Helgarpósturinn - 17.12.1987, Page 32

Helgarpósturinn - 17.12.1987, Page 32
SPENNANDI Ajólunum veljum við gjarnan það sem okkur þykir best á jólaborðið og auðvitað helst sem þjóðlegast. íslenska lambakjötið er hráefni sem á fáa sína líka, svo meyrt og safaríkt ef það er meðhöndlað rétt. Spennandi lambastórsteik er tromp á jólaborðið. Hér er uppskrift af einni ómótstæðilegri. Hilmar B. Jónsson valdi þessa gimilegu jólasteik handa okkur með óskum um gleðilega hátíð. Látið lambalærið þiðna í kæliskáp í 3-5 daga, helst í loftþéttum umbúðum. Skerið mjaðmabeinið frá og hreinsið leggbeinið. Skerið einnig mest af fitunni frá ef lærið er of feitt. Stingið um 2 sm djúp göt í lærið með 3-4 sm millibili. Geymið beinin og kjötið utan af leggbeininu. Skerið sellerístilkana og blaðlaukinn í bita. Hitið olíuna á pönnu, setjið grænmetið á pönnuna og kraumið þar til það fer aðeins að taka lit. Bætið þá piparnum, rósmarínkryddinu, sojasósunni, sítrónusafanum og líkjömum útí og látið Lambalæri með Kahlua-sósu Fyrir6-7. 1 meðalstórt lambaJærí 2 msk matarolía 3 seUerístilkar '/2 blaðlaukur (púrrulaukur) 1 tsk græn eða hvít piparkom 1 tskrósmarín (sléítfull) 2 di Kahlua-kaBilíkjÖr 2 msk Kikkoman sojasósa saS úr 1 sítrónu salt 2 dl Ijóst kjötsoð dökkur sósujafharí WBBBBHKMBRKBMSBBBRá h„ vflt hátöanna*- '*** MARI<AE)SNEFND sjóða í 3-5 mín. Kælið blönduna og hellið henni síðan í sterkan plastpoka. Setjið lambalærið í pokann og bindið vandlega fyrir. Látið sem minnst loft vera í pokanum. Takið utan um legginn á lærinu og sláið pokanum með lærinu í nokkrum sinnum þétt niður á borð. Snúið lærinu í hvert sinn. Þetta er gert til þess að fá safann í pokanum vel inn í holumar á kjötinu. Geymið pokann með lærinu á köldum stað í um einn sólarhring og snúið honum öðm hvom og nuddið safanum vel inn í lærið um leið. Hitið ofninn í 220°C. Takið lærið úr pokanum og skafið kryddblönduna utan af með bakkanum á borðhníf. Geymið blönduna. Kryddið lærið með salti (og meiri pipar ef þurfa þykir). Höggvið mjaðmabeinið í 4 eða 5 bita og skerið hækilkjötið í bita. Leggið þetta í hæfilega stóra steikarskál eða skúffu og leggið lambalærið ofan á. Steikið kjötið í ofninum þar til það er búið að fá á sig fallegan lit. Minnkið þá hitann á ofninum niður í 180°C. Eftir um einnar klst. steikingu er kryddleginum sem eftir var ásamt kjötsoðinu hellt yfir kjötið og það síðan steikt í um 15-30 mín. í viðbót. Færið lærið yfir á fatið sem þið ætlið að bera það fram á og geymið í heitum og hálfopnum ofninum á meðan sósan er löguð. Sigtið soðið úr steikarskálinni yfir í pott og bragðbætið með salti og pipar eftir smekk. Látið suðuna koma upp á soðinu og þykkið það hæfilega með sósujafnara. Berið kjötið fram með nýju, soðnu grænmeti og einhverju ljúffengu til þess að skola því niður. DAGBÓKIN HENNAR DÚLLIf Kæra dagbók. Ég er alveg komin í steik með jóla- gjafirnar. Það er allt svo dýrt, að ég veit bara ekkert hvað ég get keypt. Fyrir utan það, að allir eiga auðvitað allt. Eða bráðvantar a.m.k. ekki neitt sérstakt. T.d. hún amma á Einimelnum. Það er nú ekkert eðlilegt hvað hún á af drasli, manneskjan. Húshjálpin hennar er líka alltaf að kvarta yfir því að þurfa að þurrka af öllu dót- inu. Gluggakisturnar eru yfirfullar af brothættum styttum, kertastjök- um, blómavösum og svoleiðis. Líka öll borð og allar hillur á heimilinu. Svo er alveg hellingur af lömpum og öskubökkum og blómum og ég veit ekki hvað og hvað. Amma situr síðan í öllu þessu drasli — í heilu einbýlishúsi — alein! Váá, maður. Ef ég væri hún hefði ég sko selt kofann fyrir löngu og fengið mér svona litla þjónustuíbúð, eins og alltaf er verið að tala um. (Mamma sagði, að þær væru svo dýrar að amma þyrfti kannski að borga eitthvað á milli. Þetta sýnir nú bara hvað hún er klár í reikningi, en hún sagðist vita dæmi um fólk, sem lenti í þessu. Ég trúi því aldrei. Klárt mál. Eins og heilt hús í Vesturbæn- um sé ekki meira virði en einhver þjónustuíbúð!) En amma vill ekkert flytja, af því að afi byggði þetta hús handa henni í gamla daga og hún getur ekki hugsað sér að eitthvað ókunnugt fólk setji húsgögnin sín inn í hennar hús, rífi veggfóðrið nið- ur, smíði nýja eldhúsinnréttingu og máli allt hvítt. Og hún hefði ekki einu sinni lykil að húsinu! Það finnst henni hámarkið. En talandi um jólagjafir, þá er jafn- vonlaust að gefa henni ömmu föt og „eitthvað í heimilið". Hún slítur nefnilega engu lengur. Ekki einu sinni skónum. Hún kaupir bara nýja, ef tískan breytist rosalega og hinir verða hallærislegir. Svo á hún hell- ing af peysum, treflum, vettlingum, sloppum, slæðum, náttkjólum og öllu því, sem bara liggur pent og samanbrotið inni í skáp og haggast ekki. Gamlar konur eru alveg rosa- lega penar með sig. Vonandi kemst hún bráðum á það stig að hella nið- ur á sig. Þá myndi kannski eitthvað eyðileggjast og við gætum gefið henni annað svoleiðis . .. Pabbi er annars álíka vandamál og amma, en bara öðruvísi. Við krakkarnir erum búin að gefa hon- um óteljandi slifsi, sokka, vesti, nátt- föt, skyrtur, inniskó og trefla. Fyrir utan alla hanskana, sem hann hefur týnt út um allar trissur. Ég get bara helst ekki hugsað mér að gefa hon- um eitthvað af þessu — einn gang- inn enn. Hún mamma er miklu auðveldari. Það er hægt að gefa henni alls kon- ar pæjudót, því henni finnst hún ennþá vera svo ung. Hún stelur meira að segja oft fötum frá Stebbu systur! Mamma er .líka ógeðslega móðgunargjörn með gjafir. Hún tal- aði ekki við ömmu á Éinimelnum í heilan mánuð eftir að sú gamla gaf henni kokkabók í afmælisgjöf. Og það var örugglega lítið gaman að vera pabbi, þegar hann fann upp á að gefa mömmu stóra hræri- og hakkavél í jólagjöf. Honum fannst þetta alveg meiriháttar hjá sér og lét meira að segja kæfu-uppskriftina hennar ömmu fylgja með, skraut- ritaða. (Það var kannski einum of, af því að mamma veit hvað hann er sjúkur í Einimels-kæfuna. En ég held að grey kallinn hafi bara ætlað að vera góður við hana...) Bless, bless. Dúlla. FISHER SBsjjjSS REVKJAVÍK SÍMI 622555 SJÓHVARPSBðMH 32 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.