Morgunblaðið - 13.05.1972, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. MAÍ 1972
- Barizt í An Loc
Framhald af bls. 1
marga kílómetra af teinum þa-rm
ig að viðgerð yrði erfið og tæki
langan tima.
FÓLK FLUTT FRÁ HANOI
Kanadiskur fuiltrúi Alþjóða-
ef tirlitsnefnd arinn ar í Hanoi,
upplýsti í dag að verið væri að
flytja íbúa borgariwnar á brott í
stórum stíl, og hefðu þeir flut.n-
ingar staðið síðan isnmrásiin var
gerð í Suður-Vietnam. Hann
sagði að starfsmömnum ýmissa
erlemdra stofnana hafi verið sagt
að vera tilbúnir til brottflutn-
ings.
Kanadiski fulltrúinn sagði að
bandariskar flugvélar hefðu gert
þrjár árásir á skotmörk i grennd
við Hanoi síðam 30 marz, en ekk-
— Álverið
Framh. af bls. 32
gær sagði Raignar Halldórsson,
forstjóri íslenzka álfélagsins, að
á aðalfundi fyrirtækisins hefði
verið ákveðið að taka að nýju
í notkum kerin, sem tekin voru
úr sambandi, þegar samdráttur
var hvað mestur á álmarkaðin-
um, en hins vegar hefði enginn
ákvörðun verið tekin um það
hvenær taka skyidi seinni ker-
skálann í notkun. Um ástand og
horfur a’.mennt kvað Ragnar það
hafa komið fram á fundinum, að
álverksmiðjur hefðu yfirieitt
þuift að draga mikið úr fram-
leiðsliugetu á sl. ári, og nú væri
komið á meira jafnvægi milli
framboðs og eftirspurnar. Enn-
fremur kom fram, að á sl. ári
varð 11% söluiaukniing á áli í
Bandaríkjunum meðan hún
minnkaði um 3% á Evrópumark-
aði, en árið áður hefði salan
minnkað um 6% á Bandarikja-
markaði meðan hún óx uim 5%
á Evrópumarkaði.
ert benti til að árásir hefðu verið
gerðar á svæði í miðborginni.
HÓFSAMLEG MÓTMÆLI FRÁ
SOVÉT
Sovézka stjórnin fordæmdi í
gær opinberlega aðgerðir Banda-
ríkjastjómar og krafðist þess að
hætt yrði loftárásum á Norður-
Vietniam og að hafnibanndnu yrði
aflétt. Orðalagið var þó mun mdld
ara en í flestum fyrri yfiriýsiirag-
um stjórnarinnar um stríðið í
Indó-Kina og engir eldhedtir leið-
arar hafa verið skrifaðiir, yfirlýs-
tog stjómarinnar birt athuga-
semdalaust.
í dag hefur svo lítið verið fjall-
að um þetta mál í sovézkum blöð
um, aðeins sagt frá þvi á inn-
síðum og þá í fréttaformi, án
athugasemda. Ekkert blað hefur
miranzt á heimsókn Nixons for-
seta í þessu sambandi, en hann
á að koma til Moskvu 22. þessa
mánaðar.
- Sjóslys
Framhald af bls. 1
ur mjög dregið úr þeim vonum,
þar sem skipið er nánast gló-
andi af hita og talið með ólíkind
um að einhverjir geti verið á lífi
neðan þilja. Slökkvistarf hefur
gengið mjög erfiðlega og í kvöld
loguðu enn eldar á ýmsum stöð
um í skipinu.
Ákveðið hefur verið að sér-
stök rannsóknarnefnd frá Bret-
landi leggi af stað til Uruguay
á morgun, laugardag til að
kanna orsakir árekstursins.
Líberíska skipið, sem skemmd
ist mjög mikið í brunanum
reyndi að sigla til hafnar i Bu
enos Aires, en strandaði í kvöld
við innsiglinguna og hefur lok-
að fyrir alla umferð skipa til og
frá borginni.
Trjdplöntur og runnnr
í garða- og sumarbústaðalönd í miklu úrvali.
Birki 100—125 cm á kr. 125,—
70—100 — 100,—
__ 50—75 — 60,—
— limgerði 35,—
ísl. reynir 125—150 — 150,—
100—125 — 125,—
75—100 — 100,—
100—125 — 150,—
75—100 — 100,—
Álmur 75—100 — 100,—
— limgerði 75,—
Alasköp 100—150 — 100—150,—
75—100 — 75,—
Hlynur 75—100 — 100,—
Gráreynir 100—150 — 150,—
75—100 — 100,—
Silfurreynir 75—100 — 150,—
Viðja 100 — 50,—
— limgerði 25,—
— 35,—
Grávíðir — 35,—
Gulvíðir — 35,—
Brekkuvíðir — 35,—
Sitkagreni 50—100 — 300—1000,—
Bergfura 30—50 — 100— 500,—
Fjallafura 30 — 100— 300,—
— 20 — 100— 200,—
30—100 — 300—1000,—
Alaskavíðir limgerði 35,—
Ribs berjarunni 75,—
Sólber — 75,—
Runnamura runni 60,—
Dvergmispill — 60,—
Sækróna — 75,—
Reyniblaðka — 60,—
Disarunnl — 75,—
Blátopnar oq rauðtoppar — 75,—
Birkikvistur — 75,—
Döggliqnskvistur — 75,—
Heggur — 75—150,—
Alparibs — 60,—
Sib. baunatré — 75—150,—
Olfareynir — 75—250,—
Garðabvrnir — 75,—
Raðblaðarós — 75,—
Gullregn 75—150,—
SKÓGRÆKTARFELAG REYKJAVÍKUR
Fossvogsbletti 1, sími 40313.
Útfærsla landhelginn-
ar kemur ekki á óvart
— skrifar brezkur skipstjóri, JOHN BURNS
— Hvað gerist við ísland, er fiskiskipin
annars staðar frá flykkjast þangað?
— SVO virðist som niest muni
mseða á tslandi vegna auk-
inna fiskveiða í Norðurliöfnni
í nánnstu framtíð. I*að er
ekki að nndra, þó að ísland
hafi ákveðið að færa út fisk-
veiðitakmörk sín. I>að er a-nð-
velt að sjá, hvað gerist við
Island, ef öll veiðiskipin, sem
hjálpazt hafa að við að
hreinsa upp önnur svæði,
flykkjast á miðin þar. I>etta
kenmr fram í grein eftir
brezkan skipstjóra. John
Burns, sem er vel kiinnnr ts-
landsmiðum. Nefnist skip
hans Criscilia. Birtist gi-einin
fyrir skemmstn í tímariti fyr-
ir Efnaliagshandalag Evrópu
um fiskveiðar.
— Lítum á ísland, skrifar
Burns skipstjóri. — Fislkiveið-
ar hafa ekki beinzt um of frá
Isiandi að uradaniförnu. Þær
hafa beinzt frá Nýfundnalandi
og Hviitahafinu, þar sem þær
hafa minnkað stórlega. Og
John Bums, skipstjóri.
það er engin furða vegna
hinnar auknu ágenigni frysti-
togara og verksmiðjuskipa.
Það er einfaldlega ekki hægt
að halda áifram að veiða þrjú
til fjögur hundiruð körfur í
einu af þorski og búast við
því að finina sarna magn þar
árið eftir.
Fyrir ári heyrði það til
undantekninga, að frystitog-
arannir okkar veiddu við Is-
land. Nú eru þeir orðnir þar
býsna algengir. Fyrir sikömmu
var þar miikill fjöldi þeirra.
Og hvað ætli líði laragur ttimi,
unz Portúgalar, Frakkar og
Þjóóverjar veiða al'iir við ís-
land líka. Að maður mdranist
ekki á Pólverja, Rúasa og alla
hina.
Svo virðist sem mest m'uni
mæða á íslandi vegna auk-
inna fiskveiða í Norðu.rhöf-
um í nánustu framtíð, nema
ástandið breytist til hins
bettra á öðrum svæðium. Það
er því ekki að undra, þó að
ísland hafi ákveðið að færa
út fiskveiðita'kimö.rk sín. Það
er auðve’.it að sjá, hivað ger-
ist við ís’.and, ef öll veiðiskip-
in, sem hjálpazt hafa að við
að hreinsa upp önnur svæði,
flykkjas't þara'gað.
IRA-menn
í fangelsi
Belfast, 12. maí. NTB—AP.
P-’ÓRIR félagar í frska lýðveld-
ishernmn voru í dag dænidir í
fjögurra ára fangelsi hver fyrir
að liafa ráðizt á barnshafandi
konu fyrir nokkru, atað hana
tjöru og fiðri og misþymitu
benni. f réttinnm kom frarn að
árásin var skipulögð af róttæk-
asta armi IRA, „Provisionals“
svokölluðum. IRA-menn höíðu
kontina grunaða um að deila út
eiturlyfjum til nngmenna cn
hún hefur neitað því og ekkert
hefur komið fram sem sannaði
mál fjórmenninganna.
Aðfararnótt föstudags kom
viða til átaka milli skæruliða og
brezkra hermanna og vitað er að
einn brezkur hermaður beið
bana og cugir manraa silösuöust í
skothríð og sprengingum.
FIMMTÁN ÁRA TELPU
MISÞTRMT í 5 DAGA
í gær fundu brezkir hermenn
fimmtán ára skólastúlku, Eliza-
bethu Hyland, sem haíði verið í
haldi hjá skæruliðum IRA í fimm
daiga. Haifði henmi verið mis-
þyrmt hroðailega, krúnurökuð og
ötuð tjöm og fiðri. Hún hafði
ekki fengið neina næringu, er.
öðru hverju gáfu skæruliðar
honrai uppsölupilfliur tii að hún
kúgaðist. Að þessum verknaði
starada hinir marxisku „Offi-
cials“ sem eru enn einn airmur
IRA. Sökuðu þeir stúlkuna um
að hafa njósraað fyrir Breta.
Elizabeth sagði að hún hefði
verið á fjórum stöðum þesisa
fimm daga og hún hefði verið
. átin vera í skítugum herbergj-
um og ekki fengið raeitt til að
l'iggja á. Á miðvikudaginn var
hún íeidd út og hafði fjöidi
mainras safnazt saman til að
horfa á er hún var flett klæð-
um, barin enn og ötuð tjöru og
fiðri. Var hún hlekkiuð við
Ijósastaur og horfði mar.nfjöld-
inn aðgerðar’aus á að hennax
sögn.
r ^
ERLENT
*
Hótun Islands
— opnaði augu NATO
BREZKA tímaritið The Eeono
mist birti nýlega grein nm
ársskýrslu alþjóðastofnunar í
Uondon, sem vinnur að her-
fræðilegiim rannsóknum, en
í skýrsln þessari er meðal ann
ars rætt um stækkun sovézka
flotans á Norður-Atlantshafi.
Fer grein Economist hér á
eftir í lauslegri þýðingn:
í fyrra einbeindu Rússar
vígbúnaði sínum að norð-vest
ur og suð-austur hornum
heimsveldis síns. Norðurflot-
inn, með aðalstöðvar í Murm
ansk, er orðinn stærstur fjög
urra flota Sovétríkjanna og
Sovétrikin hafa nú rúman
fjórðung herafla síns við kín
versku landamærinn; kemur
þetta fram í skýrslu alþjóða
herfræðistofnunarinnar IISS
fyrir árið 1971.
Stöðug aukning sovézka
flotans í norðri heíur fallið í
skugga aukinna ferða sov-
ézkra skípa um Miðjarðarhaf
og Indiandshaf, þótt þær séu
mun umfangsminni. Hótun Is
lands um að sparka Banda-
ríkjamönnum frá Keflavik
varð til þess að vekja á raý at-
hygli NATO á norðurslóðum.
En skýrsia IISS heldur því
fram að af útþenslu flotaæf-
inga Rússa á hafinu milli Nor
egs og íslands megi draga þá
ályktun að þeir líti á línuna
um Grænland, ísland og Skot
land sem framlínu yfirráða-
svæðis sovézka flotans. — 1
norðurflotanum eru 165 kaf
bátar, þar með taldir 20 kaf-
bátar af alls 35 bátum af Y-
gerð, sem búnir eru kjarn-
orku-eldflaugum. Eru 10 bát
ar af þessari gerð smíðaðlr ár
lega.
í fyrsta skipti í fyrra gerð
ist það að Sovétríkin höfðu
fjölmennara herlið við nærri
10 þúsund km löng landamæri
Kína en í allri Austur-Evrópu,
þar sem er 31 herfylki. Fyrir
þremur árum höfðu Rússar
15 herfylki við kínversku
landamærin; nú eru þar 44
herfylki. Eitthvað mun vera
þarna um nýliða að ræða, en
megnið af þessum her er
hluti þeirra 96 herfylkja, sem
skipað hafa fastaherinn í Sov
étríkjunum. Sagt er að sveit
ir þessar séu búnar kjarnorku
vopnum og mun öflugri en
kínversku landamærasveitirn-
ar.
Kínverjar sjálfir eru mjög
að bæta hernaðarviðbúnaðinn
frá þvi sem var á fyrra áratug
þegar þeir aðallega öpuðu
eftir tækni Rúsisa. Frá því í
fyrra hafa þeir smíðað um 10
orrustuþotur á mánuði, sem
þeir hafa sjálfir hannað, og
geta flogið með tvöföldum
hraða hljóðsins. Varðandi
kjarnorkuvopn, þá hafa Kín-
verjar að því er virðist komið
sér upp nokkrum eldflaugum,
sem draga um 4 þúsund km.
Geta þeir skotið þessum flaug
um til Uralfjalla, Indlands eða
Suð-austur Asíu. Einnig er
hugsanlegt að langdrægar eld
flaugar hafi verið reyndar á
Singkiang-eyðimörkinni. Hins
vegar hafa þær ekki verið
reyndar gegn skotmörkum
úti á Kyrrahafi, þótt eitt af
skipum flotans hafi verið út-
búið sérstaklega til að fylgj-
ast með þess konar tilraun.