Helgarpósturinn - 03.12.1987, Qupperneq 40
mM
■ ý stjórn hefur verið kosin
hjá Félagsútgáfunni hf. sem gefur
eins og kunnugt er út tímaritið
Þjóðlíf. Stjórnarformaður er nú
Svanur Kristjánsson en aðrir í
stjórninni eru Björn Jónasson í
Svörtu á hvítu, sem er reyndar að-
aleigandi útgáfunnar, Jóhann
Antonsson og Pétur Reimars-
son, framkvæmdastjóri Sæplasts á
Dalvík. Einnig má geta þess að
ákveðið hefur verið að annar rit-
stjóri verði ráðinn að Þjóðlífi og
starfi þar við hlið núverandi rit-
stjóra, Auðar Styrkársdóttur. Sá
sem ráðinn hefur verið er gamall
haukur í fréttamennskunni, Oskar
Guðmundsson, sem lengi var á
Þjóðviljanum og síðar hér á HP.
Hlutafé Félagsútgáfunnar hefur ver-
ið tvöfaldað í samræmi við aukin
umsvif fyrirtækisins en Þjóðlífi ku
hafa vaxið fiskur um hrygg að und-
anförnu. . .
u
m þessar mundir stendur
yfir undirbúningur að gerð kvik-
myndar eftir bók Halidórs
Laxness, Kristnihalds undir
Jökli. Það er Kvikmyndafélagið
Umbi, sem stendur að þessu verki í
samstarfi við vestur-þýska aðila.
Leikstjóri verður dóttir nóbels-
skáldsins, Guðný Halldórsdóttir,
framleiðandi Halldór Þorgeirs-
son, tengdasonur Halldórs, Karl
Júlíusson gerir leikmynd, en
handritið vinnur Englendingur að
nafni Gerald Wilson, þrautvanur
handritahöfundur þekktra kvik-
myndagerðarmanna og einn helsti
lærifaðir íslenskra kvikmynda-
gerðarmanna, sem sótt hafa
menntun sína til Englands. Hann
hefur m.a. gert handrit að kvik-
myndum Michaels Winner og
hann skrifaði handritið að síðustu
kvikmyndinni, sem John Huston
lék í. Sl. sumar var hafist handa um
undirbúning að gerð myndarinnar,
leitaðir uppi tökustaðir vestur á
Snæfellsnesi og þegar hefur verið
ákveðið, að Baldvin Halldórsson
leiki Jón prímus, Sigurður
Sigurjónsson Umba og Margrét
Helga Jóhannsdóttir Uu . . .
H
H ■ eyrst hefur að menn í iðn-
lánasjóði og iðnþróunarsjóði
hafi rætt að setja f ulltrúa inn í stjórn-
ir fyrirtækja Davíðs Scheving
vegna þeirra erfiðleika sem fyrir-
tæki hans lentu í vegna dósagossins.
Óvíst er taiið hvort af þessu verð-
ur.. .
Góða
helgi!
Pú átt
þaö skiliö
ÞIZZAHISIIJ
Grensásvegi 10, 108 R.
S: 39933
im
B . pru vinnuQds-
\áta þét Uða betuf presidenl’s Lui
aýia „orUubttann1^^ náttúturf
aniheldnt bestu fe
gúDesertblotnaU ^ eða auk;
^r'bSu^”otkub
sorUu þ ’ öruverslun.
i mat anss0N HF
ÁSÍÐUSTU dögum Víetnamstríðsins er Björn Guðbrandsson
við læknisstörf í Saigon. Skothvellir heyrast í fjarska og herir
kommúnista nálgast borgina. Tveimur áratugum áður er Björn staddur
í Tokyo á vegum bandaríska hersins. Kóreustríðið geisar og Björn
kemst í kynni við mannlegar hörmungar og ógnir styrjalda.
Víða liggja leiðir ...
Björn barnalæknir hefur séð tímana tvenna og komið víða við.
Hann rifjar upp æskuárin í Skagafirði þegar örþreyttir sveitalæknar
riðu um héruð og börn hrundu niður úr barnasjúkdómum. Síðan víkur
hann að dvöl sinni í Þýskalandi eftir stúdentspróf og lýsir kynnum
sínum af forsprökkum nasista árið 1939 þegar Evrópa rambaði á barmi
heimsstyrjaldar.
... gieði og raunir ...
Á stríðsárunum stundar Björn nám við læknadeild Háskóla íslands
og er um leið qðstoðarlæknir á Vífilsstaðahæli. Hann lýsir af hreinskilni
baráttuþreki og dauðastríði sjúklinganna, daglegu lífi þeirra, gleði
og raunum. Síðan heldur Björn vestur um haf og verður þar einn af
fyrstu sérfræðingum íslendinga í barnalækningum. Hann lýsir
sérstæðum mönnum og eftirminnilegum atburðum í lífi sínu sem
maður og læknir í stríði og friði.
... spilltir kerfismenn - og börn.
Eftir Kóreustyrjöldina tekur Björn til starfa við Landakotsspítala
í Reykjavík. í sögu sinni bregður hann upp minnisstæðum myndum
úr læknisstarfi sínu og spítalalífi, stefnumótum við dauðann, sorgum
og sigrum. Hér kemur margvíslegt fólk við sögu - læknar, hjúkrunar-
fólk, templarar, náttúruverndarmenn, spilltir kerfismenn - og börn.
0
FORLAGIÐ
FRAKKASTÍG 6A SÍMI 91-25188
40 HELGARPÓSTURINN
AUK hí. X7.3/SIA