Helgarpósturinn - 10.09.1987, Blaðsíða 25

Helgarpósturinn - 10.09.1987, Blaðsíða 25
Ólympíuleikarnir í Seoul á næsta ári: VIÐ VINNUM VERÐLAUN! íþróttaþættir sjónvarpsstöðvanna: Langt og stutt Nú geta allir áhangendur skemmtilegra íþrótta glaðst óstjórnlega svo fremi þeir hafi að- gang að Stöð 2. Stöðin hefur nefni- lega boðað að í vetur verði sýnt reglulega frá NFL eða National Football League í Ameríku. NFL stendur fyrir það sem á góðri ís- lensku er kallað amerískur fót- bolti en á slæmri íslensku rúbbí. Rúbbí (Rugby) og amerískur fót- bolti eru þá alls ekki hið sama þó skyldleiki sé á milli. Hingað til hefur landinn séð lítið af þessari hörðu en skemmtilegu íþrótt. Stöðin var með nokkrar glefsur í vetur en þær gáfu þó til kynna hverslags skemmtun er í vændum. Þeir þættir sem rúlla munu á skjánum á sunnudögum í vetur hafa þegar gert þessa íþrótt að einhverju vinsælasta sjónvarps- efni í Bretlandi og reyndar víðar í Evrópu. Önnur Evrópukeppnin í amerískum fótbolta var haldin í sumar í Finnlandi og þar báru ítal- ir sigur úr býtum. Fyrst talað er um íþróttir á Stöð- inni er ekki úr vegi að hyggja örlít- ið að íþróttum í sjónvarpi almennt. Það sem skilur að sjónvarpsstöðv- arnar tvær í þessu efni eru orðin LANGT og STUTT. Sjónvarpið er langt en Stöð 2 er stutt. Nánari skilgreiningu væri hægt að orða svona: Sjónvarpið ætlar að sýna frá Evrópumeistaramótinu í frjáls- um íþróttum þangað til heims- meistaramótið í skautadansi fer fram í Brönby-höllinni en það verður síðan sýnt fram á næsta vor. Sjónvarpið er með langan íþróttaþátt á laugardögum með löngu efni en endursýnir síðan helstu atriði hans á mánudögum í stuttum þætti. Stöð 2 er með lang- an íþróttaþátt með stuttu efni, skornu og aðgengilegu, á sunnu- dögum. Stöðin er með umfjöllun um Islandsmótið í knattspyrnu tvisvar í viku í sérstökum þáttum sem verið hafa til mikillar fyrir- myndar. Þar eru leikir ekki sýndir í heilu lagi. Stöðin er með golf- þætti á laugardögum þar sem sér- fræðingur um íþróttina er umsjón- armanni til aðstoðar — þetta hefur einnig átt við ýmsar aðrar íþrótta- greinar sem Stöðin hefur sýnt frá. Stöðin er með þátt um veiðar og útiverusport á sunnudögum sem gerðir eru af vandvirkni hjá Kan- anum. Þá fer ekkert eins mikið í taugarnar á mér og lagið um „Bjútífúl, bjútífúl Kópenhagen" og endalausar „Júróvisíónsiaufur með lúðrablæstri" sem taka hálf- an íþróttaþátt sjónvarpsins og gera hann ennþá lengri. Stöðin hefur verið óhrædd við að sýna íþróttir sem ekki eru þekktar hér á landi og víkka þannig sjónarsvið „sportídjóta". Sjónvarpið sýnir knattspyrnuleiki í heilu lagi viku síðar. Það er næsta víst að ekki eru all- ir sammála mér í þessu efni en mér er svo sem sama um það. Þeg- ar ameríski fótboltinn byrjar þyk- ist ég handviss um að margir setji á sig axlapúðana og hjálminn og hrópi síðan áfram Chicago Bears, San Francisco 49ers, New York Giants, Dallas Cowboys . . . Þó enn sé heilt ár þangað til Ól- ympíuleikarnir verða haldnir í Seoul í S-Kóreu eru þjóðir heims þegar farnar að undirbúa sig fyrir þessa mestu hátíð íþróttanna. Við Islendingar erum engir eftirbátar annarra þjóða hvað þetta varðar nema hvað við höfum alla jafna úr litlu fé og fáum iþróttamönnum að spila. Sé hinsvegar notuð sú vin- sæla viðmiðun höfðatala skörum við fram úr eins og á öllum öðrum sviðum. Við höfum þegar tryggt okkur veglegan sess á OL í Seoul með handknattleiksliði okkar og víst er að þeir frjálsíþróttamenn og sundmaður sem þegar hafa náð fyrsta áfanga að þátttöku á ÓL koma til með að verða landi til sóma. PÓLITÍK Það virðist ætla að verða með þessa leika eins og alla aðra að póliltík og álíka vitleysa virðist ætla að setja svip sinn á leikana. Síðan Afríkubúar neituðu að mæta á ÓL í Montreal og Banda- ríkjamenn og þeirra fylgiþjóðir hættu við Moskvu og Brésnef svaraði í sömu mynt þegar kom að LA hafa Ólympíuleikar misst spón úr aski sinum. Því miður er það svo að það verður næsta sama hvar ÓL verða haldnir, alltaf fá einhverjir útrás fyrir pólitískt rugl gráhærðra antísportista sem kall- ast pólitíkusar. Það sama er upp á teningnum núna. Óvissan um þátttöku sterkra þjóða virðist ekki ætla að koma í veg fyrir að borgir og þjóðir heims keppist um að fá að halda þessa leika. Nú er svo komið að ekki duga milljónir dollara heldur þarf hundruð milljónir dollara til að vinna alþjóðaólympíunefndina á sitt band og fá að halda leikana. Alþjóðaólympíunefndin, sem er sennilega ríkasta „apparatið" af öllum íþróttahreyfingum í heimin- um, ætti nú að taka sér fyrir hend- ur að ráðskast við Bandaríkja- menn og Rússa um stað fyrir næstu leika og leyfa þessum „lög- reglum heimsins" að skipta út- nefningunni sín á milli annað hvert ár. Þannig fengju Rússar að ráða næst þar sem Seoul er í „kap- ítalistá-ríki og síðan koll af kolli — skítt með allar smáþjóðir, þær skipta hvort eð er engu á skák- borði stórveldanna. OKKAR MENN Á ÓL Nú þegar er ljóst að við íslend- ingar munum eiga nokkra verð- uga fulltrúa á meðal þeirra þjóða sem „fá" að mæta til Seoul á næsta ári. Handknattleiksliðið sem svo skemmtilega lék í Sviss verður á staðnum og þegar hafa Einar Vil- hjálmsson, Vésteinn Hafsteinsson, Ragnheiður Ólafsdóttir, Eggert Bogason, Helga Halldórsdóttir og Eðvarð Þór Eðvarðsson nánast tryggt sér sæti í ÓL-liði íslands. Þegar ég segi nánast þá á ég við að þó íþróttamenn nái lágmarki því er alþjóðaólympíunefndin setur verða þeir að standa sig verulega vel síðustu mánuðina fyrir leikana til þess að réttlætanlegt sé að senda þá til keppni. Þegar þetta er skrifað er enn langt í ieikana og nánast allt getur gerst í millitíðinni. Það sem fullvíst er á þessari stundu er að mestar vonir eru bundnar við handknatt- leikslandslið okkar. Liðið varð i sjötta sæti á HM í Sviss fyrir einu og hálfu ári en síðan þá hefur liðið heldur styrkst en hitt. Úrslit leikja á Júgóslavíumótinu sem fram fór í sumar staðfestu það. Islendingar hafa alltaf gert kröfur til íþrótta- manna sinna þó stundum hafi þær verið í hæsta lagi óraunhæfar. Nú eru vonir bundnar við þetta hand- knattleikslið og horft til ólympíu- meistaratitils. Hvers vegna ekki? Landslið okkar verður eflaust það leikreyndasta á ÓL. Leikmenn liðsins hafa æft sem atvinnumenn í þrjú eða fjögur ár. Þó nokkrir leikmenn leika sem atvinnumenn og þekkja því „bransann" vel. Hin- ir eru engu síðri enda höfum við lagt að velli öll sterkustu landslið heims á undanförnum árum. Sá hópur sem Bogdan hefur undir höndum er agaður og reyndur og að baki þeim er stjórn HSÍ sem unnið hefur ómetanlegt starf und- ir stjórn Jóns Hjaltalín. Já, ólymp- íumeistaratitill er raunhæft mark- mið og því munum við íslendingar ná. Af öðrum þátttakendum íslands á ÓL eru vonir bundnar við Einar Vilhjálmsson svo og Véstein Haf- steinsson. Þessir piltar áttu að leika stórt hlutverk á ÓL í LA en brugðist báðir. Einar hafnaði reyndar í sjötta sæti og þrátt fyrir að það væri gott var búist við meiru og úrslitin því hálfgerð von- brigði. Vésteinn vill eflaust gleyma LA og koma sterkur til leiks í Seoul. Það hefur háð báðum þess- um köppum hversu daufir þeir hafa verið á verulegum stórmót- um að undanförnu. Einar setti þó Norðurlandamet á Húsavík en var síðan ekki svipur hjá sjón á HM í Róm. Vésteinn hefur átt mjög góð- ar kastseríur að undanförnu en gekk illa á HM í Róm. Þessir piltar eiga það þó sameiginlegt að undir- búa sig mjög markvisst og hver veit nema lærdómur þeirra og ná- kvæmni eigi eftir að skila okkur peningi á OL. Þegar þetta er skrifað er enn ekki Ijóst hvort júdó- eða siglinga- menn verða meðal þátttakenda á ÓL eins og í LA en þá vann Bjarni Friðriksson það afrek að hampa peningi við heimkomuna. Júdó- íþróttin hefur verið í lægð síðast- liðið ár og ekki mikið um kappa sem eiga erindi á ÓL. Það er því fyrir þessa leika eins- og þá síðustu að við Islendingar búumst við afrekum. Eg þykist sjálfur fullviss um að einhver pen- ingur verði til sýnis þegar heim kemur, þó hugsanlega verði hann ekki úr gulli. HELGARPÓSTURINN 25

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.