Helgarpósturinn - 10.09.1987, Blaðsíða 30

Helgarpósturinn - 10.09.1987, Blaðsíða 30
verður Gylfi Gröndal með þátt, „Leikskáld á tímamótum", um Agnar Þórðarson rithöfund, sem um þessar mundir stendur á sjötugu. Þar verð- ur fjallað um verk ha ns og fluttir kafl- ar úr nokkrum útvarpsleikjum. Ahugamenn um leikstörf ættu ekki að láta þennan þátt fram hjá sérfara. Rás 2 er á sínum stað með tónlist og annað léttmeti. Lokaspretti fyrstu deildar íslandsmótsins verða gerð skil á laugardaginn. Þarmun Samúel Örn sennilega æsa sig upp í lýsingu sinni og verður sjálfsagt kvefaður að vanda. Ekki fyrir þá sem eru slappir á taugum. BYLGJAN, Fyrir okkur morgunhanana sem fylgst hafa með morgunþáttum út- varpsins er fagnaðarefni að heyra á ný í Stefáni Jökulssyni, en hann mun sjá um morgunþætti Bylgjunnar virka daga vikunnar frá kl. 07—09. Hallgrímur Thorsteinsson mun líta yfir fréttirnar og spjalla við hlustend- ur i Reykjavík síðdegis og verður þátturinn sendur út frá kl. 17—19. Sterkir þættir að vanda. Það er alltaf gaman að heyra um prakkarastrik og meinlausar hrakfarir annarra, en Jó- hanna Harðardóttir mun kynna okk- ur þessi mál í kvöld, fimmtudag, og fær nokkur hrekkjusvín í heimsókn, milli kl. 21 og 24. FIVI 102,2 Léttmetið í fyrirrúmi og mikið af tónlist. Fyrirfréttaþyrsta má benda á þátt Arnar Petersen í kvöld, fimmtu- dag kl. 22, en þar verður tekið á mál- um líðandi stundar og þau rædd með aðstoð gesta og hlustenda. DAGSKRARMEÐMÆLI Föstudaginn 11. sept. kl. 22.40 fer fyrrum íþróttahetjan Amos Kirk Douglas að leika spæjara á elliheim- ili. Hann grunar yfirhjúkrunarfræð- inginn um að myrða félaga sína á elliheimilinu. Lofar góðu. Laugardaginn 12. sept. kl. 22.20 fáum við að sjá félagana Donald Sutherland og Clint Eastwood í myndinni Hetjur Kellys. Þeir standa sig vel að vanda og ættu allir nema börnin að geta setið fyrir framan skjáinn þetta kvöld. Mánudaginn 14. sept. kl. 20.40 verður góði dátinn Sveik á dagskrá. Þetta er annar þáttur af þrettán. Túlkun Fritz Muliar er alveg frábær, gott ef honum tekst ekki bara betur upp en höfundi sögunnar, Jaroslav Hasek, að skapa úr þessum einfeldn- ingi eftirminnilega persónu. Alveg óborganlegur leikur, bráðsmellnir þættir sem enginn má missa af. Strax á eftir Sveik verður dönsk spennumynd frá árinu 1986, Þumal- skrúfan (Tommelskruen). Hér segir frá viðbrögðum lögreglu og fjöl- miðla við sprengjuhótunum áður óþekktra samtaka. Eftir fyrstu sprenginguna fara hjólin að rúlla af stað og... STODTVO Sunnudagur 13. sept. kl. 20.00 Þá er sýnd dagskrá frá opnunar- hátið Ólympíuleika fyrir þroskahefta 1987. Athyglisvert framtak hjá stöð- inni, en hér koma fram margir frægir leikarar og skemmtikraftar og má þar nefna bæjarstjórann í Carmel, Clint Eastwood, og fleira gott fólk. Tónlist af léttara taginu hefur verið uppistaða dagskrárinnar á Stjörnunni, líkt og hjá öðrum nýjum útvarpsstöðvum. En nú verður dálítil breyting þar á, því nýr þáttur, Stjörnuklassík, mun hefja göngu sína sunnudaginn 13. september. Þátturinn verður í umsjón Randvers Þorlákssonar leikara, sem er mikill áhugamaður um þessa tegund tónlistar. Stjörnu- klassík verður á dagskrá einu sinni í viku, á sunnudagskvöld- um kl. 21.00-22.00. Þessir þættir verða með öðru sniði en á Ríkisútvarpinu, þar sem Randver mun fá gesti í heimsókn til að spjalla um tónlist og velja lög. ,,Eg mun velja þá tónlist sem mér finnst skemmtileg og reyni með þessu aðeins að slá á síbylj- una sem glymur daginn út og daginn inn. i öðrum þættinum fæ ég Kristján Jóhannsson í heimsókn. Annars mun ég að mestu verða einn og röfla eitt- hvað, en kannski ekki mjög greindarlega. Ég er enginn sér- fræðingur." Með þessu framtaki vill Stjarn- an verða við óskum hlustenda og spila fjölbreytta tónlist. Skrautlegir félagar, Donald Sutherland og Clint Eastwood, í laugardagsmynd sjónvarpsins. En þeir eru bara tveir af hetjum Kellys... Kl. 22.55 hefst síðan myndin Ég, Natalie (Me, Natalie). Þar er fjallað um tánings- stúlku sem heldur á vit stórborg- anna. Þreytt efni en kannski Al Pacino hressi upp á myndina. Mánudaginn 14. sept. kl. 20.25 verður sýndur áhugaverður þáttur fyrir þá sem sáu Vitnið. í þessum þætti verður fjallað um samfélag Amish-safnaðarins og lífshætti meðlima. Skömmu eftir miðnætti verður síðan sýnd enn ein myndin um afleiðingar Víetnamstríðsins, - Vinnubrögð Cutters (Cutter's Way). Þeir sem hafa fylgst með þess konar kvikmyndagerð ættu ekki að láta þetta innlegg fram hjá sér fara. Jeff Bridges er hér í aðalhlutverki og stendur sig alveg bærilega. © Fimmtudagskvöldið 10. sept. kl. 22.20 verður þáttur um bók Isabel Allende, Hús andanna, í umsjón Guðmundar Andra Thorssonar. Þátturinn nefnist „Konan með græna hárið", vafalaust fróðlegur þáttur. ÚTVARP eftir Önnu Kristine Magnusdóttur Talaö ofan í tónlist SJÓNVARP Af ofnotkun eftir Kristján Kristjánsson og nýju blóði Fyrir réttri viku var ég viðstödd þegar út- varpsviðtal var tekið við „opnuviðtalið" okkar, Kid Jensen. Það viðtal var tekið af Þorgeiri Ástvaldssyni og Gunnlaugi Helga- syni á Stjörnunni og mest lítið kom fram í viðtalinu sem þó tók nokkrar mínútur í flutningi. Það kom sér að sjálfsögðu vel fyr- ir Helgarpóstinn en hins vegar skaut sú spurning upp kollinum enn á ný hvers vegna verið er að taka vidtöl í þáttum sem eru byggðir upp á tónlist. Reglurnar segja til um að viðtal sem fer fram á erlendu tungumáii skuli þýtt jafnharðan yfir á ís- lensku. Þetta olli því að mestur tíminn fór í að þýöa það sem Kid sagði með þeim af- leiðingum að viðtalið fór fyrir ofan garð og neðan hjá þeim sem á hlýddu. En það er ekki aðeins í þessum morgunþætti sem fólk verður vart við gjörsamlega mislukk- uð viðtöl. Það er nefnilega kolröng stefna að blanda saman tónlistarþáttum og við- talsþáttum, einfaldlega vegna þess að þeir dagskrárgerðarmenn sem helga sig tónlist- arþáttum eru fæstir til þess fallnir að taka viðtöl. Þessum skeytum er ekki beint gegn Þorgeiri og Gunnlaugi, sem þrátt fyrir allt eru ágætis strákar og gaman að vakna með þeim á morgnana. Rás 2, Bylgjan og Stjarn- an gera allar sömu mistökin. Þær ráða til sín fólk til að stjórna viötalsþáttum sem eru svo ekkert annað en tónlist. „Nú skulum við setja þetta lag undir nálina," hljómar alltof oft. Ríkisútvarpiö hefur hins vegar á sínum snærum fólk sem er ad taka viötöl, ekki að spjalla um innantóma hluti milli laga. Áður hefur verið vikið að þætti Pálma Matthíassonar á Akureyri i þessum pistli. Þar er á ferðinni hinn fæddi spyrjandi, maðurinn sem kann að láta viðmæland- ann njóta sín án þess að grípa stöðugt fram í fyrir honum með setningum eins og ,,Þú komst með plötur með þér. Hvaða lag eig- um við að spila næst?“ Ég minnist þess ekki að hafa hlustað á virkilega góðan við- talsþátt á neinni annarri ,,stöð“ en ríkisút- varpinu. Og fátt fer eins í taugarnar á manni þegar sest er við útvarpstækið til að hlusta á viðtal við áhugaverða persónu en þegar tónlistin fer að glymja í hvert einasta skipti og viðmælandinn er að ná sér á strik. Fyrir nú utan það að það er hreinasta móðgun við þann sem er verið að „tala við“ að þykja lögin undir nálinni betri en það sem gesturinn ætlar að segja. Að auki er þetta fliss í dagskrárgerðarmönnum í hvert sinn sem þeir ljúka við setningu al- veg út í hött. Útvarpsstöðvar eiga að gera greinarmun á viötalsþáttum og tónlistar- þáttum. Alvöru umræðuefni og popptón- list passa ekki saman. Einhverju sinni í sumar tók ég eftir því í íslenska ríkissjónvarpinu að tiltekinn fréttamaður var helst til oft á skjánum. Þessi maður er Omar Ragnarsson. Hann sinnti sínu hlutverki í fréttatímanum (sem mér finnst reyndar vera fremur léttvægt; furðufréttir og fíflaskapur í bland plús til- raunir til fyndni). Þegar fréttatímanum lauk tók við spurningaþáttur sem fyrr- nefndur Ómar stýrði og þegar honum lauk hófst skemmtiþáttur í umsjón Ragga Bjarna (þar sem höfðu verið tínd til nokkur atriði úr skemmtun Sumargleðinnar með- fram einhverju öðru efni sem áttu það eitt sameiginlegt að kastað hafði verið til hönd- um við vinnslu þeirra). Fyrsti gestur þáttar- ins var auðvitað Ómar Ragnarsson, nema hver. Sigrún Stefánsdóttir, líka fréttamaður hjá sjónvarpinu, hefur nú að undanförnu fetað dyggilega þessa sömu slóð. Ekki hefur ver- ið viðtal við nokkurn mann í sjónvarpinu undanfarið öðruvísi en fyrrnefnd Sigrún væri þar mætt. Gildir þá einu hvort viðtalið er við Bjarna barka, Sigrúnu Eðvaldsdóttur fiðluleikara eða þættir um merkt afmæli Akureyrar. Að auki sér sama kona um þætti sem heita Maður vikunnar og það hefur yfirleitt passað svo smekklega sam- an að þessi viðtöl hafa verið hvert á eftir öðru í dagskránni. Þess utan er hún líka í al- mennum fréttum sem endranær. Ekki dreg ég í efa að sjónvarpið er undirmannað og ekki heldur að það sé erfitt að finna dag- skrárgerðarfólk sem getur gert þætti þokkalega úr garði. Það eru þó tæplega rök fyrir slíkri ofnotkun á dagskrárgerðar- fólki sem er engan veginn af hinu góða, kemur reyndar engum vel, ekki áhorfend- um, viðkomandi manneskju og það sem verst er, heldur ekki efninu. Framsetning öll og áherslur verða leiðinlega keimlík frá þætti til þáttar og þar af leiðandi fer efnið, sem getur verið athyglisvert, framhjá þeim sem á horfir. Það er ekki endilega víst að þáttagerð sé alltaf best komin í höndum innanbúðar- manna sjónvarpsins, reyndar sannaðist það greinilega fyrir einhverjum fáum vik- um þegar ungir menn tóku sig til og gerðu afspyrnuskemmtilegan og fróðlegan þátt um viðhorf og lífsstíl ungs fólks nú á dög- um. Ég ætla að nota tækifærið og óska Frey Þormóðssyni, jafnvel þó hann sé bæði skólabróðir minn og kunningi, og félögum hans til hamingju með þáttinn. Kannski það væri líka réttast að „gamla liðið" á sjónvarpinu skoðaði þennan þátt með tilliti til vals á viðmælendum, framsetningar á spurningum og grundvallarhugsunar (öm- urlegt orð) á bak við þáttagerð. Og líka að yfirmennirnir athuguðu að það má örugg- lega finna fólk sem getur gert vel, jafnvel þó það hafi ekki unnið á annan áratug í sjónvarpi. 30 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.