Morgunblaðið - 05.11.1970, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1970
19
Árni Jónsson amtsbókavörður
í SUMAR var einn af stairfs-
mönn'uim Ríkisútvarpsinis á ferð
um landið. Hafði han-n viðtöl
við noklkra m-enn sem lýstu
hieimalhöguim síniuim fyrir hluist
endum útvarpsins. Meðal ann-
ars fór harnn um Fjöruna á Ak
uireyri í fyl'gd með Áma Jóns-
syni amtsbókaverði. í kynninigu
dagskrár hafði útvarpsmaðurinsn
óvenju stedk lofsyrði um þenn
an þátt, og einsetti ég mér að
láta hanm ekki fram hjá mér
fara. Og ég varð ekki fyrir von
brigðum. í hálfa aðra klukku-
stund hlýddi ég líkt og bergnum
inin á frásagnir Árna Jónsson-
ar. Þar fór saman mikill og
merkilegur fróðleikur um sögu
Akureyrar, vandað orðfæri og
flutninigur; en með hæfilegu
millbili var fróðleikurinm krydd
aður með ógleymanlegum gam
ansögum um horfna íbúa bæj
arins. Voniandi . gætir útvarpið
þess að vairðveita þennan þátt,
því heldur sem leiðsögumaður
okkar er nú efcki lenguæ í töiu
lifemda.
Hann varð bráðkvaddur á
heimili sínu, Gilsbak'kavegi 11,
á fimmtudaigimn var, og er nú
í dag til moldar borinn heinna
í fósturbæ símum. Hann var
fæddur 28. maí 1917 í Litla-
Hvamimi í Hrafmagilshreppi, scvn
ur hjónanna Jóns Guðlaugsson
ar, sem síðar var bæjargjald-
keri og sparisjóðsstjóri á Akur-
eyri og Maríu Árnadóttur. Á
Akureyri óx Árni upp og bjó til
æviloka. Stúdemtspróf tók hann
frá Menin'taskólainuim á Akureyri
1938. Huigðist hanin síðan fara
utan tiil leitolistamáms, en heft
ist vegna styrjaidarinnar. Til
reynslu stuindaði hamin nám í eitt
ár við Háskóla íslands, en hvarf
síðan heim til Akureyrar og var
á næstu_ árum ritari hjá bæjaæ-
stjóra. Áður en leiðir lykjust
upp til útlanda var hann sleginm
af geigvæmllieguim sjúkdómi. Fór
honium þá ein,s og mörgum nám
fúsum mömnuim þegar heilsan
bilar, að þar var gleði hans sem
bækurmar voru. Á sjúkdómisár-
um símum l,as hann kynstrin öll
og gerðist fróður um mairgvísleg
efni. Einikum las hann erliend
sfcáldrit, enida birti hanm síðar
sjálfur tvær frumsamdar skáld
sö'gur.
Árið 1951 hafði Árni náð svo
góðri helilsu að hiainin gerðist
keninari við Gagnfræðaskóla
Akuireyrar. Gekk hann að því
starfi með sömu fórnfýsi. sem
öðru því er honum var til trú
að. Hann var sá kennari sem
börnin leituðu gjarna til þegar
þau þumftu stuðnings við í fé
lagslífí símu; en um jarðnesk
lauin var ekki að ræða fyrir
þaiu uppeldisstörf. Árið 1955
gðkk hanm að eiga eftirlifamdi
koniu sína, Guðrúnju Bjama-
dóttur frá Leifsstöðum í Kaup-
amigssveit. Eignuðust þau tvö
mianinivænileg böm, Maríu og
Bjarna.
Jafniframt kennsluinni tók Ármi
smám samam að sér ýmis störf
fyrir heim'abyggð sína. Mest var
um það veirt að hamn tók sæti í
stjórn Amitsbókaisaifnsins og varð
þar Skjótt lamgmestur áhrifamað
uir. Saifnið bjó við þröng og göm
ul húsakynmi og átti við ýmsa
ecrfiðleika að stríða. En með at-
beina Áma Jónssonar og fleiri
góðra manna var hafizt handa
um nýja bókasafnsbyggimgu sem
tenigd skyldi við hundrað ára
atflmæli Akuireyrarfcaupstaðar.
Jafnframat réðst svo að Árni tók
sjálfur að sér að gerast forstöðu
maöur safnsins. Má með sammi
segja að þar væri réttur rnaður
á réttum stað. Safnibygginigin
var albúin fyrir tveimur árum,
og er sem stendur nýtízfculeg-
asta og fuQilfcomnast'a bókaisafns
hús á landi hér. Hinn nýi yfir
bðkavörður naut sinnar miklu
þefcfcingar og bókaástar, em jafn
flnamit flylgdist h,ann uindrayel
mieð erlenidum nýjungum í
tæfcni og bókasafnsfiræðum. Þó
var ekki minna uim hitt vert,
að hanm vildi láta menin nota
saifnið, gera það að miemminigar-
og uppeldisstöð fyrir bæinm og
héraðið. í því skyni laðaði
hann sfcólanemiendur til að
koma og l'esa í hinum undur-
fagra bókasafl, þar sem sýn gef
ur uim háa glugga austur yfir
Eyjafjörð. Sjálfur sannreyndi
ég, sem gestur í safnámu, bæði
óviðjafnanilega hjálpsemi hans
og frábæra þekkinigu í ísienz'k-
um fræðum.
Fyrir fáum árum kenndi
Árni þeirrar meinsemdar sem
nú hefur valdið dauða hams
löngu fyrir aldur fram. Milli
kasta náði hann þó mokkuæri
starfsoriku, enda skorti ekki
skylduræknina og viljann að
taka til höndum. Þegar ég hitti
hann síð'ast nú fyrir niokkrum
vikum, varð “ekki annað séð en
þair færi alheill maður. Þá lýsti
hann mieð Ihógliátri frásagnar-
snilli síðuistu veikindum sínum,
hvernig hið mikla myrkur hafði
steypzt yfir hanm. Síðam horfði
hanm á mig, brosti glatt og hlý-
lega, og mærti: „Ég held að það
sé gott. að fara svonia." Og nú
er hamn farinn mteð rósömum
huig til amnarra heim-a. En eftir
sbenidur ófyllt skarð, og sökn-
uðurinn er þeirra mestur sem
bezt vissu hv'ílíkur maður hanm
var.
Starfstími Árna Jónssonar
varð ekki langur eftir að hanm
hóf mikilvægasta verk ævi
sinnar. Þó auðnaðist þessum
hieilsuveila og hægláta mammi
að lyfta Grettistafci á fáum ár
um. Hanm hóf Amtsbókasafnið
til nýrrar virðinigar og flutti
það í bjartam kaistala. Nú hvíl
ir sú skylda á herðurn Akur-
eyrarbúa að láta merki hams
ekki niður faflla, en gera safnið
það sem hann vildi láta það
verða: Höfuðsetur menmingar-
og menmtumiar fyrir Akureyri og
afllt Norðu'riand.
Jónas Kristjánsson.
ÞEGAR ég kvaddi Árna Jónsson
fyrir hálfum mánuði, datt mér
sízt í hug, að sá yrði fundur okk-
ar hinn síðasti. Svo fullur var
hann þá af starfsorku og áhuga,
svo hress og skemmtilegur. Hann
hafði nýlega fundið fyrir mig
merkilegar heimildir, eins og
stundum áður, og við vorum
glaðir og hróðugir. En nauðsynj-
um stofnunar sinnar gleymdi
hann ekki, og síðustu orð hans
við mig voru brýning um að
duga safninu við aðkallandi úr-
lausnarefni. Rúmri viku síðar
barst mér fregnin um andlát
hans. Það bar að skyndilega, og
hafði hann þó áður kennt bana-
meins síns sárlega. Þá glímu
háði hann með karlmannlegu
æðruleysi og var aftur tekinn til
starfa.
Árni Jónsson fæddist 28. maí
1917 í Litla-Hvammi í Hrafna-
gilshreppi. Foreldrar hans voru
Jón bóndi þar Guðlaugsson og
kona hans, María Árnadóttir.
Með þeim fluttist Ámi barnung-
ur til Akureyrar, þar sem faðir
hanis varð bæjargjaldkeri og síð-
ar sparisjóðsstjóri. Bjuggu þau
í innbænum á bernskudögum
Árna, og varð hann síðar hverj-
um manni fróðari um sögu stað-
arins. Er mörgum minnisstæður
frábær útvarpsþáttur Árna fyrir
skemmstu, er hann rakti sögu og
lýsti mannlífi innbæjarins af
þeirri mælsku og frásagnarlist,
er honum var ríkulega gefin.
Þetta var honum allt sem opin
bók. Ég gekk með honum um
þessar slóðir einn síðdag í sum-
ar. Sú ánægja og fræðsla, sem
ég hafði af þeirri gönguför, fell-
ur mér seint úr minni.
Árni var ungur bráðgreindur,
fjölhæfur og námfús. Hann var
gagnfræðingur frá Menntaskól-
anum á Akureyri 1934, fór ári
síðar á lýðháskóla í Sigtúnum í
Svíþjóð, en lauk stúdentsprófi
frá M.A. 1938. í menntaskólan-
um var Árni hrókur alls riiann-
fagnaðar og í fremstu röð í öllu
félagsstarfi og listalífi nemenda.
Hann var ræðumaður, þegar
mikið lá við, skólaskáld, í rit-
stjórn Munins og síðast en ekki
sizt leikandi og leikstjóri skóla-
leikja ,,og magnaði samleikend-
ur sína og leikiðkanir þeirra því
æskufjöri og þeim æiskumóðd,
sem veitir sigurinn," eins og Sig-
urður skólameistari orðar það í
skólaskýrslu. Við upphaf Ut-
garðs kom hann einnig eftir-
minnilega.
Heimssttyrjöldin siðari bægði
Árna frá leiklistarnámi erlendis,
en í norrænudeild Háskóla ís-
lands". var hann veturinn eftir
stúdentspróf og lauk 1939 prófi
í forspjallsvisindum. Síðan
hvarf hann heim til Akureyrar
og gerðist þar fyrst bæjarritari
og síðar kennari við Gagnfræð'a-
skólann, unz hann tók við þvi
starfi, sem ég freistast til að
kalla ævistarf hans, þó árin sem
hann gegndi því væru ekki mörg.
Árið 1955 kvæntist Árni Guð-
rúnu Bjarnadóttur frá Leifsstöð-
um í Kaupangssveit, og lifir hún
mann sinn ásamt tveimur börn-
um þeirra, Maríu og Bjarna.
Árið 1962 var Árni Jónsson
ráðinn bókavörður Amtsbóka-
safnsins á Akureyri, enda vel
kunnugur högum þess, og ásann-
aðist fljótt, að þar var vel ráðið.
Hinir margþættu hæfileikar
hans nutu sin þar til fullnustu,
og þeirri stofnun vann hann allt
það, sem hann mátti. Hanm var
vandvirkur og listfengur, svo að
af bar, skrifaði óvenjufagra rit-
hönd og lét aldrei neitt frá sér
fara nema gagnvandað. Hann
var lesinn og bókfróður með
ótrúlegum yfirburðum og minn-
ugur þess, hvar hvaðeina var
að finna. Hann fylgdist vel með
nýjungum í bókasafnsmálum er-
lendis, og hann hélt uppi hlut
Amtsbókasafnsins á Akureyri,
svo að eftirtekt vakti. Það var
honum því einhver hin mesta
sigur- og gleðistund, er hin nýju
og glæsilegu húsakynni safnsins
voru tekin í notkun. En að
þeirri byggingu hafði hann ár-
um saman unnið af því kappi og
lagni, sem honum var léð. Þá
fyrst veittist honum færi á að
gera safnið að þeim menningar-
stað, sem hann langaði til. Hann
vildi fá fólk að safninu og láta
það njóta þar áriægju og afla sér
fróðleiks. Ekki hvað sízt var
honum annt um að taka við
skólanemendum. Er mér ofar-
lega í huga, með hve mikilli vin-
semd hiann hefur tekið nemend-
um menntaskólans, og hefur
þeim orðið mun hægara að vinna
að vandaðri ritgerðasmíð nú síð-
ustu árin vegna aðstöðu þeirrar
og aðstoðar, sem þeim hefur ver-
ið boðin og búin á Amtsbóka-
safninu. Ámi sinnti þeim af mik-
illi ljúfmennsku og sparaði
enga fyrirhöfn að finna fyrir þá
heimildir og kenna þeim vönduð
og alúðleg vinnubrögð.
Allt starf Árna við safnið bar
vitni heiðarleika hans og trú-
mennsku. Mjög gott samstarf var
milli hans, stjórnarnefndar-
manna og starfsmanna, enda
hafði hapn í heiðri hinn foma
boðskap að meiða engan. Starf
hans í þágu Amtsbókasafnsins
er ómetanlegt og verður ekki
fullþakkað. En minningin um
það lifir, og merkin sjást.
Kynni okkar Árna hófust og
héldust við á safninu. Hann var
mér sem öðrum óþreytandi
hjálparmaður og lét alla aðstoð
í té með vinsemd og glaðværð.
Andrúmsloftið á safninu var
gott. Ég fæ ekki þakkað allt það
gott. sem hann gerði mér, en
læt við það nema að biðja hon-
um og ástvinum hans blessunar.
Gísli Jónsson.
í DAG er jarðsunginn á Akur-
eyri einn af áhrifamestu þjón-
um menningarinnar í þeim ágæta
menniingairbæ, Árni Jónsson,
amtsbókavörður. Hann lézt að
kvöldi dags 29. október nýkom-
inn frá vinnu í bókasafni því, er
hann stjómaði, aðeins 53 ára að
aldri. Er hann harmdauði öllum
þeim, sem til hana þekktu og
starfa hans.
Ég nefndi hann þjón menning-
arinnar, og það heiti bar hann
með rentu. Eitt af sterkustu ein-
kennum hans var hinn sívak-
andi áhugi hans á hvers konar
menningarmálum, skáldskap og
öðrum listum, þjóðfræðum,
bókasafnsmálum. Þegar í mennta
skólanum var hann forystumað-
ur í menningarlegu félagsstarfi
svo sem leiklistaa'málum, blaða-
útgáfu, bókmenntaskrifum í
skólablaðinu. Síðan varð hann
ungur stúdent ein aðaldriffjöðr-
in í leiklistarmálum Akureyrar,
ágætur leikari sjálfur o-g leik-
ritahöfundur. Þá meinaði heilsu-
leysi honum störf um hríð. En
jafnskjótt og því fargi létti, var
hann tekinn til við menningar-
málin að nýju, og þegar Akur-
eyringar voru fengnir til að sjá
um útvarpsdagskrá eitt kvöld í
viku, var Ámi Jónsson sjálfkjör-
inn stjórnandi þeirrar starfsemi.
Árin milli 1950 og 1960 mun
Árni Jónsson þó einkum hafa
fengizt við kennslu, en í tóm-
stundum samdi hann skáldsögur,
og komu tvær þeirra út, Einum
unni ég manninum, 1951, og
Lausnin, 1963. Eru þær báðar at-
hyglisverclar og sérstæóar, þó
ekki virðist hafa verið barðar
mjög trumbur fyrir þeim.
Arni Jónsson var aðalhvata-
maður um byggingu nýs bóka-
safnshúss fyrir Amtsbókasafnið
á Akureyri, og var hann þá for-
maður bókasafnsstjórnar, þegar
það mál var ákveðið. Síðan varð
hann stjórnandi Amtsbókasafns-
ins 1962. Þá var það safn næsta
ófullkomið um alla þjónustu við
almenning og hafði ekki tekið
nei-num teljandi breytingum í
marga áratugi. En Árni Jónsson
var ekki fyrr kominn að safninu
en það var gjörbreytt, og er þar
skemmst af að segja, að nú, þeg-
ar hann deyr frá starfi sínu við
safnið að 8 árum liðnum, skilar
hann því sem einhverju bezta
almenningsbókasafni landsins.
Vann hann í því máli afrek, sem
aldrei verður fullþakkað og kost-
aði meira erfiði og áhyggjur en
auðvelt er að gera sér grein fyr-
ir.
Því miður kynntist ég Árna
Jónssyni ekkert að ráði fyrr en
síðustu árin. Þau stuttu kynni
nægðu þó til þess, að ég á örðugt-
með að sætta mig við, að hon-
um skyldi ekki verða lengri líf-
daga auðið — hann átti enn svo
mikið ógert af því, sem hann
ætlaði sér að framkvæma. Við
mig var hann ekki til viðtals um
annað en menningarmál, og þá
einkum bókasafn9mál. Þar var
Árni Jónsson óþrjótandi brunn-
ur hugmynda og brennandi af
áhuga. Þó að Amtsbókasafnið
væri orðið gott undir stjórn hans,
taldi hann þar harla margt
ógert, og efast ég ekki um, að
það hefði hann allt framkvæmt,
ef honum hefði enzt aldur til.
En það voru ekki aðeins bók.a-
safnsmálin, sem áhugi Árna
Jónssonar beindist að síðustu
árin. Hann hafði m.a. í undir-
búningi mikið verk í þágu
menningarsögu Akureyrar og þá
um leið alls landsins. Óttast ég,
að framkvæmd slíkra mála
n-orður þar hafi beðið mikinn
hnekki við fráfall hans. Vonandi
verður þó einhver til þess að
tak-a upp þráði-nn, þar sem Árni
Jónsson varð frá að hverfia.
Árni Jónsson var kvæntur
Guðrúnú Bjarnadóttur, og áttu
þau tvö börn. Votta ég þeim,
sem og öðrum nánum ættingjum
hans o-g samstarfsmönnum
mikl-a samúð.
Eiríkur Hreinn Finnbogason.
KR-ingar
Lyttingamenn
Stofnfundur lyftingadeildar KR verður haldinn fimmtudaginn 15.
nóvember n.k. kl. 8,30 í Félagsheimilinu við Kaplaskjólsveg.
Undirbúningsnefnd.
Carðahreppur
BLADBURDARFOLK
Vantar börn eða tutlorðna til að
bera út Morgunblaðið á Arnarnesi
Upplýsingar í síma 42747
Nýtt - ONDULINE - Nýtt
Báraðar asfalt þakplötur. — Kostir eru augljósir:
Þær tærast ekki af seltu eða sóti.
Þær einangra, leiðni aðeins 0,06.
Þær fást í 3 litum, málning er því óþörf.
Þær eru léttar og auðveldar í notkun.
Þær eru ódýrar og viðhaldskostnaður því hverfandi.
Ennfremur báraðar P.V.C.-plötur (gluggaplast).
Verzlanasambondið hf.
Skipholti 37. — Sími 38560.
ÚTSÖLUSTAÐIR:
Akureyri — Byggingavöruverzlun Tómasar Bjömssonar.
Isafjörður — Timburverzlunin Björk.
Hafnarfjörður — Byggingavöruverzlun Björns Ölafssonar.
Ytri-Njarðvik — Tréiðjan h.f.