Helgarpósturinn - 10.09.1987, Blaðsíða 31
FRÉTTAPÓSTUR
Klofinn verkalýður
Á formannafundi Verkamannasamt)andsins sl. sunnu-
dag gengu fulltrúar ellefu félaga út af fundi, þar sem þeir
gátu ekki sætt sig við þá aðferð sem var viðhöfð við atkvæöa-
greiðslu um kröfugerð i komandi samningum. Ellefumenn-
ingarnir vildu að hvert félag hefði eitt atkvæði, en ekki að
farið væri eftir fjölda félagsmanna í hverju félagi. Guðmund-
ur J. Guðmundsson, formaður VMSÍ, sagði að hann teldi
hrottgönguna af fundinum veikja stöðuna í væntanlegum
samningaviðræðum við atvinnurekendur. Einn þeirra sem
gengu af fundinum var Hrafnkell A. Jónsson formaður
verkalýðsfélagsins Árvakurs á Eskifirði. ,,Ég óttast að þetta
séu lok Verkamannasambandsins í núverandi mynd,“ segir
Hrafnkell og munu þessir atburðir ýta undir kröfur um
stofnun sambands fiskvinnslufólks. Verkamannasam-
bandið gengur nú tvístrað til samninga og mun það vissu-
lega veikja stöðuna fyrir sambandið í hagsmunabaráttu
verkafólks.
Fréttapunktar
• Steingrímur Hermannsson utanrikisráðherra hittir full-
trúa Bandaríkjanna að máli á næstu dögum, þar sem hval-
veiðimálið verður rætt.
• Sinfóníuhljómsveit íslands er nú á tónleikaferð um Græn-
land í tilefni af vígslu norrænnar menningarmiðstöðvar í
Nuuk, höfuðstað Grænlands. Þetta mun vera í fyrsta sinn
sem sinfóníuhljómsveit spilar á Grænlandi.
• Um síðustu helgi samþykkti Landssamband íslenskra
samvinnufélaga ályktun þar sem fagnað er frumkvæði sam-
vinnuhreyfingarinnar varðandi kaup á hlutabréfum
Útvegsbankans.
• Viðskiptaráðherra hefur skilað Sambandinu og forsvars-
mönnum 33 aðila í sjávarútvegi þvi fé sem þeir lögðu fram
til staðfestingar á tilboðum sínum í hlutafé ríkisins í Útvegs-
bankanum.
• Tilraunavinnsla á beitukóngi hefur staðið yfir í Keflavík
og Vogum undanfarið hálft ár og lofar árangurinn góðu. Ný
aðferð er notuð við að ná fiskinum úr kuðungi án þess að
sjóða hann.
• Stuðningur við veru varnarliðsins hér á land hefur-
minnkað verulega skv. nýrri skoðanakönnun.
• Árni Sigfússon var kjörinn formaður Sambands ungra.
sjálfstæðismanna á þingi SUS um síðustu helgi. Hann hafði
25 atkvæðum betur en keppinautur hans, Sigurbjörn Magn-
ússon.
• Pappírsseðlarnir eru farnir að missa gildi sitt. Ný 50
króna mynt er komin í umferð og þyngist þá að nýju í pyngj-
um landsmanna. Menn spyrja bara hvenær þeir fái milljón
króna seðilinn.
• Að viku liðinni hefur nýr fréttaþáttur göngu sína á Stöð 2.
Hann hefur fengið nafnið 19.19 og verður klukkutíma lang-
ur. Enn á ný eykst samkeppni sjónvarpsstöðvanna um
áhorfendur fréttaefnis.
• Áhugamenn um sögu verkalýðshreyfingarinnar geta
glaðst þessa dagana. Merk skjöl komu nýverið fram sem
varpa nýju og skýrara ljósi á upphafsár íslenskrar verka-
lýðshreyfingar.
• Byggingar nefnd nýju flugstöðvarinnar á Keflavikurflug-
velli er komin í þagnarbindindi og stendur það yfir þar til
Ríkisendurskoðun er búin að fara yfir mál flugstöðvar-
innar.
• Vigdis Finnbogadóttir forseti gerir víðreist þessa dagana.
Nýlokið er heimsókn hennar til Færeyja, þar sem hún fékk
mjög góðar viðtökur. Ferðinni er síðan heitið til Japans
vegna norrænnar menningarkynningar sem þar hefst í
þessum mánuði.
• Vinnutími íslendinga hefur lengst um tæplega hálfa
klukkustund að meðaltali frá fyrsta ársfjórðungi síðasta
árs.
• Borgaraflokkur Alberts Guðmundssonar gagnrýnir rík-
isstjórnina og telur efnahagsaðgerðir hennar ekki koma í
veg fyrir frekari skuldasöfnun rikissjóðs. Ennfremur telur
flokkurinn að þær dragi ekki úr þeirri þenslu efnahagslífs-
ins sem verið hefur að undanförnu.
• Gott verð fæst nú fyrir islenskan eldislax á erlendum
markaði.
• Nýjasta gosið á islenskum markaði, Sól-kóla, stóð stutt
við. Það þótti ekki nógu gott og var miklum birgðum af því
hent á haugana. Nú er búið að finna uppskrift að betra kóla
sem tekur við af því gamla.
• Mikil leit stendur nú yfir að nýjum sorphaugum af hálfu
sveitarfélaganna á Reykjavíkursvæðinu. Haugarnir á Gufu-
nesi eru taldir verða mettaðir eftir örfá ár.
íþróttir
• íslendingar unnu glæsilegan sigur á ólympiuliði Austur-
Þjóðverja i forkeppni Ólympiuleikanna í siðustu viku.
Hefndinni lauk með tveimur mörkum íslendinga gegn engu
marki A-Þjóðverja.
• Valsmenn tryggðu sér íslandsmeistaratitilinn í knatt-
spyrnu með sigri á KR-ingum um siðustu helgi. Þótt ein um-
ferð sé enn eftir af mótinu getur ekkert annað lið náð þeim
aðstigum.
• íþróttafélagið Fylkir setti nýtt 3.-deildarmet er það nái 50
stigum út úr keppni deldarinnar í sumar.
Tökum hunda ígœslu
til lengri eða
skemmri dvalar
Hundagæsluheimili
Hundavinafélags íslands og
Hundaræktarfélags fslands
Arnarstöðum, Hraungerðishreppi
801 Selfoss — Símar: 99-1031 og 99-1030
international
5PECTOR5
Laugavegi 45 - Sími 11388
Hvað gerist á Laugaveginum á laugardaginn?
HELGARPÓSTURINN 31