Helgarpósturinn - 10.09.1987, Blaðsíða 32

Helgarpósturinn - 10.09.1987, Blaðsíða 32
llEins og fram hefur komið í fréttum voru aukafjárveitingar á þessu kosningaári óvenjumiklar, eða um 600 milljónir króna. Þessum fjárveitingum verður bætt aftan við fjárlögin fyrir árið 1988 og lagðar fyrir Álþingi til samþykktar. Þannig hefur verið staðið að þessu frá örófi alda og alltaf gengið hávaðalaust fyrir sig. Nú eru hins vegar uppi hugmyndir innan Borgaraflokks- ins um að leggja fram tillögu við af- greiðslu fjárlaga um að þingið sam- þykki ekki þessa óráðsíu fram- kvæmdavaldsins. Ef tii vill kann ýmsum að þykja þetta koma úr hörðustu átt, þar sem Albert Guð- mundsson var í fjármálaráðherra- tíð sinni óspar á fé til þeirra málefna er hann bar fyrir brjósti og taldi sig þá ekki þurfa að styðjast við lög frá Alþingi. En þar sem þessar 600 milljónir króna eru á ábyrgð Þor- steins Pálssonar horfir málið kannski öðruvísi við. Ef þessi tillaga næði fram að ganga með stuðningi einhverra í Alþýðuflokknum og Framsóknarflokknum kæmi upp einkennileg staða. Jón Baldvin Hannibalsson, fjármálaráðherra, þyrfti þá líklega að innheimta þess- ar milljónir af þeim sem fengu. En ef til vill færi best á því að Þorsteinn sæi sjálfur um innheimtuna þar sem ekki lá fyrir ríkisstjórnarsamþykkt fyrir öllum þessum fjárveitingum. Þorsteinn ber því einn og óstuddur ábyrgðina á þessu, eins og svo mörgu öðru. Og þar sem flestir þeirra sem fengu fjárveitingar frá honum hafa þegar eytt peningunum þyrfti Þorsteinn sjálfsagt að punga út sjálfur megninu af þessu. Þeir sem eitthvað þekkja til íslenskra Góða helgi! Þú átt ■ þaö skilið pizzahiLsið Grensásvegi 10, 108 R. S: 39933 stjórnmála vita að svona mun þetta ekki ganga fyrir sig. En þarna er kannski komin lausnin á því hvernig eigi að tryggja að ríkisstjórnir og ráðherrar þeirra fari eftir lögum sem Alþingi setur... ■að er skammt stórra högga á milli í formannsmálum Alþýðu- bandalagsins. Nú lýsir hælbitinn Steingrímur Sigfússon því yfir að hann ætli ekki í framboð, en Olafur Ragnar Grímsson ætlar, þótt hann se ekki búinn að kunngera sitt fram- boð. Enn þarf að finna mótfram- bjóðanda gegn honum, „einhvern litlausan einstakling", sem ekki get- ur ógnað veldi „gömlu klíkunnar" í flokkskerfinu, líkt og Staksteinar Morgunblaðsins orða það. Og hver mætti það nú vera? Það er náttúr- lega ekki um auðugan garð að gresja í Alþýðubandalaginu, en æ oftar heyrist Sigríður Stefónsdótt- ir, bæjarfulltrúi á Akureyri, nefnd á nafn. Sigríður tók fálega í framboð í fyrstu, en hefur síðan verið að volgna, einkum ef tir að Steingrímur dró sig í hlé. Annars heldur Alþýðu- bandalagið í Reykjavík fund 15. september og þá er ekki ólíklegt að dragi til tíðinda. . . |k| H ú gefa allir út fréttabréf og tíðindisem vettlingi geta valdið, líka íslensk getspá eða Lottóið vin- sæla, sem í vikunni gaf út fyrsta tölublað Lottófrétta. í fréttabréf þetta, sem liggur frammi í öllum sjoppum sem hafa umboð fyrir lottómiða, skrifar meðal annars Þórður Þorkelsson, stjórnarfor- maður Islenskrar getspár, alvarlega hugvekju undir fyrirsögninni „Ver- um á verði". Og gagnvart hverjum á Lottóið að vera á verði — jú, gagn- vart öllum þeim sem vilja næla í bita af lottókökunni. Það þykir nefnilega ljóst að Lottóið hefur skilað mun meiri hagnaði en búist var við, þann- ig að stjórnarmenn í Oryrkja- bandalaginu segjast „vaða í pen- ingum". Aðrir aðilar þykjast náttúru- lega bera skarðan hlut frá borði í baráttunni um happdrættisfé lands- manna og hugsa sér gott til glóðar- innar að komast í lottógróðann, nefnum DAS, SÍBS og SÁA. Einnig eru uppi raddir í ríkisstjórninni um að happdrættisfé skuli renna í ríkis- sjóð sem síðan sjái um að skammta það til þeirra sem eru álitnir þurf- andi. En af grein Þórðar Þorkels- sonar má ráða að íþróttasamband íslands, Öryrkjabandalagið og Ungmennafélag íslands ætli ekki að láta lottópeninga af hendi þegj- andi og hljóðalaust. .. H ■ Hins vegar hefur nýr blaða- maður hafið störf hjá Frjálsu fram- taki, Unnur Úlfarsdóttir, sem var áður á Vikunni. U nnur var lengi vel orðuð sem nýr ritstjóri tímaritsins Húss og Garðs sem Fjölnir hóf út- gáfu á nú í vor. Hins vegar hefur sú ákvörðun verið tekin að leggja það blað niður sem og tímaritið Gróður og Garða sem FF gaf út í nokkur ár. . . I ■ siðustu kosningabarattu gaf Flokkur mannsins sig út fyrir að vera málsvari manneskjulegra lífs, í jafnvægi við náttúruna, með frið í brjósti. Nú skýtur dálítið skökku við þegar Flokkur mannsins hefur klofnað og hópur manna gengið út vegna of lítillar áherslu flokksins á umhverfis-, friðar- og jafnréttis- mál. . . ; Það er ekki að ástæðulausu sem LADA SAMARA er með athyglisverðustu framdrifsbílum sem í boði eru. Það sem meðal annars gerir bílinn svo eftirsóttan er hin einstaka fjöðrun sem á öllum vegum gerir bílinn svo léttan og lipr- an íakstri. LADA SAMARA er öruggur fjölskyldubíll, búinn öryggisbeltum fyrir alla farþega, léttur í stýri og umfram allt sparneytinn. Og til þess að kóróna sparnaðinn er LADA SAMARA á undraverði og ekki spilla vinsælu greiðslukjör- in. Komið, skoðið og reynsluakið sparbílnum frá Lada. 0PIÐ LAUGARDAGA FRÁ 10-16 0G ALLA VIRKA DAGA FRÁ 9-18. Beinn sími söludeildar er 31236. Verið veikomin. LADA SAMARA 5 GÍRA 283.000 LADA SAMARA 4 GÍRA 265.000 BIFREIÐAR & LANDBÚNAÐARVÉLAR Suðurlandsbraut 14 107 Reykjavík, sími 38600 10 línur 32 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.