Morgunblaðið - 29.04.1960, Page 24
Íþrótfasíðan er á bls. 22. fwm HMiíMaMfo Kvikmyndaþáttur — Sjá bls. 15. — i
96. tbl. — Föstudagur 29 apríl 1960
Á fjarlægum togaramiðum:
Fiskirarmsóknirnar verða að
komast á annað stig
—* segir dr. Jakob Magnússon fiskifr,
f GÆR átti Mbl. sem snöggvast
tal af dr. Jakob Magnússyni, fiski
fræðingi, en hans sérgrein er
karfarannsóknir. Barst í tal hvort
hann væri á förum í nokkurn
leiðangur, og svaraði hann því
til, að svo væri ekki. — Þess yrði
þó væntanlega ekki langt að bíða
að tekin yrði ákvörðun um það.
Dr. Jakob sagði að samkvæmt
þeim fjárveitingum til fiskileitar
sem nú eru fyrirliggjandi, þá
myndi það fé sennilega aðeins
nægja til tveggja leiðangra.
— Og hvar þykir þér sennilegt
Ei afli hans
verðmæfastor ?
SANDGERÐI, 28. apríl. -
Einn Sandgerðisbáta, Jón
Gunnlaugsson, hefur verið
á Iínu alla vertíðina og mun
hann jafnframt vera eini
báturinn úr verstöðvum við
suðvestanvert landið, sem
verið hefur á línu. Skip-
stjórinn á þessum báti er
Kristinn Magnússon. — Af
afla bátsins mun nær und-
antekningarlaust hver ein-
asti uggi hafa farið til
frystingar. Þó báturinn sé
ekki aflahæstur, þá eru
þeir margir sem telja að
aflaverðmæti bátsins sé
fyllilega eins mikið og hjá
þeim sem eru aflahæstir,
ef ekki meiri. Nú er Jón
Gunnlaugsson kominn með
yfir 700 lesta afla. Hann
kom í fyrradag með 11,6
lestir, en þá var Víðir II
með hæstan afla, 13,9 lest-
ir af netafiski.
Sjálfvirk símslöð
á Akranesj
Á ALÞINGI er fram komin þings
ályktunartillaga þess efnis, að
ríkisstjórnin hlutist til um, að
Landssími íslands komi upp sjálf
virkri símstöð á Akranesi á
næsta ári. Tillagan er flutt af
Daníel Ágústínussyni. í stuttri
greinargerð getur hann þess m.a.
að nýtt póst -og símahús verði
væntanlega tekið í notkun á
Akranesi í sumar og geti atbeini
ríkisstjórnarinnar greitt fyrir því
að sjálfvirk símstöð, sem þar er
fyrirhuguð, verði sett upp í hús-
inu.
Skólaslita-
fagnaður
SKÓLASLIT Verzlunarskóla Is-
lands verða næstkomandi laugar
dag 30. apríl kl. 11,00 árdegis í
Austurbæjarbíói og lýkur þar
með 55. kennsluári skólans.
Venja hefur verið mörg undan-
farin ár að Nemendasamband
Verzlunarskólans haldi hóf á
skólaslitadaginn, þar sem gaml-
ir og ungir nemendur minnast
skólans og hafa þá afmælisár-
gangar fært skólanum gjafir og
árnað honum heilla.
Að þessu sinni verður hófið
haldið í Sjálfstæðishúsinu næst-
komandi laugardag og hefst það
með borðhaldi kl. 18,30.
að leitað verði?
Það er ekki einlægt hægt að
finna ný fiskimið. Auk þess er
takmarkað hve langt íslenzkir
togarar geta sótt til ísfiskveiða,
því svo takmarkaður er úthalds-
tími þeirra sem kunnugt er.
— Nú er fullleitað við Græn-
land?
Telja verður að svo sé, þótt
stöku blettir kunni ennþá að
vera ókannaðir; en þar er þó ekki
talið að um mikla móguleika sé
að ræða umfram það sem nú þeg-
ar er þekkt. Að vísu hefur lítið
verið reynt við veiðar syðst und-
an austurströnd Grænlands, þótt
þar hafi karfa orðið vart að ráði
í leitarleiðöngrum. En þar er að-
staða til veiða mjög erfið vegna
þess hve botninn er slæmur.
Ég myndi frekar segja að fiskí
rannsóknir okkar á fjarlægum
miðum verði nú að komast á ann
að stig. Við verðum að afla okk-
ur meiri þekkingar á fiskigöng-
unum á þessum veiðisvæðum.
Reyna að fá sem öruggasta vitn-
eskju um það, á hvaða tíma árs
fiskigöngur eru á hinum ýmsu
fjarlægu veiðisvæðum hvort held
ur er vestur við Grænland eða
vestur á Nýfundnalandsmiðum,'
m.ö.o. fylgjast með hvar og hve-
nær fisk er að finna á kunnum
stöðum.
Þá verður líka, sagði dr. Jakob,
að reyna nýjar veiðiaðferðir.
Væri hugsandi að reyna að ná
karfanum í flotvörpu, t.d. á veiði
svæðinu syðzt útaf austurströnd
Grænlands, sem ég minntist á
áðan ,svo og við Nýfundnaland.
Þar hefir oft lóðað töluvert á
karfa uppi í sjó.
En svo ég víki aftur að spurn-
Skýfall í liádeginu
UM hádegisbilið í gær gerði
stórrigningu, slíka að hún var
einna líkust skýfalli á heitum
sumardegi. Skýfallið var að
mestu liðið hjá að 30—40 mín.
liðnum, en í kjölfar þess sigldi
dálítil rigning fram undir nón-
bil.
Veðurstofan upplýsti í gær-
kvöldi að hér í Reykjavík hafi
mælzt 14 mm rigning í gær, og
hefði það mestmegnis verið há-
degisdemban. Ef um jafnfallinn
snjó hefði verið að ræða í gær,
þá hefði snjódýptin verið nær
30 cm — Af þessu má marka hve t
úrkoman var gífurleg. — Hvergi
annars staðar á landinu rigndi
svona gífurlega.
ingunni um fiskileit á fjarlægum
miðum, þá vitum við að sökum
fjarlægðar á Nýfundnalandsmið,
þá er það svæði sem togararnir
geta sótt á til ísfiskveiða tak-
markað.
Og af því við erum að ræða
þessi mál, vil ég nota tækifærið
og vekja athygli ráðamanna á
því, að aðkallandi er fyrir oss
íslendinga að eignast fullkomið
rannsóknarskip til fiskileitar og
rannsóknarstarfa, því um ófyrir-
sjáanlegan tíma munum við eiga
alla afkomu okkar undir fiski-
veiðum. Þjóðir sem eiga ekki
nærri því eins mikilla hagsmuna
að gæta á þessu sviði, láta þessi
mál sig miklu meira skipta en við
íslendingar. Við svo búið má
skiljanlega ekki standa sagði dr.
Jakob Magnússon að lokum.
I Keppir
I hér
■ LINDA Petersen er að
■ verða ein bezta bringu-
jJ sundskona heims. Hún kem
jj ur hingað í naestu viku og
j§ keppir á sundmóti ÍR ásamt
2 öðrum úr hópi bezta
sundfólks Dana.
Linda hefur stórlega bætt
tíma sína að undanförnu og
i í gær bárust þær fréttir að
hún hefði náð 1:19.8 í 100 m
bringusundi og 2:52.9 í 200
m bringusundi.
FERÐAMANNASTRAUMUR
sumarsins til og frá íslandi er
hafinn. Millilandaflugvélar Flug-
félags íslands hafa verið nær
undantekningarlaust fullsetnar
að undanförnu og Birgir Þór-
liallsson, framkvæmdastjóri ut-
anlandsflugsins, sagði í gær, að
aldrei hefði verið pantað jafnmik
ið af farmiðum fyrirfram og nú,
mikill fjöldi ferða í sumar væri
nú fullskipaðar.
Sagði Birgir ennfremur, að
Hrafnhildur Guðmunds-
dóttir á að mæta henni.
Hrafnhildur er í hraðri
framför og síðustu tímar
hennar eru 1:23.6 og
2:59.6 á áðurnefndum vega-
lengdum.
greinilega væri að vakna
mikill áhugi erlendis fyrir
íslandi, því stór hluti vænt-
anlegra farþega væru útlending-
ar. Nú strandar allt sem fyrri
daginn á hótelskortinum. Mikill
fjöldi útlendinga, sem ætlað hefði
til Islands í sumar, hefði orðið
að hætta við það vegna þess að
hótelin eru þegar setin, sagði
Birgir.
Hjá Loftleiðum munu flutning-
ar einnig hafa vaxið mikið að
undanförnu eins og alltaf á vor-
in, frá Bandaríkjunum austur
yfir hafið til meginlands Evrópu.
NÚ MUNU 55 menn vera skráðir
til sjóstangaveiðikeppninnar, sem
fram fer í Vestmannaeyjum í lok
maí-mánaðar. Njáll Símonarson,
fulltrúi Flugfélagsins, sagðist
hafa það fyrir satt, að yfir 100
útlendingar hefðu sótt þetta veiði
mót, ef aðbúnaður hefði verið í
Vestmannaeyjum til að veita
þessum fjölda móttöku.
Kvaðst Njáll þess fullviss, að
Stór-
þjófnaður
upplýsist
ENN hafa innbrotsþjófarnir þrír
viðurkennt mikinn peningaþjófn
að, sem þeir frömdu í byrjun
janúar síðas'tliðnum. Hér er um
að ræða innbrot og þjófnað í
Áhaldahúsi Reykjavíkurbæjar.
Aðfaranótt 9. janúar brutust þeir
þar inn og fundu lykilinn að pen
ingaskáp í skúffu er þeir gerðu
leit í skrifstofunni. í peninga-
skápnum voru 15000 krónur í
reiðu fé og stálu þeir því. f skrif-
borðsskúffu einni fundu þeir svo
til viðbótar 5000 krónur í pen-
ingum. Mun þessi peningajýjófn-
aður þeirra vera einn mesti sem
menn þessir frömdu á þeim sex
mánuðum sem þeir stunduðu
kerfisbundið innbrot og rán hér
í bænum.
á næstu árum yrðu slík mót hér-
lendis mjög fjölsótt, einungis af
hægt yrði að veita ferðamönnum
viðtökur. Aðalvandamálið væri
sem fyrr skortur á hótelrými .
Til keppninnar í vor eru skráð-
ir 35 útlendingar, 13 Bretar, 10
Frakkar og 12 Bandaríkjamenn.
Af íslendingum verða 12 frá
Reykjavík, 4 frá Akureyri og 4
frá Vestmannaeyjum. Munu um
10 bátar verða leigðir í Eyjuin
til keppninnar, sem á að standa
í fjóra daga.
( i
Hætt við dansleik
í þjóðleikhúsinu
Á FUNDI í Þjóðleikhúsráði í gær bar Gylfi Þ. Gíslason,
menntamálaráðherra, fram þau tilmæli frá ríkisstjórninni ■
að Þjóðleikhúsið hætti við fyrirhugaðan dansleik á sviði m
sínu hinn 17. júní nk. En áformað hafði verið að byggja j§
trégólf yfir nokkurn hluta salar leikhússins og hafa þar ■
veitingar. m
Mjög mikil gagnrýni hefur komið fram á þessari ráða- ■
gerð. — 1
Þjóðleikhúsráð mun hafa samþykkt það einróma að ■
verða við tilmælum ríkisstjórnarinnar um að hætta við m
fyrirhugaðan dansleik. »
* 00i0-0:0 0:0:0::0::0, # l
M argir hœtta við
Sslandsferð
Yfir 100 vilja keppa
í Eyjum