Helgarpósturinn - 17.12.1987, Qupperneq 47

Helgarpósturinn - 17.12.1987, Qupperneq 47
FRETTAPOSTUR Mótmælaaðgerðir á Alþingi Fundir Alþingis töfðust á fimmtudag í síðustu viku vegna mótmælaaðgerða stjórnarandstöðuflokkanna. Þingmenn þeirra gengu úr salnum þegar Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráðherra mælti fyrir frumvörpum í efri deild. Fyrr um daginn hafði Albert Guðmundsson hótað að stöðva af- greiðslu allra frumvarpa með málþófi. Fundi í efri deild var frestað þar sem þingmenn Borgaraflokks voru ekki við- staddir, en hann hófst síðdegis. Þá bar það til tíðinda að full- trúar stjórnarandstöðunnar kröfðust fundarhlés þegar komið var að fjármálaráðherra að mæla fyrir frumvörpum ríkisstjórnarinnar um breytingar á lögum um söluskatt, vörugjald og tolla. Að loknu hléi krafðist Svavar Gestsson þess fyrir hönd stjórnarandstöðu að rætt yrði um frumvörp- in, hvert fyrir sig. Fjármálaráðherra hélt ræðu sinni áfram og gengu þá þingmenn stjórnarandstöðunnar út meðan á henni stóð. Fundi var síðan frestað fram á kvöld, en þá ræddu stjórnarandstæðingar hvert frumvarp fyrir sig. • Á fimmtudag í síðustu viku bar það einnig til tíðinda að Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra sat ekki ríkis- stjórnarfund, sem haldinn var að morgni dags. Sagðist hún standa og falla með því að húsnæðisfrumvarpið yrði afgreitt fyrir jólaleyf i og segir það ljóst að það mál ráði úrslitum um hvort hún sitji áfram í ríkisstjórninni. Frumvarpið var síð- an tekið fyrir á dagskrá kvöldfundar Alþingis á fimmtu- dagskvöld og var síðan samþykkt á kvöldfundi á laugar- dagskvöldið. Frumvarpinu hefur verið vísað til efri deildar. • Staða fiskvinnslunnar í landinu er afar erfið um þessar mundir og af þeim sökum hefur Samband fiskvinnslu- stöðva óskað eftir fundi með forsætisráðherra, fjármálaráð- herra og sjávarútvegsráðherra. Þar mun fiskvinnslan óska eftir að hætt verði við að leggja 1% launaskatt á fiskvinnsl- una og að ekki verði hætt við að greiða henni uppsafnaðan söluskatt, en hvort tveggja er áformað. í október reiknaðist til að fiskvinnslan væri rekin með 3%-4% tapi, en síðan þá hefur sigið enn meira á ógæfuhliðina. • Meira en hálfum milljarði króna verður varið á fjárlögum til að niðurgreiða aukalega íslenskar landbúnaðarafurðir, aðallega kindakjöt, fyrir útlendinga á næsta ári. Uppbætur á útfluttar landbúnaðarafurðir verða 63 milljónum króna hærri en ráðgert hafði verið í haust. • Til tíðinda dró á fundi sjávarútvegsnefndar neðri deildar Alþingis á fimmtudaginn var, þar sem kvótafrumvarpið var til umræðu. Nefndin kallaði fyrir sig fulltrúa frá hags- munaaðilum og kom í ljós að þeir höfðu fengið í hendur drög að reglugerð um framkvæmd frumvarpsins frá sjávarút- vegsráðherra, en nefndarþingmenn höfðu ekki séð reglu- gerðina. Ekki var gert ráð fyrir að frumvarpið kæmi til ann- arrar umræðu fyrr en seint í þessari viku. • Stærsti vinningurinn í sögu Getrauna, 5 milljónir króna, kom í hlut einnar f jölskyldu um síðustu helgi. Það voru f jór- ir herrar, sem allir starfa hjá Almennum tryggingum, sem notuðu stærsta kerfisseðilinn í þetta skiptið með fyrr- greindum „afleiðingum"! • Davíð Oddsson borgarstjóri boðaði til skyndifundar með þingmönnum höfuðborgarinnar þegar ljóst varð að Reykja- víkurborg hafði verið skilin eftir við f járveitingar til sveitar- félaga. Fundurinn með þingmönnunum varð til þess að unnt var bjarga f jármagni svo bygging tveggja heilsugæslu- stöðva í borginni stöðvast ekki. • Fíkniefnalögreglan handtók í síðustu viku þrítugan mann sem stundað hafði framleiðslu á amfetamíni í íbúð sinni í vesturbænum. Annar maður var handtekinn á föstu- dag, grunaður um að eiga aðild að framleiðslunni. Þetta er í fyrsta skipti sem upp kemst um framleiðslu amfetamíns hér á landi, en til framleiðslunnar þarf að nota flókinn tækjabúnað. Hluti framleiðslunnar var tilbúinn til neyslu. Efnin til framleiðslunnar voru keypt hjá Lyf javerslun ríkis- ins, en mennirnir notuðu nafn fyrirtækis til kaupanna. • Birgir ísleifur Gunnarsson menntamálaráðherra hefur lagt fram gagntilboð i deilu sinni við Jón Baldvin Hannibals- son fjármálaráðherra varðandi framlög til Þjóðarbókhlöðu. Birgir ísleifur leggur til að um 80 milljónir króna, sem inn- heimst hafa af sérstökum eignarskattsauka vegna Þjóðar- bókhlöðunnar, renni tU hennar á næsta ári, að viðbættum þeim 50 mUljónum sem ráð var gert fyrir í fjárlagafrum- varpinu. • Seðlabankinn hefur reiknað út fyrir ríkisstjórnina að rekstarstaða útflutningsatvinnuveganna sé H% verri nú en árið 1979. Að öllu óbreyttu þyrfti að fella gengið um þá upp- hæð ef staðan á að vera sú sama og 1979, en Bjarni Bragi Jónsson, aðstoðarbankastjóri Seðlabankans, segir þetta einungis samanburð á rekstarstöðunni þá og nú, en ekki sé verið að segja að tUefni sé til 11 prósenta gengisfellingar. Rekstrarstaða sjávarútvegsins á fjórða ársfjórðungi er nei- kvæð um 6% og samkeppnisiðnaðarins um 7%. • Breytingatillögur stjórnarandstöðunnar við fjárlaga- frumvarp ríkisstjórnarinnar voru allar felldar í atkvæða- greiðslu á Alþingi í fyrradag. Hins vegar voru breytingatil- lögur fjárveitingarnefndar allar samþykktar. Atkvæða- greiðsla um fjárlagafrumvarpið tók fj'órar klukkustundir eftir aðra umræðu í sameinuðu þingi. Útgjaldahlið fjárlaga- frumvarpsins hækkaði við breytingarnar um 1.062 milljón- ir króna. Mest af hækkuninni rennur til landbúnaðarmála, eða 304 milljónir. Fjármálafrumvarpið er nú í lokaskoðun hjá ríkisstjórninni og fjárveitinganefnd. Andlát: Látinn er i Reykjavík Guðmundur Guðmundsson, fyrrver- andi forstjóri Trésmiðjunnar Viðis. Guðmundur varð 77 ára gamall. Tryggvi Jónsson, forstjóri Niðursuðuverksmiðjunnar ORA, lést í Reykjavik H. desember. Hann var 73 ára að aldri. VÖRU LOFHÐ SKIPHOLTI 33 ÞEGAR TÉKKHEFTIÐ ER TEKIÐ AÐ TITRA OG PLASTID AÐ BRÁÐNA ER BETRA AD FARA VEL MED ÞESSAR FÁU KRÖNUR SEM EFTIR ERU. ÞAÐ GÆTI BORGAÐ SIG AÐ LÍTA INN VÖRULOFTIÐ SKIPHOLTI 33 SÍMI 689440 HELGARPÓSTURINN 47

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.