Helgarpósturinn - 28.01.1988, Blaðsíða 7

Helgarpósturinn - 28.01.1988, Blaðsíða 7
HERFLUTNINGAR CIA UM KEFLAVÍKURVÖLL HP leitar upplýsinga um viökomu herflutningavélar CIA, en þaö reyndist þrautinni þyngra aö fá botn í þetta einfalda mál. Þriðjudaginn 12. janúar óskaði vélin SJN 522 leyfis til að mega nauðlenda á Keflavíkurflugvelli og fá viðgerð vegna bilunar í hjólabúnaði. Vélin, Hercules C-130 frá bandaríska flugfélaginu Southern Air Transport, lenti kl. 15.37. EFTIR ÓLAF HANNIBALSSON Flugleiðir, sem sjá um alla þjón- ustu við vélar sem um Völlinn fara, fengu viðgerðaaðstöðu hjá hernum, þar sem ekki var pláss í þeirra eigin húsum, að sögn. Þar sem bilunin var í hjólabúnaði þurfti að tæma vélina til að hægt væri að lyfta henni upp og kom þá í Ijós að farmurinn var skriðdreki. Ljósmyndari DV kom þarna aðvíf- andi og skv. frétt Dagblaðsins 15. jan. var hann snarlega umkringdur 7 herlögreglumönnum og tilkynnt að hann yrði skotinn ef hann tæki mynd. Sveinn Þormóðsson, ljósmyndari DV, staðfesti í samtali við HP, að málsatvik hefðu verið með þessum hætti, nánar tiltekið hefðu þetta verið tveir hermenn og fimm her- lögreglumenn. Síðan var íslenska lögreglan kvödd til og hann færður út af vellinum í fylgd beggja lög- regiuliða. HP hafði samband við ritstjóra Dagblaðsins og spurðist fyrir um, hvort blaðið hefði eitthvað aðhafst í þessu máli, er fréttamaður þess væri svona gróflega hindraður í starfi við fréttaöflun. Honum var vísað til Jónasar Haraidssonar fréttastjóra. Hann sagði: „DV hefur ekki enn tekið afstöðu til þessa máls.“ LÝGUR BLAÐA- FULLTRÚINN? Southern Air Transport er aiþekkt sem huldufyrirtæki CIA, leyniþjón- ustu Bandaríkjanna, og kom tals- vert við sögu íranshneykslisins sem flutningaaðili með vopn til kontr- anna í Níkaragva. Það mun vera eina almenna flutningafélagið í heiminum, sem á og rekur Herc- ules-vélar, sem annars eru eingöngu notaðar sem herflutningavélar. HP fýsti að vita, hvernig vopna- flutningar sem þessir væru með- höndlaðir af íslenskum yfirvöldum. Við höfðum fyrst samband við Friðþór Eydal, blaðafulltrúa Varnar- liðsins. Hann kvað af og frá að Varn- arliðið hefði nokkurn skapaðan hlut haft með flugvél þessa að gera. Flugleiðir sæju um alla þjónustu við almennar (civil) flugvélar. Flugleiðir hefðu aðgang að einum bás í sama flugskýli og Awacs-flugvélar varnar- liðsins og Flugbjörgunarsveitin (Hangar 885) og vegna plássleysis annars staðar hefði vélin verið færð þangað. Þegar falibyssan (aðrir segja skriðdrekinn) hefði verið tekin út úr vélinni hefðu tveir hermenn og liðsforingi breitt yfir hana og tek- ið sér varðstöðu við hana. Aðspurð- ur um, hver hefði óskað eftir þessari varðstöðu, kvað hann mennina hafa tekið þetta upp hjá sjálfum sér. Þarna hefði verið óvarið hernaðar- tæki, sem einhver hefði getað farið að fikta við, ef þess væri ekki gætt. Mennirnir þrír hefðu verið óvopn- aðir og af og frá, að þeir hefðu liótað að skjóta nokkurn. Hermenn hefðu um það ströng fyrirmæli að hafa ekki í hótunum. Hann kvað liðsfor- ingjann hafa bent Sveini Þormóðs- syni á, að hann yrði að fá leyfi Frið- þórs til ijósmyndunar. Hefði til slíks komið hefði hann vísað honum til Flugleiða þar sem vélin hefði verið á þeirra vegum. Ekki hefði á þetta reynt þar sem ljósmyndarinn hefði snúið frá. FLUGSTJÓRN f REYKJAVÍK VISSI EKKERT Hjá Flugleiðum fengum við upp- lýst, að C-130 Hercules-vél frá South- ern Air Transport, skráningarnúm- er N522SJ, hefði lent á áður til- greindum tíma undir kallnúmerinu SJN-522 frá Shannon á írlandi, áfangastaður Goose Bay í Kanada, farið héðan fimmtudag 14. janúar kl. 19.30. Þessar upplýsingar voru staðfestar af Flugturni í Keflavík. Þegar haft var samband við Flug- málastjórn í Reykjavík brá hins veg- ar svo við, að enginn stafur fannst fyrir umferð þessarar vélar um ís- lenska flugstjórnarsvæðið á um- ræddum tíma. Skýringin hlyti að vera sú, að hún hefði komið inn undir herkallmerki, en herflugvélar, sem flygju um flugstjórnarsvæðið, væru ekki sundurgreindar með sér- stöku kallmerki, hver fyrir sig. Hins vegar höfðu fimm C-130 Hercules- vélar verið á ferðinni daginn eftir, 14. janúar, þar af ein RSAF 847, sem farið hefði héðan kl. 13.21, áfanga- staður Goose Bay, og hefði tilkynnt að hún væri með „hot cargo". Hot cargo á alþjóðamáli flugsins er not- að um hergögn hvers konar og sprengiefni. Ásgeir Einarsson, varaflugvallar- stjóri á Keflavíkurflugvelli, sagði flugvallarstjórn þar ekki hafa önnur afskipti af almennu flugi en að inn- heimta lendingargjöld. Ef vélar, sem eitthvað þyrftu að stoppa hér, til- kynntu „hot cargo" væri þeim vísað á svonefndan „hot spot“, af- vikinn stað. Aðspurður sagði hann að flugvélar frá Southern Air TVans- port hefðu komið öðru hvoru gegn- um tfðina. Einnig að alltaf öðru hvoru tilkynntu vélar „hot cargo"; væru það mikið sænskar vélar er flyttu hergögn til Kanada. SJN 522 hefði ekki tilkynnt „hot cargo". Hjá tollgæslunni sagði Einar Birg- ir, að farþegar hefðu komið í land og dvalið tvo sólarhringa í Reykjavik. Hann taldi víst að farangur þeirra hefði verið tollskoðaður, en listar yf- ir farþega væru ekki sérgreindir eft- ir flugi. Þorbjörn Kjærbo hjá toll- gæslunni á hlaði sagði, að þeir ættu að tollskoða allar vélar, sem ein- hverja viðdvöl hefðu. Þeir hefðu ekki verið látnir vita um þessa vél. Ekki hefði verið tilkynnt „hot cargo". Þetta væri óvanalegt tilfelli. Þorgeir Þorsteinsson, lögreglu- stjóri á Keflavíkurflugvelli, sagði að íslenska lögreglan hefði verið kvödd á staðinn vegna Sveins Þor- móðssonar ljósmyndara og hefði hann þá farið inn í flugskýlið og séð eitt stykki skriðdreka. Vélin hefði komið inn skv. neyðarrétti og verið flutt inn á svæði Varnarliðsins, sem væri bannsvæði fyrir almenning. Samkvæmt Varnarsamningnum hefðu her og herlögregla leyfi til að bera vopn á varnarsvæðum. Hann taldi að atvik þessi hefðu ekki verið sett á skýrslu en ættu að vera bókuð i dagbók. Birgir Guðjónsson, samgöngu- ráðuneytinu, kvað það ekkert hafa með mál á Keflavíkurvelli að gera. Um árabil hefði verið talað um að skilja að hernaðarumsvif og borg- aralegt flug og héldi ráðuneytið málinu vakandi með því að skrifa utanríkisráðuneytinu bréf þess efnis árlega. Þorsteinn Ingólfsson, skrifstofu- stjóri Varnarmálaskrifstofunnar, hafði ekki heyrt um málið, þegar við fyrst höfðum samband við hann, en i gær sagði hann, að hann hefði falið lögreglustjóra á Keflavíkurvelli að afla skýrslna um málið, en vissi ekki hvenær þeirra gæti verið að vænta. HP hafði samband við flugvirkja Flugleiða, sem á vakt voru þennan dag. Þeir sögðu, að þeirra menn hefðu aðstoðað við að lyfta vélinni, en að öðru leyti hefðu menn úr áhöfn vélarinnar séð sjálfir um við- gerðina. Meðan flugvélin beið við- gerðar stóð hún um nóttina við vegg hinnar nýju Fiugstöðvar Leifs heppna. HELGARPÓSTURINN 7

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.