Helgarpósturinn - 10.03.1988, Blaðsíða 38
i
kynorku þó þeir hefðu fáum limum
að flíka — og sóru sig í ætt við tein-
rétt suðræn frjósemisgoð. Fyrrum
nágranni Sæmundar, Samúel Jóns-
son í Selárdal í Arnarfirði, var
myndhöggvari í orði sem á borði.
Það var samt engin tilviljun að stytt-
urnar hans líktust guðamyndum frá
Miðjarðarhafinu. Til þess eru jú
póstkortin að á þau sé horft. Af ein-
hverjum ástæðum líktust Al-
hambraljón Samúels þó meira sel-
um en sjálfum sér. Samúel byggði
líka höll einsog Ferdinand Cheval,
en höllinni í Selárdal var ætlað að
vera kirkja utanum altirstöflu sem
sóknarnefndin hafði úthýst. Það
væri vissulega athugandi fyrir Þjóð-
minjasafnið að friðlýsa „listasafnið"
í Selárdal — nú þegar þjóðminja-
vörður hefur lýst því yfir að safnið
stefni að verndun sem flestra nú-
tímaminja. Sæmundur Valdimars-
son getur þó varla talist minjagripa-
framleiðandi. Hann er afturámóti
sjálfmenntaður í listinni og á sama
hátt og þeir kumpánar Ferdinand
og Samúel byrjaði hann ekki á svo-
leiðis fikti fyrr en seint og um síðir.
Ólíkt þeim hefur hann ekki slegið
um sig skjaldborg úti í náttúrunni,
heldur leggur til atlögu við malar-
listina. Sæmundur er þó vissulega
náttúrulýríker. Hann færir Frey í
nærbuxur úr ýsuroði og límir lauf-
blaðaþyrpingu á kvið Evu. Aðrar
stúlkur eru í þangpitsum og engin
þeirra hefur eins geirvörtur, vel að
merkja. Einnig notast Sæmundur
við glóðarlampa, sag og fleiri áferð-
armeðul. Hann er alls óhræddur við
að nota það sem hendi er næst og
kemst því oft að öðrum og óvæntari
niðurstöðum en teoríugaurarnir.
Naglasúpa listalífsins virðist sem
betur fer ekki hafa nein áhrif á
Sæmund Valdimarsson. Við ná-
grannar hans skulum bara vona að
hann fari ekki að rífa af okkur bolla-
stellin. Ólafur Engilbertsson
TÓNLIST
David Lee Roth —
Skyscraper
Fyrsta alvörusólóplata Davids Lee
Roth kom út árið 1986. Eat ’Em and
Smile heitir platan sú og á henni var
að finna kraftmikla, fremur hráa
rokktónlist í þyngri kantinum. Gítar-
leikarinn Stevie Vai fór þar á kostum
og sannaði að hann er svo sannar-
lega í hópi liprustu gítarleikara
heims.
Síðan Eat ’Em and Smile kom út
hafa Bon Jovi selt nokkrar milljónir
platna, Europe hafa slegið í gegn og
Def Leppard hafa selt u.þ.b. þrjár
milljónir eintaka af plötunni Hyster-
ia í Bandaríkjunum einum. Með öðr-
um orðum; melódískt, fremur
poppað þungarokk hefur notið
óhemjuvinsælda síðustu misserin.
Það er kannski vegna þessa sem
David Lee Roth hefur mildað tónlist
sína á Skyscraper frá því sem var á
Eat ’Em. Lækkað hefur verið all-
rækilega í Stevie Vai og í stað þess
að hann fylli upp í hverja holu með
kröftugum leik sínum hefur hljóm-
borðum verið gefið aukið rými.
Árangurinn er mýkri áferð á tónlist-
inni og þar af leiðandi meiri mögu-
leikar á spilun í útvarpsstöðvum
vestanhafs.
Þetta þýðir þó ekki að Skyscraper
sé ómöguleg plata, síður en svo.
Þetta er hressileg skífa sem hefði
bara getað orðið enn hressilegri ef
Vai hefði fengið að leika ögn lausari
hala. Því hann er jú virkilega góður
spilari.
Um söng Roths þarf svo sem ekki
að fara mörgum orðum. Hann er
karlmannlegur og laus við alla tóna
sem eru svo háir að bara hundar
heyra eins og svo algengt er með
bandaríska þungarokkssöngvara.
Lagið Just Like Paradise hefur
þegar náð nokkrum vinsældum og
það er allt eins líklegt að Stand Up
og Perfect Timing fylgi í kjölfarið.
Þessi lög eru öll samin af hljóm-
borðsleikaranum 'Bett Tuggle. Þetta
eru popplög plötunnar. Vai hefur
samið sex af tíu lögum og eru þau
flest harðari en lög Tuggs.
Á heildina litið verður Scyscraper
að teljast hin þokkalegasta plata
sem velflestir þungarokksaðdáend-
ur ættu að geta stytt sér stundir við
að hlusta á.
38 HELGARPÓSTURINN
\
Kristján Ragnarsson er formaður LÍÚ og stjórnarmaður í Fiskyeiðasjóði íslands. Hann er jafnframt fulltrúi Fiskveiðasjóðs í bankaráði Útvegsbanka íslands
hf. Hann kom í veg fyrir kaup Sambandsins á Útvegsbanka (slands hf. með því að fá til liðs við sig viðskiptajöfra úr Sjálfstæðisflokki undir samheitinu
„hagsmunaaðiljar í sjávarútvegi". Upphlaup Kristjáns og félaga á síðasta ári hafði afar slæm áhrif á stöðu viðskiptaráðherra, Jóns Sigurðssonar.
Bankarádsmaöur Fiskveiðasjóös
SKIPT ÚT?
Mistókst ap sameina útvegsmenn og geröi bankamálaráöherra erfitt fyrir • Baráttan um
yfirráö í Útvegsbankamálinu hf. liggur m.a. í gegnum Fiskveiöasjóö Islands • Sjálfstœöis-
flokkur rœöur „ríkisbankanum,,!
KRISTJANI
Kristján Ragnarsson, formaöur
LIU, er fulltrúi Fiskveiöasjóös í
bankaráöi Útvegsbanka íslands hf.
Kristján var jafnframt höfuöpaur-
inn íþeim hópi,,30 hagsmunaaöilja
í sjávarútvegi", sem svo voru nefndir
á síöasta ári, sem komu í veg fyrir
aö Samband íslenskra samvinnufé-
laga fengi keypt Útvegsbankann.
Menn spyrja hvort bankaráösstaöa
formanns LÍÚ og sú þekking sem
hann hefur á málefnum bankans
samrýmist þeirri stööu hans aö vera
í forsvari fyrir hugsanlega kaupend-
ur.
Þegar skipað verður í nýtt banka-
ráð Utvegsbanka íslands hf. um það
leyti sem fyrsti ársfundur „einka-
bankans” fer fram, 12. apríl nk., er
víst að viðskiptaráðherra muni
reyna að skipta út úr bankaráðinu
einhverjum þeim sem þar sitja nú.
Er gert ráð fyrir að Jón Sigurðsson
vilji t.d. ráða formanni bankaráðs-
ins, sem fyrrum bankamálaráð-
herra, Matthías Bjarnason, skipaði á
sínum tíma. Alþýðuflokkurinn á
einn fulltrúa í bankaráði Útvegs-
bankans hf., Jón Dýrfjörð frá Siglu-
firði, og velta menn því fyrir sér
hvort viðskiptaráðherra skiptir Jóni
út fyrir formann, eyrnamerktan
Alþýðuflokki, eða hvort hann skip-
ar annan krata í bankaráðið. Þetta
gæti þýtt að Sjálfstæðisflokkur, sem
nú er með hreinan meirihluta í
bankaráði Útvegsbankans hf., missti
meirihluta sinn og að framsóknar-
og alþýðuflokksmenn mynduðu
saman meirihluta í bankaráðinu.
Ekki er ólíklegt að sá hluti stjórn-
ar Fiskveiðasjóðs, sem skipar einn
bankaráðsmann í bankaráð Útvegs-
bankans hf. og er óhress með sam-
setningu bankaráðsins, muni vilja
skipta út sínum fulltrúa, Kristjáni
Ragnarssyni, LÍÚ, m.a. vegna þess
að honum mistókst að safna saman
einkaaðilum í sjávarútvegi og kaupa
bankann. Sérstaklega vegna þess að
Kristján þykir hafa dregið taum
sjálfstæðismanna í viðskiptalífinu,
eins og einn heimildarmaður HP
orðaði það í samtali við blaðið. Þá
þykir ekki ólíklegt að viðskiptaráð-
herra hafi áhuga á að losna við
Kristján úr bankaráðinu eða
minnka völd hans þar, einkum fyrir
þær sakir að hafa lagt þyrna í leið
hins „unga ráðherra” með upp-
hlaupinu sem varð þegar svokallað-
ir „sjávarútvegsmenn" stöðvuðu
kaup Sambandsins á Útvegsbank-
anum, með hötun Þorsteins Páls-
sonar um stjórnarslit fengi Sam-
bandið bankann.
Kristján átti, sem fulltrúi Fisk-
veiðasjóðs, að gæta hagsmuna
sjóðsins í bankaráði, en ekki hags-
muna „viðskiptaaðilja í Sjáifstæðis-
flokki”, eins og heimildarmaður HP
í stjórn Fiskveiðasjóðs orðaði það í
samtali við HP.
í bankakerfinu og í röðum útgerð-
armanna eru margir sem telja það í
hæsta máta óeðlilegt, að Kristján
Ragnarsson skuli sitja sem fulltrúi
Fiskveiðasjóðs í bankaráði Útvegs-
bankans hf. Telja þeir hinir sömu, að
eðlilegra væri að forstjóri sjóðsins
eða aðstoðarforstjóri, Már Elísson
eða Svavar Ármannsson, tækju sæti
Kristjáns í sjóðnum þar sem þeir séu
ábyrgir fyrir sjóðnum. Sjóðsstjórn
var á sínum tíma ekki á sama máli.
Bent er á í þessu sambandi, að
hagsmunir LIÚ séu hreint ekki þeir
sömu og hagsmunir Fiskveiðasjóðs
og að hagsmunir LÍÚ geti stangast á
við almenna hagsmuni bankans.
í stjórn Fiskveiðasjóðs sitja nú
Björgvin Vilmundarson, Lands-
banka íslands, Guðmundur Hauks-
son, Útvegsbanka íslands, Geir Hall-
grímsson, Seðlabanka íslands, Árni
Benediktsson, Friðrik Pál.sson; SH,
Kristján Ragnarsson, LÍÚ, og Oskar
Vigfússon, Sjómannasambandi ís-
lands.
Af stjórnarmönnum sést, að Sjálf-
stæðisflokkur á a.m.k. þrjá fulltrúa,
e.t.v. fjóra, og því líklegast að
sjálfstæðismenn ráði bankaráðs-
manni Fiskveiðasjóðs. Hins vegar
hefur heyrst að í ráðherraliði Fram-
sóknarflokksins sé áhugi á því að
gera breytingu hér og víst að flokk-
urinn leggur áherslu á að koma sín-
um manni að, t.d. Árna Benedikts-
syni, m.a. vegna hagsmuna og
áhuga Sambands ísl. samvinnufé-
laga á hlutabréfakaupum í Útvegs-
bankanum hf.