Helgarpósturinn - 20.08.1987, Síða 9

Helgarpósturinn - 20.08.1987, Síða 9
EFRIR HALLDÓR HALLDÓRSSON MYNDIR JIM SMART ININ VEGNA (AMÁLSINS? STAÐA ÞORSTEINS PÁLSSONAR FORSÆTISRÁÐHERRA VÆGAST SAGT HÆTTULEG MIKIL REIÐI Á MEÐAL SJÁLF- STÆÐISMANNA JÓN SIGURÐSSON VÍSAR ÖLLUM SAM- SÆRISKENNINGUM Á BUG „KR-INGARNIR" ERU BÚNIR AÐTAPA 1-OSEGJA FRAMSÓKNARMENN TILBOÐ KR-ING- ANNA FULLNÆGIR EKKI KRÖFUM KAUPI RÍKIÐ HÚSA- KOST SAMBANDSINS BYGGIR SÍS UTAN REYKJAVÍKUR OG UM LEIÐ MISSIR BORGIN TUGMILLJÓNIR í AÐSTÖÐUGJÖLD LAUSN MÁLSINS LANGT UNDAN Sigurðsson sé siðferðislega skuld- bundinn SÍS nema þá, að hann finni lausn á þessu erfiða pólitíska hita- máli. Á þetta geta Sambandsmenn ekki fallizt, eins og fram kemur í viðtal- inu við Val Arnþórsson hér á síð- unni. Valur segir fullum fetum: Við erum búnir að kaupa bankann, punktur, basta. Og hann segir, að málið sé jafneinfalt og úrslit í knatt- spyrnuleik, þar sem t.d. KR og Valur áttust við. Valur hafi einfaldlega skorað eina mark leiksins og þannig unnið KR 1-0. Nú vilji menn í sjávarútvegi og ættarveldið í Sjálfstæðisflokknum ógilda leikinn og byrja hann upp á nýtt. Afstaða sjálfstæðismanna gegn kaupum SÍS ræðst einfaldlega af því, að þeir geta ekki hugsað sér, að Sambandsmenn nái Útvegsbankan- um undir sig, auk þess, sem þeir hafi ávallt ætlað sér að kaupa bankann. í raun má segja, að sleðagangur þessara afla hafi komið Þorsteini Pálssyni í óþolandi aðstöðu. Þeir sem hafa Iausn þessa máls í hendi sér eru alþýðuflokksmenn og samkvæmt heimildum Helgarpósts- ins munu kratar vera veikir fyrir því að selja SÍS Útvegsbankann. Þeir líta jafnframt svo á, að án samkomu- lags milli framsóknarmanna og sjálfstæðismanna í ríkisstjórn séu þeir samkvæmt skilmálum sölu á bankanum skuldbundnir til þess að selja SÍS bankann. TILBOÐ SÍS BETRA — LAUSIR ENDAR HJÁ HINUM Þeir benda á það, að SÍS hafi gert bindandi tilboð, fullnægt öllum skil- málum og um leið hafi bankinn horfið af sölulista. Þá benda þeir jafnframt á, að KR-ingarnir hafi, að þessu slepptu, ekki fullnægt öllum skilmálum, m.a. hafi ekki verið gerð nægileg grein fyrir veðum. Og þeir láta það fylgja með, eins og fram- sóknarmenn, að tilboð KR-inganna sé ekki tilboð útvegsmanna. Þarna séu í meirihluta valdamenn í Sjálf- stæðisflokknum, hluti ættarveldis- ins, og útvegsmenn séu ekki nema um 40% tilbjóðenda í 33-manna púllíunni. Rétt er að fram komi hér, að strax eftir að KR-tilboðið kom fram, höfðu SÍS-menn samband og buðu munnlega í jafnmikið og hinir fyrr- nefndu, en SlS-tilboðið var upphaf- lega í 67%. Sumir viðmælenda Helgarpósts- ins vildu halda því fram, að með þessari munnlegu breytingu á til- boðinu hefðu hið fyrra fallið úr gildi og þar með stæðu SÍS og KR jafnfæt- is. Fæstir fallast á þessa röksemd. Hér hefur verið lýst þeim hnút, sem málið er í. En hvaða lausnir eru til? 1. SÍS kaupi Útvegsbankann. 2. KR-ingarnir kaupi Útvegsbank- ann. 3. Þessir tveir aðiljar skipti á milli sín fölum hlutabréfum. 4. SÍS-arar fallist á, að KR-ingarnir fái Útvegsbankann, en í staðinn fái þeir Búnaðarbankann. Til þess þyrfti lagabreytingar og gera verður ráð fyrir því, að meirihluti náist með breytingu Búnaðarbankans í hlutafélags- banka. í fyrrahaust stóðu fram- sóknarmenn á móti því, en af- staða þeirra breytist örugglega, þegar um er að tefla hagsmuni Sambandsins. Hins vegar sjá menn alls kyns meinbugi á þessari leið, því bæði taki hún langan tíma og að auki skapist tæknileg og erfið vandamál vegna hinna ýmsu sjóða landbúnað- arins, sem séu í vörzlu Búnaðar- bankans. SÍS-urum lízt a.m.k. afar illa á þessa ,,lausn“. MÁLIÐ MUN DRAGAST Á LANGINN Ekki má skilja svo við þetta mál, að ekki sé minnzt á áhuga ríkisins á húsakosti Sambandsins við Sölv- hólsgötu. Lengi hefur verið áhugi fyrir því, að kaupa þetta húsnæði undir þétt setið stjórnarráðið. Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráð- herra hefur gert tilboð, en það mun vera langt frá þeirri upphæð, sem Sambandsmenn geta sætt sig við. Söluverðið, sem þeir eru að hugsa um, er nálægt 300 milljónum króna, en tilboð fjármálaráðherra er fjarri þeirri upphæð. Þessi hugsanlegu húsakaup gætu samt haft sitt að segja í máli þessu öllu. Þess má geta að Sambandið hefur um alllanga hríð verið með i athug- un kaup á lóð undir nýja skrifstofu- byggingu með stórri lóð og nægu plássi fyrir bílastæði. Allt bendir til þess, að af þessari byggingu verði fyrr en síðar, og jafnframt, að höfuð- stöðvar SÍS flytjist úr höfuðborginni og hafa þá menn t.d. í huga bæjarfé- lögin í grennd við Reykjavík. Ef af yrði myndi Reykjavikurborg missa vænan spón úr aski sínum vegna missis á aðstöðugjöldum. Um miðjan dag í gær, miðviku- dag, var fyrirhugaður fundur þeirra Vals Arnþórssonar og Jóns Sigurðs- sonar, en ekki var gert ráð fyrir að lausn málsins lægi fyrir að loknum þeim fundi né heldur fundi ráð- herranefndarinnar strax á eftir, en í henni eru ásamt Jóni Sigurðssyni þeir Þorsteinn Pálsson og Stein- grímur Hermannsson. Eins og mál standa, þegar þetta er ritað, má telja víst að reynt verði til þrautar að finna sáttaleið, sem endi með þeim farsæla hætti, að hvorir tveggja, Útvegsbankinn og Búnað- arbankinn, losni úr höndum ríkisins og samvinnuhreyfingin og einka- framtakið kaupi þá. Ef þetta verður er jafnframt líkleg- ast, að bönkunum verði hrókerað: SÍS taki Búnaðarbankann, en KR- ingarnir Útvegsbankann. Jón Sigurðsson bankamálaráðherra: Hann hefur í hendi sér niðurstöðu deilunn- ar um sölu Útvegsbankans — og hugsanlega framtíð ríkisstjórnar Þorsteins Páls- sonar. Valur Arnþórsson stjórnarformaður SÍS: Ráðherra ber að taka tilboði Sam bandsins. Honum líst illa á pólitískar hrókeringar með Útvegsbanka og Bún- aðarbanka. ÆTTARVELDIN TRYLL- AST EF HRÖFLAÐ ER VIÐ VELDI ÞEIRRA SEGIR VALUR ARNÞÓRSSON, STJÓRNARFORMAÐUR SÍS „Við gerðum tilboð að öllu leyti í samræmi við skilmála ríkisins og tilboð okkar var meinbugalaust. Ég lít svo á, að við séum búnir að gera kaup á grundvelli útboðsins, sem ríkið lét frá sér fara,“ sagði Valur Arnþórsson stjórnarformað- ur SÍS í samtali við Helgarpóstinn í gær. Valur var spurður hvort ekki væri kominn meinbugur á tilboðið eftir að gert var munnlegt tilboð í jafnstóran hlut og hinir svokölluðu „KRingar" höfðu boðið í. „Nei, ráðherra hefur skilið það svo, að við værum að lýsa yfir vilja okkar í þessa veruna. Ég hef sjálf- ur ekki staðið frammi fyrir þessari spurningu, en ég geri ráð fyrir, að hún komi upp á fundi mínum með ráðherra í dag (miðvikudag). Ef ég tel skynsamlegt að bjóða í 76% eins og hinir, þá geri ég ráð fyrir því að fá umboð Sambandsstjórn- ar til að gera það tiltölulega fljótt," sagði Valur. Um tilboðsmálin sagði Valur: „Þessi hlutabréf voru ekki á uppboði, heldur í útboði á ákveðnu verði samkvæmt ákveðnum skilmálum og við kaupum á grundvelli þess. Þannig að jietta mál liggur í augum uppi. Það sem þessir hinir menn eru að gera með sínu tilboði finnst mér vera langt fyrir neðan þeirra virð- ingu, þótt ég beri á minn hátt virð- ingu fyrir þeim. Þeir haga sér eins og menn, sem missa af strætis- vagni. Þeir hlaupa hann uppi, ryðja fólki úr sætum og segja: Þú borgaðir ekki nema fimm krónur, ég ætla að borga meira! Málið er, að það er fastur taxti með strætis- vagni og sama gildir um þessi hlutabréf," sagði Valur Arnþórs- son. „Við getum tekið aðra líkingu. KR, eins og þessi hópur hefur ver- ið kallaður, getur ekki haldið áfram að leika leik gegn Val eftir að búið er að flauta til leiksloka og Valur hefur unnið leikinn 1-0. Ég held, að þessir „KR-ingar“ hljóti að átta sig á þessum leikreglum," sagði Valur. Um þá hugmynd, að SÍS keypti Búnaðarbankann og einstakling- arnir og fyrirtækin 33 Útvegs- bankann sagði Valur, að það hefði ekki verið á dagskrá hjá ríkisvald- inu að selja Búnaðarbankann, sjóðakerfi landbúnaðar þyrfti helzt að vera í ríkisbanka, ekki sízt á slíkum breytingatímum í land- búnaði, eins og nú ganga yfir, þannig að þetta gæti orðið erfitt mál. „Ég tel það svo langsótt að ætla að draga Búnaðarbankann inn í þetta dæmi, að ég tel það nánast fráleitt “ sagði Valur. „Framsókn- arflokkurinn var andvígur því að gera Búnaðarbankann að hlutafé- lagsbanka og ég tel það afar ósennilegt að þingflokkur Fram- sóknarflokksins sé reiðubúinn að breyta þeirri afstöðu," sagði Valur Arnþórsson. Hann kvaðst hafa orðið var við mikinn stuðning almennings við tilboð SÍS og jafnframt hneykslan fólks á framferði „hinna". „Fólki finnst þetta ekki þessum mönnum sæmandi. Þar að auki sjá allir, að þetta er ekki endilega sjáv- arútvegur, sem er að kaupa Út- vegsbankann með þessu móti. Þegar litið er á listann yfir þá sem leggja fram fé kemur í ljós að þeir sem tengdir eru sjávarútvegi eru með um 300 milljónir af 760 milljónum," sagði Valur. „Þeir sem standa að þessu eru náttúrlega þessar fjársterku fjölskyldur og ættir, sem standa á bakvið Eim- skip, Flugleiðir, H.Ben Co. og Shell. Það eru þær, s< i eru að kaupa þetta. Þannig a< ið liggur í augum uppi, að það er ekki verið að gera þett a að almennings- banka eða sjávarútvegsbanka. Það er verið að tryggja áframhald- andi stöðu nokkurra ættarvelda, sem ætla alveg að tryllast ef hrófl- að er við þeirra ríki. Það er nú þetta, sem blasir við í þessu máli,“ sagði Valur Arnþórsson stjórnar- formaður Sambands íslenzkra samvinnufélaga. HELGARPÓSTURINN 9

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.