Helgarpósturinn - 10.03.1988, Side 25
BEINLÍNU-
VÆÐING
BANKANNA
OKKAR
STÆRSTA
VERKEFNI
Fyrirtækið Einar J. Skúlason er mörgum er starfað hafa
við skrifstofustörf að góðu kunnt. Það var stofnað af
Einari J. Skúlasyni árið 1939 og lagði frá upphafi áherslu
á innflutning og sölu á alls kyns vélum til skrifstofuvinnu.
Var fyrirtækið í fölskyldueign allt fram til ársins 1984, er
því var breytt í hlutafélag. I júní 1985 keyptu fjórir ein-
staklingar fyrirtækið. Það voru þeir Olgeir Kristjánsson,
Kristján Auðunsson, Helgi Þór Guðmundsson og Bjarni
Ásgeirsson.
HP heimsótti fyrirtækið á dög-
unum til að heyra nánar frá starf-
semi þess, en það er nokkuð at-
kvæðamikið á tölvu- og hugbúnað-
armarkaðinum í dag.
Olgeir Kristjánsson sagði að þeg-
ar árið 1965 hefði fyrirtækið fengið
umboð fyrir Kienzle-vörur. Þar á
meðal hafi verið reikni- og bók-
haldsvélar og þótti enginn endur-
skoðandi vera maður með mönnum
á þeim tíma ef slíkar vélar stóðu
ekki á skrifborði hans. Gekk mjög
vel með þessar vélar, en það er ekki
fyrr en 1981, þegar bankarnir fara af
stað með útboð um beinlínuaf-
greiðslutæki, að hjólin fara virki-
lega að snúast hjá fyrirtækinu. Ein-
ar J. Skúlason býður í verkið með
sínar Kienzle-vélar. Þetta var fyrir
tíma samkeppninnar hjá bönkun-
um, þannig að um sameiginlegt út-
boð allra banka og sparisjóða á Is-
landi var um að ræða í þessu tilfelli.
Árið 1983 var ákveðið að taka
Kienzle-afgreiðslutæki inn í alla
banka og sparisjóði á landinu. Iðn-
aðarbankinn hafði þó sérstöðu að
því leyti að hann hafði þegar komið
sér upp IBM-kerfi. Síðan þá hefur
fyrirtækið unnið stöðugt að þessu
verkefni, að beinlínuvæða bank-
ana. Samvinnubankinn fór reyndar
út úr þessu samstarfi og keypti IBM-
vélar.
„Kienzle-kerfið er gagnmerkt
kerfi sem hefur fengið frekar litla
opinbera umfjöllun. Reyndar breytt-
ist nafnið 1981, þegar Mannesmann
keypti Kienzle-fyrirtækið, svo nú
heita vélarnar Mannesman Kienzle.
Fyrsti beinlínubankinn fór í gang í
nóvember 1985, þ.e. eftir okkar
kerfi. Síðan þá eru um það bil 100
stjórnstöðvar komnar út. Um 400
gjaldkerar víðs vegar um landið eru
beinlínutengdir í dag. Þar við bæt-
ast um 800 bakstöðvar. Stjórnstöðv-
arnar eru 100 talsins. í flestum úti-
búum er ein stjórnstöð, en í þeim
stærstu hér í Reykjavík eru þær
tvær. Við erum enn að setja upp
kerfið, en senn líður að lokum upp-
setningarinnar. Er beinlínuvæðingu
bankanna áætlað að ljúka 21. júlí á
þessu ári.“
Þessum þuœlingi milli sparisjóds-
deildar og gjaldkera er því lokiö fyr-
ir þá er vilja taka peninga út af
bók?" r
„Já. í dag getur þú gengið beint
að hvaða gjaldkera sem er og fengið
þína afgreiðslu. Reyndar gat verið
misbrestur á því í upphafi, þar sem
umbylta þurfti skipulaginu í af-
greiðslu bankanna þegar hið nýja
beinlínukerfi var að komast í
notkun."
Einhver hefur haldid því fram aö
vinnusparnaöurinn afnotkun þessa
beinlínukerfis hafi ekki ordid sem
skyldi.
„Jú, það hefur orðið nokkur
vinnusparnaður, en það hefur tekið
sinn tíma að hefja notkun á kerfinu.
Samkvæmt heimildum frá bönkun-
um hefur ekki orðið fjölgun mann-
afla í sumum bönkum árið 1987,
þrátt fyrir fjölgun útibúa. Vinnan í
bankanum hefur breyst á þann hátt
að gjaldkerum hefur fjölgað en bak-
fólki fækkað. Gjaldkerinn gerir mun
meira í dag vegna tilkomu þessara
tækja. Reyndar fara íslendingar
mjög hratt inn í þessa þróun í af-
greiðslumálum banka. Fram að til-
komu beinlínukerfisins voru bankar
hér vægast sagt nokkuð frumstæðir,
en svo verður þessi þróun í mjög
stórum skrefum. Til samanburðar
má geta þess að þessi þróun hefur
tekið áratugi."
Nú hefur sjálfsafgreidsluvélum
fjölgad mikid og er farid ad tala um
ad gjaldkerinn veröi óþarfur innan
fárra ára.
„Jú. Stefnan erlendis beinist æ
meir í átt að sjálfvirkni og þar er
stefnt að því að fækka fólki. Erlendis
eru sjálfsafgreiðslutækin mun meira
notuð en hér. íslendingar eru mjög
sérstakir að því leyti, að við notum
ávísanir mjög mikið, og það þarf
gjaldkera ef leysa á út eða greiða
með ávísun í banka. Ég held að hér
á landi sé ávísananotkun sú mesta í
heirni."
Erlendis eru bankakort mikiö not-
uö, a.m.k. íDanmörku. Þá á fœrsla
sér staö um leiö og kortiö er notaö,
en ekki um sex vikna greiöslufrest
aö rœöa. Hvaöa trú hefur þú á aö
notkun bankakorta veröi almenn
hér? Er fólk ekki rígbundiö á klafa
lánakortanna?
„Bankarnir hér hafa gefið út
bankakort, sem gerir fólki kleift að
taka peninga út úr sjálfsafgreiðslu-
tækjum. Hér á landi er fólk hrein-
lega ekki ýkja hrif ið af að staðgreiða
með beinhörðum peningum. Hin
ráðandi greiðslukort hér veita fólki
allt að sex vikna greiðslufrest og
ávísanir gefa manni a.m.k. eins
dags greiðslufrest. Erlendis getur
maður farið í stórverslanir og greitt
með bankakorti og á færslan sér þá
um leið stað í bankanum. íslend-
ingar eru ekki hrifnir af þvi að fá
engan greiðslufest, við kunnum
ekki að lifa þannig. En hvað varðar
bankana þá er þróunin erlendis
a.m.k. í þá átt að gera viðskiptavin-
inn sjálfbjarga. Hér á landi vilja
bankarnir gjarnan fara sömu leið,
en það er spurning hvort þeir fá
fólkið með. Reynslan af sjálfsaf-
greiðslutækjum hér á landi er held-
ur ekki góð, hér eru þau mun minna
notuð en erlendis. Hér eru greiðslu-
kortin notuð."
En hvaö meö aöra þœtti í starf-
semi fyrirtœkis ykkar?
Við ákváðum mjög fljótt að ein-
skorða okkur ekki einvörðungu við
bankatölvur. Við ákváðum að taka
Hugsaðu málið
Ef þú ert í bilahugleiðingum,ættir
þú aö lesa þessa auglýsingu
tvisvar. Ræddu við sölumenn
okkar um kosti LADA bilanna og
vinsælu greiðslukjörin. Afgreiðslu-
tíminnn er 2-4 dagar. Við eigum
einnig úrval notaðra LADA bíla.
Beinir símar:
Nýir bílar sími: 31236
Notaðir bílar sími: 84060
Opið laugardaga trá 10-16
ÓBREYTT VERÐÁ MEB
AN BIRGÐIR ENDAST
BIFREIÐAR & LANDBÚNAÐARVÉLAR
Suðurlandsbraut 14 107 Reykjavík, sími 38600 10 línur
HELGARPÓSTURINN 25
haunmm USKARSSON BSL