Helgarpósturinn - 03.12.1987, Síða 8
LOGFRÆÐINGAR LATA ADRA
BORGA FÉLAGSGJÖLDIN
Dómsmálaráöuneytid ítrekar mótmœli
Mörg undanfarin ár hefur svokallað ,,málagjald“ verið
innheimt við þingfestingar mála fyrir dómstólum. Þó
,,málagjaldið“ sé i raun félagsgjald lögmanna hafa lög-
menn innheimt þetta gjald af skuldurum. Þetta hefur við-
gengist þrátt fyrir að dómsmálaráduneytiö hafi tvívegis
gert athugasemdir vegna þessarar „skattheimtu" lög-
manna af viðskiptamönnum sínum.
EFTIR GUNNAR SMÁRA EGILSSON
í Helgarpóstinum var greint frá
þessu „málagjaldi" síðastliðið vor.
I’ar kom fram að aðalfundur Lög-
mannafélags íslands hækkaði þetta
gjald upp í 250 krónur af hverri
þingfestingu í mars síðastliðnum.
Það má því gera ráð fyrir að Lög-
mannafélagið fái um 4,2 milljónir
króna vegna þingfestinga fyrir
Borgardómi Reykjavíkur einum, ef
miðað er við fjölda þingfestinga í
fyrra. Tekjur félagsins vegna þing-
festinga á landinu öllu gætu því
numið um 8 milljónum króna.
LÖGMENN SKULI
SJALFIR GREIÐA
FELAGSGJOLD SÍN
Á árinu 1976 sá dómsmálaráðu-
neytið ástæðu til þess að senda öll-
um dómstólum landsins bréf þar
sem kom fram, að alls ekki væri ætl-
ast til að dómstólar bættu þessum
kostnaði á reikning skuldara. í kjöl-
far skrifa Helgarpóstsins um málið
síöastliðið vor ítrekaði ráðuneytið
þetta erindi. í því bréfi segir meðal
annars:
„Að mati ráðuneytisins er mála-
gjaldið félagsgjaid sem lögmaður
greiðir sjálfur af hverju einstöku
máli samkvæmt samþykktum fé-
lags síns. Málagjaldið er þannig ekki
lagt á umbjóðanda lögmannsins.
Gjaldið sem slíkt ber því ekki að
telja til máiskostnaðar sem útlagðan
kostnað heidur ber lögmaðurinn
það sjálfur af málflutningslaunum
sínum."
Túlkun ráðuneytisins er því skýr:
Óheimilt er að krefja skuldara um
málagjaldið. Lögmaðurinn á sjálfur
að standa straum af sínum félags-
gjöldum.
SKATTA SKAL EKKI
LEGGJA Á NEMA MEÐ
LÖGUM
Þrátt fyrir ítrekuð tilmæli ráðu-
neytisins hefur fjöldi lögmanna inn-
heimt þetta gjald af skuldurum í inn-
heimtumálum. Þess eru sömuleiðis
dæmi að slík krafa hafi farið í gegn-
um dómstóla án athugasemda dóm-
ara.
Auk úrskurðar ráðuneytisins má
benda á að samkvæmt stjórnarskrá
er óheimilt að leggja á skatta nema
með lögum. Aðalfundi Lögmanna-
félagsins er slíkt ekki heimilt, jafn-
vel þó ákvörðun hans sé háð sam-
þykki dómsmálaráðherra. Ekki er
hægt að líta á innheimtu þessa
gjalds af skuldara nema sem skatt-
lagningu, þar sem það er ekki hluti
af málflutningslaunum eða gjöldum
til votta eða dómstóla.
Lögmenn nýta þessa fjármuni á
þrennan hátt. Sextíu prósent gjalds-
ins renna til félagssjóðs Lögmanna-
félagsins. Fimmtungur í námssjóð
lögmanna og annar fimmtungur í
ábyrgðasjóð Lögmannafélagsins,
sem greitt var úr í fyrsta skipti síð-
astliðið vor.
COLDWATER SPRE
ÚR HÖRPUDISKS
'SH og SÍS sitja uppi með hundraða tonna
birgðir seljanlegar á hálfvirði m.v. hœsta verð
Hörkuleg viðbrögð fjandvinafyrirtækjanna SH og
Sambandsins gagnvart leyfisveitingum Jóns Sigurðsson-
ar viðskiptaráðherra til handa 6 smáfyrirtækjum til fisk-
sölu í Bandaríkjunum vekja furðu og undrun. Ljóst er að
þessi aðgerð ráðherrans er fyrst og fremst ,,prinsipp“yfir-
lýsing um viðskiptafrelsi, sem ekki mun á næstu árum
leiða til neinna stórbreytinga á fisksölu okkar á banda-
rískum markaði. Yfirlýsing stjórnar SH, sem birtist í dag-
blöðum sl. þriðjudag, um að núverandi fyrirkomulag sé
slíkt hámark fullkomnunar að við því megi ekki hrófla,
er þó varla marktæk.
EFTIR ÓLAF HANNIBALSSON
HP hefur undir höndum plagg frá
Coldwater Seafood, sem sýnir að
þar á bæ getur mönnum skjöplast
og orðið svo á í messunni þrátt fyrir
áratuga reynslu sína, að smáfyrir-
tæki geta slegið þeim við og selt sér-
hæfða vöru mun hraðar og á mun
betra verði en risarnir. Um er að
ræða sölu á hörpudiski.
Á fundi Félags íslenskra stórkaup-
manna í fyrradag afhenti Óttar
Yngvason hjá Islensku útflutnings-
miðstöðinni Steingrími Hermanns-
syni utanríkisráðherra ljósrit af
kynningarblaði, sem Coldwater
Seafood hafði sent 20.000 veitinga-
hússeigendum með jólatilboði um
verðlækkun og afslátt á hörpudiski
og virðist hafa haft þau ein áhrif á
markaðinn, að verðið féll á nýjan
botn í $2.50—$2.80 úr $5.00 topp-
verði, sem litlu keppinautarnir
höfðu náð í fyrra, — án þess þó að
veruleg hreyfing kæmi á hörpu-
disksbirgðir Coldwaters.
í samtali við HP sagði Óttar
Yngvason, að verðsveiflur á hörpu-
diski gætu verið geysilega miklar frá
einum tíma til annars. Frumregla í
þessum viðskiptum væri því að vera
viðbragðssnöggur en fara þó gæti-
lega og halda sinni taugaró. Fyrir
rúmu ári síðan tók markaðurinn
skyndilegan kipp upp á við og náði
„AUKINN NIÐURSKURÐUR
EÐA AUKINN SKATTUR"
Öll stjórnarfrumvörp afgreidd með samkomulagi fyrir jól að sögn Sighvats Björgvinssonar
Ein af síðustu uppákomum í stjórnarsamstarfinu voru
yfirlýsingar alþýðuflokksmanna í kvótamálinu. Það
fylgdi í kjölfar ágreinings stjórnarliða um fjárlög, hús-
næðismál, landbúnaðarmál, matarskatt og fleira.
Sighvatur Björgvinsson er einn helsti talsmaður Al-
þýðuflokksins í kvótamálinu. Hann er einnig formaður
fjárveitingarnefndar sem nú er að afgreiða mikinn fjölda
af beiðnum um aukin framlög ríkisins.
EFTIR GUNNAR SMÁRA EGILSSON MYND JIM SMART
Pú stóðsl manna helst fyrir við-
bárum krata vegna kvótafrum-
varpsins. Hvert hefur þaö leitt
ykkur?
Þessi ágreiningur mun verða
leystur með samkomulagi. Við
leggjum áherslu á að breytingar
verði gerðar á kvótakerfinu og að
það nái ekki að festast í sessi. Við
getum ekki sætt okkur við að þeim
útgerðarmönnum sem stunduðu
fiskveiðar á árinu 1983 verði úthlut-
að þessari auðlind þjóðarinnar út yfir
gröf og dauða.
En munuð þið samþykkja þau
frumdrög, sem lögð hafa verið fram,
fyrir jólafrí?
Ekki nema með breytingum. Við
gerum kröfu um að þau verði sett í
endurskoðun á gildistímanum. Á
þeim tíma munum við vinna að því
að ná fram breytingum á kerfinu.
Við munum ekki sætta okkur við að
menn geti selt lífsbjörgina frá heilu
byggðarlögunum fyrir gull. Eins að
ungum mönnum sé haldið frá fiski-
miðunum.
En getið þið sœtt ykkur við fjög-
urra ára gildistíma?
Ef samið verður um endurskoðun
á tímabilinu.
Nú er Jón Sigurðsson viðskipta-
8 HELGARPÓSTURINN
ráðherra einn af höfundum kvóta-
kerfisins. Er hann ekki „líkið í lest “
Alþýðuflokksins í þessu máli?
Það er rétt að Jón vann að hönn-
un kvótakerfisins sem embættis-
maður og vann að útreikningum
fyrir stjórnvöld á sínum tíma. En
hann stendur einarðlega með
stefnu Alþýðuflokksins í þessu máli
í dag.
Býstu við að kvótamálið verði af-
greitt fyrir jól?
Já.
Verður líka gengið til samninga
um húsnœðismálið?
Já, það verður Iíka afgreitt fyrir
jól.
Félagi þinn fyrir uestan, Karvel
Pálmason, hefur lýst þvi yfir að
hann styðji ekki þessa stjórn ef hún
setur á matarskatt. Mega kratar á
Vestfjörðum við því að annar þing-
maðurinn sé ístjórn en hinn ístjórn-
arandstöðu, eftir langvinnar deilur
ykkar?
Karvel hefur lýst andstöðu sinni
við matarskattinn, en hann hefur
jafnframt lýst því yfir að hann sé í
þingflokki Alþýðuflokksins. Þing-
flokkurinn er aðili að þessari ríkis-
stjórn. Karvel er fullgildur meðlim-
ur þingflokksins og gegnir trúnað-
arstörfum fyrir hann. Þó svo hann
hafi fyrirvara til afstöðu til einstakra
mála, eins og margir hafa, þá tel ég
ekki að við sitjum sitt hvorum meg-
in við borðið.
,,Fyrirvara til afstöðu," segir þú.
Þingmenn virðast nú hafa sjálfstœð-
ari skoðanir á flestum málum en
nokkru sinni fyrr. Er þetta ástand
komið til að vera?
Eg veit ekki hvort þetta er komið
til að vera. Þetta á sjálfsagt sína
skýringu í því að þingstyrkur stjórn-
arinnar er svo mikill, að menn telja
sér leyfast meira. Að stjórnin sé ekk-
ert í hættu þó þingmaður brjóti sig
út úr í einstaka máli. En menn
gleyma því að með því firra þeir sig
ábyrgð á óvinsælum málum og
koma henni yfir á félaga sína og
flokksbræður. Það gengur ekki til
lengdar.
Þú varst nýlega að skammast út í
Alexandar Stefánsson fyrir trúnað-
arbrot gagnvart störfum fjárveiting-
arnefndar.
Ég skammaði nú ekki Alexander.
A sama vettvangi dróst þú fullyrð-
ingar hans um halla á fjárlögum
ekki til baka.
Það var skýrt frá því hvað samtal-
an úr þeim erindum, sem lögð hafa
verið fyrir fjárveitingarnefnd, er há.
Síðan var Alexander spurður um
hvað fjárlög myndu hækka í með-
förum Alþingis. Hann vísaði ein-
vörðungu til þess hver reynslan
væri, eða einhvers staðar á bilinu
tvö til þrjú prósent. Þá reiknaði
fréttamaðurinn út hvað það væri og
hafði það síðan eftir Alexandar að
fjárlög ættu eftir að hækka um svo
og svo miklar fjárhæðir.
Þá er nú auðvelt að draga þá
ályktun að hallisé kominn á fjárlög-
in ef fjárveitingarnefndarmaður
segir að vaninn sé tveggja til þriggja
prósenta hœkkun í meðförum
þingsins, þegar hann er spurður út
í hallann.
Við eigum alveg eftir að afgreiða
þessi erindi og margar af þessum af-
greiðslum verða að vera á ábyrgð
ríkisstjórnar.
Ert er ekki fullljóst að þið munið
afgreiða fjárlögin frá ykkur með
halla. Ekki dugar 27milljóna króna
tekjuafgangurinn á frumvarpinu
langt.
Ríkisstjórin hefur ákveðið að fjár-
lög skuli vera hallalaus. Það er mjög
algengt að fjárlög breytist í meðför-
um Alþingis, bæði tekju- og gjalda-
megin. Það á eftir að koma ný tekju-
spá sem er gerð fyrir afgreiðslu fjár-
laga. Menn gleyma því alltaf, þegar
þeir tala um að gjaldaliðir fjárlaga
hækki í meðförum Alþingis, að
tekjuliðurinn hefur alltaf hækkað
Iíka.
Þið lifið í þeirri von, þegar þið af-
greiðið hluta af þúsund erindum
sem beint hefur verið til nefndarinn-
ar.
Ja, við höfum hugmyndir um
hvert stefnir í þeirri átt. Eg get sagt
það nú, að allt stefnir í að tekjuhlið
fjárlaga muni ekki hækka eins mik-
ið og oft áður. Þannig að menn þurfa
að fara mjög varlega í allar hækkan-
ir á gjaldaliðum í þinginu. Ef slíkt
gerist verður ríkisstjórnin að skoða
það mál sérstaklega. Þá þarf hún að
taka afstöðu til þriggja kosta; á að af-
greiða fjárlög með halla, á að fara í
aukinn niðurskurð eða á að auka
skattheimtu? Fjárveitingarnefnd á
ekki að taka ákvörðun um þetta, því
hér er um stefnu ríkisstjórnarinnar
að ræða.
Það má því allt eins búast viö því
að það ueröi settur á flatur 25 pró-
senta söluskattur.
Eg hef bara ekki hugmynd um
það á þessu stigi. En ef ríkisstjórnin
ætlar að standa á þeirri samþykkt
sinni að reka ríkissjóð án halla, þá
getur rekið til þess að hún þurfi að
taka ákvörðun um skattahækkun.
Það er varla á skattahœkkanir
þessarar stjórnar bœtandi. Hún hef-
ur þegar staðið fyrir meiri skatta-
hœkkunum á stuttum tíma en nokk-
ur stjórn önnur.
Ég hef engan samanburð um það.
Að sumu leyti er um skattahækkan-
ir að ræða og að sumu leyti ekki. Ég
reikna til dæmis ekki með því að
staðgreiðslukerfið verði til þess að
auka skattbyrði fólks. Verulegar
breytingar verða á innbyrðis hlut-
falli á vöruverði, vegna breytinga á
tollum. Þær hækka sumar vörur, en
aðrar lækka. Það fer mikið eftir því
hvernig fjölskyldan er saman sett
hvort um er að ræða hækkun eða
lækkun á skattbyrði.
Er þetta ekki til að slá ryki í augun
á fólki. Eflaust er það gustukaverk
að einfalda tollaflokka, en það
stendur eftir að þessi ríkisstjórn
stefnir að því að auka tekjur ríkis-
sjóðs umtalsvert. Þaðgeturekki þýtt
annað en auknar greiðslur þegn-
anna til ríkisins.
Það er alveg rétt að ríkið ætlar sér
auknar tekjur á næsta ári. En menn
verða að horfa á það að ein megin-
forsendan fyrir því hversu verð-
bólga hefur verið mikil á íslandi og
vextir háir er sú að ríkissjóður hefur
verið rekinn með halla. Hann hefur
þurft á lánsfé að halda til að rétta
sinn halla. Það lánsfé hefur hann
annars vegar tekið erlendis og
magnað þannig þenslu og verð-
bólgu. Hins vegar hefur hann tekið
innlend lán í samkeppni við inn-
lenda aðila og knúið þannig vextina
upp. Besta leiðin til þess að sporna
við verðbólgu og lækka vexti er því
að ríkissjóður verði rekinn halla-
laust. Það er einungis hægt að gera
á tvo vegu. Annars vegar með því
að skera niður útgjöld og það hefur
ríkisstjórnin gert og hins vegar að
hækka skatta. Hún hefur gert hvort
tveggja i senn.
Þú telur þá litlar líkur á því að rík-
isstjórnin sendi frá sér fjárlög með
halla.
Hún hefur mótað þá afstöðu að
vinna gegn verðbólgu og vaxta-
hækkunum, sem er öflugasta vopn
ríkisvaldsins til þess að reka ríkis-
sjóð hallalausan. Ég lít á það sem
skyldu mína sem formanns fjárveit-
ingarnefndar, ef gjaldaliðir frum-
varpsins hækka í meðförum nefnd-