Helgarpósturinn - 20.08.1987, Side 7

Helgarpósturinn - 20.08.1987, Side 7
YFIRHEYRSLA nafn: Jón Baldvin Hannibalsson staða. Fjármálaráðherra og formaður Alþýðuflokksins fæddur: 21.2. 1939 FÆÐiNGARSTAÐUR: ísafjörður HEiMiusFANG: Vesturgata 38 heimilishagir: Kvæntur Bryndísi Schram, fjögur börn áhugamál Pólitík laun: Ráðherrakaup ,,SJuskuð stjórnsýsla“ eftir Gunnar Smdro Egilsson myndir Jim Smart Stjórnarmyndunarviðræðurnar stóðu yfir í þó nokkrar vikur og eftir yfirlýs- ingum ykkar að dæma snerust þær að mestu um fyrstu aðgerðir. Niðurstaða ykkar um þær hafa síðan reynst ýmist gallaðar eða haldlitlar. Þið klikkuðuð á dagsetningum, gerðuð söluskattskerfið flóknara en nokkru sinni og nú nýlega gafst þú út yfirlýsingu um að ráðist yrði á fjárlagahallann á tveimur árum í stað þriggja eins og ákveðið hafði verið. Um hvað rædduð þið í raun í þessum stjórn- armyndunarviðræðum? Stjórnarinyndunarviðræðurnar voru óvenjuítarlegar. Þær voru skipulagðar, að minnsta kosti meðan ég hafði verkstjórn með hendi. Það var nauðsynlegt vegna þess að þessir flokkar höfðu ekki verið í kallfæri eða í málefnalegum viðræðum í afar langan tíma. Það er út í hött að þessar viðræður hafi bara snúist um fyrstu aðgerðir. Þær snerust um allt frá A til Z. Það gekk illa að ná samkomulagi um fyrstu aðgerðir. Af hvaða ástæðum sem það var, þá var mikil tregða hjá sjálfstæðismönn- um að horfast í augu við stærðargráðuna á ríkisbúskaparhallanum, afleiðingar hans og nauðsyn þess að afla tekna til þess að draga úr honum. Þar náðu menn samkomulagi um aðgerðir sem voru of litlar. Við lýstum því yfir, bæði við og framsóknarmenn, að þetta væri ekki nóg. En þlð hoppuðuð samt í ríkisstjórn? Heiðingjatrúboðið er af því tagi, að þú verður stundum að fara til Afríku ef þú ætlar að snúa heiðingjum. Þú breytir engu í land- búnaðarmálum með því að predika i Dag- blaðsstíl. Engu. Þú getur kannski breytt ein- hverju á nokkrum tíma hér í fjármálaráðu- neytinu. Bjargað því sem bjargað verður. Þú hefur þá gengið sem nokkurs kon- ar píslarvottur til skítverkanna í fjár- málaráðuneytinu, án fullnægjandi stjórnarsáttmála? Hvað er pólitík annað. Hún er út af fyrir sig ekki útnefning á píslarvottum. En þú ert stundum að vinna skítverk. Sá sem er ekki reiðubúinn til þess á ekkert erindi í pólitík. Það er eins og Truman gamli sagði: "If you can't stand the heat in the kitchen, get the hell out.” Ætlar þú að stokka upp söluskatts- kerfið fyrir áramót? Já. Það stendur skrifað og þar af leiðandi eru flokkarnir skuldbundnir til að standa að því. Söluskattur á öll matvæii? Það fullnægir ekkert söluskattskerfi þeim skilmálum að vera framkvæmanlegt, geta staðið undír eftirliti þar sem þú getur beitt viðurlögum, þar sem þú getur upprætt skatt- undandrátt, nema þú horfist í augu við þá staðreynd að þú verður að útrýma undan- þágum. Það er einhver vitlausasta aðgerð, dæmigerð delluaðgerð, sem gripið hefur verið til í efnahagspólitík, sú aðgerð ríkis- stjórnarinnar 78 að byrja feril sinn með því að auka undanþágur. Það var til þess að hygla hverjum? Aðallega innflytjendum og innleiða yfir okkur kerfi sem er ónothæft og fær sinn dóm í skattsvikaskýrslunni fyrir það að bjóða upp á skattundandrátt í stórum stíi. Þetta var gert í nafni umhyggju fyrir hinum minnimáttar í þjóðfélaginu. “Bullshit". En kórónið þið ekki vitleysuna með því að búa til þrefalt söluskattsuppgjör hjá kaupmanninum á horninu? Nei. Það má gagnrýna það að þú ert kom- inn með þrjú stig; 0,10% og 25%. Ég tek und- ir þá gagnrýni. En þetta var fyrsta skrefið í þá átt að fækka undanþágum. Aftur varð sam- komulag um að stíga ekki skrefið til fulls. Það hefði ég viljað gera strax í fyrsta áfanga. Ástæðan; rautt strik fyrsta október. Auðvitað hefur slík breyting á skattakerfinu verðlags- áhrif í fyrsta sinn. En það er ekki það sama og verðbólguáhrif. Því verðhækkun sem leiðir af svona aðgerð þarf ekki að vera verð- bólguhvetjandi. Ekki er heldur samstaða í ríkisstjórn- inni um Útvegsbankann. Tengist kauptil- boð þitt í Sambandshúsið við Sölvhóls- götu þessu máli? Viltu fá húsið gegn stuðningi við Sambandið í ríkisstjórn- inni? Nei. Viðskiptin eru ekki á þeiin grundveili. Er það tilviljun að þú dustar rykið af þessu tilboði beint ofan í tilboð Sam- bandsins í bankann? Það er nú ekki bein hending. Það hefur verið rætt hér í tengslum við fjárlagagerð að húsnæðismál stjórnarráðsins séu í klúðri. Alltof miklum peningum varið í leigu. Stofn- anir og ráðuneyti tvístruð hér og þar. Þannig að við höfum á undanförnum vikum verið að skoða lausnir. Rifjað upp gamlar tillögur og: skoðað aðrar. Þannig að um leið og þetta mál kom upp um söiu Utvegsbankabréfanna tili SÍS, þá færði ég það í tal við forstjóra Sam- bandsins og þeir staðfestu að væntaniega er áhugi á þessum viðskiptum. Stuttu áður en tilboð Sambandsins kom fram var haft eftir þér í blöðum að staða Útvegsbankans væri mun.verri en ætlað hafði verið. Það er því ljóst að rík- ið þarf að leggja eitthvað umtalsvert til bankans umfram það sem þegar hefur verið gert. Það er Ijóst að það var búið að setja upp einhverja stjórn yfir hlutabréfabanka, þrátt fyrir þá staðreynd að ríkið átti öll hlutabréf- in. Þar var starfað í þeim anda að lögin tryggðu hinum væntanlega hlutabréfabanka hreint borð. Hann þyrfti ekki að taka á sig neitt af þeim skuldum, glötuðu lánum og öðrum skuldbindingum sem gamli bankinn kynni að hafa lent í. Af einhverjum ástæðum hafði ríkið ekki sett sina hagsmunagæslu- menn í nefndina sem starfaði við að fara yfir þau mál og úrskuröa um endanlega niður- stöðu. Þannig að við nafnar settum sitthvorn manninn í það eftir stjórnarskiptin. Það er langt í það að því starfi sé lokið. Það er því út í hött að nefna nokkrar tölur. En það er ljóst að Hafskipsskatturinn verður umtalsverður þrátt fyrir söluna á bankanum. Það hefur alla tíð legið ljóst fyrir að fyrir utan yfirtökuna á skuldunum við Seðlabank- ánn upp á 764 milljónir króna, þá tekur ríkið á sig skuldbindingar vegna lífeyrissjóðs starfsmanna bankans, sem eru miklar, og síðan hefur verið spurningarmerki um upp- gjör á gamla bankanum. Mér er ekki kunn- ugt um að fjölmiðlar hafi haldið þeirri vitneskju á lofti. Þaö virðist vera einskonar leynimál hvað í því felst. Það er sem sagt ekki enn upplýst, en það er vitað að afleiðingarn- ar af hruni Hafskips og hruni Útvegsbankans eru orðnar ríkissjóði andskoti dýrar. Og það eru alls ekki öll kurl komin til grafar í því efni. Þess vegna, meðal annars, var það grjóthörð afstaða mín og viðskiptaráðherra að þennan banka bæri að selja og selja hæst- bjóðanda sem allra fyrst. Og uppræta þannig orsakirnar og grafast fyrir ræturnar á því pólitíska fyrirgreiðslukerfi sem er ein skýr- ingin af mörgum á því hvers vegna banka- kerfið hér stendur völtum fótum. Hæstbjóðanda segir þú. Vilt þú leysa Útvegsbankamálið með uppboði? Þetta er út af fyrir sig ekki uppboð. Þetta er auglýsing um sölu á bréfunum þar sem skilgreindir eru ákveðnir lágmarksskilmálar. Það hafa hins vegar borist tvö tilboð. Tilboð KR-hópsins sem ég kalla, Kristjáns Ragnars- sonar og co„ virðist vera ríkinu hagstæðara en SÍS-ara. Þá er á það að líta að KR-hópur- inn hefur ekki gert grein fyrir tryggingum. Með hvaða hætti verði gengið frá trygging- um frá þessum 33 aðilum. Við höfum óskað eftir því að þær upplýsingar liggi fyrir á föstudag. En það er ljóst að það er ekki hægt að taka afstöðu til tilboðs KR fyrr en það ligg- ur fyrir. Suniir eru þeirrar skoðunar að sá sem fyrstur kemur á vettvang og fer inn í verslun og segir; ég ætla að kaupa þetta og fullnægiur skilmálunum, eigi nokkurn rétt. Til dæmis þann rétt að ganga inn í kauptil- boð þess sem kemur á eftir. Það er niður- staða lögfræðinga að þetta sé ekki laga- skylda. Hvaða skoðun sem menn svo annars hafa á því. Hvað séu eðlilegar viðskipta- venjur. Ég er þeirrar skoðunar að sá sem fyrstur kom eigi siðferðislegan rétt á því. Það er iíka krafa á ríkið að hygla ekki aðilum með því að mismuna. Ef tilboðin eru de facto, jöfn, þá er til í dæminu að leysa ágreininginn með því að bjóða þeim upp á lokað samtíma tilboð, frekar en með einhverjum pólitískum fordómum. Eða bjóða þeim annan banka? Já, eða bjóða þeim annan banka í sam- ræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar. Hafið þið kannað sölu á Búnaðarbank- anum? Jájá. Hvað þarf til þess að svo verði? Ekkert nema samstöðu um það og lög um það. Síðan; næsti og versogú! Þannig að það má ailt eins búast við lokuðum samningaviðræðum þessara tveggja aðila og ríkisins þar sem rætt verður um sölu á einum eða fleiri ríkis- bönkum næstu tvær til þrjár vikur? Það er ekki víst að það taki neinar vikur. Mér finnst að það eigi að hraða þessu. Sérðu enga ógn af því að Sambandið, eins stórt og það er þegar orðið, leggi undir sig næststærsta bankann í ofaná- lag. Gefur þetta tilefni til þess að setja lög um hringamyndanir? Lestu Jónsbók. Það stendur þar; lög gegn einokunarfjármyndunum og hringamynd- un, lög gegn hagsmunaárekstrum. Er ekki fullseint að setja lögin þegar skaðinn er skeður? Sko. Við vorum ekki að fá fréttir af því í gær að SÍS væri fyrirtækjasamsteypa sem væri nokkuð stór. Mér skilst að hún velti meiru en íslenska ríkið. Það eru heldur ekki ný tíðindi að þeir séu öflugir í fjármálaheim- inum. Þeir eiga sinn banka, Samvinnubank- ann, sem er að vísu bara sparibaukur. Þeir stjórna iiinlánsdeildum kaupfélaga. Fróðlegt væri að vita hvað þeir vega þungt í viðskipt- um við Landsbankann. Ætli það séu ekki nokkurn veginn helmingaskipti þar. Þannig að málið snýst ekki um það á þessu stigi hvað þú ætlar að gera viö Sambandið. Ætlar þú að setja lög um að leysa það upp? Málið snýst um það að „rassjónaiísera" banka. Það leggur enginn fram fjármuni til þess að kaupa eitt stykki banka fyrir milljarð ef hann á ekki aur. Þú vilt setja lög um hringamyndanir? Jájá. Ef við gefum okkur að óskalögin þín giltu í dag. Gæti SÍS þá gert þetta tilboð vegna laganna? Við erum hér að tala um einn fimmta hluta af íslenska bankakerfinu. Við erum að tala um banka sem myndi fela í sér samruna fleiri og sem felur í sér að inn kemur erlendur banki.

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.