Helgarpósturinn - 03.12.1987, Blaðsíða 10

Helgarpósturinn - 03.12.1987, Blaðsíða 10
VETTVANGUR HELGARPÖSTURINN Ritstjórar: Halldór Halldórsson, Helgi Már Arthursson Blaðamenn: Anna Kristine Magnúsdóttir, Friörik Þór Guðmundsson, Gunnar Smári Egilsson, Jónína Leósdóttir, Kristján Kristjánsson, Ólafur Hannibalsson, Páll Hannesson. Prófarkir: Sigríöur H. Gunnarsdóttir Ljósmyndir: Jim Smart Útlit: Jón Óskar Framkvæmdastjóri: Hákon Hákonarson Augiýsingastjóri: Hinrik Gunnar Hilmarsson Auglýsingar: Bergþóra Sigurbjörnsdóttir, Sigurrós Kristinsdóttir Dreifing: Guörún Geirsdóttir Afgreiðsla: Bryndís Hilmarsdóttir Sendingar: Ingimar F. Jóhannsson Ritstjórn og auglýsingar eru í Ármúla 36, Reykjavík, sími 68-15-11. Afgreiösla og skrifstofa eru í Ármúla 36, sími 68-15-11 Útgefandi: Goögá hf. Setning og umbrot: Leturval sf. Prentun: Blaöaprent hf. Hrunadans framundan? Áhugamenn um stjórnmál hafa lengi haft á orði, að upplausn fylgdi í kjölfar átaka í Sjálfstæðisflokki. Ekki að- eins í stjórnmálalífinu heldur þjóðlífinu öllu. Því hvernig svo sem menn líta á Sjálfstæðisflokkinn, eða hverja skoðun menn hafa á sjálfstæðisstefnunni, þá verður aldrei horft framhjá því að stöðugt fylgi flokksins í áratugi hefur ver- ið kjölfesta í stjórnmálum í landinu. Þess vegna er það sem margir óttast nú afleiðingar áframhaldandi upp- lausnar í Sjálfstæðisflokknum. Vegna mikilvægis Sjálf- stæðisflokksins fyrir stöðugleika í stjórnmálum hafa þeir sem aðhyllast hægfara framsókn sagt, að formennska í Sjálfstæðisflokknum krefjist af mönnum sem gegna því embætti yfirburða sem fátíðir séu. Um þessar mundir veit þessi stóri flokkur ekki í hvorn fótinn hann á að stíga. Og það sem verra er, og farið er að hafa veruleg áhrif í stjórnmálum, þetta ástand virðist ætla að verða viðvarandi. I kvótamálinu er flokkurinn tvískiptur. Og eftirlætur Alþýðuflokknum að bera fram hugmyndir, sem samhent- ur Sjálfstæðisflokkur hefði löngu átt að vera búinn að, þ.e.a.s. að leggja áherslu á sölu veiðileyfa. Morgunblaðið hefur haldið fram þessari stefnu fyrir daufum eyrum sjálfstæðismanna. í landbúnaðarmálum er flokkurinn framsóknarmegin við sjálfa Framsókn og það undarlega gerist að Alþýðu- flokkur og Framsóknarflokkur ná samstöðu um áherslur í landbúnaðarmálum. í húsnæðismálum hafa sjálfstæðismenn haldið þannig á málum að þeir eru við það að dæma sig úr leik í opin- berri umræðu. Þeir hafa þverskallast við að viðurkenna gallana á því húsnæðiskerfi sem Alþýðusamband íslands og Vinnuveitendasambandið lögðu fyrir og létu Alþingi samþykkja. Þeir hafa neitað að horfast í augu við að ein- mitt þetta kerfi gengur af sjálfseignarstefnunni í hús- næðismálum dauðri, enda þótt einmitt þessi stefna sé einn af hornsteinum þess sem flestir vilja að sjálfstæðis- stefna sé. I viðskiptamálum stíga áhrifamiklir sjálfstæðismenn á stokk og ráðast gegn viðskiptaráðherra, sem er krati, vegna þess að hann boðar frjálsræði í útflutningi og heimilar fleiri fyrirtækjum að flytja út frystan fisk á Bandaríkjamarkað. Og í því „fjölmiðlafrelsi", sem flokkurinn hreykti sér svo mjög af í auglýsingum fyrir kosningar í vor, kemur hann fram sem margir flokkar, en ekki einn. Þegar frétta- menn leita eftir áliti sjálfstæðisþingmanna er það undir hælinn lagt hvað kemur út úr pokanum. Þingflokkur sjálfstæðismanna virðist hafa á takteinum jafnmargar skoðanir og þingmennirnir eru margir í málum sem þingflokkur ætti að hafa ákveðna stefnu í. Formaður Sjálfstæðisflokksins var fyrir stuttu spurður um það í viðtali í Helgarpóstinum hvort hann ætlaði ekki að fara að stjórna þingflokknum. Hann játaði því, og sagðist myndu ætla að beita þingflokkinn aga. Síðan hef- ur lausungin aukist. Blikur eru á Iofti í stjórnarsamstarf- inu. Verðbólga og vextir æða upp á vid. Og eftir nokk- urra vikna umræður um fjárlög eru markmiðin frá í októ- ber fokin út í veður og vind. Og hvað gerist? í skoðanakönnun aukast sífellt vin- sældir „gamla forsætisráðherrans", Steingríms Her- mannssonar. Sjálfstæðisflokkurinn virðist ekki ætla að ná sér á strik í þessum könnunum. Og er greinilega lent- ur í vítahring óvissu. Það er t.a.m. ótrúlegt að ástandið skuli vera þannig í þingflokki Sjálfstæðisflokksins, að menn skuli þar ekki geta komið sér saman um fulltrúa í stjórn Byggðastofn- unar. Eða er þessi stóri flokkur — kjölfesta í stjórnmálum í áratugi — orðinn svo smár, að mál eins og hér er nefnt að ofan lami flokkinn? 10 HELGARPÓSTURINN Væntingaheftir sameinist! Þaö er fleira á kreiki í þessum heimi en það, sem sýnilegt er með berum augum. Þar á meðal eru ráð- herrar Sjálfstæðisflokksins. Þingmenn flokksins reyna að bæta þessa ávöntun upp með því að vera prýðilega heyranlegir. Sá kór er hins vegar svo margradda og mis- kliðaður, að engin leið er að greina, hvort hann hljómar að ofan eða neðan, austan eða vestan, utan eða sunnan. Hönd rís gegn hendi, fótur þvælist fyrir fæti, allir tala tungum — tveimur að minnsta kosti í senn. Hvergi kemur þetta jafnátakanlega í ljós og í kosningu í stjórn Byggða- stofnunar, sem um nokkurra vikna skeið hefur virst vera flokknum of- viða að leysa. Sjálfstæðismenn áttu þar þrjá menn undir fráfarandi stjórn, en urðu nú að láta einn af hendi til krata. Eigi skal víkja sögðu allir í senn: Eggert Haukdcil, Halldór Blöndal og Olafur G. Einarsson og þá buðust Pálmi Jónsson og Matt- hías Bjarnason til að leysa málið með því að skipt yrði um alla og þeir tækju sætin tvö í staðinn. Þá fyrst varð hnúturinn óieysanlegur. Leiðari Morgunblaðsins í gær var eitthvert átakanlegasta sýnishorn þeirrar bókmenntagreinar, sem hér hefur sést lengi. Það draup sorg og það draup hryggð af hverju orði, um Íeið og Júngmenn voru föðurlega minntir á, að þeir hefðu verið kjörn- ir á þing fyrir vissan stjórnmála- flokk, sem hefði tekið á sig ábyrgð á stjórn landsins, en ekki til að standa í stanslausu egó-flippi og sjálfsupp- hafningu í ráð og nefndir og virðing- arstöður. Hvað er á seyði, hugsuð- um við óbreyttir lesendur Morgun- blaðsins um leið og hryggðin og kvíðinn hrísluðust inn í sálir okkar og líkama. Er veröldin komin á síð- asta snúning? Lifum við á hinum síð- ustu dögum? Er dagur dómsins í nánd? Það er, eins og allir vita, tilgangs- laust að leita til fjölmiðla um skýr- ingar á hinum hversdagslegustu fyr- irbrigðum, hvað þá yfirskilvitlegum atburðum, sem þessum. Við leituð- um því véfrétta á æðri stöðum og spurðum orsaka til þeirra firna og óskapa, sem dyndu yfir veröldina, og fengum skýrt og skorinort svar, en þó órætt, svo sem tilheyrir vé- fréttum — og raunar öðrum fréttum alveg eins: FRÚSTRASJÓN. Við flettum þessu náttúrlega upp í orðabók og fengum þá skýringu að orðið táknaði óþol þess, sem hald- inn er óstjórnlegri löngun, en fær ekki það, sem hann vill. Lýsingar- orðið „frústreraður" mætti þá út- leggja „ væntingaheftur" og er óljós og erfiður sjúkdómur, sem fá lækn- isráð þekkjast við. Véfréttaskýrendur buðust til að útlista þetta nokkru nánar fyrir okk- ur: Við höfum væntingaheft fyrr- verandi ráðherragengi, Ragnheiði, Sverri og Matthías, sem sjá engan ljósan punkt í núverandi formanns- kjörsgengi ráðherranna þriggja. Hér er þó huggun harmi gegn, að Sverrir er með munnherkju meðan hann hefur væntingar í bankastjór- ann. Við höfum væntingaheft til- vonandi ráðherragengi, Halldór Blöndal og Eykon, sem harma þá glæstu framtíð er beið þeirra — og bíður þeirra enn. Matthías A. er væntingaheftur vegna þess að hann nær ekki stjórnmálasambandi við meðráðherra sína og samgöngur við Hafnarfjörð eru ótryggar. Bændagengið er væntingaheft vegna yfirgangs Reykjanesgengis- ins. Landsbyggðargengið þolir ekki þéttbýlisgengið og svipaðar marka- línur eru dregnar milli ríkiskapítal- istagengisins og frjálshyggjugengis- ins. Þorvaldur Garðar er væntinga- heftur forseti, því að hann hafði vænst þess að vera kjörinn einróma. Ragnhildur og Salóme eru vænt- ingaheftar, vegna þess að flokkur- inn þekkti ekki sinn vitjunartíma og kaus konu forseta sameinaðs þings. Byggðastofnun var svo það vænt- ingahaft, sem mest reyndi á þrekið og þolrif Flokksins. Lausnin mun framkalla ný og óþægileg vanda- mál. Væntingaheftir í flokknum öll- um munu um síðir sameinast í vit- und þess að þeir hafa engu að týna nema væntingahöftunum. Þá munu dagar Þorsteins formanns taldir og Anarkistaflokkur Islands mun rísa á rústum Sjálfstæðisflokksins og sameinast um að sundra þjóðinni út í hafsauga eða sextugt djúp, eins og skáldið sagði eða þannig. Það verður mikil blessuð tíð. Ólafur Hannibalsson Athugasemd Á baksíðu blaðs yðar þann 26. nóvember sl. er í tvígang glefsað í Hrafn Gunnlaugsson, stjórnarmann í Kvikmyndasjóði, og einnig er vikið að afstöðu Kvikmyndasjóðs til kaupa á kvikmyndatökuvél Vil- hjálms Knudsen. (HP notar „kvik- myndagerðarvér. Það mun vera ný- yrði í málinu.) Hrafn mun fullfær um að halda uppi vörnum fyrir sig, ef honum þurfa þykir, en þar sem í glefsunum er látið að því liggja að skoðun Hrafns á umræddri vél hafi ein vald- ið því að Kvikmyndasjóður tók ekki strax afstöðu til boðs Vilhjálms þyk- ir rétt að eftirfarandi komi fram: Hvorki er í lögum né reglugerðum um Kvikmyndasjóð kveðið á um að sjóðurinn skuli eignast og reka framleiðslutæki til kvikmyndagerð- ar og verða þannig, a.m.k. óbeint, framleiðandi. Stjórn sjóðsins var ekki reiðubúin til að taka slíka grundvallarákvörðun innan þess nauma tíma, sem Vilhjálmur setti henni. Þó svo að stjórn FK væri kaupunum fylgjandi var það álit þess kvikmyndatökumanns er gerst til þekkir að linsur vélarinnar væru orðnar vart nothæfar, en þær áttu að fylgja með í kaupunum. Þar sem flas er sjaldnast til fagn- aðar ákvað stjórnin að láta kanna betur hvort kaup á vél þessari væru hagkvæmur kostur. Þetta tjáði ég Vilhjálmi samdægurs, en hann sagðist ekki hafa tíma til að bíða eft- ir slíku og hef ég ekki heyrt frá hon- um síðan. Staðhæft er í Helgarpóstinum, að nú muni engin kvikmyndatökuvél vera til í landinu. Hið rétta mun vera, að þær eru til nokkrar. Reykjavík, 27. 11. 1987 Virðingarfyllst, Guðbrandur Gíslason, framkvæmdastj. Kvikmyndasjóðs. í smáfrétt HP var hvergi minnst á að Kvikmyndasjóði bæri skylda tii að kaupa um- rædda vél. Hvað viðvíkur síð- ustu fullyrðingu í bréfi yðar, að staðhæfing HP um að engin kvikmyndatökuvél sé nú til sé röng, vill Helgarpósturinn taka fram að við höfðum samband við nokkra kvikmyndagerðarmenn. Þeir fullyrða að engin vél eins og sú sem var í eigu Vilhjálms Knudsen sé til á landinu. Eins og yður er kunnugt er verið að ræða um 35 mm kvikmynda- tökuvél, sem tekur jafnframt upp tal, „en slíkar vélar nota menn venjulega til að taka upp kvikmyndir" eins og einn við- mælenda okkar komst að orði. Ritstj.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.