Helgarpósturinn - 28.01.1988, Síða 32
Fyrirtœkiö Ávöxtun hf. vard nýlega fimm ára gamalt og var haldid upp á afmœlid sídastlidirin föstudag.
Þegar Avöxtun var stofnud ákvádu eigendurnir ab hafa ekki hefðbundna ,,opnunarveislu“, lögdu pening-
ana í fyrirtoekib og ávöxtunin lét ekki á sér standa. Því var m.a. hœgt að halda glœsilega fimm ára
afmœlisveislu í Gyllta salnum á Hótel Borg. Á þribja hundrab gesta mœtti til ab samfagna eigendum
fyrirtœkisins, Ármanni Reynissyni og Pétri Björnssyni, á þessum tímamótum og var gestum bobið upp á
kampavín og kavíar ab hœtti heldri manna. Mebal gesta voru frammámenn í vibskipta- og listalífi
þjóbarinnar, eins og sjá má af mebfylgjandi myndum Jims Smart.
Þeir virðast vera að ræða alvarleg málefni herramennirnir Halldór Guðbjarna-
son, fyrrum bankastjóri Útvegsbankans, og Jón Aðalsteinn Jónsson, fyrrum
bankaráðsmaður sama banka.
Pétur Björnsson og Ármann Reynisson, forstjóri Ávöxtunar hf., lyfta hér glös-
um með freyðandi kampavíni.
Ármann Reynisson forstjóri á góðri stund með tónlistarmönnunum Jakobi F.
Magnussyni og Ragnhildi Gísladóttur.
Strengjakvartett lék Ijúfa tonlist fyrir gesti.
Fjölmiðlaheimurinn lét sig ekki vanta í veisluna á Hótel Borg. Hér ræðast við
Magnús Hreggviðsson, stjórnarformaður Frjáls framtaks hf., og Össur Skarp-
héðinsson, fyrrum ritstjóri Þjóðviljans.
Þarna mætast heimar tónlistar, glerlistar og myndlistar. Atli Heimir Sveins-
son, Leifur Breiðfjörð og eiginkona hans, Sigríður G. Jóhannesdóttir, kona Atla
Heimis, Ingibjörg Björnsdóttir, og Kristján Davíðsson listmálari.
PÓLITÍSK SMÁKROSSGÁTA
LÁRÉTT
1 Mjúkt efni
6 Keppa í frjálsum (skst.)
7 Stendur fyrir félagsmálaskóla
(skst.)
8 Gyltu (fornt)
9 Meöfæddan mal
10 Eitur í beinum Vestfjarða-
þingmanna
11 Kvendýrið (fryst handa
refum)
14 Flokksplanta
15 Gerir „undir" eða „á önnur
mið"
LÓÐRÉTT
1 Niðurgreiddur, hækkaði samt
2 Skipuleggja landanir (skst.)
3 Tæki, stundum af tölvuætt
4 Fámennari (þingdeildin)
5 Þjóðflokkur, fékk svo nýtt
nafn
7 Skattstofan
9 Efnis í dökku pústi
12 Næst skinnu
13 Get seilst til
STJÖRNUSPÁ
HELGINA 29.-31. JANÚAR
Gerðu þér grein fyrir því, að hugsanlega
þarf að breyta ákveðnum áætlunum. Vertu
svolítið sveigjanlegur og mundu eftir kímni-
gáfunni. Aðili af eldri kynslóðinni miðlar þér
af reynslu sinni og styður þig ef til vill fjár-
hagslega. Einhver gjóar til þín ástaraugum.
NAUTIÐ 121/4-21/5
Nú er tími til að endurmeta stöðu mála.
Akveðnum aðila stendur ekki á sama og
hann sýnir það í verki. Vertu viðbúinn til-
breytingu, ferðalagi og sérkennilegum skila-
boðum. Hlustaðu á það, sem ættingjar þínir
hafa að segja og búðu þig undir breytingu á
heimilislífinu.
Þú sýnir þínar bestu hliðar um helgina og
mátt eiga von á sigri á einhverjum vettvangi.
Fjármál eru í brennidepli og þú getur átt von
á óvenjulegri gjöf eða boði. Fyrri vonbrigði
breytast að öllum líkindum í andhverfu sína.
Ekki svíkja gefið loforð.
KRABBINN (22/6-20/7
Þú verður að tjá þær tilfinningar, sem ver-
ið hafa að brjótast um innra með þér. Gættu
þess bara að ekki verði um neinn misskiln-
ing að ræða, þar sem þetta á að vera leynd-
armál. Fólk skilur kannski ekki hvað þú ætlar
þér, enda ýmislegt ennþá á huldu.
LJÓNIÐ (21/7-23/8
Áherslan þessa helgi verður á andlega
hluti. Þú eignast nýjan vin, sem á i
ákveðnum erfiðleikum, en þú færð samúð-
ina endurgoldna síðar. Þú axlar aukna
ábyrgð og því tengist mjög valdamikil
persóna. Þig mun ekki skorta aöstoð. Var-
astu sjálfsvorkunn.
rcromia
Þér stendur ábyrgðarstaða til boða, en þú
verður líka að bera þig eftir henni. Hikaðu
ekki og láttu ekki undan barnalegri hræðslu.
Hópur eða samtök þurfa á aðstoð þinni að
halda og þú skalt búast við hjálparbeiðni, en
varastu fólk sem hugsar bara um sjálft sig.
Reyndu að vera ekki svona óákveðinn og
sýndu af þér svolítið sjálfstæði. Taktu að þér
leiðtogahlutverk og vertu lifandi dæmi um
það hvernig hægt er að njóta lífsins betur.
Þetta á lika við um persónu af gagnstæða
kyninu, sem vill fá meiri hlutdeild í lífi þínu.
SPORÐDREKINN (23/10-22/n
Rómantíkin nær tökum á þér og ákveðið
tilfinningasamband verður innilegra. Aðili,
sem hefur unun af leiklist, íþróttum og
ævintýrum, dáist nefnilega að þér og þetta
gæti verið byrjunin á einhverju spennandi.
Persóna, sem þú lærðir mikið af í fortíöinni,
kemur aftur á sjónarsviðið.
BOGMAÐURINN (23/11-21/12
Leggðu aukna áherslu á allt, sem snertir
heimilið og ástvini þína. Það þýðir ekkert að
láta áhyggjur ná tökum á sér, heldurtaka því
sem að höndum ber með rósemi. Reyndu
að skilja það sem að baki býr, því með því að
kanna málin muntu komast að ýmsu merki-
legu.
STEINGEITIN (22/12-21/1
Gerðu bara einn hlut í einu, þar sem annað
leiðir einungis til streitu. Reyndu að slaka á
með skemmtilegu fólki og leyfa kímnigáf-
unni að njóta sín. Maki þinn eða góðurfélagi
styður þig af mikilli hollustu, en þú ættir líka
að leita sérfræðiráðgjafar.
VATNSBERINN (22/1-19/2
Sýndu að þú getir ekki bara verið frumleg-
ur, heldur einnig hagsýnn. Nú er nefnilega
tíminn til að takast á við hin hversdagslegu
smáatriði og þér mun líða betur á eftir. Það
borgar sig að hugsa um heilsuna og falla
ekki fyrir freistingum í formi matar og
drykkjar.
FISKARNIR (20/2-20/3
Þú þarfnast nýrra hugmynda, tilbreyting-
ar og útrásar fyrir rómantískar tilfinningar.
Þetta verður til þess að leiða þig inn á nýjar
brautir. Öll áform um af þreyingu eru í tengsl-
um við heimili þitt, fjölskyldu og börn. Sann-
aðu umhyggjusemi þína og trygglyndi.
32 HELGARPÓSTURINN