Helgarpósturinn - 10.09.1987, Blaðsíða 7

Helgarpósturinn - 10.09.1987, Blaðsíða 7
GJALDÞROT KAUPFÉLAGS SVALBARÐSEYRAR Sambandinu kemur ekki við eignamissir eigenda sinna Hundruð einstaklinga misstu sparifé sitt. Þeir sem áttu innstæðu á viðskiptareikningum sínum misstu hana alla. Heimamenn vilja að Sambandið bæti þeim skaðann. Ný hlið á Sambandinu. Er hugsjón samvinnuhreyfingarinnar að týnast? Frœgt gjaldþrot Kaupfé- lags Svalbaröseyrar hefur haft á sér margar hliðar og margir veriö mjög ósáttir viö þœr málalyktir sem þar uröu. Eins og kunnugt er keypti Samvinnubankinn, dótturfyrirtœki SIS, eignir þrotabúsins á nauöungar- uppboöi, sumir segja að hann hafi fengið eignirnar fyrir smánarupphæö og m.a. þess vegna geti kröfu- hafar sem neöst eru á list- anum ekki átt von á því aö fá tjón sitt aö neinu leyti bœtt. Meðal þeirra kröfuhafa sem eiga enga möguleika á að fá tjónið bætt er fjöldi einstaklinga, bændur, starfsmenn KSÞ, unglingar, börn, gamalmenni og aðrir, sem lagt hafa afurðir sínar inn í kaupfélagið og með þeim hætti verið í reikningi þar. Margt þessa fólks átti inni tölu- verðar fjárhæðir þegar þrotabúið var gert upp og selt en nú sér það engar líkur á því að endurheimta féð. i þessum hópi eru einhver hundruð manna ef allt er talið og einhverjir tugir manna munu hafa átt inni um 100.000 kr. Heimilidir HP herma að þeir sem stærstar upphæðir áttu inni á við- skiptareikningum hafi verið þeir Jón Laxdal bóndi í Nesi, Höfða- hreppi, og IngiP. Ingimarsson bóndi á Neðri-Dálksstöðum á Svalbarðs- eyri. Ekki tókst að fá uppgefið hversu háar fjárhæðir þar er um að ræða en af mönnum mátti ráða að þær hefðu verið töluverðar. Báðir þessir menn, Ingi og Jón, voru einn- ig í þeim hópi sem gekk persónu- lega í ábyrgð fyrir KSÞ, þ.e. þeir gáfu út skuldabréf með persónulegar eignir sínar að veði fyrir greiðsium. í stuttu samtali við Jón Laxdal sagð- ist hann haida að það fé sem hann hefði átt inni á viðskiptareikningi sínum væri sér glatað, hann kæmi ekki auga á annað. Þetta fékk HP einnig staðfest hjá lögfræðingum. Eftir því sem þeir sögðu falla slíkar kröfur í þrotabúið undir heitið al- mennar kröfur og eru þær neðstar á listanum. Um tilurð þessara við- skiptareikninga sagði Jón að menn hefðu í gegnum tíðina lagt allt sitt sauðfé og nautgripi inn hjá kaupfé- laginu en nú væri þetta greinilega allt glatað. Eftir því sem HP fregnar átti fjöldi fólks litlar upphæðir inni hjá KSÞ á Svalbarðseyri — reyndar er það af- stætt um hvort háar eða lágar upp- hæðir er að ræða, fer eftir því hversu fólk er efnað fyrir. Margt af því fólki sem hafði lagt allt sitt inn hjá kaupfélaginu átti hvergi neitt fé annars staðar, enda skipti það ekki við neinn banka, heldur þjónaði kaupfélagið því sem innlánsstofnun. Því má nærri geta að einhverjir hafa hefði verið með í að stofna Sam- band íslenskra samvinnufélaga á sínum tíma, en ljóst væri að þau tengsl hefðu haft lítið að segja í þessu máli. Að vísu hafa ekki farið fram formlegar viðræður við SIS um það hvort ætlunin sé að bæta fólki það tap sem það hefur orðið fyrir. Hinsvegar hyggjast þeir sem verst urðu úti leggja það mál fyrir stjórn hreyfingarinnar, enda virðast þeir telja að SÍS beri siðferðisleg skylda til að ganga ekki þannig frá málinu að saklaust fólk verði skilið eftir á gaddinum. Þeir sömu benda á að það sé sérstaklega blóðugt að vita til þess að Samvinnubankinn hafi keypt eignirnar fyrir lítið fé og síðan hafi það ekki hreyft því máli að bæta almenningi skaðann. Telja þeir í framhaldi að mun hærra verð hefði fengist fyrir eignirnar ef þær hefðu verið seldar hæstbjóðanda á frjálsum markaði. Með þeim hætti hefði því hugsanlega verið hægt að bæta öllum kröfuhöfum það sem þeir áttu inni. Af þessu má vera ljóst að menn eru ekki par ánægðir með framkomu samvinnumanna í mál- inu. Einn viðmælenda orðaði það svo að ef þessi yrði niðurstaðan myndu menn þurfa að endurskoða afstöðu sína til samvinnuhreyfing- arinnar og sérstaklega til þeirra sem þar réðu ríkjum, enda væri hér að stórum hluta um að ræða börn, unglinga og gamalmenni sem töp- uðu því litla fé sem þeim hafði tekist að nurla saman. Það virðist hinsvegar vera Ijóst að þessir peningar eru glataðir, ekkert virðist geta komið í veg fyrir það. En það er samt greinilegt að viðskipta- menn KSÞ hafa ekki gefið upp alla von fyrst þeir ætla að freista þess að leggja málið fyrir stjórn SÍS. Menn lifa enn í voninni um að samvinnu- hreyfingin standi undir því nafni sem þeim þykir felast í orðinu og sé í samræmi við hlutverk hennar í hinum dreifðari byggðum landsins. Þegar haft var samband við SÍS og reynt að fá fram einhver svör við því hver hugsanleg viðbrögð fyrirtækis- ins yrðu við því að óbreyttir félags- menn samvinnuhreyfingarinnar færu fram á að sér yrði bætt þessi eignaupptaka var lítið um svör. Svo virtist sem Valur Arnþórsson, stjórnarformaður og kaupfélags- stjóri, væri eini maðurinn sem gæti svarað fyrir þetta mál, en hann er erlendis. Hinsvegar fengust þau svör ein úr höfuðstöðvum SÍS, að menn könnuðust bara ekkert við þetta mál og að ekkert erindi hefði borist þar inn um málið. Það kæmi því ekki SÍS við. Af þessu má ráða það eitt að SÍS er ekki lengur nein samvinnuhreyfing og kemur ekki við þó einhverjir félagsmenn þess verði fyrir skakkaföllum vegna fyr- irtækja innan samvinnuhreyfingar- innar. Samvinnuhugsjónin virðist því vera týnd og tröllum gefin, rifjuð upp á hátíðisdögum eins og ljóð þjóðskáldanna á 17da júní. HELGARPÓSTURINN 7 tapað öllu sínu sparifé á þessum við- skiptum. Greinilegt er að mikil kergja er ríkjandi hjá því fólki sem þarna átti inni fé. Því finnst það hafa verið svipt peningum sem það sannan- EFTIR KRISTJÁN KRISTJÁNSSON lega átti og hafði aðeins lánað KSÞ. Fólkið skilur ekki af hverju hægt er að ganga fram hjá því þegar þrota- búið er gert upp og þær kröfur greiddar sem fyrirtæki og lánastofn- anir hafa sett fram. Greinilegt er að menn hafa búist við því að sam- vinnuhreyfingin, eðli síns vegna, kæmi á einhvern hátt tif móts við það fólk sem þarna tapaði umtals- verðum fjárhæðum. Einn viðmæl- enda HP orðaði það svo að KSÞ Samvinnubankinn, dótturfyrirtæki SÍS, keypti Kaupfélag Svalbarðseyrar fyrir lítið. Um leið tapaði fjöldi fólks innstæðum sínum í Kaupfélaginu.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.