Helgarpósturinn - 10.09.1987, Page 12

Helgarpósturinn - 10.09.1987, Page 12
GÓÐA VEISLU gjöra skal Höfum til útleigu einn glæsilegasta veislu- og ráðstefnusal borgarinnar. Ut- análiggjandi glerlyfta flytur gesti upp í Norðurljósin. Salurinn hentarfyrir hvers konar veislur og mannfagnaði, svo sem árshátíðir, þorrablót, erfidrykkjur, hádeg- isverði, ráðstefnur, brúðkaups- og fermingarveislur, auk annarra mann- fagnaða eða funda. GóÖ aÖstaÖa til allra veislu- og ráÖstefnu- halda oggreið aÖkoma fyrirfatlaÖa. Útbúum allan mat og aðrar veitingar, allt eftir óskum hvers og eins. Sjón ersögu ríkari Veitingastjóri Noröurljós- anna gefur allar nánari upplýsingar. VEISLU- OG RÁÐSTEFNUSALUR í Þórshðll, Brautarholti 20, símar: 29099, 23333 og 23335. DAGBÓKIN HENNAR DÚLLU Kæra dagbók. Það er aldeilis nóg að hugsa hjá mér, því skólinn er að fara í gang og allt á fuilu. Þetta er svolítið blandað- ur fílingur. . ., ofsa gaman að hitta krakkana, en námið verður örugg- lega miklu erfiðara. Sérstaklega þegar maður er með heiður fjöl- skyldunnar á herðunum eins og ég. Það hefur nefnilega aldrei komið fyrir í mannkynssögunni að einhver af ,,okkar fólki" hafi ekki náð upp í menntaskóla. Meira að segja amma á Einimelnum var í MR þegar hún var ung! (Rosalega hlýtur þetta ann- ars að vera gamall skóli...) Pabbi og mamma eru gjörsam- lega skilningslaus á að þetta geti verið erfitt mál, því þegar þau voru í skóla var eitthvert landspróf sem var álíka þungt og lokapróf í læknis- fræði, ef marka má lýsingarnar. Þau eiga ekki til orð yfir hvað þetta var hræðilegt og finnst náttúrulega skít- ur á priki að taka nokkur samræmd próf í „litlum" grunnskóla. (í fornöld var fólk í „gagnfræðaskóla". Voða flott, maður, eða hitt þó heldur.) Ég er alltaf að reyna að segja þeim, að það er sko ekkert einfalt að komast í menntó eða Versló á þessum síð- ustu og verstu tímum. En að þau hafieinhverjasamúðmeðmanni. . . vonlaust mál! Talandi um Versló, þá verða þau nú alveg galin, ef ég nefni þann skóla á nafn. Maður má ekki einu sinni hafa skoðun á sínu persónu- lega lífi lengur. „Okkar fjölskylda" fer í MR og þá er það útrætt. Bömm- er! Þau taka sko feil, ef þau halda að þetta sé afgreitt. Mig langar mest í Versló, bæði til að vera áfram með „klíkunni" og af því að ég held að hann sé meira nútimalegur en þessi gamli menntaskóli. Og ég skal fá að ráða þessu sjálf. í MR þarf maður að þéra kennarana og ég veit ekki hvað... Gömlu hjónin eru örugglega hald- in einhverri sjálfspyndingarnautn, því þau fá bókstaflega móðu í aug- un, þegar þau tala um þrældóminn í menntó. Það var allt voða strangt og kennararnir algjörir sadistar, kennt á laugardögum og ógeðslega mikið af prófum. Samt verða þau svo smeðjuleg í framan við að rifja upp þennan tíma. Ég skil þetta ekki. Við Bella fórum aðeins niður í bæ á föstudaginn til að kíkja á liðið. Ég mátti bara vera til hálfeitt, en þá var fjörið rétt að byrja. Pabbi kom svo og sótti okkur eins og smáseiði. (Mér fannst þetta skárra en að fá alls ekki að fara, en var auðvitað í fýlu þegar pabbi sá til. Maður er nú ekk- ert að skríða fyrir þessum gamlingj- um. Hann hefði bara átt að sjá hvernig hann lét sjálfur i London, fullur af bjór og brennivíni frá morg- unmatnum og þangað til mamma dró hann af barnum og upp á her- bergi.) Talandi um bjór, þá held ég að það væri miklu sniðugra fyrir okkur krakkana að hafa hann heldur en sterka vínið. Það eru t.d. allir að gefa hver öðrum sopa niðri í miðbæ, en enginn veit hvað hann er aö drekka. Hvað þá hvað það er sterkt. Ef þetta væri bjór (eða jafnvel rauðvín eða hvítvín), þá vissi maður betur hvað maður væri búinn að fá og yrði síð- ur veikur af skrítnum blöndum. En svo eru sterku vínin látin vera miklu ódýrari (hlutfallslega, eða þannig) og bjórinn ekki einu sinni leyfður. Svona hugsa þeir ógeðslega vit- laust, þessir menn sem stjórna land- inu. Það er ég viss um að þeir eru allir úr MR en ekki Versló. Bless, Dúlla. { LJOSASKOÐUN SKAMMDEGIÐ FER í HÖND. Við aukum oryggi i umferöinni meó því aö nota okuljosin allan sólarhringinn, rétt stillt og i góðu lagi Ljósaperur geta aflagast á skömmum tíma. og Ijósaperur dofna smám saman við notkun Þannig getur Ijósmagn þeirra rýrnað um allt að þvi helming. \ jU^IFERÐAR Vilt þú fara til Spánar 22. sept Þú velur um 2 eða 3 vikna ferð á góðum gististöðum. Þetta er einn þægilegasti tími ársins, 25 stiga hiti og ákjós- anlegt veður Verd frá ^ Golfunnendur, er þetta ekki rétta ferðin? FERÐASKRIFSTOFAN orrri V J Allra val TJARNARGATA 10 SÍML28633 Við minnum sérstaklega á Kínaferð okkar16. október. Nú fer hver að verða síðastur að bóka sig. Örfá sæti laus. Ógleymanleg ferð um ævin- týralandið Kína, sem er skipulögð í samvinnu við Kínversk-íslenska menning- arfélagið og Kínversku ríkis- ferðaskrifstofunna. Fyrsta flokks aðbúnaður. Leitið upplýsinga á skrif- stofu okkar. 12 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.