Helgarpósturinn - 20.08.1987, Page 8

Helgarpósturinn - 20.08.1987, Page 8
YFIRHEYRSLA frh. Banque Indosuez? Já, til dæmis hann eða einhver annar. Og er erlendi bankinn með stóran hlut? Lögin kveða á um að enginn aðili megi eiga meira en 25%. En það er mikið nauðsynjamál, að fá inn er- lent áhættufjármagn sem er í bissniss í stað þess að halda uppi þeirri svikamyllu sem innstreymi er- lends iánsfjármagns er mestanpart. Það hefur verið, beint eða óbeint, með ríkisábyrgðum. Afborgunar- vextir eru orðnir óbærilegir út- gjaldaliðir ríkisins. Erlent áhættu- fjármagn er betra en fé sem að ríkið tekur að láni og ráðstafar eins og sagan sýnir með miklum endemum í allra handa dellufjárfestingar, hverja á fætur annarri. Frá Kröflu til Sjóefnavinnslu. Þetta er nauðsyn- legt til þess að gefa þeim ríkisbönk- um sem eftir eru eitthvert aðhald. Til þess að hrista þá inn í tuttugustu og fyrstu öldina. Sjokkera þá. Að því er varðar svo fjármálastrúktúr í iandinu. Hver er munurinn á því að samsteypan SIS og samstarfsfyrir- tæki þess myndi samstöðu um að kaupa eitt stykki banka, eða að öfi- ugustu bankar og fyrirtæki einka- framtaksins hliðholl Sjálfstæðis- flokknum myndi samstöðu til að ráða einu stykki banka. Sáralítill munur. Sama tóbakið? Það eru þín orð, en ekki mín. En ég geri lítinn mun. Og þegar það liggur fyrir að þú ert búinn að end- urskipuleggja þetta bankakerfi þá er spurningin sú; eru hlutafjáreign og umráð yfir fjármagninu nægi- lega dreifð eins og við óskum eftir. Löggjafinn getur sett hvaða skilyrði sem hann vill í því efni. Flugstöðin. Sættir þú þig við skýringar byggingarnefndar- innar? Nei. Lánsfjárlög gerðu ráð fyrir fjárþörf, það er að segja hins ís- lenska aðila, á árinu 1987 upp á 520 milljónir króna, en ekki upp á 1,2 milljarða króna. Það var fallist á þessa beiðni upp á 520 milljónir. Nefndin áætlaði af sinni snilld að þetta fjármagn myndi duga svo hægt yrði að taka flugstöðina í notk- un í apríl. Síðan fara hlutirnir að ger- ast nokkuð hratt. Við endurmat rík- isfjármála á árinu 1987 í byrjun maí koma þær upplýsingar að viðbótar- fjárþörfin sé allt í einu komin upp í 700 milljónir. Þá var byggingar- nefndin komin í algjört greiðslu- þrot. Til þess að leysa málið var samþykkt á vegum fjármálaráðu- neytisins að hún fengi heimild til þess að'taka innlent lán að fjárhæð 480 milljónir til þess að ljúka greiðsl- um bindandi verksamninga. Þessar upplýsingar um aukna fjárþörf komu fjármálaráðuneyti og fjár- iaga- og hagsýslustofnun gersam- lega á óvart og í opna skjöldu. Við fjárlagagerð 1988 hafa verið lagðar fram beiðnir flugstöðvarinnar um viðbótarframkvæmdir upp á 250 milljónir. Þannig að frá aprílmánuði síðastliðnum hafa birst hér á borð- um þessa ráðuneytis beiðnir frá þessum aðila um aukafjármagn upp á 900 milljónir króna. Okkar at- hugasemdir eru þessar. Hvers vegna var ekki gerð grein fyrir við- bótarfjárþörf vegna verðlagsþróun- ar innanlands og gengisbreytingar á byggingartímanum á réttum tíma og til réttra aðila, en í tvígang hent fram tölum við uppgjör verksins? í annan stað; hvers vegna er það í sambandi við viðbótarverkefni, sem ákveðin eru af byggingarnefnd- inni, stækkun, breytingar sem metnar eru upp á 250 milljónir, „bara 250 milljónir”, eins og þeir segja svo smekklega. Hvernig stendur á því að það var ekki tryggt fjármagn til þeirra um leið og þetta var ákveðið? Voru það einhverjir aðilar sem tóku þær ákvarðanir sem eru ekki ábyrgir fyrir fjármál- um? í þriðja lagi; hvernig fór bygg- ingarnefndin að því að fjármagna alla þessa umframfjárþörf á sínum byggingartíma? Bara hömlulaus yf- irdráttur í banka? Var það Sparisjóð- urinn í Keflavík, eða hvað? Síðan er spurningin; það er ekki nóg að bara byggingarnefndin geri grein fyrir því að áætlunin fari 250 milljónir króna fram úr vegna einhverra aukaverkefna. Ég vil fá úttekt á því? Þess vegna skrifaði ég Ríkisendur- skoðun og bað um sérstaka rann- sókn á því hvernig staðið hefur ver- ið að þessum framkvæmdum. Það er ekkert launungarmál að þessir aðilar fóru fögrum orðum um það hversu áætlunin væri vönduð og traust og hvað það væri hægt að treysta því að þeir væru innan þess- ara marka. Svo kemur bara allt ann- að á daginn. Spurningin er; ég vil fá upplýsingar um það hvað af þessu má rekja til hönnunarmistaka? Ég get sagt þér frá því að ég kom fyrir kosningar í flugstöðina þegar verið var að vinna við loftræstikerfið. Mér var sýnd hrúgan af teikningunum sem lágu þar úti í horni. Ónýtar teikningar vegna loftræstikerfisins eins upp á tugi milljóna. Ónýtt. Vegna stjórnunarmistaka. Ég vil fá þetta allt á borðið. Þú ætlar að draga menn til ábyrgðar? Það er kominn tími til að menn beri einhverja ábyrgð í þessu kerfi. Ég er orðinn hundleiður á því að fá hér inn á mitt borð hverskyns beiðn- ir og erindi sem bera vott um svo sjúskuð vinnubrögð, að það nær ekki nokkurri átt. Hér koma menn dæmdir fyrir skattsvik og ætla að leggja það fyrir fjármálaráðherra út af einhverjum fordæmum, að þeim verði sleppt við greiðslum. Hér koma menn í löngum biðröðum og líta á það sem sjálfsagðan hlut að þeir fái aukafjárveitingar því að áætlanir staðist eða vegna þess ein- hver hafi ekki hugsað fyrir ein- hverju. Einhverja bölvaða vitleysu. Það er varla flutt inn það apparat að menn séu ekki komnir hér með ein- hver bréf og erindi um það að þeir eigi að fá undanþágu frá tollalögum. Eða að fjármálaráðherra kveði upp einhvern úrskurð um það í hvaða andskotans tollflokk einhver vara fer. Hver eru viðbrögð þín við þessu? Ég hef hér stimpil sem stendur á ,,NE1". Þessi erindi lýsa stjórnsýslu- hefð sem er svo sjúskuð að það er aldeilis með ólíkindum. Aldeilis með ólíkindum. Það er ekki nema von að opinber stjórnsýsla sé nokk- urs virt ef menn hafa vanið sig við það árum, ef ekki áratugum saman að öllu sé sópað undir teppið út af einhverjum pólitískum fordómum eða vildartengslum. Þú ætlar að nýta þér flugstöðv- armálið sem kennsludæmi í bar- áttu þinni við kerfið? Ég ætla ekki að nota það. Það er bara eitt af mörgum málum sem komu hér á borð. 1987 var kosningaár. Komu upphæðir aukaf járveitinga á því ári þér á óvart? Óvart? 560 milljónir króna! Sem hafði verið dælt út fyrir kosningar? Dælt út á fyrri hluta árs. Þetta er skrautlegur listi. Ég ætla ekkert að fullyrða um það hvort þetta sé ein- hver kosningatollur. Aukafjárveit- ingalisti var birtur á sínum tíma þannig að menn geta metið það hver og einn. En spurningin er sú; hvaða reglur eiga að gilda um þetta. Alþingi á að hafa fjárveitingavald. Jújú. Síðan kemur urmull af ríkis- stofnunum sem fer fram úr og fer ekkert eftir fjárveitingum og fær aukafjárveitingar. Var ekki verið að reka einhvern fræðslustjóra þarna fyrir norðan? Var honum ekki gefið þetta að sök? Þá ætti að reka menn í tonnatali. Reglan á að vera sú að hafi Aiþingi hafnað einhverju máli þá séu að sjálfsögðu ekki veittar aukafjárveitingar til þess, nema það sé réttlætt með áætlunarmistökum. Það fer náttúrulega allt sístemið úr böndunum ef hér verður dellu- makarínsverðbólga, eins og var hér fyrr á árum. Kannski er þetta ein af- leiðingin, eins og svo margt, margt annað í þessu sjúskaða stjórnkerfi, afleiðing af þessari delluverðbólgu sem færði hér allt úr skorðum og gerði þjóðfélagið vitlaust. Afsiðaði þjóðina í peningamál- um? Já. Afsiðaði þjóðina og síðan eru engar eðlilegar stjórnsýslureglur í heiðri hafðar. JÖN SIGURÐSSON BANKAMÁLARÁÐHERRA HEFUR LÍF STJÓRNARINNAR í HENDI SÉR FELLUR STJÖI ÚTVEGSBANI Slagurinn um Útvegsbankann snýst ekki bara um eign- arhald á bankastofnun og endurskipulagningu banka- kerfisins, heldur getur þetta mál ráðið úrslitum um áframhaldandi stjórnarsamstarf og pólitíska framtíð Þor- steins Pálssonar. Meðal stjórnmálamanna er staðhæft, að tilboð Sambandsins í Útvegsbankann eigi sér nokkurn aðdraganda, og ,,arkitektarnir“ séu Valur Arnþórsson stjórnarformaður SÍS og enginn annar en Jón Sigurðsson bankamálaráðherra. Þessu hefur Jón neitað, en hins vegar mun hann hafa innt forystumenn í atvinnulífi og fjármálaheimi eftir hugsanlegum áhuga þeirra á því að fjárfesta í Útvegs- bankanum. Þessar óformlegu ,,þreifingar“ hafa, að því er HP er kunnugt, ekki verið einskorðaðar við forystumenn SÍS, heldur einnig frammámenn í sjávarútvegi. Heimild- armenn Helgarpóstsins í forystuliði Alþýðuflokksins segja, að viðræður hafi farið fram á milli bankamálaráð- herra og Sambandsmanna, sem hafi snarlega boðið í Útvegsbankann og skotið þannig útvegsmönnum ref fyrir rass, sem nú er legið á hálsi fyrir að hafa sofnað á verðinum. PÓLITÍSKT TILRÆÐI VIÐ ÞORSTEIN Sjálfstæðismenn túlka þetta hins vegar sem pólitískt tilræði við Þor- stein Pálsson forsætisráðherra og formann Sjálfstæðisflokksins, og slík mun vera reiðin meðal forystu- manna Sjálfstæðisflokksins, að á þessari stundu segja þeir hiksta- laust, að gangi Jón Sigurðsson að til- boði Sambandsins sé ekki um ann- að að ræða fyrir sjálfstæðismenn en að ganga úr ríkisstjórninni. Fléttan gengur einfaldlega út á það, að skjóta ættarveldi Sjálfstæð- isflokksins ref fyrir rass, og um leið að rétta Þorsteini Pálssyni svo stór- an bita að honum verði ókleift að kyngja honum án þess að fá obbann af valdablokk sjálfstæðismanna á móti sér. Nái kratar og frammarar því í gegn, að Sambandið eignist Út- vegsbankann, stendur Þorsteinn Pálsson eftir sem veikur forystu- maður og um leið hefur Sjálfstæðis- flokkurinn verið felldur á klofbragði í fyrstu alvarlegu glímunni í þessari ungu ríkisstjórn. Þá hugsun geta forystumenn Sjálf- stæðisflokksins ekki hugsað til enda. í samtali við Helgarpóstinn vísaði Jón Sigurðsson bankamálaráðherra öllum samsæriskenningum á bug. Sem bankamálaráðherra vekti það eitt fyrir sér að selja banka og firra skattborgarana því að reiða fram hundruð milljóna vegna Hafskips- ævintýris Útvegsbankans. VILJA EKKI SJÁ SJÖSTJÖRNUNA, ARNARFLUG OG ÞVÍUMLÍKA Ýmsa kann að undra þessi skyndi- legi áhugi peningaaflanna í landinu á Útvegsbankanum, gjaldþrota banka, sem var óalandi og óferjandi fyrir nokkrum mánuðum. En skýr- ingin er einföld. Eftir að Útvegs- bankinn var gerður að hlutafélagi fylgdi með, að nýi bankinn byrjaði nánast með hreint borð. Meginverk- efni bankaráðs hins nýja hlutafé- lagsbanka hefur verið fólgið í því að losna við skuldugustu og verst stöddu viðskiptamenn og — fyrir- tæki bankans og troða þeim upp á ríkissjóð og um leið skattgreiðend- ur. Meðal þessara fyrirtækja má nefna Sjöstjörnuna og Arnarflug. Jón Baldvin Hannibalsson fjár- málaráðherra hefur látið hafa eftir sér, að tap Útvegsbankans sé mikl- um mun meira en látið hafi verið í veðri vaka. Ekki hefur ráðherra vilj- að gefa upp tölur í þessu sambandi. Hins vegar hefur hann skipað Sig- urð Þórðarson skrifstofustjóra í fjár- málaráðuneytinu í eftirlitshlutverk með bankaráðinu og afskriftum þess ásamt með fulltrúa, sem við- skiptaráðherra hefur skipað. Samkvæmt heimildum Helgar- póstsins nemur tap hins gamla Út- vegsbanka a.m.k. um einum og hálfum milljarði króna. Þar er tapið vegna Hafskips stærst, þá koma af- skriftir á skuldum ótal fyrirtækja, sem voru í viðskiptum við „gamla” Útvegsbankann og loks nema lífeyr- isskuldbindingar bankans nálægt fjögur hundruð milljónum króna. Eins og menn rekur e.t.v. minni til var gerð krafa um það á Alþingi á sínum tíma, að Útvegsbankinn yrði gerður upp eins og hvert annað gjaldþrota fyrirtæki. Af því varð ekki og töldu gagnrýnendur máls- ins ástæðuna vera þá, að pólitísk öfl vildu koma í veg fyrir, að „orma- gryfjan" yrði opnuð. Þá kæmi í ljós hin óopinbera flokkspólitíska spill- ing, sem viðgengst hjá ríkisbönkun- um. Ef til vill breytir tilkoma eftirlits- manna fjármálaráðherra og banka- málaráðherra við uppgjör á við- skiptamönnum bankans einhverju þar um? Samkvæmt áliti Stefáns Más Stefánssonar lagaprófessors mun viðskiptaráðherra vera stætl á því að taka hvoru tilboðinu sem er, til- boði Sambandsins eða KR-inganna, eins og aðiljarnir 33, sem boðið hafa í Útvegsbankann líka, eru kallaðir. VALUR VANN KR- INGANA 1-0 ~ ÞVÍ VERÐUR EKKI BREYTT Stefán tekur í áliti sínu ekki af- stöðu til siðferðislegs réttar Sam- bandsmanna, en flestir óvilhallir viðmælendur blaðsins telja, að Jón Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins fórnar- lamb deilunnar um Útvegsbankann. Verður þetta pólitíska vandamál leyst með sölu Búnaðarbankans? Mikil ólga meðal sjálfstæðismanna. 8 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.