Fréttablaðið - 09.11.2008, Blaðsíða 4
4 9. nóvember 2008 SUNNUDAGUR
Sýningin er opin
alla daga frá 10–17
Aðalstræti 16
101 Reykjavík
www.reykjavik871.is
Lífið á
landnámsöld
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Osló
París
Róm
Stokkhólmur
21°
12°
11°
12°
9°
13°
12°
8°
10°
10°
25°
15°
14°
25°
6°
13°
19°
8°
Á MORGUN
10-18 m/s með V- og NV-
ströndinni annars 5-10 m/s
ÞRIÐJUDAGUR
8-13 m/s
8
6
14
8
8
8
10
14
610
10
6
6
5
5 6
6
6
7
8
1
6 5
4
3
2 -2 -2
-1
0 0
JÆJA ÞÁ ER HANN
LAGSTUR Í NORÐRIÐ
Vonandi átta fl estir
sig á að þegar hann
leggst í norðanáttir
að vetri til þýðir það
oftast kólnandi veður.
Það á vissulega einnig
við nú. Það mun hins
vegar gerast hægt.
Síðdegis á morgun
byrjar að frysta norð-
anlands og á þriðju-
dag verða bláar tölur
á boðstólum. Með
Norðurlandinu verður
því komin snjókoma
annað kvöld.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
HAÍTÍ, AP Að minnsta kosti 75 manns
hafa fundist látnir eftir að skóli
hrundi til grunna í Petionville á
Haítí á föstudaginn. Talið er að
hátt í fimm hundruð manns hafi
verið í hinum þriggja hæða La Pro-
messe-skóla þegar hann hrundi.
Rene Preval, forseti Haítí, segir
að skólinn hafi verið illa byggður
og vantað hefði stálbita til að
styrkja hann betur. Það sama sé
hægt að segja um aðrar byggingar
í landinu. „Það eru ekki bara skól-
arnir, heimili fólks eru svona og
kirkjurnar líka,“ sagði Preval er
hann heimsótti slysstaðinn. Bætti
hann við að forverar núverandi
bæjarstjóra í Petionville hafi í
gegnum árin reynt að fækka nem-
endum í skólanum af öryggis-
ástæðum en nýi bæjarstjórinn hélt
málinu ekki til streitu.
„Við verðum að fylgja þeirri
stefnu að þegar einn ráðamaður
yfirgefur embætti sitt verður sá
næsti að taka við verkefnum hans,“
sagði Preval. „Næst þegar bæjar-
stjórinn og yfirvöld tala mun fólk-
ið hlusta.“
Erlendir hjálparstarfsmenn
hafa streymt á svæðið að undan-
förnu, enda gríðarlegt starf fyrir
höndum.
Íbúar Haítí hafa gengið í gegn-
um fleiri erfiðleika síðustu miss-
eri. Fyrst urðu þar uppþot vegna
hækkandi matarverðs og eftir það
gekk hitabeltisstormur yfir landið
sem varð næstum átta hundruð
manns að bana. - fb
Um 75 manns hafa fundist látnir eftir að skóli hrundi til grunna á Haítí:
Óttast að hundruð hafi farist
HAÍTÍ 75 manns hafa fundist látnir
eftir að skóli hrundi til grunna á Haítí á
föstudag.
MÓTMÆLI Langfjölmennustu mótmæli vegna
efnahagsástandsins, sem farið hafa fram á
Austurvelli, voru í gær en þau hafa verið hald-
in á hverjum laugardegi undanfarnar vikur.
Mótmælin byrjuðu rólega en smám saman
færðist hiti í leikinn. Lögreglan átti á köflum í
mesta basli með að hafa hemil á mótmælend-
um sem hrópuðu ókvæðisorð að ríkisstjórn-
inni.
Athygli vakti þegar ungur maður klifraði
upp á þak Alþingis og flaggaði þar fána
verslunarinnar Bónuss. Náði hann að flýja
undan lögreglunni en annar maður um tvítugt
sem var viðriðinn málið var aftur á móti
handsamaður og fluttur á lögreglustöðina.
Enginn annar var handtekinn í mótmælunum.
- fb
Á fjórða þúsund mótmælti
Á fjórða þúsund manns tók þátt í mótmælum gegn ríkisstjórninni á Austurvelli í gær. Kastað var eggjum
og tómötum í Alþingishúsið, auk þess sem fáni verslunarinnar Bónuss blakti þar við hún.
EGGJUM KASTAÐ Eggjum var kastað í hundraðatali á
Alþingishúsið í fjöldamótmælunum án þess að lögregl-
an fengi rönd við reist. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
BÓNUSFÁNINN BLAKTI Ungum manni tókst að flagga
fána verslunarinnar Bónuss á Alþingishúsinu.
MÖRG ÞÚSUND Á fjórða þúsund manns mætti með
mótmælaspjöld til að lýsa yfir andstöðu sinni við
stjórnvöld í landinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SLAPP UNDAN LÖGREGLU Náunginn sem flaggaði fána
Bónuss á þaki Alþingishússins komst undan lögregl-
unni á hlaupum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
STÖÐVUM SPILLINGUNA Með mótmælaspjald og tvö
egg að vopni mótmælti þessi ungi maður spillingu í
þjóðfélaginu. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
UPP Á ÞAK Mótmælendur notuðu stiga til að komast
upp á þak Alþingsishússins og að fánastönginni. Lög-
reglan reyndi að stöðva þá eftir fremsta megni.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
LÖGREGLUMÁL Lögreglan hvetur
fólk til að láta vita um grunsam-
legar mannaferðir, ekki síst í
íbúðahverfum.
Innbrot á heimili eiga sér oft
stað að degi til og þá geta
upplýsingar, til dæmis frá
nágrönnum, ráðið miklu. Það
sem fólki kann að finnast
lítilfjörlegt getur einmitt orðið
til þess að upplýsa mál. Hér er
meðal annars átt við lýsingu á
mönnum og bifreiðum, svo og
bílnúmerum. Gott er að skrifa
slíkt hjá sér ef fólk tekur eftir
einhverju óvenjulegu í sínu
nánasta umhverfi.
- jss
Lögregla hvetur til árvekni:
Grunsamlegar
mannaferðir
DÓMSMÁL Upptökustjórinn Phil
Spector elti hóp ungra manna
niður götu á Manhattan í New
York með hlaðna byssu, eftir að
mennirnir tóku Spector í misgrip-
um fyrir breska leikarann Dudley
Moore snemma á tíunda áratugn-
um. Þetta kom fram við yfir-
heyrslur í réttarhöldum yfir
Spector í fyrradag, en hann er
sakaður um morðið á leikkonunni
Lönu Clarkson árið 2003.
Réttarhöld yfir Spector vegna
málsins höfðu áður verið dæmd
ómerk, en hófust að nýju í lok
október. Ef hann verður fundinn
sekur um morð af annarri gráðu á
Spector von á minnst átján ára
fangelsisvist, segir í Los Angeles
Times. - kg
Réttarhöld yfir upptökustjóra:
Phil vildi ekki
líkjast Dudley
DUDLEY MOORE Hinn smávaxni breski
leikari, sem sló í gegn sem Arthur í
samnefndri mynd, lést árið 2002.
ORKUMÁL Talið er að kaldasta
borhola Íslands sé í Eysteinsdal á
Snæfellsnesi. Hitastig hennar
mældist aðeins 2,1 stig á tvö
hundruð metra dýpi. Það er líklega
Íslandsmet segir á vef Snæfells-
bæjar sem lét í haust bora nokkrar
holur til að kanna möguleika á
jarðhita. Aldrei áður hafi mælst
eins köld hola á 200 metra dýpi
eins og í Eysteinsdal. - gar
Öfugsnúin jarðhitaleit:
Kaldavatnsmet
í Eysteinsdal
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
GENGIÐ 07.11.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
223,2843
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
129,38 130,00
204,15 205,15
165,54 166,46
22,231 22,361
18,96 19,072
16,485 16,581
1,3279 1,3357
192,44 193,58
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR