Morgunblaðið - 13.05.1967, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 13.05.1967, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. MAÍ 1967. Draummíla tvo daga í rðð Jim Ryun er í sérflokki meðo/ bandarískra hlaupara Kjörskrá KÆRUFRESTUR vegna kjörskrár er til 21. maí n.k. Rétt til þess að vera á kjörskrá í Reykjavík hafa allir þeir, sem þar voru búsettir 1. des. sl. og verða 21 árs eigi síðar en á kjördegi. 1 Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins, Lækjargötu 6B aðstoðar við kjörskrárkærur. Skrifstofan er opin daglega frá 10—10. Upplýsingar um kjörskrá eru veittar í síma 20671. Kjörskrárkærur sérstaklega á milli 9—5 í síma 24940. Princeton University. — Frá Þorsteini Þorsteinssyni. Nú er vorið komið og frjáls- íþróttakeppni er flutt úr fyrir dyr. Fyrst um sinn eru það skólamót eða mót á milli félaga, sem eru aðalatriðin á dagskrá, en snemma á vorinu er töluvert um boðhlaupsmót, þ.e.a.s. mót, sem er einungis keppt í boð- hlaupum, köstum og stökkum. Jim Ryun virðist ætla að bæta sér upp tapið fyrir Dave Pat- rick í vetur og hefur skilað und- arlega góðum tímum nýlega. Fyrir stuttu hljóp hann 3:54.7 í mílunni og það er ekki langt síðan það hefði gilt sem heims- met. í þessu tilefni sagði þjálf- arinn hans: „Jú, ég myndi segða, að þetta væri all sæmileg míla.“ Svo setti Ryun fyrir tveim vik- um „nokkurskonar“ met með því að hlaupa, í boðhlaupi að vísu, míluna tvívegis undir 4:00 mín- útum á tveim dögum 3:59.1 og 3:55.6. Englendingurdnn John Whetton og Ryun eru einu mennirnir, sem hafa gert það. Lengi var það draumur mílu- hlaupara að ná skemmri tíma en fjórum mín. — og tími þar undir því kallaður „draummíla". . Á elzta boðhlaupsmóti lands- ins, Pennsylvania Relays, var það nýju 11 milljóna króna „Tar- tan“-brautinni að þakka, að 28 mótsmet féllu. „Tartan“ er gerfi- efni, sem mjög líkist gúmmí og hlaupurum tekst að ná frábær- um afrekum á þessum brautum. Helzt voru það 440 yarda hlaup- ararnir, sem vöktu athygli og Rice University hafði fjóra sam- an í boðhlaupssveit, sem skilaði 3:06.9. Svo voru 5 aðrir, sem skiluðu 45 sek. í 440 yards vega- lengd í sínum boðhlaupum. En stjarnan í Pennsylvania var Dave Patrick. Á tveim dögum hljóp hann á 4:04.8 og 4:10.8 míluvega- lengd og 1:50 í 880 yards. Mesta athygli vakti þó 17 ára ungling- ur, Martin Liquori, sem hljóp míluna á 4:04 og degi seinna 1;50 í 880 yards. En það vakti ekki athygli þegar Jim Elliot, þjálfari Patricks á Villanova til- kynnti, að Liquori ætlaði að hefja þar nám næsta haust og það er líklegt, að Liquori haldi Villanova nafninu hótt á lofti, þegar Patrick útskrifast eftir eitt ár. Þorsteinn Þorsteinsson. Ryun tekur á móti keflinu í 4 xl mílu hlaupi. Valur vann Þrótt 5-1 — og skoruðu Valsmenn öll morkin sex VALUR sigraði Þrótt í fjórða leik Reykjavíkurmótsins á fimmtudagskvöld með 5 mörk- lim gegn 1. Sigurinn var auð- unninn en öllu minni en ætla hefði mátt eftir tækifærum og nær látlausri sókn VaLsmana að markí Þróttar. Oft fer það svo hjá ísl. liðum (og reyndar öðrum einnig) að þeim veitist erfitt að skora mörb þegar um sífellda sóknarpressu er að ræðia. Þannig var það hjá KR gegn Þrótti á döigunum og sagan endurtók sig í leik Vals við þá. Þróttararnir reyndu að verjast og drógu lið sitt aftur á varnarstöðu. Þrögn varð oft ínikil á vítateignum og við það iréðu Valsmenn ekki. Bezt gekk Iþeim er þeir hörfuðu og drógu vörn Þróttar fram og gerðu síð- an skyndiupphlaup. í fyrri hálfleik skoraði Ingvar Elíasson tvö mörk fyrir Val og .var það síðara þó greinilega skorað úr rangstöðu þó dómar- inn hefði ekkert við það að at- ihuga. í síðari hálfleik skoraði Her- mann Gunnarsson á 10. mín og skömmu síðar Reynir Jónsson 'en snöggt skot hans fór af varn armanni í markið. Um miðjan hálfleik varð Gunn laugur að sSekja knöttinn í mark Vals en markið var sjálfsmark, ’skorað af Halldóri Einarssyni miðverði. Ætlaði Halldór að 'bjarga snöggu gegnumbroti Kjartans miðvarðar með því að senda Gunnlaugi markverði knöttinn eða spyrna í horn, en svo vildi til að knötturinn hafn- aði efst í horni, óverjandi mark. Á síðustu mínútu leiksins skoraði Hermann Gunnarsson 5. mark Vals með fallegu og ó- verjandi skotL Leikurinn í heild var heldur daufur og aldrei um neina keppni að ræða. Til þess voru yfirburðir Vals allt of miklir. Mefnd til stuðn- ings fyrir stríðs- glæpadómsstól IMBL. hefur borizt fréttatil- kynning frá „30 manna nefnd itil stuðnirugs Alþjóðlega stríðs- glæpadómstólnum", sem sett var fetofn um síðustu helgi. í yfirlýs ingu nefndarinnar segir að hún, telji það „siðferðilega skyldu að fletta ofan af stríðsglæpumi og ákæra þá sem valdir eru aí þeim“. Ennfremur að „nauðsyn- legt sé, að fram fari ítarleg rann sókn á athæfi Bandaríkjastjórn- ar í Vietnam“. Undir yfirlýsingu þessa skrifa 30 menn og konur úr ýmsum starfshópum. Sjónvarpsloftnet Höfum ýmsar stærðir af loftnetum fyrir flestar rásir, kapal, festingar magnara o.fl., mjög hagstætt verð. Heildsölubirgð- ir. Önnumst uppsetningar og viðgerðir á loftnetum, fljót afgreiðsla. Úrvalstegundir sjónvarpstækja. Hagstæðir afborgunarskilmálar. Radioval Linnetsstíg 1. — Sími 52070, Hafnarfirði. HVÍTT Tékkneskt postulín Hlutirnir á þessari mynd eru í gerð sem heitir ANITA og í skreytingu númer C-2399-Platin. í þessari skreytingu er hægt að fá keypta staka hluti, og þannig hægt að safna sér í stell eftir því sem hverjum hentar. Biðjið um ANITA í skreytingu C-2399- Platin. Fæst í búsáhaldaverzlunum. Umboðsmenn: Jón Jóhannesson & Co heildverzlun. — Sími 15821.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.