Helgarpósturinn - 10.09.1987, Blaðsíða 3

Helgarpósturinn - 10.09.1987, Blaðsíða 3
FYRST OG FREMST SORGARSAGA úr trygginga- kerfinu. Maður nokkur, ónefndur, tryggði sig líftryggingu árið 1925 fyrir 6 þúsund krónur. (Þess má get að árið eftir keypti hann sér mótorbát fyrir 19 þúsund.) Hann borgaði samviskusamlega iðgjaldið, 120.60 kr. á ári, alls í 30 ár. Fyrir örfáum árum lést maðurinn síðan og þá kom í ljós að líftryggingin, sem hafði verið svo gríðarleg þegar hún var keypt 1925, var heldur en ekki orðin að engu. Það sem fékkst greitt voru rúmar 3.000 krónur. ÞAÐ að fer ekki á milli mála að valdhafar geta miklu ráðið um lífs- venjur aimennings með ýmsum stjórnunaraðgerðum, þótt skoðanir séu oft skiptar um það hvernig vald þetta er notað. Nýjasta dæmið um „neyslu- stýringu“ að ofan er hins vegar ekki að finna í tolla- eða skatta- lögum heldur í auglýsingabæklingi fyrir ákveðna tegund blóma- frjókorna sem verið hefur í dreifingu að undanförnu. Umboðs- aðilinn hefur látið þýða umsagnir erlendra aðila um vöruna og fengið íslenska viðskiptavini til að tjá sig um frjókornin. Meðal hinna síðarnefndu er Jón nokkur Hannibalsson, sem í sjálfu sér ætti ekki að vera í frásögur færandi. Mörgum finnst þó óviðeigandi af fjármálaráðherra að nota virðulegt bréfsefni ráðuneytisins, sem þarna birtist ljósrit af, þegar hann tekur upp á því að auglýsa tilteknar vörutegundir... HINGAÐ til hefur það ekki verið verulegt umhugsunarefni hverjir fari með völd í hinum og þessum sveitarfélögum um allt land. Morgunblaðið virðist hins vegar vera í einhverjum vafa um stöðu þessara mála á Akureyri. Fyrir nokkru birti blaðið nefnilega litla frétt á blaðsíðu 2 undir fyrir- sögninni „Ræður forsætisráðherra á Akureyri". Við nánari athugun á fréttinni kom svo í Ijós, að Mogg- SMARTSKOT inn var að birta leiðréttingarfrétt um ræður Þorsteins Pálssonar á Akureyri vegna 125 ára afmæl- isins. Þessu er hér með komið á framfæri við þá, sem eingöngu lesa fyrirsagnir. ÞAÐ er alveg með ólíkindum hversu miklir heimsmenn við erum að verða, íslendingar. Það er að minnsta kosti fátt sem hægt er að kaupa erlendis, sem ekki er falt fyrir peninga hér á Fróni. Eða hvað segið þið um svohljóðandi auglýsingu sem birtist í Einka- máladálki DV: „Tek að mér alls kyns verkefni, viðkvæm, áhættu- söm, og er fullum trúnaði heitir. Leggið inn símanúmer á augld. DV, merkt „Málaliði“.“ Við sjáum ekki betur en þarna sé á ferðinni einkaspæjari, eins og þeir gerast bestir í sjónvarpinu.. . Á ÞESSU ÁRI fagnar Náttáru- lœkningafélag fslands stórafmæli, en það eru liðin 50 ár síðan Jónas Kristjánsson læknir stofnaði félagið í þeim tilgangi að útbreiða þekk- ingu á heilbrigðu lífi. Hinn 20. september, en það er einmitt fæð- ■ ingardagur Jónasar, hyggjast náttúrulækningamenn minnast afmælisins. Ein hugmyndin í því sambandi er að skora á veitinga- hús landsins að bæta nú ráð sitt og leggja sérstaka áherslu á að hafa þann dag á boðstólum hollan mat og hollustusamlega mat- reiddan. Og náttúrulækningamenn láta ekki þar við sitja, heldur mælast til þess að 20. september verði árlegur heilsuverndardagur, þar sem íslenskir veitingamenn fái tækifæri til að sanna að þeir séu meðvitaðir um hollustusamlega matseld, grænmeti, bæði ferskt og soðið, grófa brauðvöru, ávaxta- og berjadrykki, hóflega fitu og óbrasaðan mat. Og taki þeir nú sneiðina sem hana eiga... ÞAÐ er eiginlega alveg merki- legt hversu daufleg umræðan um nýjar tillögur Þingvallanefndar vegna framtíðarskipulags þjóð- garðsins á Þingvöllum hefur verið. Það má jafnvel velta því fyrir sér hvort Jón Ragnarsson hafi hitt naglann á höfuðið í Helgarpósts- viðtali þegar hann sagði að Þing- vellir skipuðu ekki sama sess í hjörtum Islendinga og forðum. Flosi Ólafsson víkur að Þingvöll- um í Vikuskammti sínum í Þjóð- viljanum nýlega og er meinlegur, eins og honum einum er lagið: „Hér er átt við landsvæði sem stefnt er að að banna fólki að koma á, af því þar er svo fallegt og gaman að vera. Náttúruvernd- arráð virðist hafa þá bjargföstu trú, að með þeim einum hætti sé hægt að koma í veg fyrir náttúru- spjöll, að öllu kviku sé bægt frá. Það sér hver heilvita maður að voðinn er vís, til dæmis á Þing- völlum, ef fólk heldur áfram að koma þar, enda er staðurinn sem betur fer að verða fremur óvinsæll vegna boða og banna, og raunar allt til þess gert að fæla fólk frá staðnum, eins og vænta má þegar koma á í veg fyrir náttúru- og helgispjöll." HELGARPÚSTURINN UMMÆLIVIKUNNAR Hvalakvalir Hvaldór Ásgríms er svo leiður, USA bannar hvaladrátt. „Best ad bankarádið haldi sig fjarri!' Steingrímur er steypireiður, BJÖRGVIN JÓNSSON BANKARÁÐSMAÐUR steytir hnefa í vesturátt. Niðri ÚTVEGSBANKANS HF. UM HLUTABRÉFASÖLU BANKANS. Er björninn unninn? Gérard Lemarquis Við erum búnir að vinna stórsigur, í bili að minnsta kosti. Hvaða rétt teljið þið ykkur hafa til að stöðva þessar framkvæmdir? Það voru gallar í skipulaginu og varðandi umsvif fram- kvæmda. Aðilar sem ætla að byggja á lóð Fjalakattarins gerðu allt meira og minna í laumi. Þeir byrjuðu í „vísinda- skyni" í byrjun sumars og síðan héldu þeir áfram og byggðu vinnupalla til þess að byrja að grafa og sprengja eins og þeir hefðu byggingarleyfi. Þeir gerðu það án þess að nafa samband við fyrirtækl í nágrenninu. Við teljum að þessar byggingarframkvæmdir standist ekki gagnvart lög- um. Teikningar byggingarinnar teljum við vera í algjöru ósamræmi við skipulagið. Við fengum okkur lögfræðing sem hjálpaði okkur og skipulagsstjórn ríkisins sendi okkur bréf og þar stendur að engar framkvæmdir verði hafnar áð- ur en deiliskipulag kvosarinnar verður samþykkt. Hvernig hefur barátta ykkar gengiö fyrir sig? í júní heyrðum við að Sölumiðstöðin og Tryggingamið- stöðin ætluðu að byrja að byggja. Við fórum upp á borgar- skipulag en þar var reynt að róa okkur með því að ekkert yrði gert á lóðinni áður en kvosarskipulagið yrði samþykkt. Við urðum því mjög hissa í byrjun ágúst er byrjað var að byggja þar vinnupalla. Við mótmæltum og byggingarfull- trúi hefur stoppað þær framkvæmdir. Hvaða aðferðum hafa byggingaraöilarnir beitt til að geta hafið framkvæmdirnar? Þeirfóru til eigenda fyrirtækja í nágrenninu til þess aðfá samþykki þeirra. Þeirgerðu þaðá mjög vafasaman hátt. Til dæmis neyddu þeir eignalausan mann til þess að sam- þykkja nýja byggingu án þess að sýna honum teikninguna. Þar að auki voru aðrir eigendur í fríi þannig að þessi undir- búningur þeirra hefur verið mjög lélegur. Hafið þið þá iagttil hliðartaktíkina að spila á tilfinning- ar fólks og einbeitið ykkur nú að lagalegu hliðinni? Ja, hvað eru lögin? Ég meina, maður veit ekki hvort skipulag er til. Staðreyndin er sú að það er ekki búið að samþykkja skipulag kvosarinnar. Við teljum að 18 metra hátt hús, 6 hæða, sé í andstöðu við skipulagið. Við ætlum að sjá til þess að það verði fariö að reglum og að réttur eig- enda í kring sé virtur. Það hefur verið t.alað um að rífa niður öll gömul hús við Aðalstræti, en núna vonum við að Fóget- inn verði ekki eina gamla húsið eftir í Aðalstræti. En hvað ef byggingaraöilar hefja framkvæmdir aftur? Sölumiðstöðin er stórt fyrirtæki, sem búið er að dæla fisk úr sjónum í áratugi og er núna að dæla klóakinu á lóð Fjalakattarins. Ég kalla þeirra ævintýri, þessa tilraun til að reyna að framkvæma í laumi, Stórlaxdælasögu. Þeir eru búnir að eyða hundruðum þúsunda króna til að reyna að framkvæma meðan eigendur í kringum þá eru í fríi. Þeir mega hvort sem er ekkert gera fyrir 1. desember og eftir það er okkar fríi lokið. Stöðvun framkvæmdanna á lóð Fjalakattarins er þá áfangasigur fyrir ykkur? Já. Við viljum lækka húsið, mýkja það, svo að það verði ekki Morgunblaðshús númer tvö. Við viljum að þarna verði hús sem er í samræmi við öll hin húsin í Grjótaþorpinu, helst bárujárnshús. Byggingarframkvæmdum á lóð Fjalakattarins í Aðalstræti 8 hef- ur nú verið frestað þar til deiluskipulag hverfisins liggur fyrir. íbúar Grjótaþorps hafa staðið í mótmælum við byggingaraðila, Sölu- miðstöð hraðfrystihúsanna og Tryggingamiðstöðina, undanfarn- ar vikur og með þessari frestun stjórnar skipulags ríkisins á fram- kvæmdum hafa íbúarnir unnið umtalsverðan sigur í baráttu sinni. Gérard Lemarquis er íbúi í Grjótaþorpinu. HELGARPÖSTURINN 3

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.