Helgarpósturinn - 20.08.1987, Side 37
IN MRAFN
guð vors lands, sem líkt og Geysir er
friðaður með lögum. Þetta gerði
Hrafn ekki bara einu sinni, heldur
tvisvar! Áhorfendum, sem sumir
hverjir náðu ekki upp í nef sér fyrir
hneykslun, var gerður sá óleikur að
þurfa að hlýða á djassaða útgáfu af
þjóðsöngnum. Þó keyrði um þver-
bak þegar pönkhljómsveitin
Fræbbblarnir var látin leika rokkút-
setningu af hinu elskaða lagi. . .
AF SPRENGISANDI
Líklega er Hrafninn flýgur sú
kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar
sem minnst hefur náð að hneyksla
landann. Við látum ósagt um hvort
það sé ástæðan fyrir því að hún er
um leið vinsælasta hreyfimynd lista-
mannsins. Þó voru einhverjir sem
tóku það óstinnt upp að Hrafn
skyldi leyfa einhverjum Skandínava
að taka traustataki hið hjartfólgna
lag Kaldalóns, Á Sprengisandi, stíl-
færa það og setja síðan undir sitt
skandínavíska nafn. Hreinstefnu-
mönnum þótti Hrafn líka fara ansi
frjálslega með fornsögurnar, en
samt — ánægjan var hérumbil
almenn . . .
AF REYKJAVÍK
Skólafélagi Hrafns, Davíð Odds-
son, bað hann gera fyrir sig mynd
um höfuðborg vora, Reykjavík, í til-
efni af 200 ára afmælinu í fyrra.
Hrafn brást vel við bóninni —
vinstrimönnum plús andstæðingum
Hrafns og andstæðingum Davíðs
þótti hins vegar helsti mikið hlaðið
undir borgarstjórann í myndinni.
Annars fékk hún víðast tvær stjörn-
ur hjá gagnrýnendum ...
AF BÖÐLUM OG
SKÆKJUM
Sjónvarpsmyndin Bödullinn og
skœkjan fékk lofsamleg ummæli í
Svíþjóð, en íslendingar voru á báð-
um áttum. Enn var mannlífið hvorki
blómlegt né gróandi, heldur þvæld-
ust þar í belg og biðu svíramiklir og
sveittir böðlar og ókræsilegar port-
konur. Fyrir utan fallega tánings-
stúlku sem fór úr fötunum. Og auð-
vitað voru hausar látnir fjúka! Það
gerðu líka lesendabréfin.
AF KRUMMUM
Þótt kvikmyndin /skugga hrafns-
ins sé enn í vinnslu er þar af nógu að
taka. Dýraverndunarsinnar ráku
Hrafninn flýgur; ein hneykslunar-
minnsta mynd Hrafns, en ...
upp ramakvein þegar spurðist út að
örmagna hrafnar hefðu drukknað
unnvörpum þegar Hrafn sleppti
þeim frá skipsborði og ætlaði þeim
af eigin rammleik að fljúga í land.
Hrafn hafði sankað að sér stórum
hluta af íslenska hrafnastofninum —
en þeir sem mættu bana sínum á
þennan hátt voru þó eitthvað færri
en fyrstu skýrslur sögðu til um . . .
AF HESTAATI
Enn hrelldi Hrafn náttúru- og
dýraverndunarsinna þegar hann
efndi til hestaats á klettasyllu við
Gullfoss. Tröllasögurnar sem spunn-
ust um þennan atburð urðu síðdeg-
isblaði í Reykjavík tilefni til forsíðu-
uppsláttar þrjá daga í röð. Gúrkutíð-
in var ekki gúrkutíð lengur. Kver-
úlantar munduðu stílvopn sín. Vildi
Hrafn hrossin feig, eða ekki? Ætlaði
hann að eyðileggja hinn tignarlega
foss? Og voru ekki nokkrir ástsæl-
ustu leikarar þjóðarinnar í bráðri
lífshættu vegna þessa uppátækis?
AFSEL
Hrafn Gunnlaugsson festi sig í
sessi sem erkióvinur dýraverndun-
armanna þegar fréttist í síðustu viku
að hann hefði tekið upp á því að
farga þrjátíu selum í þágu listarinn-
ar en ekki í þágu hringormanefnd-
ar. Hrafn átti að hafa raðað sels-
kjömmum á borð og kvikmyndað.
En eins og svo iðulega þegar Hrafn
á í hlut var ýmislegt ýkt í þessari for-
kostulegu sögu. Sjálfur sagði Hrafn
að einungis þremur selum hefði ver-
ið fargað og það að viðstöddum
dýralækni.
Kannski hefur eitthvað gleymst í
þessari yfirborðslegu upptalningu.
Við höfum til dæmis ekkert minnst
á þau verk Hrafns sem engan hafa
hneykslað svo sem sjónvarpsmynd-
ina Lilju, sem hann gerði eftir sögu
Halldórs Laxness. Og maður getur
líka spurt: Hvað hefði þessi hnípna
þjóð um að tala ef ekki væru til
menn eins og Hrafn Gunnlaugsson?
Eða hvað orti ekki hagyrðingur
Helgarpóstsins um Hrafn Gunn-
laugsson:
Hestar áttu í ati,
allt var það í plati.
Góðar eru gúrkur,
Hrafn Gunnlaugsson er skúrkur.
Böðullinn og skaekjan; hvorki blómlegt
mannlíf né fagurt.
MORK SAMKV CJÓOCAROSIOOUM
Ánlngaataður haataaar
_2 Sk&garh61ua_. ^
>atan Alaannagjái
iwo ica aeð
i uppbygqingu.
jNuvarandi
.t Jaldavaðl
tjónar pjóðgarðageati
að aunnan og auatan.
valðl og tjaldavaðua
PlNGVALIA VA TN
Suaaihðaabyggð
Mörk & áhritaavcði Þjóðqarðai — I - t* / • ' - /? ,í“ 2
O Innan Þessa sveðis hefur Þingva 1 lanefnd C~jí |*•< . ' (}•■ - - 'SMalkiUr ” ,
9 f (h-iutiinarrótt ua hvaðetna ser varðar r* • ■ • - • - ' - "
’iS-œ;....... / •-.■■■• •\a:'v SBU’ •/
nreytt lega glröingar . veiituram k..a ■ ..yygC/r - / r V'" •' 7 ~"-V-IX'^ f . > ■
i iii iii------------ r ' |Y i ■) r ni v • •/ « />' ■■' p/
treð.lu og Þ)ón,..luaið.töð X ' / * ' W \ » V / f- /S
iyrir p jóðgarðageai i >—?>••/*';• •)■'-/ Huv.randl „•,/’/ /
•J , yr si - \ \ V (..,// - 9irðing /W.- /, Kált'stWl
$ • -• - /íu ■ ((//% /gr ■ wv., r
fs3^v<. kfit,h»íiMí.U{: 'kfai ffi 2
t \>C - ; /
ct" '7
«* u " *N //
y \ yw. *
v \Ý pr)ór uaraðutillögur að aarkalim
' l / */\
^.P..í.. •
: óhrifaavaði pjóðgarðsins.
BKVRINGAR :
IOGSACA ÞJÓOCAROSINS
LOGSACA ÞJÓOGAROSINS. 3 TILL
CI2
ENN AF NÝJUM HUGMYNDUM ÞINGVALLANEFNDAR
ALMENNINGUR FÆRÐUR
UPP FYRIR ALMANNAGJÁ
ÞINGVALLANEFND HEFUR OPINBERAÐ TILLÖGUR SÍNAR ÞJÓNUSTA FLUTT Á
SVÆÐI „SEM HEFUR EKKI AÐDRÁTTARAFL" ALÞINGI FÆR HÚS OG KIRKJAN
LÍKA VALHÖLL RIFIN FYRIR ALDAMÓT
Fyrir viku greindi Helgarpóstur-
inn, fyrstur fjölmibla, frá nýjum til-
lögum sem Þingvallanefnd, ásamt
arkítektunum Einari Sœmundsen
og Reyni Vilhjálmssyni, hefur
unnib um framtídarskipulag þjób-
gardsins á Þingvöllum. Við sögð-
um einnig frá því ab tillögur þess-
aryrdu lagbar fram einhvern tíma
á nœstunni. Nú hafa Helgarpóst-
inum borist drög ab skipulagi
Þingvalla auk greinargerbar sem
þeim fylgir, og eru þessi plögg und-
irrituð af arkitektunum tveimur
og Þingvallanefnd; Þorsteini Páls-
syni forsœtisrábherra, Hjörleifi
Guttormssyni alþingismanni og
Þórarni Sigurjónssyni, fyrrum al-
þingismanni. I greinargerbinni er
séra Heimi Steinssyni, Þingvalla-
presti og þjóbgarbsverbi, sérstak-
lega þakkab hans framlag til
skipulagsvinnunnar, og er þab
ekki ab ófyrirsynju, því óhœtt er
ab álíta ab séra Heimir sé helstur
hugmyndafrœbingur þessara nýju
skipulagstillagna. Hinar nýju
skipulagstillögur eru ekki síbasta
orbib um framtíbarskipulag Þing-
valla, heldur eru þœr lagðar fram
til umsagnar og umrœbu, en gert
er ráb fyrir því að endanlegt skipu-
lag muni liggja fyrir síbar á árinu.
FRAMKVÆMDIR FYRIR
ÁRIÐ 2000
Af skipulagstillögum þessum
má ráða að allt það sem sagt var í
umfjöllun Helgarpóstsins kemur
heim og saman. Helstur aflvaki
Þingvallanefndar er kristnitöku-
afmælið, sem haldið verður á
Þingvöllum eftir rúman áratug.
Ekki eru neinar ákveðnar tíma-
setningar í tillögunum, en sagt að
Alþingi og Þjóðkirkjan hafi áhuga
á að sýna Þingvöllum sóma áður
en kemur að þessum tímamótum.
Þeim áhuga og athöfnum þurfi að
finna farveg í skipulagi, þannig að
gætt sé heildstæðra sjónarmiða
um verndun Þingvalla.
Því er ekki ofætlað að flest það
sem stendur í tillögum Þingvalla-
nefndar eigi að vera komið í fram-
kvæmd fyrir árið 2000.
Meginstefnan í tillögunum er sú
að beina umferð úr sjálfum sig-
dalnum og þinghelginni. Þannig
er lagt til að öll meiriháttar starf-
semi sem laðar að bílamergð og
manngrúa verði vestan Almanna-
gjár. Það er þó viðurkennt að þetta
svæði hafi ekki mikið aðdráttarafl
í augum almennings eins og stend-
ur, en tekið fram að mögulegt sé
að gera reiti innan þessa svæðis
hlýlegri með skjólbeltarækt, til
dæmis við tjaldstæði.
VALHÖLL RIFIN
Ráðgert er að flytja úr þinghelg-
inni sjálfri alla þjónustu sem laðar
að fólk og bíla — og er þar náttúr-
lega átt við Hótel Valhöll, viðbygg-
ingar þess og úthýsi, sem eru að
mestu leyti í eigu Jóns Ragnars-
sonar veitingamanns og fjöl-
skyldu hans. Ekki verði í framtíð-
inni aðrar byggingar þar niðri á
völlunum en gamla kirkjan og
Þingvallabærinn, þar sem hafa að-
setur Þingvallaprestur og forsætis-
ráðherra. Eins og fram kom í Helg-
arpóstinum er Jón Ragnarsson
heldur ósáttur við að Þingvalla-
nefnd skuli ekki hafa leitað eftir
samningum við sig um kaup á
eignum hans í þjóðgarðinum.
MENNINGARMIÐSTÖÐ
OG ALÞINGISHÚS
í staðinn eru gerðar tillögur um
margháttaðar framkvæmdir í
Kárastaðalandi. Þær greinast í
tvennt: Annars vegar er menning-
armiðstöð sem reist yrði við Kára-
staðastíg, vestur af hringsjánni,
sem liggur ofan Almannagjár.
Þessari menningarmiðstöð er
hvort tveggja ætlað að vera til
þjónustu og upplýsingar, þannig
er til dæmis gert ráð fyrir fyrir-
lestrasölum þar sem mætti fjalla
um „sögu íslands, náttúru og
menningu".
Hins vegar er lagt til að byggt
verði í Kárastaðanesi, þar sem nú
eru einkum sumarbústaðir, hús
Alþingis og kirkju, líklega til brúks
við hátíðleg tækifæri. Þarna er
einnig þeim möguleika haldið
opnum að byggja hótel og jafnvel
ráðstefnuaðstöðu, sem starfrækja
mætti árið um kring.
Þarna staðfestist í raun allt sem
kom fram í Helgarpóstsgreininni í
síðustu viku: Þingvallanefnd vill
bæði rífa og byggja. Jarðýtur
verða settar á Hótel Valhöll. „Gler-
hýsi“ verða reist á útjöðrum Þing-
vallasvæðisins, utan þinghelginn-
ar. Gamall draumur Fjölnismanna
um að Alþingi verði á Þingvöllum
rætist. Reynt verði að beina al-
menningi úr sjálfri helginni, nema
þá náttúruunnendum og elskend-
um íslenskrar sögu.
TEKIÐ Á SUMAR-
BÚSTÖÐUNUM
í umfjöllun Helgarpóstsins var
einnig vikið að tveimur málum
öðrum sem setja mark sitt á um-
ferð um Þingvallasvæðið. Tjald-
fólki og sumarbústöðum. Þing-
vallanefnd setur sér það markmið
að létta á tjaldstæðum á svoköll-
uðum Leirum, þar sem þau eru nú,
og jafnvel að þau verði flutt alfarið
upp fyrir gjá síðarmeir. Nýja tjald-
stæðið verði allmiklu norðar en
nú er, við svokallaðan Hrútagils-
læk. Af sumarbústöðunum, því
eilífa þrætuefni, er það að segja að
samningar um sumarbústaðina í
þjóðgarðinum taka að renna út á
næstu árum og áratugum. Þing-
vallanefnd leggur til að samning-
arnir verði ekki framlengdir,
nema þá til fimm ára í senn. Regl-
ur verði líka settar um forkaups-
rétt, þannig að þjóðgarðurinn geti
eignast þessi mannvirki eftir hent-
ugleikum.
Á öðrum stað í blaðinu getur að
líta svar séra Heimis Steinssonar
við ummælum Jóns Ragnarssonar
í síðasta Helgarpósti, þar sem
hann var ómyrkur í máli um hinar
nýju tillögur Þingvallanefndar.
EFTIR EGIL HELGASON
HELGARPÓSTURINN 37