Helgarpósturinn - 28.01.1988, Qupperneq 2
Er þetta
fjölskylduvandamál?
KRISTl'N björg
ÞORSTEINSDÓTTIR
dagskrárgerðarmaður
„Nei, þetta hefur ekki orðið að fjölskylduvandamáli enn-
þá, enda erorðið svo stutt síðan Páll lagði út í samkeppnina
við mig. Ég var búin að vera á þessum tíma í útvarpinu í
þrjá mánuði þegar hann kom aftur."
Hvernig er að vera í samkeppni við bróður sinn?
„Það er alltaf gaman að vera í heiðarlegri samkeppni við
gott fólk. Mér er ekkert illa við Pál persónulega!"
Talist þið systkinin við?
„Já...l"
Berið þið saman bækur ykkur um hvað þið ætlið að
hafa í þáttunum?
„Nei, það gerum við nú ekki. Við erum eiginlega mjög-
orðvör þegar við hittumst."
Er tónlistarsmekkur ykkar systkinanna líkur?
„Við erum bæði a.m.k. miklir aðdáendur Bruce Spring-
steen. Áberandi miklir held ég."
Hefur það gerst að þið leikið sömu lögin á sama tíma?
„Nú veit ég ekki. Við höfum ekki tækifæri til að hlusta
hvort á annað. Nema náttúrulega að ég veit að Páll hlustar
eins mikið á mig og hann getur til að geta fengið að vita
hvernig tónlist hann á að leika á þessum tíma dags, því ég
náttúrulega leik miklu betri tónlist en hannl!"
Hefur hann ekkert reynt að plata þig yfir á Bylgjuna?
„Við skulum hafa sem fæst orð um það!"
Stelstu til að hlusta á hann þegar þú ert ekki sjálf að
kynna?
„Ég hlusta á aðrar stöðvar en ekki meira á Pál en aðra
dagskrárgerðarmenn."
En þú heldur aö hann hlusti á þig?
„Ég er bara sannfærð um það!"
Gagnrýnið þið hvort annað?
„Við höfum lítið farið út í það ennþá. Og þó, kannski svo-
lítið. Mest gagnrýnum við hvort annað fyrir hvað hitt talar
hratt!"
Um hvað talið þið í fjölskylduboðum?
„Um útvarpnúmereitt, tvöog þrjú. Faðirokkarhefurlíka
unnið við útvarp og þar af leiðandi er mest talað um útvarp.
Hins vegar erum við mjög orðvör eins og ég sagði áðan!"
Reynið þið ekkert að skjóta hvort á annað eða á sam-
starfsmenn hins?
„Nei, það held ég ekki. Auðvitað gagnrýnum við aðrar
stöðvar og hvort annars stöð. Gagnrýnin er þó ekkert per-
sónuleg, enda er okkur ágætlega vel til vina."
Ykkur systkinunum hefur ekki dottið í hug að fara af
stað með þátt saman, til dæmis á Stjörnunni?
„Nei, en við erum að reyna að fá mömmu til að sækja um
vinnu þar."
Eða byrja með nýja útvarpsstöð?
„Jú, með pabba þá. Það yrði til þess að koma restinni af
fjölskyldunni í útvarp, mágkonum mínum og fleirum."
Hvernig er með Brávallagötuhjónin. Öfundarðu Pál af
að hafa þau „sín megin"?
„Nei, nei. Við höfum upp á svo margt annað að bjóða hér
og svo er líka hægt að kaupa Brávallagötuhjónin á kassettu,
sem ég held að fólk geri frekar en að hlusta á Pál!"
Reyna foreldrar ykkar að gera ekki upp á imDi ykkar?
„Nú verðurðu að spyrja mömmu!"
FYRST OG FREMST
HELGARPÚSTURINN UMMÆLIVIKUNNAR
NYR samningur við Reykjavíkur-
borg var, eins og kunnugt er, sam-
þykktur hjá Starísmannafélaginu
Sókn í síðustu viku. Starfsmanna-
stjóri borgarinnar hefur látið hafa
það eftir sér í fjölmiðlum að um
5% launahækkun væri að ræða,
en það ku alls ekki vera rétt. Flest
Sóknarfólk mun nefnilega fá rúm-
lega 10% hækkun, eða 4-6 þúsund
krónum meira í launaumslagið á
mánuði.
SIMATÍMAR útvarpsstöðv-
anna, sem upphaflega voru
skemmtileg nýbreytni, hafa nú
nokkuð greinilega runnið sitt
skeið. Hafi einhver efast um þetta
tók val Bylgjunnar á „manni vik-
unnar" sl. föstudag af allan vafa.
Ftíll Þorsteinsson gerði heiðarlega
tilraun til að láta hlustendur
hringja inn með tillögur, en síma-
tíminn snerist upp í algjöra löngu-
vitleysu. Nánast engar alvarlegar
tillögur komu fram, nema hvað
Valgerdur Matthíasdóttir, Paul
Watson, Raggi „Skridjökull" og
örfáir aðrir fengu hvert sitt at-
kvæðið. Aðrir hlustendur bentu á
sjálfa sig, Pál sjálfan og „strákinn
sem hringdi áðan“, svo dæmi séu
nefnd. Töluverð brögð voru líka
að því að fólk, sem ekki hafði
komist að með afmæliskveðjur,
hringdi og styngi upp á afmælis-
barninu sem manni vikunnar.
Vesalings dagskrárgerðarmaðurinn
lét málið einfaldlega niður falla,
enda vita vonlaust að fá niðurstöðu
úr þessari klúðurslegu kosningu.
GÁRUNGARNIR voru fijótir
til þegar fréttist af björgunarað-
gerðum frammámanna í Sjálf-
stæðisflokknum vegna erfiðleika
Davíðs Schevings Thorsteinssonar
og uppnefndu viðkomandi aðila
„björgunarsveitir íhaldsins". Nú
hafa sömu menn þróað hugtakið
og eru farnir að tala um „Sjúkra-
samlag frjálshyggjunnar" og eiga
við kraftaverkamennina í kringum
Eimskip og Iðnaðarbankann. . .
ÞAÐ ER víst alveg ljóst að sala
á ýmiskonar varningi var með
mesta móti fyrir jólin og aldrei
verður það alveg ljóst hversu
miklum fjárhæðum landsmenn
raunverulega eyddu í allt sem
jólum tilheyrir. Einhvers staðar
hafa þó heyrst tölur um eitt og
annað, t.d. var talið að íslendingar
myndu kaupa bækur fyrir hátt í
einn og hálfan milljarð og svo
heyrðist líka að þeir myndu
drekka brennivín fyrir einn
milljarð á gamlárskvöld. Ekki fer
neinum sögum af því hvort þessar
tölur áttu við nokkur rök að
styðjast. Hins vegar hafa fróðir
menn dregið mjög í efa þær yfir-
lýsingar að aldrei hafi meira selst
af bókum en fyrir þessi jól og
virðist stefna í hið rammasta
áróðursstríð milli þeirra sem telja
að aldrei hafi meira selst og svo
hinna sem halda því fram að það
sé hrein og klár lygi. Hvorugum
aðilanum dettur þó í hug að nefna
neinar tölur enda kæmu þær
auðvitað upp um það hver hefði
rétt fyrir sér og þá væri ekkert
hægt að deila lengur...
VIÐ heyrðum fyrir skömmu á tal
tveggja kvenna sem voru að setja
út á efni sjónvarpsstöðvanna. Eftir
langan reiðilestur um lélegar
myndir hjá ríkissjónvarpinu beindi
önnur konan talinu að Stöð 2: „Ég
skil ekkert t því hvað Stöð 2 getur
leyft sér að breyta dagskránni
fyrirvaralaust. A laugardags-
kvöldið átti að sýna annan hluta
myndarinnar „The Beauty and the
Beast“, en þegar ég ætlaði að fara
að horfa á hana höfðu þeir í
staðinn skellt inn mynd um gosið í
Eyjum og umræðuþætti á eftir
sem Bryndts Schram stýrði." „Nú,
þá hefur alla vega komið
helmingurinn af „The Beauty and
the Beast"! varð hinni að orði.
Greinilega ekki krati sú!
Sarinkeppni milli útvarpsstöðva er hörð, eins og flestum mun
kunnugt. Nýlega byrjaði Páll Þorsteinsson aftur í morgunútvarpi
Bylgjunnar frá kl. 9—12. Þá hafði systir hans, Kristín Björg Þor-
steinsdóttir, verið með þátt í morgunútvarpi rásar 2 um nokkurra
mánaða skeið, þannig að þau systkinin eru nú komin í harða
samkeppni. HP hringdi til Kristínar og grennslaðist fyrir um
hvort grunnt væri orðið á því góða milli systkinanna.
Grámosinn glóir
Orðsins list þess eið hann sór
að hann héldi vöku.
I dag er glaður gamli Thor
með grámosann á höku.
Niðri
„Mér var sagt ad skákin hefdi endad med
jafntefli."
- HALLUR HALLSSON, FRÉTTAMAÐUR SJÓN-
VARPSINS, EFTIR AÐ HAFA FLUTT RANGAR
FRETTIR AF URSLITUM FYRSTU SKÁKAR
JÓHANNS OG KORTSNOJ.
2 HELGARPÓSTURINN