og þurfi ekki til þess samráð við umsagnaraðiia. Einnig vekur at- hygli að engrar menntunar er kraf- ist af umsækjendum, þó svo að margra mati megi fyllilega bera starf forstöðumanns Listasafnsins saman við prófessorsstöðu við Há- skóla íslands. Nýr forstöðumaður verður ráðinn til eins árs vegna væntanlegrar endurskoðunar á lög- um safnsins. HP er þegar kunnugt um sex um- sækjendur um stöðuna og eru þeir þessir: Adalsteinn Ingólfsson list- fræðingur, starfandi blaðamaður á DV, Bera Nordal listfræðingur, starf- andi safnvörður við Listasafn ís- lands og settur forstöðumaður þess um óákveðinn tíma í kjölfar fráfalls Selmu, Einar Hákonarson myndlist- armaður og listráðunautur Kjarvals- staða frá því snemma á þessu ári, Eiríkur Þorláksson listfræðingur og starfandi fulltrúi hjá skiptinema- samtökunum AFS, og loks bræðurn- ir Gunnar og Olafur Kvaran. Gunnar er doktor í listfræði og for- stöðumaður Ásmundarsafns, en Ólafur listfræðingur og forstöðu- maður Listasafns Einars Jónssonar. Eins og nærri má geta greinir menn í myndlistarheiminum mjög á um hver sé líklegastur af þessum mönnum til að hreppa stöðu for- stöðumanns Listasafns íslands — og enn magnast ágreiningurinn þegar spurt er hver sé vandanum best vax- inn. Rétt er að taka það strax fram að umsókn Eiríks mun einkum vera framsett af honum sjálfum ,,til að láta vita af“ sér, en í þeirri von að hljóta starfann. SEX LISTFRÆÐINGAR, EINN LISTAMAÐUR Af þessum sex umsækjendum eru allir meira og minna listfræði- menntaðir, utan einn, sem er Einar Bera Nordal listfræðingur. Laus við kreddur og nýtur vináttu föður síns og menntamálaráðherra. Einar Hákonarson myndlistarmaður. Fullpólitískur en fær sínu framgengt. Efast um hvort starfandi listamaöur á erindi í embættið. Aðalsteinn Ingólfsson. Sanngjarn maður með traustan bakgrunn, en líð- ur fyrir flokks- og ættarhnút málsins. Gunnar Kvaran. Kraftaverkamaður í safnamálum, en fullbeinskeyttur. Lærðastur allra umsækjendanna. Hákonarson. Fjórir umsækjend- anna starfa sem stendur við söfn, ýmist sem forstöðumenn þeirra, settir forstöðumenn eða listráðu- nautar. Einungis Aðalsteinn og Eiríkur eru utan safna, en þess má þó geta að Aðalsteinn starfaði lengi sem listráðunautur Kjarvalsstaða og hefur kynnt sér mjög safnafræði á undangengnum árum. Eftir að þessar umsóknir spurðust út urðu strax uppi efsasemdir um réttmæti þess að starfandi myndlist- armaður fengi stöðuna. Þarna er átt við Einar Hákonarson. Um nokkurt skeið hafa undirskriftalistar gengið milli myndlistarmanna þar sem þeir eru hvattir til að styðja umsókn Einars, þar sem hann sé „úr þeirra hópi, einn af þeim“. Tími sé kominn til að myndlistarmennirnir sjálfir fái nokkru ráðið í þessu apparati ríkis- ins sem Listasafn íslands er. Þessir listar munu vera runnir undan rifj- um nokkurra helstu stuðnings- manna Einars meðal myndlistar- manna, svo sem Baltasars, Gísla Sigurdssonar og Daöa Guöbjörns- sonar, sem er formaður Félags ís- lenskra myndlistarmanna. Þessi undirskriftalisti hefur.farið fyrir brjóstið á mörgum myndlistar- mönnum — og gjarnan þá þeim sem hafa horn í síðu stjórnmálaaf- skipta Einars. Hann er sem kunnugt er skráður flokksmaður Sjálfstæðis- flokksins, fyrrum frambjóðandi hans og í kjölfar þess formaður menningarmálanefndar Reykjavík- urborgar. Flokkurinn þykir hafa fleytt honum áfram, til dæmis í starf skólatjóra MHÍ á sinum tíma og til starfs listráðunauts Kjarvalsstaða sem hann gegnir nú. En þessi metn- aðargirni er líka það sem aðrir telja að einmitt þurfi á Listasafninu, reynslu í afskiptum af stjórnmála- mönnum, kunnáttu í að fá frá þeim peninga, sem, þegar á allt er litið, ræður mestu um framtíð safnsins. ÆTTAR- OG VINATENGSL Það verður vissulega erfitt fyrir Birgi ísleif Gunnarsson mennta- málaráðherra að líta framhjá Einari við stöðuveitinguna. Styrkur hans innan flokksins er ótvíræður. Fyrir utan beinan stuðning nafnkenndra myndlistarmanna nýtur hann einn- ig óbeins stuðnings úr sínu stéttar- félagi sem hefur orðið til eftir að ljóst varð að bræðurnir Gunnar og Ölafur Kvaran hygðust freista þess að fá embættið. Nokkurrar hræðslu gætir gagnvart Kvaranbræðrum meðal myndlistarmanna, og einnig gremju sem á rætur að rekja aftur til myndlistargagnrýni þeirra fyrr á árum. Þeir þykja beinskeyttir og einkar afdráttarlausir í skoðunum, en enginn frýr þeim vits á listinni, svo og rekstri á söfnum. Eftir þá liggur kraftaverk í safnamálum, svo sem ástand Ásmundarsafns og Listasafns Einars Jónssonar ber vitni um. Af umsækjendunum sex standa þeir Kvaranbræður einna best hvað praktískan bakgrunn snertir, svo og menntun. Að margra mati munu þó ættir og flokkadrættir ráða hér meiru um stöðuveitingu en hæfileikar, svo sem löngum fyrr á Fróni. Nú er að vísu sá munur á, sem oft hefur ekki verið, að þeir umsækjendur sem kenndir eru við ættir eða flokka eru ekki síður hæfileikamiklir en hinir. Bent er á tengsl Kvaranbræðra við Geir Hallgrímsson og hans ætt alla Ólafur Kvaran. Margir myndlistar- menn smeykir við afdráttarleysi hans, en praktískur bakgrunnur gerist vart betri. 4 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.