Morgunblaðið - 13.05.1967, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 13.05.1967, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. MAÍ 1967. 11 SUNIMUFERÐIR til solarlanda Vinsœlar utanlandsferðir með íslenzkum fararstjárum Margra ára reynsla og ótvíræffar vinsældir tryggja farþegum okkar snurðulaust ferða- lag undir Ieiðsögn reyndra fararstjóra, sem mörg ár í röð hafa farið sömu ferðirnar, viðurkenndar og vinsæiar af þeim mörgu, sem reyr ,f afa. Á síðasta ári komu yfir 1500 ánægðir farþegar heim úr SUNNU-ferðum. Það sem af er þessu ári hafa yfir 500 nýir farþegar tekið þátt í hópferðum okkar til útlanda. Við auglýsum sjaldan, því ánægðir viðskipt avinir komnir heim úr vel heppnuðum og skemmtilegum SUNNU-ferðum eru okkar bezta auglýsing. Nú þegar er upppantað í margar ferðir og fá sæti laus í flestum hi nna^ ^ ^ ^ ^ ^ ^ r _r London — Amsterdam — Kaupmannahöfn Brottfarardagar: 2. júli — 16. júlí — 30. júli — 13. ágúst — 27. ágúst — 3. sept. — 17. sept. 12 dagar — Verð kr. 11.800.— Þessar stuttu og ódýru ferðir gefa fólki tækifæri til að kynnast þremur vinsælum stórborg- um Evrópu, sem þó eru allar mjög ólíkar. M illjónaborgin London, tilkomumikil og sögu- fræg höfuðborg heimsveldis, með sínar fræ gu skemmtanir og tízkuhús. Amsterdam, heill- andi og fögur með fljót sín og skurði, blómum skrýdd og létt í skapi. Og svo „Borgin við sundið“, Kaupmannahöfn, þar sem íslendingar una sér betur en víðast á erlendri grund. Borg í sumarbúningi með Tívolí og ótal aðra skemmtistaði. Þar er hægt að framlengja dvöl í ferðalok. Þessi stutta og ódýrá ferð he fir átt vaxandi vinsældum að fagna með hverju ári. I fyrra voru farnar fimm slíkar ferðir og komust færri en vildu. Fararstjórar: Jón Helgason, Jón Sigurbjörnss on og Gunnar Eyjólfsson. Jónsmessuferðin til Norðurlanda og Skotlands Brottför 20. júlí — 16 dagar kr. 14.800.. Þessi vinsæla ferð hefir verið farin árlega við miklar vinsældir. Flogið til Bergen. Ekið og siglt um hinar fögru fjalla- og fjarðabyggðir Vestur-Noregs, heimabyggðir íslenzku land- námsmannanna. Dvalið í Osió, Kaupmannahöf n, og að lokum tvo daga í Glasgow, þar sem fólk hefir frjálsan tíma og fer í stutta ferð um vatnahéruð skozku hálandanna. Æskulýðsferðir séra Ólafs Skúlasonar Fyrir nokkrum áru stofnaði æskulýðsfulltrúi Þjóðkirkjunnar til þeirrar nýbreytni að efna til ódýrra æskulýðsferða til útlanda, eins og iengi hefir tíðkazt með nágrannaþjóðunum. Fyrir tveimur árum fór séra Ólafur Skúlason fyrstu æskulýðsferðina á vegum SUNNU, í samvinnu við æskulýðsnefnd Þjóðkirkjunnar, og vegna þess hve þessar ferðir hafa orðið vin- sælar jafnt af hinu unga fólki og aðstandendu m þess höfum við nú skipulagt, þrjár slíkar ódýrar æskulýðsferðir í sumar. Danmörk — Skotland 29. júní — 20. júlí. Flogið til Danmerkur. Farið þaðan með járn braut og skini til Englands. Ekið til Skotiands og dvalið á æskulýðsheimili skozku þjóð'kirkj unnar. Dvalið nokkra daga í Kaupmannahöfn. Fararstjóri: Séra Björn Jónsson, Keflavik. Danmörk — Noregur — Svíþjóð, 4.—18. júlí. Flogið til Danmerkur. Ekið þaðan til Noregs. Dvaiið á Æskuiýðsheimiii við Oslófjörð. Farið um vatnabyggðir Svíþjóðar og dvalið nokkra daga í Kaupmannahöfn. Flogið heim.. Fararstjóri: Séra Sigurður Haukur Guðjónss on. Danmörk — Þýzkaland — Rínarlönd — Holla nd, 18. júlí—1. ágúst. Flogið til Kaupmannahafnar. Ekið um Fjón og Jótland til Þýzkalands. Dvaiið í Rínarlöndum. Komið til Hollands og dvalið í Kaupmannahöfn síðustu daga ferðarinnar. Flogið heian. Fararstjóri: Séra ólafur Skúlason. París — Rínarlönd — Sviss Brottför 18. ágúst. — 17 daga ferð. — Verð kr. 17.650.00. Þessi vinsæla ferð hefir verið farin svo til óbreytt í sjö ár, og jafnan við miklar vinsældir, enda fólk komið heim með óbrotgjarnar endu rminningar. Fólki gefst hér tækifæri til að kjmnast nokkrum fegurstu stöðum Evrópu, í rólegri ferð. Flogið er til Parísar og dvalið þar í borg fegurðar og gleði sólríka sumardaga. Frá París er flogið til Sviss, skroppið í skemmtiferð suður yfir fjallaskörðin til Ítalíu. Frá Sviss er farið fljúgandi til Rínarlanda, og dvalið fjóra daga við Rín í Rúdesheim, eih um frægasta skemmtanabæ við sögufræga Rín. Þar er „Vínhátíðin", þcir sem drottningin er krýnd. Farið er I ökuferðir um Rínarbyggðir og siglt á fljótinu með skemmtilegum farþega skipum. — Fararstjóri: Jón Ilelgason. Edinborgarhátíðin Brottför 26. ágúst — 7 daga ferð. Verð kr. 7.210,00. Þessi vinsæla ferð hefir verið farin á hverju ári í sex ár og jafnan fuilskipuð. Fara all- margir árlega, enda er Edinborgarhátíðin m ikilfenglegasta listahátíð álfuimar, auk þess sem Edinborg er mjög fögur borg og ánægjul egt að dvelja þar sólheita sumardaga. Farið er í skemmtiferðir upp í hálendi Skotlands og hin fögru vatnahéruð, en jafnan komið heim á hótel í Edinborg að kvöldi. Hægt er að framlengja dvölina og skreppa til London. Fararstjóri: Gunnar Eyjólfsson, leikari. Italía — septembersól Brottför 8. september. — 21 dagur. — Verð k r. 21.300,00. Þessi luxusferð er mun ódýrari en aðrar hliðs tæðar ferðir, vegna hagkvæmra viðskiptasam- banda SUNNU á Ítalíu. — Flogið til Milano og ekið þaðan um fegurstu byggðir ítaliu, með 3—4 daga viðdvöl í þessum borgum: Feneyjum, hinni „Fljótandi borg“ ævintýra, söngs og sögu. Umferðin líður fljótandi um skurðina frægu, milli skrauthalla og hótela. Florenz, hin fagra höfuðborg listanna á miðöldum Ítalíu. Róm er u helgaðir fimm dagar, því þar er margt að sjá. Frá Róm liggur leiðin suður um Napoli, Pompei til Sorrento hinnar undurfögru borgar við Capriflóann. Skroppið er út til Capri. Eftir ök uferðir um fegurstu byggðir Ítalíu kemur að því ævintýri ferðarinnar að sigla með einu gl æsilegasta hafskipi heims, risaskipinu Michel- angelo (63 þús. smál að stærð) og ganga á land í Cannes á frönsku Riverian og aka síðan til Nizza, þar sem dvalið er síðustu daga ferða rinnar. Frá Nizza er flogið heim með viðkomu í London, þar sem hægt er að framlengja ferðina, ef óskað er. Fararstjóri: Thor Vilhjálmsson, rithöfundur. Ítalía og Spánn Brottför 23. september. — 21 dagur. — Verð k r. 24.860,00. Þessi óvenjulega og glæsilega ferð var farin í fyrsta sinn fyrir 2 árum og aftur í fyrra, fullskipuð og komust færri en vildu. Hefir fól ki ekki áður gefizt kostur á að kynnast bæði Ítalíu og Spáni í einni og sömu ferðinni. Flog ið er til Feneyja og dvalið þar. Flogið til Rómar og dvalið þar í nokkra daga, til Napoli og all a Ieið til Sorrento. Frá Napoli er síðan siglt með glæsilegu hafskipi til Spánar. Þaðan er ekið til Torremolinos, baðstrandarbæjarins fræga á Sólströnd Spánar. Frá Sólströndinni er flogið til Madrid og að dvöl Iokinni þar er flogið til London og höfð þar tveggja daga viðdvöl. — Fararstjóri: Jón Helgason. Ævintýraferðin til Austurlanda Brottför 7. október. — 21 dagur. — Verð kr. 23.700,00. Þeir mörgu, sem tekið hafa þátt I þessum vins ælu ferðum SUNNU á ævintýraslóðir Austur- landa, eiga fæstir nógu sterk orð til að lýsa þeim undrum og furðum, sem fyrir augun ber. Flogið er til London og þaðan til Aþenu, þar sem dvalið er í tvo daga. Flogið til Beirut. Skoðaðir leyndardómar þessarar frægu borgar vegamóta í Austurlöndum nær. Heimsóttir persneskir teppasalar í fríhöfninni. Frá Beirut er flogið til Kairo og dvalið á góðu hóteli á bökkum Nílar. Frá Kairo er flogið til Jerusale m, dvalið í fimm daga og skoðaðir allir helztu sögustaðir Biblíunnar. Frá Jerusalem er flogið til London og hægt að framlengja dvöl, ef óskað er. — Fararstjóri: Guðni Þórðarson. ' Heimssýningin í Montreal og New York Brottfarardagar: 11. maí — 27. júlí — 3. og 14. sept. 14 dagar kr. 12.800. Heimssýningarárið er kjörið til að heimsækj a Ameríku. Við fljúgum í þotum Pan American til New York og þaðan til Montreal þar se m dvalið er eina viku, heimssýningin skoðuð og litið á náttúruundur Kanada. Síðan dvalið aðra viku í New York, þar sem fólki gefst kostur á margs konar skemmtun og ferð til W ashington. I ferðinni 27. júlí gefst kostur á að heimsækja íslendingabyggðir í Manitoba, Winnipeg og vera á hátíðahöldum Islendinga- dagsins að Gimli. — Fararstjórar: Jón Helgas on og Guðni Þórðarson. (Uppselt er i ferðina 11, mai). ________________________________________________’ w..Ns-<wx,.W{,..v Mallorka — London Brottfarardagar: 25. maí — 8. júní — 22. júní — 6. júlí — — 20. júlí — 3. ágúst — 17. ágúst — 31. ágúst 14. sept. — 28. sept. — Verð frá kr. 9.600. Þessar ótrúlega ódýru ferðir til hinna sólríku Spánarstranda og London getum við haft svona ódýrar vegna þess að vin- sældir þeirra leyfa að teknar séu heilar flugvélar á leigu, sem flytja farþegana á milli áfangastaða og hótelin gefa SUNNU beztu fáanlegu kjör vegna þess að skrifstofan semur um fyrir rúmlega 100 gesti yfir árið, til margra ára. Búið er í tvær vikur á glæsilegum baðstrandarhótelum með einkasundlaugum og baði með hverju herbergi aðeins 7 km. frá miðri höfuðborginni Palma. Mallorca er vinsælasti ferða- mannastaðurinn í Evrópu í dag, enda fær fólk þar allt sem hugurinn girnist, sól, náttúrufegurð og fjölbreytt skemmtanalíf, góð hótel og góðan mat. Á heimleiðinni er stanzað dag í London. Innifaiið í verði ferðar eru flugferðir, ferðir milli flugvalla og hótela, gisting og þrjár máltíðir á dag á Mallorca og gisting og morgunverður í London. Þið fljúgið með íslenzkri flugvél beint til Mallorca á 7 tímum og njótið leiðsagnar og aðstoðar ágæts íslenzks fararstjóra og skrifstofu okkar á Mallorca. Þið getið valið um dýrðlega aðbúð á beztu hótelum í þremur verðflokkum, eða dvöl í luxusibúð- um og getið fengið bíl með. Nú þarf enginn lengur að fara til Kaupmannahafnar til að komst ódýrt til Mallorca með „billeg- um“ skrifstofum dönskum og taka alla þá áhættu, sem því fylgir. íslenzkar ferðir hæfa íslendingum bezt, því við gerum okkur ekki ánægða nema með það bezta. Fararstjóri: Njörður P. Njarðvik. Kaupmannahöfn (Ilamborg) — Edinborg 14. september. — 19 dagar. — Verð kr. 6.900.06. Þessi ódýra og vinsæla haustferð var farin I fyrsta sinn í fyrra. Ferðin er svona ódýr vegna þess að SUNNA leigir flugvél til ferðarinnar. Dvalið í hinni glaðværu Kaupmannahöfn, skroppið í tvo daga til Hamborgr og stanzað í sólarhring í Edinborg á heimleiðinni. Þó þessi ferð sé nú auglýst í fyrsta sinn eru margir búnir að panta af þeim, sem voru með í fyrra. Fararstjórar: Geir Aðils og Jón B. Gunnlaugsson. f SUNNUFERÐUM eru eingöngu notuð góð hótel. Flogið lengstu Ieiðimar og ekið eingöngu þar sem landslagsfegurð er mest. Kjörorð okkar er: Aðeins það bezta er nógu gott fyrir okkar farþega. Við gefum sjálfum okkur ekkl einkunn, en spyrjið þá mörgu sem reynt hafa SUNNU-ferðir og velja þær aftur ár eftir ár. Kynnið ykkur verð og gæði annarra ferða — og vandið valið. Biðjið nm ná- kvæma ferðaáætlun og pantið snemma, því yfirleitt komast aldrei aUir sem vilja í SUNNU-ferðir. Það era ferðir, sem fólk getur treyst og siðast en ekki sázt. — SUNNA auglýsir aldrei ferð, sem ekki er farin. Hótel okkar á Mallorca. SUNMA Ferðaskrifstofan Bankastræti 7. — Símar 16400 og 12070.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.