Helgarpósturinn - 10.03.1988, Side 11

Helgarpósturinn - 10.03.1988, Side 11
s ^^Mlagurinn á peningamarkaðn- um er harður og mikið komið undir því að auglýsingar innlánsstofnana heppnist vel. Gullreikningur Bún- aðarbankans, sem svo er nefndur, hefur slegið í gegn á þessum skrítna markaði og er það jafnvel svo að biðraðir hafa myndast í aðalbankan- um í Austurstræti ... Íhfl^eira um banka og stjórn- mál. Nú mun vera komin upp ný staða innan Framsóknarflokks- ins varðandi afstöðuna til Búnað- arbankans. Sem kunnugt er hafa löngum verið þar ákveðin tengsl á milli, sem m.a. hafa lýst sér í því að innnan þingflokks Framsóknar sem og víða annars staðar í flokknum hefur Búnaðarbankinn átt hauka í Ólafur Hannibalsson Hannibalsson ritstjóri Ólafur Hannibalsson hefur verið ráðinn annar tveggja ritstjóra HP. Hann hefur verið blaðamaður á HP um skeið. Ólafur hefur starfað við blaðamennsku um árabil, og hefur auk þess víðtæka reynslu af marg- víslegum öðrum störfum. Ólafur var m.a. ritstjóri Frjálsrar þjóðar og ým- issa annarra blaða. Helgarpósturinn væntir góðs af starfi hins nýja ritstjóra og býður hann hjartanlega velkominn til starfa. horni, þegar talið hefur borist að sameiningu Búnaðarbanka við aðra banka hvað þá ef rætt hefur verið um að bankinn skuli gerður að hlutafélagi. Hins vegar hafa verið ýmis teikn á lofti um nokkurn tíma að þessi sambúð fari kólnandi og að framsóknarfurstarnir líti nú öðru vísi á Búnaðarbankann. Jafnvel þó að bankinn sé stærsti viðskipta- banki landbúnaðarins eru margir innan framsóknar farnir að leyfa sér að kalla bankann „heildsala- banka“ og að hann sé í fáu frá- brugðinn öðrum bönkum. Þá telja þeir sömu að fyrst Stefán Valgeirs- son kom ekki til baka til flokksins sé hann þeim endanlega glataður sauður og þar með hafi þeir engan bankaráðsmann. Stefán Pálsson var ráðinn án tilhlutunar flokksins og Stefán Hilmarsson sé farinn að haga sér eins og hann eigi bankann. Sá síðastnefndi vildi ekki taka mið af samningi Framsóknar um að Kjartan Jóhannsson settist í stói- inn hans og vilji senniiega að Sveinn Jónsson endurskoðandi komi í sinn stað. Búnaðarbankinn láti sem sagt ekki að stjórn lengur og því sé til lítils að vera að púkka upp á hann, Framsókn hafi einfald- lega ekki sömu ítök í bankanum og fyrir fáum mánuðum. Staðan innan Framsóknar sé því sú að nú eru menn tilbúnir að ljá máls á alls kyns möguleikum um framtíð bankans. Til greina komi að skella honum saman í hlutafélag með Útvegs- banka eða jafnvel að hann verði sameinaður Landsbanka. Því má segja að flest sé í heiminum hverf- ult... RAGNAR BJÖRNSSON HF. Dalshrauni 6 Hafnarfirði - Sími 50397-651740 BLÁFJALLA- NEFND Fátt er betra til að efla samstöðu innan fjölskyldunnar en að fara á skíði í Bláfjöllum og njóta samverunnar í snjónum. Ungur nemur, gamall temur eða öfugt - brekkur eru við allra hæfi. Um helgar eru námskeið fyrir byrjendur og lengra komna. Ef einhver vill koma með og prófa er skíðaleiga í þjónustumiðstöðinni - allir geta verið með. Komið í Blátjöll og standið saman -þaðerheilbrigð skemmtun. Símanúmer í Bláfjalla skála: 78400 Símsvari: 80111 ■nHBaBnBaMBBnaaBaaanMBBaBaMMBNCHnnH; HELGARPÓSTURINN 11

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.