Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 20.08.1987, Qupperneq 14

Helgarpósturinn - 20.08.1987, Qupperneq 14
Það ákveður enginn hvernig aðrir eiga að vera segir Unnur Arngrímsdóttir, stofnandi og stjórnandi Módelsamtakanna, sem eiga 20 ára afmœli. „Þegar ég var ung stúlka þjáðist ég af minnimáttar- kennd. Mér fannst ég bæði ljdt og alltof stór. Ég ætlaði mér aldrei að verða neitt annað en húsmóðir og hugsa um börnin mín.“ Þetta sagði Unnur Arngrímsdótt- ir, stjórnandi og stofnandi Módel- samtakanna, í samtali við HP, en Módelsamtökin eiga tuttugu ára starfsafmæli á þessu ári, og er Unn- ur því elsti stjórnandi sýninga hér á landi, sem er enn við störf. AÐ YFIRSTÍGA MINNI- MÁTTARKENNDINA „Þegar maðurinn minn byrjaði með dansskóla sinn, Dansskóla Her- manns Ragnars, árið 1958, starfaði ég sem aðstoðardanskennari hjá honum. Hann hvatti mig til að taka próf í danskennslu, en ég hafði eng- an innri kjark í það og treysti mér engan veginn til þess. Meðan við dvöldum í Bandaríkjunum hafði ég kynnst fólki sem rak „módelskóla" og fékk að vera viðstödd nokkrar kennslustundir. Þá hvarflaði að mér að kannski væri þetta eitthvað sem ég ætti að gera líka, þegar ég sá kon- ur á sama aldri og ég öðlast þetta innra öryggi sem er öllum nauðsyn- legt. Síðan gerðist það að Sigríður Gunnarsdóttir stofnaði Tískuskól- ann og hélt námskeið. Hermann þekkti Sigríði gegnum störf hjá Æskulýðsráði, hringdi til hennar og skráði mig á síðdegisnámskeið. Ég var lítið hrifin af þessu uppátæki og var harðákveðin í að fara ekki. Her- mann hlustaði ekkert á þessar mót- bárur, ók mér í skólann og sagðist sækja mig eftir tvær klukkustundir. Þegar ég kom inn sá ég að þarna voru margar konur á sama aldri og ég, konur sem ég kannaðist við. Þá sá ég að ég var ekkert verri í útliti eða vaxtarlagi en þær. Þarna var kennd ganga, snyrting og fleira og þetta námskeið varð til þess að ég yfirsteig þessa minnimáttarkennd mína. Það hafði verið gífurlega erfitt að lifa öll unglingsárin með þessa minnimáttarkennd og upp- götva ekki fyrr en á fertugsaldri að í rauninni var ég ekkert hræðilegri en aðrar konur! Ári síðar dreif ég mig til Kaupmannahafnar og lauk danskennaraprófi og fór að kenna RANGT: Pálína og Ólafur hittast á dansleik. Sjón sem þessi er alltof algeng: Þau eru hengilmænuleg, Ólafur blæs sígarettureyknum framan í Pálínu og hangir á henni. Pálína er svosem ekkert dömuleg heldur, eða hvað finnst ykkur? Ólafur nennir ekki einu sinni að hneppa að sér jakkanum og kvöldið er rétt að byrja. sjálf dans. Upp úr því stofnaði ég „Snyrti-og tískuskólann" en þegar Pálína Jónmundsdóttir kom til starfa með mér breyttum við nafn- inu yfir í „Módelsamtökin". AÐ ÞEKKJA GRUNNREGLURNAR „Módelsamtökin" skiptast í raun- inni í tvær deildir, ef svo má kalla það, umboðsskrifstofu fyrir „módel- vinnu", þ.e. tískusýningar og myndatökur annars vegar og nám- skeiðahald yfir vetrarmánuðina hins vegar. Á námskeiðunum er til dæmis kennd snyrting, og þá er ekki aðeins átt við andlitssnyrtingu, heldur snyrtingu líkamans almennt. Við leggjum mikla áherslu á fram- komuþætti og kurteisi ásamt mann- legum samskiptum til að auðvelda fólki umgengni við aðra. Kröfurnar í dag eru orðnar miklar, ekki aðeins til sýningarfólks, heldur allra, sama hvaða starfi þeir gegna. Það veitir því innra öryggi að þekkja grunn- reglurnar, og það fæðist enginn með kunnáttuna, við verðum að læra af öðrum. Ég veit það af eigin reynslu hvað það er að fara í gegn- um lífið full af minnimáttarkennd, finnast allir horfa á mann vegna þess að maður sé svona eða hinseg- in. Mér finnst ég hafa þörf fyrir að miðla af minni reynslu og þekkingu til annarra því ég veit að það eru margir eins og ég var á sínum tíma, fullir af óöryggi." Unnur segist breyta námskeiða- haldinu hjá sér eftir því sem þörf er á, því kröfurnar breytist sífellt: „Það þarf að heimfæra allt yfir á nútím- ann,“ segir hún. Eitt af því sem teng- ist nútímanum er litgreiningin, sem svo mjög er að ryðja sér til rúms í heiminum. Unnur segist ekki ætla að verða eftirbátur annarra í þeim efnum og hefur ráðið til sín stúlku, Helgu Nínu, sem búsett hefur verið í Bandaríkjunum um margra ára skeið. „Litgreiningin sem hún mun sjá um er námsgrein sem er m.a. kennd í sálarfræði við háskólann í RÉTT: Þetta erólíkt fallegra á að líta. Þau bera sig vel, eru bein í baki og passa fóta- burðinn. Hér er Ólafur með jakkann aðhnepptan, enda ballið rétt að byrja. EFTIR ÖNNU KRISTINE MAGNÚSDÓTTUR MYNDIR JIM SMART ÞAÐ HLEYPUR ENGIN BRÚÐUR INN KIRKJUGOLFIÐ! Við ræðum um kennslu í göngu og hvort þörf sé á að kenna fólki að ganga. Unnur svarar þeirri spurn- ingu brosandi: „Það segir enginn RÉTT: Það sýnir sig á þessari mynd hversu miklu fallegra það er að sitja rétt. Pálina krossleggur fótleggina og fætur vísa í sömu átt. öðrum hvernig viðkomandi á að vera. Það verður hver og einn að finna hjá sjálfum sér hvað er honum eðlilegast. Þegar við hins vegar töl- um um að „kenna að ganga" er ver- ið að ræða um að brúður í síðum brúðarkjól hteypur ekki eða strunsar inn kirkjugólfið. Hún tekur eðlilega smá skref. Það sama gildir þegar konur eru í síðum samkvæm- iskjólum. Það færi nú mesti glans- inn af þeim ef þær ætluðu að klofa í slíkum kjólum! Ef konur eru hins vegar á gönguskóm og gallabuxum úti í náttúrunni, þá auðvitað ganga þær eins og þeim finnst eðlilegast og þægilegast. Þetta eru kannski helstu punktarnir," segir hún og sýn- ir mér hvernig mismunandi göngu- lag virkar. Hún bendir líka á að auð- vitað fari eftir klæðaburði hvernig fólk situr. „Stúlka í stuttu pilsi á til dajmis ekki að sitja svona," segir hún og sest klofvega á stól. „Það er í rauninni ekkert verið að kenna fólki neitt, bara verið að benda á hvað er fallegt og hvað ekki. Auð- vitað vilja allir að eftir þeim sé tekið fremur fyrir það hvað þeir bera sig vel heldur en hvað þeir hafa hræði- legt göngulag! Það hlýtur að segja sig sjálft." Hún bætir við í þessu sambandi að það sé líkt með kennslu í göngu og svo margt annað að enginn segir öðrum fyrir verkum: „Það fer til dæmis enginn í ákveðna flík vegna þess að mér þykir hún falleg heldur aðeins ef viðkomandi finnst sjálfum flíkin klæða sig. Svo má líka benda á að ýmislegt sem við gerum dags daglega, eins og bara það að fá okk- ur sæti, er beinlínis rangt heilsufars- lega séð, til dæmis hvernig á að sitja Kaliforníu," segir Unnur. „Þótt ég hafi ekki kynnt mér litgreiningu sjálf held ég að það sé námsgrein sem þarf að vanda sig við. Það þarf að gefa hverri manneskju fyrir sig persónulega litgreiningu og ég tel að ekki megi ana að slíkum hlut- um.“ RANGT: Ekki tók betra við eftir að þau færðu sig í sæti. Ólafur gat ekki fundið sér betri stellingu en að hanga á öxlinni á Pálinu sem situr klofvega þrátt fyrir að hún sé í pilsi. Svo gat hún heldur ekki stillt sig um að fara úr öðrum skónum og þótt henni hafi fundist Ólafur svona leiðinlegur var óþarfi að gefa það til kynna með því að hafa hendur undir kinn! 14 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.