Helgarpósturinn - 03.12.1987, Page 2

Helgarpósturinn - 03.12.1987, Page 2
Af hverju er himinninn biár? Ingibjörg Þorbergs tónskáld „Hann veröur stundum aö vera blár, því ef hann væri allt- af grár væri lífið svolítiö dökkt. En ef hann væri ekki grár væri engin rigning, og þá væri heldur ekkert líf. Það er lög- málið að skin og skúrir verða að skiptast á." Hvar er sólin um nætur? „í Ástralíu." Því er sykurinn sætur? „Vegna þess að salt er salt." Því hafa hundarnir hár? „Til að halda á sér hita í kulda. Að vísu vorkennir maður þeim stundum þegar þeir sitja með lafandi tungu þegar heitt er." Því eiga ekki hanarnir egg? „Það fer kannski að snúast við eins og allt annað. Hæn- urnarfara kannski að gera uppreisn og heimta að hanarnir fari að verpa, og þær að gala." Því er eldurinn heitur? „Vegna þess að ísinn er kaldur." Því er afi svo feitur? „Það var ekki komið í tísku þá að fara í megrun." „Pabbi, af hverju vex á þér skegg?" „Það sýndi karlmennskuna hjá pabba." Hvar er heimsendir? „Hann er vonandi ekki að nálgast." Hvar er eilífðin? „Þegar maöur horfir út í stjörnubjartan himingeiminn sér maður næstum því eilífðina." Hver skapaði Guð? „Maðurinn." Fyrir nokkuð löngu síðan áttu flest börn sér eftirlætislag. Það voru „Aravísur", Ijóð sem Stefán Jónsson rithöfundur gerði við lag ingibjargar Þorbergs söngkonu. Nú er komin út plata sem hefur að geyma 10 lög eftir Ingibjörgu, öll tengd jólum eða áramótum, og er þetta sjálfsagt í fyrsta skipti — að minnsta kosti hér á landi — sem kona tekur sig til og semur lög sem eingöngu eru tileinkuð þessum árstíma. Með Ingibjörgu syngurfjöldi kunnra söngvara á plötunni, „Hvít er borg og bær", stórskotalið, eins og hún segir sjálf. Ari var átta ára trítill sem spurði fremur óþægilegra spurninga, sem erfitt var að svara. í stað þess að þegja fékk Ari svarið: „Þú veist það er verðurðu stór." Okkur reiknast til að nú sé Ari orðinn stór og hafi fengið svar við óllum sínum spurningum. En hver er Ari? „Ari er í raun allir Arar í heiminum," svaraði Ingibjörg Þor- bergs, sem féllst á að svara spurningunum. „Ari hefur spurt erfiðra spurninga!" sagði Ingibjörg, en hún sagðist telja að ofangreind svör hefði Ari fengið eftir að hann varð stór. FYRST OG FREMST LAUGARÁSVEGURINN hefur löngum þótt eftirsóknar- verður. Fólk sem leið hefur átt um veginn nálægt „ríkinu" hefur undanfarið getað dáðst að stór- glæsilegu einbýlishúsi sem nú er að verða fullklárað. Eigandinn er enginn annar en Gudjón B. Ólafsson, forstjóri SÍS, og er 9 herbergja fasteignin í heild sinni 654 fermetrar. Reyndar þurfti að rífa fyrst húsið Laugaholt sem var fyrir á lóðinni, en óneitanlega er „spánarstíllinn" íburðarmeiri eins og sést á meðfylgjandi mynd. Á henni sést einnig frúarbíll heimil- isins, Cadillac DeVille, sem Guðjón fékk á góðum kjörum hjá Bíl- vangi, bílasölu SÍS. Væntanlegar höfuðstöðvar SÍS á Kirkjusandi á Laugarnesinu verða nánast „handan hornsins" og óneitanlega læðist að okkur sá grunur að alltaf hafi verið ætlunin að flytja höfuð- stöðvarnar nær forstjóranum! En við óskum Guðjóni og fjölskyldu til hamingju með nýja heimilið.... AUGLÝSINGASTOFUR og aðrir aðilar sem taka að sér hönnun á auglýsingabæklingum þurfa greinilega margir hverjir að taka sig á. Á litprentuðu auglýsingaspjaldi frá diskótekinu Evrópu er vandlega unninn leiðar- vísir, svo útlendingar eigi betra með að átta sig á hvar í borginni Borgartún er. Til að auðvelda fólki að finna staðinn eru nokkrir stórir og þekktir staðir í borginni auð- kenndir á kortinu, þar á meðal Hlemmur og Holiday inn-hótelið. En ekki tókst betur til en svo við skráningu nafnsins að á spjaldinu heitir það Hollyday Inn ... HANDKNATTLEIKS- samband Islands byrjaði nýlega á að auglýsa veglegt happdrætti til styrktar sambandinu og vafalítið einnig til að styrkja handknatt- leikslandsliðið á þrautagöngu þess fram að Ólympíuleikunum næstu. Þegar myndavélinni hefur verið beint á „strákana okkar" einhverja stund er henni beint upp í áhorfendapallana og þar stendur maður sem segist styðja strákana, því þeir séu landi og þjóð til sóma. Þessi maður er Steingrímur Hermannsson núverandi utanríkis- ráðherra. Einhvern tíma hefði þótt vænlegra að fá til liðs forsætisráð- herrann og formann stærsta stjórnmálaflokksins. En hann er auðvitað bara peð miðað við Steingrím, það skilja jafnvel sjálf- stæðismennirnir í íþrótta- hreyfingunni. AUGLÝSINGAR sveitar- stjórans á Höfn í Hornafirdi, Hallgríms Gudmundssonar, eru farnar að vekja heldur betur athygli og um leið góðan árangur. Fyrir nokkrum vikum var „lýst eftir" einum 50 gjaldendum á Höfn, nánast eins og glæpa- mönnum, og í framhaldi af því tókst sveitarstjóranum að ná í nær 100% af vangoldnum opinberum gjöldum. Nú vill sveitarstjórinn koma skikki á aðsetursskráningu Hafnar- búa og hefur af því tilefni birt meðfylgjandi auglýsingu í Eystra horni, bæjarblaðinu fyrir austan. Hvar varstu síðastliðna nótt? Þjóðskrá Hagstofunnar kærir sig kollótta hvar þú varst síðastliðna nótt nema þú hafir haldið þar til lengur en tvo mánuði og látið undir höfuð leggjast að tilkynna aðsetrið. Áríðandi er, að tilkynningar um aðseturskipti og breytingar á lögheimili berist skrifstofu Hafnarhrepps fyrir 1. desember n.k. Greiðslustaður opinbcrra gjalda miðast við lögheimili 1. desember ár hvert. Húsráðendur eru beðnir að ganga úr skugga um að leigutakar hafi sinnt ofangreindri tilkynningarskyldu fyrir 1. desember. Höfn, 25 nóvember 1987, Sveitarstjóri Hafnarhrepps. I auglýsingunni spyr sveitar- stjórinn hvar þú hafir verið sl. nótt. Spurningunni er beint til þeirra, sem hafa látið undir höfuð leggjast að tilkynna aðsetursskipti hafi þeir haft fast aðsetur á sama stað í tvo mánuði án þess að til- kynna það. Víst má telja, að þessi auglýsing eigi eftir að bera jafn- góðan árangur og hin fyrri. t3í, E.& 5Eþi HEL.t'rNW P1TNPI flflNGB þw.RR HELGARPÚSTURINN UMMÆLI VIKUNNAR Einkunn Þorgeirs llla þrjótum yfirsást sem ætla aö merki gorgeirs sé aö finna í sannleiksást og sannri hógværö Þorgeirs. Niöri ,,Þad er ekki réttlátt ad mínu mati að lofa tannlausum mönnum að keppa í slíkri andlitsleikfimi á sömu forsendum og tenntu fólki." ÓLAFUR M. JÓHANNESSON í MORGUNBLAÐINU 27. NÓV. UM GRETTUKEPPNI í ÞÆTTINUM A TALI HJÁ HEMMA GUNN 2 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.