Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 28.01.1988, Qupperneq 16

Helgarpósturinn - 28.01.1988, Qupperneq 16
Hefur þig ekki stundum langaö til aö ganga aö fólki, sem frílistar sig í bœnum um miöjan dag, og spyrja þaö: ERTU EKKI í VINNUNNI? Stundum er talað um „níu til fimm-fólk“, þegar átt er við dæmigerða skrifstofu-, banka- og verslunarmenn og aðra, sem vinna þennan klassíska átta tíma vinnudag. (Að frátalinni allri yfir-, nætur- og helgarvinnunni — að sjálf- sögðu!) Maður hefur kannski tilhneigingu til að halda að þetta eigi við um meirihluta vinnu- afls í iandinu, en það er auðvitað af og frá. Ef allir vinnandi menn sætu á bakvið skrifborð eða stæðu við búðarborð frá klukkan níu til fimm á virkum dögum... hverja væru þeir þá að afgreiða og aðstoða? Þegar maður á leið niður í bæ um miðjan dag í miðri viku (og væntanlega að stelast úr vinnunni!) heltekur mann stundum óstjórnleg „Ég er sko í fríi og á ekkert að vera í vinnunni núna. Ég vinn í sjoppu og við ræstingar i barna- skóla á kvöldin. Þetta er hálf vakt, sem ég tek í sjoppunni. Ég vinn í tvo daga og hef frí í fjóra. Mér finnst þetta mjög þægilegt og hef þetta svona til þess að geta sinn heimilinu betur." „Ég er hérna í erindagjörðum og tók mér þess vegna fri úr vinnunni. Þaö er þó ekki þar með sagt að ég geti bara gengið út. Ég vinn hjá öör- um og verð að biðja um leyfil" forvitni. Hvernig getur. allt þetta fólk verið að frílista sig langtímum saman í bænum, eins og stimpilklukkan hafi ekki enn verið fundin upp? (Varla er hver einasta hræða að stelast úr vinnunni, eins og ég, eða er þetta ef til vill skýringin á þjóðarframleiðslunni? Svari nú hver sem betur getur.) Vinna svona margir vaktavinnu hér á landi eða eru sjálfstæðir at- vinnurekendur? Er heimavinnandi fólk fjöl- mennara en almennt er talið? Eða er bærinn fullur af ellilífeyris- og örorkuþegum? Blaðamaður HP brá sér í Kringluna eftir há- degi siðastliðinn þriðjudag með Ijósmyndara, blað og penna og hugðist svala forvitni sinni — í nafni starfsins — og spyrja fólk hvers vegna „Ég er nú alls staðar og hvergi í vinnunni. Ég er leigubíIstjóri og var aö keyra hingað farþega. Þá datt mér í hug að líta inn, því ég er nefnilega einn af þeim sem aldrei hafa komið í Kringluna og fannst upplagt að nota tækifærið. Yfirleitt vinn ég annars mest að næturlagi, vegna þess hve umferðin er þá þægileg." „Ég er nú sjúklingur og er ekkert farinn að vinna aftur eftir hjartaaðgerð, sem ég gekkst undir í september. Ég get þess vegna spókað mig hérna i mestu makindum. En það kemur þó brátt aö þvi að ég fari að vinna aftur." í ósköpunum það væri ekki í vinnunni. Ljón nokkurt var þó í veginum og hugði gott til glóðarinnar. (Namm, namm, fjölmiðlafólk með eftirmiðdagskaffinu...) Þetta var einn af öryggisvörðum Kringlunnar, ungur og ábúð- arfullur, og tók starfið greinilega mjög alvar- lega. „Hvað eruð þið að gera hér? Þetta er einka- eign! Hafið þið leyfi?" Manninum var augljós- lega ekki skemmt. Við vorum lent í slæmum málum og það gerði bara illt verra að hlæja í forundran. Brúnin þyngdist stöðugt á öryggis- verðinum. Hann sagði, að nauðsynlegt væri að hafa tilskilin leyfi til að rabba við hina ai- mennu borgara í Kringlunni. Það yrði að „Ég er einfaldlega búin í vinnunni í dagl Fjóra daga vikunnar vinn ég bara til tvö, því mérfinnst of mikið að vinna fullan vinnudag þegar maður er með börn. Þetta er afskapiega þægilegt fyrir- kornulag." „Ég er nýkomin frá útlöndum og ekki farin aö vinna eftir heimkomuna. Síðastliðið eitt og hálft ár hef ég nefn ilega búið á Filippseyjum. En það er yndislegt að vera komin aftur heim til ís- lands og ég hlakka til að fara að vinna." sækja um slíka pappíra, gera grein fyrir til- gangi spjallsins og allt mögulegt. Hann blés á rök eins og þau að við værum að flýja snjóinn og kuldann hjá samkeppnisaðilunum. Reglur eru reglur og hann hafði fengið sín fyrirmæli löngu fyrir jól. Eftir nokkurt pex gafst öryggis- vörðurinn ungi upp, enda enginn liðsauki sjá- anlegur. Hann kallaði þó til okkar, að ,,næst“ yrðum við að vera með pappírana í lagi. Fólkið, sem við gáfum okkur á tal við, tók spurningunni auðvitað afar misjafnlega. Sum- ir sögðust hreinlega vera að stelast úr vinn- unni „og í guðs bænum ekki taka rnynd"! En margir brostu blítt og svöluðu forvitni okkar, eins og fram kemur hér á síðunni. „Ég er ekkert að skrópa. Ég á frí núna og er að sækja konuna mína hingaö. Það er tiltölulega auðvelt fyrir mig að taka mér frí þegar nauðsyn krefur, þvi ég er verktaki og get ráðið mér mikiö sjálfur. Þetta er afskaplega hentugt, þegar mað- ur þarf að fara í útréttingar, redda skattamálun- um eða eitthvað í þeim dúr." „Ég er búin aö vinna í dag. Ég hætti fyrr einn dag í viku til að geta sinnt ýmsum útréttingum. Það er alveg nauðsynlegt, þegar maður er með fjölskyldu." 16; lEFTIR JÓNÍNU LEÓSDÓTTUR MYNDIR JIM SMARTl

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.