Helgarpósturinn - 03.12.1987, Síða 7

Helgarpósturinn - 03.12.1987, Síða 7
fer fram á vegum útvarpsréttarnefndar Árni Gunnarsson alþingismaður á sæti í útvarpsréttar- nefnd. Hann telur að tími sé kominn til að grípa til harð- ari aðgerða gegn þeim útvarps- og sjónvarpsstöðvum sem ekki fylgja settum reglum. Formaður nefndarinnar, Kjartan Gunnarsson, telur hins vegar að eftirlitshlutverk nefndarinnar sé ákaflega óskilgreint og hann segist t.d. alls ekki viss um að það sé hlutverk nefndarinnar að fylgjast með að reglugerð um auglýsingar í útvarpi sé fyigt. EFTIR PÁL H. HANNESSON Útvarpsréttarnefnd hefur það hlutverk samkvæmt lögum að veita leyfi til útvarpsrekstrar og síðan að fylgjast með að laga- og reglugerð- arákvæðum um útvarpsrekstur sé fylgt. Útvarpsréttarnefnd hefur alls haldið 18 fundi frá upphafi og á þeim hafa verið teknar ákvarðanir um að útvarpsrekstrarleyfi skuli veitt 59 aðilum. Er hér um að ræða leyfi til sjónvarpsrekstrar sem og leyfi til rekstrar útvarpsstöðva til lengri eða skemmri tíma. í reglu- gerð um útvarp samkvæmt tíma- bundnum leyfum segir í 2. gr.: „Út- varpsréttarnefnd veitir leyfi til út- varps í samræmi við ákvæði reglu- gerðar þessarar og fylgist með því að laga- og reglugerðarákvæðum um útvarpsrekstur samkvæmt tíma- bundnum leyfum og skilmálum slíkra leyfa sé fylgt.'1 EFTIRLITSHLUTVERK ÚTVARPSRÉTTAR- NEFNDAR Það er samkvæmt þessu hlutverk nefndarinnar að hafa eftirlit með að fjölda ákvæða sé fylgt, svo sem að auglýsingar skuli skýrt afmarkaðar frá öðru dagskrárefni, að efni sé flutt á góðri íslensku, að aðilar sem á sér telja brotið í fjölmiðlum fái að koma á framfæri leiðréttingum o.s.frv. Formaður útvarpsréttarnefndar, Kjartan Gunnarsson, telur hins veg- ar aðalhlutverk nefndarinnar vera leyfisveitingar og síðan að vera áfrýj- unardómstóll, en segir jafnframt að á síðara hlutverkið hafi aldrei reynt hing- að til. Hann sagði í viðtali við HP að engin skipuleg eftirlitsvinna væri framkvæmd á vegum nefndarinnar, t.d. varðandi það hvort ákvæði um auglýsingar væru brotin eða ekki. Ábyrgðin á að reglugerðum væri hlýtt væri fyrst og fremst á herðum leyfishafa og það væri vaxandi skoðun í þjóðfélaginu að ljósvaka- miðla bæri að meta á sömu mæli- stiku og prentmiðla. Formaður út- varpsréttarnefndar sækir því túlkun rína á lögum og reglum til óskil- greinds almenningálits, en ekki hugmyndanna sem felldar eru i lög og reglur, svo sem eðlilegt þætti uns lögum og reglum væri breytt. ATHUGASEMDIR SJALDGÆFAR Aðspurður hversu oft nefndin hefði gert athugasemdir við auglýs- ingar þeirra stöðva sem þeir hefðu veitt leyfi sagði Kjartan að það hefði sjaldan verið gert. Aðallega hefði verið haft samband við 5/öð 2 og Bylgjuna þegar þessar stöðvar voru að hefja rekstur, og þessar stöðvar hefðu síðan orðið fyrirmynd ann- arra stöðva. Þegar HP hafði sam- band við Einar Sigurdsson, útvarps- stjóra á Bylgjunni, sagði hann að stöðin hefði aldrei fengið senda at- hugasemd frá útvarpsréttarnefnd vegna auglýsinga. Aðeins hefði Bylgjunni borist eitt bréf frá nefnd- inni út af öðru og svar við því hefði verið talið fullnægjandL KJARTAN OG ÁRNI ÓSAMMÁLA Sagði Kjartan að þá sjaldan at- hugasemdir hefðu verið gerðar við auglýsingar „þá hefur því verið óskaplega vel tekið af viðkomandi ogjafnóðum sinnt". Árni Gunnarsson er hins vegar ekki á sama máli. „Það er alveg klárt og ég fullyrði það að sumar stöðvarnar hafa ekki farið að þeim óskum sem til þeirra hefur verið beint." Tók Árni sem dæmi að at- hugasemd hefði verð gerð við klukku þá sem Stöð 2 birtir á skján- um og skartar ákveðnu vörumerki. Hefði klukkan verið tekin úr umferð en önnur sett í staðinn með sama vörumerki. „Við gerðum harða hríð í þessu máli fyrir u.þ.b. hálfu ári, en með þessum árangri. Þetta er mál sem verður að ræða og taka upp á nýjan leik," sagði Árni. Þegar HP bar þetta dæmi undir Kjartan Gunn- arsson bar hins vegar svo við, að hann staðhæfði að athugasemd þessa efnis við Stöð 2 hefði aldrei verið gerð á vegum nefndarinnar. „Það getur verið að Árni sjálfur hafi gert athugasemdir við þetta, nefnd- in sjálf hefur aldrei gert athuga- semdir þar að lútandi. Ég get alls ekki séð að klukka Stöðvar 2 brjóti á neinn hátt í bága við útvarpslög- in,“ sagði Kjartan. Hann bætti því við varðandi þær almennu kröfur sem gera ætti til útvarps- og sjón- varpsstöðva „að ég tel að í þessu sambandi skuli það meginsjónar- mið gilda, að þessir aðilar megi ávallt ganga a.m.k. jafnlangt og Rík- isútvarpið gerir í auglýsingabirtingu og öðrum slíkum málum." TÍMI AÐLÖGUNAR LIÐINN Árni Gunnarsson sagði það sína skoðun að það væri galli á störfum útvarpsréttarnefndar að hún hefði ekki gengið nægilega hart fram í eftirlitshlutverki sínu. „Hins vegar kemur ekki til greina að við horfum lengi upp á það að menn fari ekki eftir þeim áminningum sem til þeirra hefur verið beint. Það hlýtur að leiða til þess að sá frestur sem mönnum var gefinn til þess að að- lagast reglunum fari að líða og verði ekki lát á þessu, að þá muni menn grípa til tiltækra ráða svo far- ið verði að settum lögum. Fari stöðvarnar ekki að settum lögum höfum við heimild til að svipta þær rekstrarleyfi, það er alveg á hreinu." Sagði Árni að nefndin hefði haft það að meginverkefni að leyfa þróun- inni að fara af stað, sjá hverju fram yndi en að vera ekki dragbítar. „En hins vegar kann það að vera tíma- bært að taka á þessu auglýsinga- fargani og þá sérstaklega nú fyrir jólin." Um það hvort Kjartan liti svo á að aðlögunartími stöðvanna væri lið- inn og tími til kominn að grípa til harðari aðgerða vegna brota á lög- um og reglugerðum sagði hann að veitt útvarpsleyfi giltu til ársloka 1988 og það væri tíminn sem væri hugsaður til aðlögunar. Um það hvort þá yrði reynt að fylgja eftirliti Kjartan Gunnarsson, formaður útvarpsréttarnefndar. Formaðurinn túlkar lög og reglur í samræmi við „skoðanir í samfélaginu". Árni Gunnarsson alþingismaður í útvarpsréttarnefnd. Fullyrðir að sumar stöðvanna hafi ekki farið eftir óskum nefndarinnar. betur eftir hafði hann engin orð. Þeir Árni og Kjartan voru hins vegar sammála um að eftirlit væri erfitt og mætti deila um hvað væri auglýsing og hvað ekki. Eins voru þeir báðir sammála um það að mik- ið þyrfti að ganga á áður en „gripið yrði til þeirra örþrifaráða að svipta útvarpsstöðvar rekstrarleyfi", eins og Kjartan sagði. Aðspurður sagði Árni Gunnarsson að það þyrfti að koma til mjög grófra brota áður en stöðvar yrðu sviptar rekstrarleyfi, enda „eru menn í flestum tilvikum með allar eignir sínar undir í þess- um rekstri". Kjartan og Árni voru sammála um að samstarf innan útvarpsréttar- nefndar hefði verið einstaklega gott. A ONDVERÐUM MEIÐI Mörgum hefur komið á óvart að áhrifamenn í Sjálfstæðisflokki skuli hafa brugðist illa við þeirri ákvörðun viðskiptaráðherra, að veita fleiri fyrirtækjum en SÍS og SH leyfi til útflutnings á frystum fiski til Bandaríkjanna. Guömund- ur H. Garðarsson er áhrifamaður innan Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna og Ingimundur Sigfússon er einn eigenda Stef nis hf., sem fékk úthlutað leyfi til útflutnings á þennan markaö. Báðir eru áhrifamiklir í Sjálfstæöisflokknum. INGIMUNDUR SIGFÚSSON — Ertu hrœddur vid frjálsan fiskútflutning? „Nei.“ — Hvaö vinnst med fleiri útflytj- endum? „Ég held að ýmislegt geti unnist með því, eins og t.d. að oft geti smærri aðilar sinnt verkefnum, sem stærri aðilar eiga í erfiðleik- um með að sinna. Það held ég sé mjög æskilegt. — Er þessi afstada þín í sam- rœmi viö stefnu Sjálfstœdisflokks- ins? „Það tel ég vera. Hún er tví- mælalaust í samræmi við stefnu- skrá flokksins." GUÐMUNDUR H. GARÐARSSON — Ertu hrœddur vid frjálsan fiskútflutning? „Mér finnst að menn verði að gera sér grein fyrir um hvaða hagsmuni er verið að tala í sam- bandi við útflutning. Ég hef verið þeirrar skoðunar að hagsmunir ís- lendinga í sölu sjávarafurða yrðu best tryggðir ef sterk fyrirtæki, og þá skiptir ekki máli hvort þau eru eitt, tvö, þrjú eða fjögur, — ef sterk fyrirtæki í eigu íslendinga sjálfra önnuðust ákveðna þætti í sölu ís- lenskra sjávarafurða. Þessi skoðun byggist á því að úti í hinum stóra heimi erum við að berjast við að fá sem best verð fyrir afurðir okkar og ég tel að með því að standa saman í þessu náum við sem best til neytenda og eigum þ.a.l. meiri möguleika á að ná í stærri hluta af kökunni." — Hvad vinnst med fleiri útflytj- endum? „Það sem gæti unnist með fleiri útflytjendum væri það að ef fá stór fyrirtæki stöðnuðu hlyti það að vera hvati að aðrir kæmu þar til skjalanna, það er eini ávinningur- inn sem ég sé á þessu stigi í sam- bandi við útflutning, því erlendis erum við fyrst og fremst að keppa við erlenda aðila en ekki sjálfa okkur." — Er þessi afstaöa þín í sam- rœmi viö stefnu SjálfstœÖisflokks- ins? „Ég held að það hljóti að vera stefna Sjálfstæðisflokksins að há- marka arðsemina af útfluttum sjávarafurðum þannig að íslend- ingar fái sem mest í sinn hlut. Og ég veit ekki betur en Sjálfstæðis- flokkur hafi tekið afstöðu með þessu fyrirkomulagi í gegnum ár- in og það hefur engin grundvailar- breyting orðið á stefnu flokksins í þeim efnum." HELGARPÓSTURINN 7

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.