Helgarpósturinn - 03.12.1987, Side 38
EFTIR ÞÓRMUND BERGSSON
IBg
*
Arsþing Knattspyrnusambandsins um helgina
SKILAÐI GOTT SUMAR PENINGUM?
A laugardaginn hefst ársþing
Knattspyrnusambands Islands meö
tilheyrandi umrϚum og naflaskod-
un á starfi sambandsins undanfariö
ár og reyndar undanfarin ár. Knatt-
spyrnusúmband íslands er stœrsta
sérsamband innan ÍSÍ og má laus-
lega áœtla aö þingid sitji um 200
manns, bœöi kjörnir fulltrúar og
aörir áhugamenn um íslenska
knattspyrnu. Fyrir þessu þingi liggja
mörg veigamikil mál, og einnig
minni mál sem stundum veröa meg-
inmál á þingi sem þessu, þar sem
saman eru komnir fulltrúar ólíkra
landshluta og ólíkra liöa meö ólíkar
þarfir í sambandi viö störf knatt-
spyrnusambandsins. Sennilegast
munu koma fram einhverjar gagn-
rýnisraddir á störf núverandi stjórn-
ar KSÍog er þaö á engan hátt óeöli-
legt aö slíkt heyrist á svo stóru þingi,
þar sem víst er aö aldrei er hœgt aö
reka svo stórt samband án þess aö
hagsmunir og hugsanir rekist á. Þaö
er œtlun mín aö rita góöan pistil eft-
ir aö þinginu lýkur en þá munu
vœntanlega liggja fyrir gleggri upp-
lýsingar um störf stjórnar og fram-
kvœmdastjóra KSI á þessu starfsári
og einnig er vist aö einhverjar
merkilegar fréttir veröa af þinginu
sjálfu og störfum þess.
Þegar litið er yfir það ár sem nú er
að líða, með tilliti til starfa Knatt-
spyrnusambandsins, verður það
sennilega minnisstæðast fyrir ágæt-
an árangur landsliðsins, þ.e. A-lands-
liðsins, í leikjum ársins. Aðeins stóri
skellurinn 0-6 gegn A-Þjóðverjum
setur Ijótan svip á sumarið, sem að
öðru leyti verður að teljast með
afbrigðum gott. Það hafa margir
orðið til þess að gagnrýna KSÍ fyrir
það hvernig staðið er að málefnum
landsliðsins og þá sérstaklega með
tiliiti til vals landsliðsþjálfara. Þessar
raddir hafa þó heldur hjaðnað eftir
góðan árangur landsliðanna í haust
en víst er að það verður eflaust deilt
á þá ákvörðun KSI að ráða landsliðs-
þjálfara, sem dvelur mestan hluta
ársins eriendis, á komandi þingi.
Annað mál sem eflaust verður
tekið fyrir er sú ákvörðun KSÍ að
halda þeim lottó-peningum, sem
sambandið fær, inni í framkvæmda-
geira þess en dreifa peningunum
ekki til féiaganna. Á hitt ber að lita
að KSÍ er skylt að halda uppi sam-
eiginlegri starfsemi fyrir öll knatt-
spyrnufélög og til þess að það bless-
ist þarf sambandið mikla peninga
auk þess sem þau fjölmörgu landslið
sem haldið er úti af KSÍ krefjast
óhemjufjármagns. Þá fá félögin
lottó-peninga eftir öðrum leiðum.
Annars eru það lottóið og þeir pen-
ingar sem renna til íþróttahreyfing-
arinnar í gegnum það sem virðast
vera helsta umræðuefnið meðal
þeirra er sjá um starfsemi íþrótta-
félaga og annarra þeirra er láta sig
íþróttir varða. I allri þeirri umræðu
kemur gjarnan upp sú vangavelta
hvað verði um Öryrkjabandalag ís-
iands eftir svo sem fimm ár. Banda-
lagið fær nú sennilega um 100 millj-
ónir á ári í lottó-hagnað og hver veit
nema það safni seðlum eftir örfá
ár?!!
Af þeim tillögum sem vitað er að
verða lagðar fyrir þingið um helg-
ina má nefna athyglisverða tillögu
frá félögum í neðri deildunum þess
efnis að stofnuð verði ein 10 liða 3.
deild og 4. deild verði með svipuðu
fyrirkomulagi og 3. deiidin er nú. Þá
verði sérstök 5. deild sem verði
svæðaskipt. Ástæða þessarar tillögu
er sennilega sú trú margra smærri
liða á suðvesturhorninu að þau séu
í heild mun betri en lið annars stað-
ar af landinu og að óeðlilegt sé að
aðeins eitt lið frá þessum landshluta
komist upp í 2. deild. Það má hins
vegar benda á það að nú eru fjögur
norðanlið í 1. deild og fæstir áttu
von á því að tvö þeirra yrðu nokk-
urn tíma 1. deildar lið. Þá er erfitt að
segja tii um það hvort lið af þessum
stærðargráðum hefðu efni á því að
sendast um allt land til að keppa í
einni 3. deild. Til stuðnings tillögu af
þessu tagi má þó benda á fjölda liða
í 3. og 4. deild og það að í einni deild
kæmi styrkleiki liðanna betur í Ijós
en í tveimur aðskildum riðlum, sem
vissulega eru sterk meðmæli fyrir
einni 3. deild.
Sá þáttur í starfsemi KSÍ sem farið
hefur vaxandi á undanförnum árum
eins og reyndar hjá öðrum sérsam-
böndum og félögum er þátttaka fyr-
irtækja í fjárhagslegri uppbyggingu
sambandsins. Þessarar þróunar hef-
ur gætt hvað mest hjá Handknatt-
leikssambandi íslands á allra síð-
ustu misserum, en víst er að KSÍ
stendur ekki langt að baki hvað
varðar stuðning frá fyrirtækjum.
Hvort sambandið hefur verið nógu
duglegt við að auglýsa sig út á við
eins og HSÍ verður sennilega til um-
ræðu á þinginu en mörgum þykir
sem sambandið falli nokkuð í
skuggann af HSÍ hvað þetta varðar.
Það má þó benda á að þessi sam-
bönd starfa mest á ólíkum árstímum
og núna er það handknattieikurinn
sem á hug fjölmiðla en í sumar verð-
ur ekki annað sagt en að knatt-
spyrnan hafi fengið frábæra umfjöll-
un. Hvort sú umfjöllun hefur skilað
sér í peningum til KSÍ eða félaganna
er hins vegar spurning sem margir
vilja svara neitandi.
Ekki meira um KSÍ að sinni, en
væntanlega verður hægt að kafa
nánar í starfsemi sambandsins í
næstu viku þegar krónur og aurar
eftir ársþing sambandsins liggja á
borðinu.
NBA-körfuknattleikurinn að byrja á Stöð 2
LA LAKERS MEISTARAR?
Á laugardaginn byrjar Stöð 2 að
sýna frá NBA-atvinnumannadeild-
inni í körfuknattleik, sem á síðasta
vetri sást reglulega þar á skjánum
undir skemmtilegri stjórn Einars
Bollasonar og Heimis Karlssonar.
Víst er að margir aðdáendur körfu-
knattleiks munu fagna komu körf-
unnar á skjáinn enda ekki mikið um
skemmtilega eða spennandi körfu-
knattleiki hér á landi í vetur.
Úrvalsdeildin í körfu hefur farið af
stað í nánast kyrrþey enda spenn-
ingur landsmanna fyrir handknatt-
leik orðinn yfirþyrmandi og halda
fjölmiðlar ekki vatni yfir atburðum
úr þeirri íþróttagrein. Það sem er
ekki síður athyglisvert er hversu
góð skil fjölmiðlar hér á landi gera
NBA-deildinni. Öll dagblöðin birta
úrslit leikja og koma með pistla um
deildina. DV sýnir skemmtilegasta
fordæmið með því að fá Pétur Guð-
mundsson, eina íslendinginn sem
leikur í NBA-deildinni, til að skrifa
um NBA einu sinni í viku — til ham-
ingju DV. Þannig fær atvinnu-
mannadeildin í Bandaríkjunum
nánast svipaða umfjöllun og úrvals-
deildin á Islandi. Þetta er ekki góðs
viti fyrir körfuknattleikinn á land-
inu og víst er að forráðamenn körfu-
knattleiksliðanna hér á landi hugsa
margir með söknuði til þess tíma er
erlendir leikmenn spiluðu með ís-
lensku liðunum og fullt var á hvern
leikinn á fætur öðrum og karfan á
allra vörum. Hvort sýningar Stöðv-
ar 2 á leikjum frá NBA-deildinni
verða til þess að menn fúlsa alger-
lega við íslenskum körfuknattleik
er ekki gott að segja, en víst er að
munurinn á þessum deildum er
óheyrilegur.
Á meðan áhangendur NBA-körfu-
knattleiksins kætast yfir komu hans
á skjáinn kætist sá er þetta skrif-
ar yfir þeirri velgengni sem amer-
íski fótboltinn hefur notið meðal
áhorfenda Stöðvar 2. í nýlegri könn-
un sem gerð var á meðal áskrifenda
kom í ljós að vel yfir 20% horfði að
staðaldri á leikina sem sýndir eru á
sunnudögum, en það er mjög hátt
hlutfall þegar íþróttir eru annars
vegar. Þessar vinsældir styðja einn-
ig þá skoðun mína að engir séu
Ameríkönum fremri í að matreiða
íþróttaefni ofan í sjónvarpsglápara.
Að lokum ætla ég að birta hér spá
hins virta íþróttablaðs Sports lllu-
strated um lokastöðuna í NBA-deild-
inni eftir þetta keppnistímabil, en
sérfræðingar blaðsins komast að
þeirri niðurstöðu að LA Lakers vinni
annað árið í röð og spili til úrslita við
Detroit en ekki Boston.
38 HELGARPÓSTURINN