Helgarpósturinn - 10.09.1987, Síða 28
EFTIR ÖNNU KRISTINE MAGNÚSDÓTTUR MYNDIR JIM SMART
RAUÐHÆRÐAR
KONUR
EKKERT
LAUSLÁTARI
EN AÐRAR!
Rauður háralitur hefur verið í
tisku undanfarna mánuði. Á
því er enginn vafi. Samt virðist sem
enginn nái þeim raunverulega
rauða háralit sem mörgum þykir svo
mikil prýði að. Aðrir eru svo lán-
samir að vera fæddir með rautt hár.
Þar á meðal margar frægustu fyrir-
sætur heims sem nú eru að slá í
gegn. Þeim rauðhærðu fannst hins
vegar ekkert gaman að þessum
háralit á sínum yngri árum. Þeim
var strítt og þeir voru uppnefndir.
Ýmsar sögusagnir hafa verið uppi
um rauðhært fólk. Það er til dæmis
sagt að rauðhærðir strákar hafi ver-
ið notaðir í hákarlabeitu og að for-
dómar gagnvart rauðhærðu og örv-
hentu fólki hér áður fyrr hafi stafað
af því að skrattinn hafi verið hvort
tveggja. Hins vegar segja aðrir að
sjálfur Jesús hafi verið rauðhærður.
Ákveðnar kenningar eru og uppi
um að rauðhært fólk sé allt öðruvísi
en aðrir. Það sé mun hressara, dug-
legra, tilfinningaríkara — og drykk-
felldara. En hvað segja þeir rauð-
hærðu sjálfir?
„Jú, jú, við erum miklu skapbetri
en aðrir!" sagði Guðrún Þ. Olafs-
dóttir, sem krefst þess að vera kölluð
Snúlla á prenti líkt og í daglega líf-
inu. Snúlla er afgreiðslustúlka í
tískuverslun og mun í næsta mánuði
einnig taka við starfi móttökustjóra
í Naustinu: „Það verður auðvelt að
þekkja móttökustjórana þar úr fjar-
lægð,“ segir hún brosandi. „Jana er
önnur og hin er „þessi rauð-
hærða“!“ En áfram um rauðhærða:
„Það rauðhærða fólk sem ég þekki
er líka alveg ótrúlega duglegt og
kraftmikið og satt að segja held ég
að rauðhært fólk búi yfir einhverri
sérstakri orku. Svo er það tilfinn-
ingaríkara en aðrir, á því er enginn
vafi. Við erum líka viðkvæm en get-
um gert óspart grín að okkur sjálf-
um. Rauðhært fólk er fjörugra en
gerist og gengur og það er hlátur-
milt. Karlmenn virðast halda að
rauðhærðar konur séu lauslátari en
aðrar, en það er sko alls ekki rétt!“
Hanna María Karlsdóttir leikkona
tekur í sama streng og Snúlla: „Já,
það er alveg merkilegt að allar laus-
lætisdrósir í kvikmyndum skuli vera
rauðhærðar. Það er verið að bendla
þaið við rauðhærðar konur að þær
séu svo vergjarnar en það er sko
bara bull! Hins vegar held ég að
rauðhært fólk sé viðkvæmara en
aðrir.“ „Ég er algjörlega á öndverð-
um meiði við það sem sagt er um
„lauslátar, rauðhærðar konur,"
sagði Edda Hinriksdóttir hár-
greiðslumeistari. „Ég held einmitt
að rauðhærðar konur séu fremur til
baka heldur en hitt!“.
28 HELGARPÓSTURINN
Lífsglatt
og kraftmikið
En er rauðhært fólk öðruvísi en
aðrir? Því hefur Snúlla þegar svar-
að, sem og Hanna María. Edda segir
um þetta atriði: Já, rauðhært fólk er
öðruvísi en annað fólk. Á því er eng-
inn vafi. Það er tilfinninganæmt og
kátt og rauðhært fólk á mjög auð-
velt með aö setja sig í spor annarra.
Ef einhver á bágt finnum við til með
honum en við erum líka fyrsta fólk-
ið til að gleðjast með þeim sem glað-
ir eru. Mér finnst rauðhært fólk lífs-
glatt og fram úr hófi duglegt og
hresst. Það er ósérhlífið og hættir
aldrei við hálfnað verk." Eiríkur
Hauksson söngvari er sammála því
að rauðhært fólk sé öðruvísi: „Auð-
vitað erum við öðruvísi. Við erum
færri og þurfum að berjast svolítið!"
Bjarni Felixson íþróttafréttamaður
sjónvarpsins er sam mála fyrrgreind-
um yfirlýsingum: „Rauðhært fólk er
miklu hressara og frískara en aðrir!“
Hanna María bætir við: „Ég held að
rauðhært fólk sé viðkvæmara en
aðrir, tilfinningaríkara og oft stutt í
tárin en það er afskaplega húmor-
ískt.“
Drykkfellt?
Ekki rauðhærðar
íslenskar konur!
Hvað um að rauðhært fólk sé
drykkfelldara en aðrir? „Það má vel
vera,“ segir Eiríkur Hauksson, en
Snúlla segir að það geti vel verið að
rauðhærðir írar séu drykkfelldir
„en ekki íslenskar rauðhærðar kon-
ur! Hins vegar get ég vel skilið að
fólk haldi almennt að rauðhærðir
séu drykkfelldir. Það er vegna þess
að rauðhært fólk er alltaf svo hresst!
Við þurfum ekkert að drekka til að
skemmta okkur vel!“ „Rauðhært
fólk er ekki drykkfelldara en aðrir,“
segir Hanna Maria ákveðið og Edda
segist vera sammála: „Það eru svo
margir rauðhærðir í minni ætt svo
ég ætti að vita það!“ segir hún. „Þeir
drekka sko ekki meira en aðrir, það
er alveg á hreinu."
Jarðnesktfólk
Þótt þessir fimm aðilar hafi tekið
vel í að svara okkur voru ekki allir
sama sinnis. Sumir sem rætt var við
sögðust „aldrei hafa pælt í þessum
háralit og þaðan af síður ætluðu
þeir sér að fara að fjalla um það op-
inberlega hvort rauðhært fólk væri
öðruvísi en aðrir“! Aðrir vildu koma
með innlegg í umræðuna en herra-
maður sem var alveg með það á
hreinu að rauðhærðir væru öðruvísi
en aðrir vildi ekki láta nafns síns
getið: „Góða besta, hvernig held-
urðu að fari fyrir mér? Giftur ljós-
hærðri! Nei, ég get sko ýmislegt
sagt um rauðhærðar konur, enda
kynnst þeim nokkrum, en það er
útilokað að gera það undir nafni."
Nafnleyndin ræður ríkjum og þá
stóð ekki á lýsingunum: „Rauðhært
fólk er mjög jarðneskt sem þýðir
það að öll starfsemi líkamans er
þeim eðlileg og verður umtalsefni.
Ef þú vinnur með rauðhærðu fólki
veistu allt um hægðamál þeirra og
annað sem viðkemur heilsu og lík-
ama. Það er ekki bara jarðneskt í
skoðunum heldur er það lika mikið
fyrir jarðneska hluti eins og skinn,
leður og bast. Svoleiðis konur geta
orðið svolítið dýrar í rekstri, það er
bara beðið um pelsa eða leður-
klæðnað í jólagjafir! Mér fannst líka
áberandi hvað það fylgdi mikið
drasl þessum rauðhærðu vinkonum
mínum! Það var eins og þær gætu
aldrei tekið almennilega til vegna
þess að það var alltaf eitthvað meira
spennandi að gerast. Rauðhært fólk
finnst mér líka tala of mikið og tala
af sér. Það hefur heldur yfirleitt ekki
mikinn móral yfir misgjörðum. Það
getur til dæmis sagt upphátt yfir
allt: „Ég dó heima hjá honum Palla
í gærkvöldi," og finnst ekkert at-
hugavert við það. Hins vegar getur
þeim sem er með rauðhærðu kon-
unni sem kemur með svona yfirlýs-
ingu þótt einum of mikið af því
góða, það hef ég sjálfur reynt! Aftur
á móti finnst mér rauðhært fólk
mjög skemmtilegt, bæði konur og
karlar. En mér finnst það ekki endi-
lega ákjósanlegustu makar í heimi
því maður veit aldrei alveg hvar
maður hefur þetta fólk. Loforðum
rauðhærðs fólks er ekki alveg hægt
að treysta. Það er eins og það lofi oft
upp í ermina á sér, svona til að
bjarga málunum. Hins vegar eru
rauðhærðu vinirnir mínir tryggusfu
vinirnir. Þótt loforðin þeirra bregð-
ist þá stendur þetta fólk með manni
fram í rauðan dauðann og er sannir
vinir. Svo virðist mér ótrúlega marg-
ir rauðhærðir vera mikið fyrir
stjörnuspeki og spíritisma. Það sem
mér finnst helstu kostir þeirra
rauðhærðu er að oftast er þetta fall-
egt fólk með augu gneistandi af lífs-
gleði — en hefur ekki hugmynd um
hvað það er fallegt. Það gerir það
svo sjarmerandi. Það er aldrei til-
gerðarlegt og gerir aldrei eða segir
hluti nema meina þá. En nú segi ég
ekki meira. Ég ætla ekki að fórna
minni ljóshærðu konu fyrir þetta
spjall!!!"
„Rauðskalli
Brennivínsson77
Stríðni í garð þeirra rauðhærðu er
Snúlla keypti sér húfu með skinnkanti til að fela rauða hárið. „Ég hét því að flytja
til London! Þar var rautt hár í tísku..."
„Mér var aldrei strítt á rauða hárinu." Edda Hinriksdóttir hárgreiðslumeistari.
„Rauðhært fólk er viðkvæmara en aðrir." Hanna María Karlsdóttir leikkona.