Helgarpósturinn - 17.12.1987, Side 48
ora
rá því að byggingarnefnd
Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar
varð Ijóst að endurhanna þyrfti að
stórum hluta ýmsa þætti í fimmta
áfanga byggingarinnar, vegna þess
að hönnun loftræstikerfis hafði farið
úr böndunum, hefur hún íhugað að
fara í mál við þann verktaka sem
ábyrgð bar á loftræstikerfinu, Fjar-
hitun hf. Hönnun kerfisins gekk
þannig fyrir sig að bandaríska fyrir-
tækið Vansant & Gusler var fengið
til að keyra í tölvu allar reiknings-
legar forsendur loftræstikerfisins og
miðaði þá við teikningar af flugstöð-
inni eins og þær voru 1980/81. Síð-
an gerðist það að flugstöðin tók
miklum breytingum, sem allar voru
auðvitað samþykktar af bygingar-
nefnd. Fjarhitun hf., sem hafði það
verkefni að útfæra útreikninga V&G
yfir í vinnuteikningar, breytti því
stöðugt loftræstikerfinu eftir því
sem breytt herbergjaskipan og ann-
að krafðist. Þar kom að svo margar
breytingar höfðu verið gerðar áloft-
ræstikerfinu að upprunalegu út-
reikningarnir sem V&G höfðu gert
stóðust ekki. Byggingarnefnd held-
ur því fram að Fjarhitun hf. hafi ekki
látið þá vita að svo var í pottinn búið
fyrr en í nóvember 1985, en Fjarhit-
un hf. segist ítrekað hafa gert bygg-
ingarnefnd málið ljóst löngu fyrir
þann tíma. Það sem mun vefjast fyr-
ir byggingarne^id með að taka af
skarið og fara í mál við Fjarhitun hf.
mun vera tvennt. í fyrsta lagi hversu
flókið það muni reynast að sýna
fram á hvert fjárhagstjónið sem
rekja ætti til Fjarhitunar raunveru-
lega er og í öðru lagi mun Fjarhitun '
hf. ekki frekar en önnur fyrirtæki
sem nálægt flugstöðinni koma vera
Verð frá kr. 12.000.
Staðfestið pantanir
Heildsala — Smásala
KAFFIBOÐ Sf.
Garðastræti 17
sími: (91) 621029.
Espresso-kaffivélin
frá La Pavoni
Sígild handsmíðuðgæðavél, fram-
leidd frá árinu 1921 í óbreyttri
mynd af La Pavoni í Mílanó, sem er
elsti framleiðandi kaffivéla á Ítalíu.
Þetta er espresso-vélin sem endist
i aldarfjórðung.
Fersk nÝfting frá ORA!
Enn bætír ORA víð úrvalíð — ná eru komnar hvorkí
meíra né mínna en sjö tegundír af frystu, ljuffengu grænmetí.
Það á vel víð allan mat og er eínkar auðvelt í matreíðslu.
Frysta grænmetíð frá ORA fæst ntk á kynníngarverðí
5 «n ahvAMtfYVA#ef
tryggð fyrir hugsanlegri málsókn
sem kann að hljótast af þeim mis-
tökum sem fyrirtækið kann að vera
ábyrgt fyrir. . .
II
t er komin bokin Tökum
lagið og er útgefandi Útgáfufélag-
ið Bros. Þar mun að finna texta
bæði eftir Megas og Bubba sem ef-
laust eru hverri bók til prýði. Hins
vegar hafði Útgáfufélagið Bros ekki
fyrir því að biðja þá félaga leyfis fyr-
ir birtingu texta þeirra í bókinni og
ætla þeir ekki að taka því brosandi
heldur reyna að sækja rétt sinn á
grundvelli höfundarréttarlaga. . .
á hefur Hitt-leikhúsið runn-
ið sitt skeið á enda og lagt upp laup-
ana. Eitt af því sem þetta leiklistar-
hlutafélag hefur tekið sér fyrir
hendur á þriggja ára æviskeiði sínu
er að gefa út plötur Megasar, meðal
annars jólaplötuna í fyrra og plötu-
pakkann nýverið. Fyrir þetta hefur
Megas fengið lítið eða ekkert í aðra
hönd og undirbýr nú hálfrar milljón-
ar króna kröfu í búið. Þetta fjársvelti
fyrirtækisins kemur nokkuð á
óvart, með tilliti til þess hversu fjár-
sterkir aðilar stofnuðu það og áttu.
Þeirra á meðal eru Sigurður Pálmi
Gíslason í Hagkaup, Sigurjón Sig-
hvatsson kvikmyndagerðarmaður,
Árni Möller, einn af okkar stönd-
ugri svínabændum, og loks skal til-
nefndur Páli Baldvin Baldvins-
son, innkaupastjóri hjá Stöð 2.. .
n
■ okkuð spaugilegt mál kom
upp í sambandi við byggingu Flug-
stöðvar Leifs Eiríkssonar á dög-
unum. í bygginguna þurfti eðlilega
nokkurn fjölda eldvarnahurða og
teiknaði Húsameistari ríkisins,
Garðar Halidórsson, þær og var
ætlunin að fyrirtækið Glófaxi smíð-
aði. Garðar teiknaði hurðir þannig
að það mátti sjá rifu milli stafs og
hurðar og taldi víst að þannig yrðu
þær framleiddar enda hefur hann í
mörg ár skilað sambærilegum
teikningum til Glófaxa. Glófaxi hef-
ur hins vegar aldrei framleitt hurð-
irnar eftir teikningum Garðars, þar
sem þeirra hurðarframleiðsla er
með yfirfelldu stálbyrði á annarri
hlið, sem lokar rifunni milli stafs og
hurðar. Það mun hins vegar ekki
hafa verið fyrr en við byggingu flug-
stöðvarinnar að sannleikurinn um
hurðaframleiðsluna rann upp fyrir
Garðari og má kannski draga þá
ályktun af því að hann fylgist ekki
mjög náið með því hvernig teikning-
ar hans hafa verið útfærðar í gegn-
um árin. Hins vegar voru þessar
huröateikningar Garðars algjörlega
á rangri hillu, því hvorki tilbrigði
hans við Glófaxahurðirnar né hinar
raunverulegu Glófaxahurðir voru
samþykktar í bygginguna. Amerísk-
ir kjarnorkustaðlar töldu þær eld-
varnahurðir, sem hér eru í öðru
hverju húsi, gagnslausar, og eftir
þeim þurfti Hagvirki að sérmíða
nýjar hurðir með þremur lásum,
uppi, í miðju og neðst, svo tryggt
væri að þær verptust ekki í hitan-
um þegar eldhafið geisaði. . .
adidas
idas i
. i ■
adidas
SNYRTIVORUR
SPORTMANNSINS
Fást í helstu snyrtivöruverslunum
48 HELGARPÓSTURINN