Helgarpósturinn - 10.03.1988, Page 30

Helgarpósturinn - 10.03.1988, Page 30
TÖLVUR OG HUGBÚNAÐUR B.M.VALLA HF HEFUR FLUTT SKRIFSTOFUR SÍNAR UM SET FISHER NÝTT HEIMILISFANG NÝTT SÍMANÚMER ALÞJOÐA- GJALDEYRIS- MARKAÐURINN í LITUM Hin nýja tölvutækni gerir mönnum nú kleift að fylgjast með alþjóðagjaldeyrisviðskiptum í grafískri framsetn- ingu á tölvuskjá á skrifstofu sinni — og það í litum. Það hefur löngum verið sagt að hin „fagra nýja veröld" væri rétt handan við hornið hvað tölvur og tölvutækni varðar. Þessi „fagra veröld" er okkur að hluta sjáanleg í dag. Sífellt meiri kröfur um ná- kvæmar og hraðar upplýsingar hafa virkað sem hvati á framþróun tækn- innar. Hefur þegar verið bragðað á nokkrum ávöxtum þessarar þróun- ar, en einn þessara ávaxta er þjón- usta bandaríska fyrirtækisins Teler- ate Systems inc. Kaupendur eða áskrifendur þjónustu þessa fyrir- tækis geta fengið upplýsingar um hreyfingu á alþjóðagjaldeyrismörk- uðunum — svo dæmi sé nefnt — inn á tölvuskjá sinn á sekúndubroti. Telerate er sjálfstætt fyrirtæki í dag, en þegar grunnurinn að hinu víðtæka upplýsinganeti þess var lagður árið 1969 var það í samvinnu við hina alþjóðlegu fréttastofu Associated Press og blaðaútgefand- ann Dow Jones í New York. í dag láta meira en 600 stórar fjármagns- stofnanir Telerate upplýsingar í té. UPPLÝSINGAR „ON- LINE" Allar upplýsingar fást „on-line" þar sem Telerate er í beinum tengsl- um við tölvukerfi hinna ýmsu stofn- ana. Askrifendur að þessari þjón- ustu Telerate geta fengið síðasta verð og verðbreytingar, auk fjölda fréttaskýringa um atburðarásina á fjármagnsmörkuðum heimsins. Um leið og mikilvægir atburðir verða í heimi gjaldeyrisviðskipta fara blaðamenn, sem hafa einmitt 'það efni á sinni könnu, í gang með skriftir. Á stuttum tíma koma fyrstu frettaskýringarnar fram og nokkr- um mínútum síðar geta hinir fjöl- mörgu áskrifendur Telerate lesið fréttaskýringarnar beint af tölvu- skjám sínum, þ.e.a.s. ef þeir eru áskrifendur að einmitt viðkomandi fjármálapakka. Yfir 35 þúsund bankar og spari- sjóðir, verðbréfasalar og aðrir fjár- magnsaðilar eru tengdir Telerate- netinu í dag. Þessi tölvufjölmiðiil getur boðið upp á 30 þúsund síður upplýsinga. Það eru upplýsingar er breytast stöðugt á þeim skjá eða skjám sem hver viðskiptavinur hef- ur tengda netinu. Fáir nýta sér þann möguleika að skrifa upplýsingarnar út á prentara, þar sem t.d. gjaldeyrisverð er fijótt að úreldast. Það eru heldur ekki margir áskrifendur sem „blaða" í öllum skjásíðum Telerate. Oftast kaupir hver viðpskiptavinur ein- ungis þær „síður“, er anna þörfum hans fyrir upplýsingar. Sem dæmi notar stór fjármagns- stofnun er vinnur með fáar en stórar fjármagnsfærslur tæpar 10 „síður", meðan smærri stofnanir sem oftar þurfa að rannsaka markaðinn þurfa fleiri síður. ÖNGÞVEITISAÐSTÆÐUR Telerate vinnur ekki aðeins með gjaldeyrismarkaðina. Fyrirtækið hefur einnig sérhæft sig í upplýsing- um um bandarísk verðbréf, fréttum frá orkumarkaðinum og markaði fyrir eðalmálma. KORNGARÐAR1 SÍMI680600 SUNDAHÖFN Fyrirfram eru yfir 20 hugbúnaðar- kerfi í Teletrac sem geta borið sam- an og lagfært upplýsingar eftir þörf- um viðskiptavinarins. Viðskipta- vinurinn getur auk þess borið eigin myndir saman við myndir Teletrac. Neðsti þriðjungur skjásins er fyrir Telerate og efri hlutinn fyrir myndir Teletrac. Teletrac nýtur þegar mikilla vin- sælda. Því kerfi var komið á fyrir tveimur árum og hefur fyrirtækið ekki við að sjá viðskiptavinum fyrir búnaði. Teletrac virkar sem góður stuðningur við Telerate, en kerfin geta notast saman eða hvort í sínu lagi. Telerate veitir uppplýsingar hér og nú meðan Teletrac má nota við efnahagsstjórnun. Hreyfingar í tengslum við stór erlend lán er hægt að kortleggja og komandi aðgerðir má skipuleggja á mun betri forsend- um en áður. Hvað varðar verð á Teletrac er því enn svo í hóf stillt, að það hefur ekki verið nein hindrun fyrir viðskipta- vin. Aðeins eitt prómill af ágóða einnar heppilegrar fjármagnsfærslu sem framkvæmd er á grundvelli upplýsinga kerfisins á samkvæmt aðstandendum þess að nægja til að greiða niður allan kostnað í tengsl- um við uppsetningu og kaup á kerf- inu. Teletrac er alls ekki fullþróað enn og mun breytast í samræmi við breyttar þarfir viðskiptavinanna. IK0RNGARÐA1 Við hjá B.M.Vallá hf. höfum flutt skrifstofur okkar í nýtt og glæsilegt húsnæði við Korngarða 1 í Sundahöfn. Við það breyttist einnig símanúmer okkar og er nú 680600. B.M. VALiA Aðalskrifstofa: Korngarðar 1 Pósthólf 4280 124 Reykjavík Sfmi 680600 Nafnnúmer 0908-0104 Kennitala 530669-0179 Steypustöð: Steypupantanir: Bíidshöföa 3 Sími 685833 Steinaverksmiðja: Söl uskríf stof a/sýn i ngarsvæði: Breiðhöfða 3 Sími 685006 að birta upplýsingar Telerate í lit- myndum á skjá viðskiptavinanna. Gagnstætt Telerate geymir Teletrac upplýsingarnar. Viðskiptavinurinn getur ákveðið hvort hann vill end- urskoðun eða endurnýjun upplýs- inganna 5. hverju mínútu, einu sinni á klukkustund eða einu sinni á sól- arhring. Á hverju tímabili birtir kerfið sjálft hæsta, lægsta og nýjasta verð á skerminum í einu. Hin fjórlita mynd á skjánum er aldrei stöðug. Línuritin breytast í takt við fréttastrauminn og hægt er aðjrrenta myndirnar beint í litum. Oski maður eftir að bera saman fleiri myndir eða línurit í einu er það einnig mögulegt. Skjárinn birtir allt að 10 mismunandi grafískar myndir í einu. Samhliða sjálf virkri skráningu upplýsinga getur Teletrac-kerfið meðhöndiað hinar mismunandi upplýsingar á mismunandi vegu. I LITUM Nýjasta nýtt frá Telerate er hið svo kallaða Teletrac-kerfi. Það sér um Ósjaldan afla áskrifendur Telerate sjálfir frétta fyrir kerfið, er gerir þeim kieift að framkvæma hluti samstundis. Kreppuástand á hinum stóru verðbréfamörkuðum, eins og það sem heimurinn upplifði í tengslum við hrun dollarans, gerir strax vart við sig á neti Telerate. Það gerir við- skiptavinunum kleift að taka ákvarðanir á traustari grunni en oft- ast áður. í dag er Telerate sjálfsagður hluti fjármála- og viðskiptalífsins í meira en 40 löndum. Mikill hluti upplýs- ingaflæðisins berst eftir símalínum, en auk þess sjá 4 gervihnettir um að halda hinu hraða og nákvæma upp- lýsinganeti gangandi. l0^° Ao<J BORGARTÚNI 16 REYkjavik. simi 622555 SJÖNVARPSBODIN 30 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.