Morgunblaðið - 18.03.1975, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MARZ 1975
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MARZ 1975
19
Hörður Árnason skorar fyrsta mark leiksins á sunnudagskvöldið, án þess að þeir Arnar eða Guðmundur komi við vörnum.
ÍR-ingar kvöddu með sæmd
IR-ingar voru sannarlega ekki
öfundsveröir er þeir hlupu inn á
völlinn til leiks síns við Fram í 1.
deildar keppni Islandsmótsins 1
handknattleik á sunnudags-
kvöldið — síðasta 1. deildar leiks-
ins sem þeir leika í bili. Hefðu
úrslit orðið önnur í fyrri ieik
kvöldsins milli Ármanns og
Gróttu, hefðu þeir haft að ein-
hverju að keppa, en úr því sem
komið var skiptu úrslit þessa
leiks litlu máli fyrir þá. Og þó, —
það er alltaf skemmtilegra að
falla með sæmd, og ef litið er til
úrslita þessa leiks verður ekki
ingar gert. Þeir töpuðu að vísu
með einu marki eins og stundum
áður í vetur, en lengst af í þessum
leik börðust IR-ingarnir bærilega
og ekki hefði verið nema sann-
gjarnt að þeir hefðu hlotið annað
stigið.
Það vakti annars athygli í þess-
um leik, að þjálfari Framaranna,
Guðjón Jónsson, hélt óbreyttu liði
inná nær allan leikinn. 1 hópi
þeirra sem léku voru ekki helztu
skyttur liðsins i undanförnum
leikjum: Stefán Þórðarson og
Hannes Leifsson. Mun Stefán
vera hættur handknattleiksiðkun-
Hannes sat á bekknum fram í
seinni hálfleikinn, en þá fór hann
ásamt Sveini Sveinssyni, sem
heldur fékk ekkert að fara inná, i
bað og yfirgáfu þeir síðan húsið.
Leikur þessi hélzt í jafnvægi
lengi vel, en í byrjun seinni hálf-
leiks náðu Framarar sér vel á
strik og sigldu framúr. Náðu þeir
5 marka forystu er 20 mínútur
voru til leiksloka, en á þeim tókst
ÍR-ingum siðan að jafna og fengu
raunar tvö tækifæri til þess að ná
forystunni sem þeir mosnotuðu
bæði. Kom þar til, eins og svo oft
áður í vetur, að þegar mikið á
reynir sýna IR-ingar ekki næga
yfirvegun og einstakir leikmenn
liðsins gera sig seka um að taka
alltof mikla áhættu.
Öhætt er að segja með sanni að
fátt hafi komið mönnum jafn-
mikið á óvart í móti þessu eins og
það að ÍR-ingar skyldu falla í 2.
deild. Margir höfðu álitið að þvert
á móti myndu þeir berjast á
toppnum í vetur. En liðið hefur
átt við ýmislegt mótlæti að síríða í
vetur, og þá sennilega fyrst og
fremst það að sumir leikmanna
liðsins taka íþróttína greinilega
ekki með sömu alvöru og leik-
menn flestra annarra liða sem
keppa í 1. deildinni. Það þarf
orðið mikið til að standa í þeirri
baráttu sem 1. deildar keppnin er
óneitanlega og það virðast leik-
menn ÍR-liðsins ekki hafa. Liðið
sýndi það öðru hverju að það
getur leikið ágætlega, og það
gerði það raunar stundum í leikn-
um á sunnudagskvöldið.
Ekki er gott að segja hver úrslit
þessa leiks hefðu orðið ef IR-
ingar hefðu átt möguleika á að
halda sér uppi með þvi að ná stigi
eða stigum í honum, en ætla má
þó að liðið hefði barizt betur en
það gerói og náð þeim herzlumun
sem skorti. En vel má einnig vera
að Framarar hefðu þá hagað leik
sinum öðru vísi en þeir gerðu, en
þeir leikmenn liðsins sem fengu
að reyna sig í leiknum voru
greinilega orðnir þreyttir undir
lokin, og hnoðuðu þá mikið inn í
vörn ÍR-inganna til þess að fá
aukaköst, sem þeir svo gáfu sér
góðan tíma til að framkvæma.
Bezti maður Framliðsins í
leiknum var Sigurbergur Sig-
steinsson, sem er greinilega að ná
sínu bezta formi og verðskuldar
að vera í landsliðshópnum, en
bezti maður iR-inganna var As-
geir Elíasson, — fljótur og útsjón-
arsamur að venju, en eins og ÍR-
liðið leikur nýtast kraftar hans og
hraði hvergi nærri til fulls.
í STUTTU MÁLI:
Laugardalshöll 16. marz
Islandsmótið 1. deild.
Urslit: ÍR — Fram 19 — 20 (9
- 10)
Gangur leiksins:
Min. IR Fram
1. Hörður A 1:0
2. 1:1 Sigurbergur
5. Vilhjálmur 2:1
5. 2:2 Pálmi
6. 2:3 Sigurbergur
6. Brynjólfur 3:3
7. Asgeir 4:3
11. 4:4 Árni
15. 4:5 Pétur
15. Ágúst 5:5
15. Brynjólfur 6:5
20. 6:6 Arnar
21. 6:7 Arnar
23. 6:8 Arnar
23. Höröur II. 7:8
24. 7:9 Árni
25. Brynjólfur 8:9
27. 8:10 Pétur
27. HöröurH. 9:10
J Hálfleikur
31. 9:11 Pálmi
32. 9:12 Pálmi
33. 9:13 Guðmundur
34. Sigurður 10:13
35. 10:14 Árnar
35. HörðurH. 11:14
38. Asgeir 12:14
38. 12:15 Pálmi
39. 12:16 Ragnar
40. 12:17 Pétur
41. Gunnlaugur 13:17
42. Asgeir 14:17
43. Sigurður 15:17
44. 15:18 Pálmi
46. 15:19 Ragnar
47. Vilhjálmur (v) 16:19
48. Gunnlaugur 17:19
53. Asgeir 18:19
57. Ágúst (v) 19:19
59. 19:20 Árnar
Mörk ÍR: Asgeir Elíasson 4,
Hörður Hákonarson 3, Brynjólfur
Markússon 3, Vilhjálmur Sigur-
geirsson 2, Agúst Svavarsson 2,
Sigurður Svavarsson 2, Gunn-
laugur Hjálmarsson 2, Hörður
Árnason 1.
Mörk Fram: Pálmi Pálmason 5,
Arnar Guðlaugsson 5, Pétur
Jóhannesson 3, Sigurbergur Sig-
steinsson 2, Ragnar Hilmarsson 2,
Árni Sverrisson 2, Guðmundur
Þorbjörnsson 1.
Brottvísanir af velli: Brynjólfur
Markússon, ÍR í 2 mín.
Misheppnuð vítaköst: Pálmi
Pálmason skaut í þverslá og út á
48. min.
Dómarar: Oli Olsen og Kjartan
Steinbeck. Þeir dæmdu leikinn
yfirleitt með ágætum, en létu
leikmenn komast upp með að
sýna sér litilsvirðingu. —stjl.
annað sagt en að það hafi IR
Danirnir
koma
Forsala aðgöngumiöa
á landsleiki
íslands og Danmerkur,
sem fram fara um
næstu helgi, hefst í
Austurstræti á morgun
kl. 4-6
LANDSLIÐSMENN
ÍSLANDS
selja miða í
íbúðarhappdrætti HSÍ
á sama stað
LIÐ IR: Guðmundur Gunnarsson 1, Ásgeir Elíasson 3, Sigurður
Svavarsson 2, Olafur Tómasson 1, Þórarinn Tyrfingsson 1,
Ágúst Svavarsson 2, Gunnlaugur Hjálmarsson 2, Vilhjálmur
Sigurgeirsson 1, Brynjólfur Markússon 2, Jens G. Einarsson 2,
Hörður Hákonarson 2.
LIÐ FRAM: Guðjón Erlendsson 2, Arni Sverrisson 2, Sigurberg-
ur Sigsteinsson 3, Pétur Jóhannesson 2, Árnar Guðlaugsson 3,
Pálmi Pálmason 3, Guðmundur Þorbjörnsson 2, Ragnar
Hilmarsson 2.
1. deild kvenna
Valur enn taplaus
Á laugardaginn áttust Valur og Ármann vi3 í 1. deild kvenna. Ármannsliðið mætti hálf
vængbrotið til leiks, án tveggja sinna bestu leikmanna, Guðrúnar Sigurþórsdóttur og
Erlu Sverrisdóttur, og setti missir þeirra greinilega mörk á leik Ármanns.
Valur tók þegar i upphafi forystu í leiknum, og hafði yfir i hálfleik. 10 mörk gegn 4.
Siðari hálfleikurinn varð öllu jafnari, án þess þð að Ármanni tækist nokkru sinni að
ógna sigri Vals. Siðari hálfleiknum lauk með 11 mörkum gegn 8, og Valur sigraði þvi í
leiknum með 21 marki gegn 12.
Nú er svo komið að Valur hefir leikið 1 3 leiki og er með fullt hús stiga. Liðið á eftir að
leika gegn Fram, eina liðinu sem getur ógnað sigri Vals. Sá leikur fer fram n.k. laugardag
og hefst kl. 15.30. Sigri Frám verður úrslitaleikur á milli félaganna, verði úrslitin þau að
Valur sigri eða lykti leiknum með jafntefli er íslandsmeistaratitillinn Vals.
Það hefir komið fram í leikjunum I 1. deild kvenna I vetur að lið Vals virðist
langsterkast. Styrkur liðsins felst einkum i þvi hve liðsmenn eru jafnir að getu, svo og
virðist Valsliðið i bestri likamsþjálfun. Það er þvi engin tilviljun að Valur skuli skipa efsta
sætið i 1. deild kvenna. í leiknum á laugardag gegn Ármanni voru þær Sigrún
Guðmundsdóttir og Ragnheiður Lárusdóttir bestar Valsara. Þá átti Björg Jónsdóttir og
ágætan leik.
Lið Ármanns var ekki svipur hjá sjón miðað við leiki liðsins fyrst i vetur. Fjarvera
Guðrúnar og Erlu hefir efalaust átt sinn þátt í því. Bestar i liði Ármanns voru þær Katrin
Axelsdóttir og Auður Rafnsdóttir, sem vermdi þó lengst af skiptibekkinn.
Leikinn dæmdu Sveinn Kristjánsson og Haukur Hallsson.
Mörk Vals: Sigrún og Ragnheiður 6 hvor, Björg Jónsdóttir 3, Elín Kristinsdóttir 2,
Halldóra Magnúsdóttir, Hrefna Bjarnadóttir, Björg Guðmundsdóttir og Harpa Guð-
mundsdóttir eitt mark hver.
Mörk Ármanns: Katrín 6, Jóhanna Ásmundsdóttir 4 og Sigríður Rafnsdóttir 2 mörk.
Hart barizt I leik Ármanns og Gróttu. Hörður Kristinsson hefurfengið sendingu inn á Iínuna, en Gróttumenn ná að slá knöttinn frá
honum, svo sem sjá má.
Sigb.G.
FH stúlka sýnir skemmtileg tilþrif, smeygir sér gegnum vörn KR og skorar.
KR-stúlkurnar unnu
Á laugardaginn mættust KR og FH i 1. deild kvenna. Úrslit leiksins skiptu engu
meginmáli, hvorugt liðið i fallhættu og hvorugt átti möguleika á verðlaunum. Þrátt fyrir
það var leikurinn lengst af jafn og spennandi.
Stúlkurnar úr FH komust i 2 mörk gegn engu, en KR tókst að jafna þegar um átta min.
voru af leik. Það sem eftir lifði hálfleiksins var FH ávallt á undan að skora, en KR jafnaði
jafnóðum. f leikhléi hafði FH einu marki betur, 8 gegn 7.
Framan af siðari hálfleik hélst sami háttur, FH var oftast fyrra til að skora, en KR
jafnaði. Þegar um átta min. voru til leiksloka var enn jafnt, 14 gegn 14, en
KR-stúlkurnar reyndust sterkari á lokasprettinum og sigruðu með 18 mörkum gegn 15.
Sem heild verður vart sagt að KR-liðið sé sterkt. Aftur á móti nýtur liðið þess að hafa
þrjá stórsnjalla einstaklinga innan sinna vébanda. Það eru þær Hjálmfriður Jóhannes-
dóttir, Hansina Melsteð og Hjördis Sigurjónsdóttir. Það leikur vart á tveim tungum að
Hjálmfriður er einn albesti linumaðurinn i kvennahandknattleiknum. en lið KR skortir
tilfinnanlega leikmann til að gefa á hana. Það hefir reynst KR mikill styrkur að fá
Hjördisi aftur til liðs við sig, en hún hefir átt við meiðsl að striða mikinn hluta vetrar.
Stúlkurnar i FH hafa staðið sig eftir vonum i vetur. Liðið er skipað kornungum
stúlkum, sem mun efalaust ná langt þegar þær hafa öðlast meiri reynslu og burði. I
leiknum gegn KR voru bestar þær Svanhvit Magnúsdóttir, Kristjana Aradóttir og Guðrún
Júliusdóttir ásamt markverðinum Gyðu Úlfarsdóttur.
Dómarar voru Örn Pétursson og Ragnar Sverrisson.
Mörk KR: Hjördis 8, Hansina 4, Ragna Halldórsdóttir 3, Hjálmfriður 2 og Sigrún
Sigtryggsdóttir eitt mark.
Mörk FH: Svanhvít, Kristjana og Margrét Brandsdóttir 4 hver, Guðrún 2 og Birna H.
Bjarnason eitt mark.
Sigb. G.
Þór kvaddi með sigri
Þórsstúlkurnar kvöddu í 1. deildar keppni kvenna að þessu sinni með sigri yfir Vikingi
sem fór norður á laugardaginn og lék við heimastúlkurnar i Skemmunni. Úrslit leiksins
urðu 12—11 fyrir Þór, eftir að einu marki hafði munað i hálfleik 7—6.
Víkingsstúlkurnar höfðu yfirleitt forystuna í fyrri hálfleiknum, en aldrei munaði þó
miklu. Var það ekki fyrr en undir lok hálfleiksins sem Þór tókst loks að jafna og komast
einu marki yfir. í seinni H%lfleik hélt barningurinn áfram, en Þór hafði betur, þegar upp
var staðið og var sigur liðsins fyllilega verðskuldaður miðað við gang leiksins. Mikil
harka var í leiknum þegar á leið og höfðu dómararnir ekki góð tök á honum.
Mörk Þórs skoruðu: Anna Gréta 5, Guðrún Stefánsdóttir 2, Soffia 1, Magnea 1,
Steinunn 1 og Hanna Rúna 1.
Mörk Vikings skoruðu: Anna Björnsdóttir 8, Guðrún Hauksdóttir 2 og Ásdis 1.
— háhá.
Grótta gaf sig ekki
Mikið má vera ef Gróttuliðið
náði ekki að sýna sinn bezta leik í
vetur er þeir mættu Ármenning-
um I 1. deildar keppninni á
sunnudagskvöldið. Mikið var I
Jiúfi fyrir liðið. Eftir að IR lagði
Hauka á dögunum, gat farið svo
að það kæmi í hlut Gróttu að gista
aðra deild að ári, og þurfti liðið
að vinna sigur f leiknum við Ár-
mann til þess að tryggja sér að
svo færi ekki. Og það tókst —
mest vegnaþessaðnúlékGrótta í
fyrsta skiptið í vetur bærilega
vörn, og fékk þar af leiðandi á sig
næstum helmingi færri mörk en
liðið hefur fengið á sig í flestum
leikjum sfnum í deildinni í vetur.
Mestan hlut að máli í Gróttuvörn-
inni átti Árni Indriðason, sem var
nú upp á sitt allra bezta, eftir að
hafa verið f nokkrum öldudal um
tfma, og hinn ungi markvörður
liðsins, Guðmundur Ingimundar-
son, stóð mjög vel fyrir sínu.
En það má heldur ekki horfa
fram hjá þvi að sóknarleikur Ár-
menninga var með eindæmum
slakur í leiknum. Ekki er ósenni
íegt að Ármenningar hafi gengið
of sigurvissir til þessa leiks —
alla vega virtist hin harða mót-
spyrna Gróttu koma þeim á óvart,
og setja þá úr jafnvægi. Ármanns-
liðið hefur leikið sóknarleikinn æ
betur í undanförnum leikjum og
náð upp góðri ógnun, en aó þessu
sinni var leikið of nærri vörninni
og Gróttumönnum auðvelduð
þannig vörnin, auk þess sem leik-
ur Ármannsliðsins gekk alltof
mikió upp á miðju vallarins.
Þrátt fyrir að nokkur spenna
væri í þessum leik var hann held-
ur leiðinlegur á að horfa. Dómar-
arnir höfðu tæpast við að flauta á
aukaköst á báða bóga, og ákaflega
lítið var um hreint og óþvingað
spil'. Það bezta sem sást í leiknum
voru viðbrögð leikmannanna í
vörn, en þar var oft ágæt
„keyrsla" á báða bóga og mikið
„talað saman“. Það eina sem um-
talsvert var í sóknarleiknum voru
lágskot Magnúsar Sigurðssonar
Gróttumanns sem voru hin lagleg-
ustu. Faidi hann sig á bak við
varnarmenn Ármenninga og
renndi síðan knettinum meófram
gólfinu í mark Ármenninga, án
þess að markverðirnir kæmu við
vörnum, enda sáu þeir sjaldnast
knöttinn fyrr en hann var um það
bil að sigla inn i markið.
Gróttumenn mega vissulega vel
við árangur sinn i keppninni i
vetur una. Gunnar Kjartansson,
þjálfari liðsins, sagði í upphafi
keppnistimabilsins að aðalmark-
miðið i vetur væri að halda sér
uppi, og það tókst. Sú reynsla sem
leikmenn liðsins hafa fengið í
keppninni í vetur verður þeim
sjálfsagt dýrmætur skóli í fram-
tíðinni og fyrst Grótta komst yfir
hið erfiða ár í deildinni, má ætla
að liðið haldi áfram framför sinni.
Varnarleikurinn hefur verið veik-
ari hluti liðsins i vetur, en á
sunnudagskvöldið sýndu leik-
menn þess loksins að þeir kunna
vel að leika vörn og geta leikið
hana, svo fremi sem þeir vilja
leggja að sér.
Bezti maður Gróttuliðsins í
þessum leik var Árni Indriðason,
sem fyrr segir, en beztur Ármenn-
inganna eins og oft áóur var ald-
ursforseti liósins, Hörður Kristins
son. Hann var sá klettur i vörn
Ármenninga sem ófáar sóknarlot-
ur Gróttu brotnuðu á, og auk þess
vann Hörður gífurlega vel fyrir
lið sitt þegar það var i sókn þótt
félagar hans værU að þessu sinni
stundum helzt til seinir að átta sig
á þeim möguleika sem barátta
hans skapaói þeim.
í stuttu máli:
Laugardalshöll 16. marz
marz
Íslandsmótið 1. deild
ÚRSLIT:
Ármann — Grótta
14—16 (6—8)
Gangur leiksins:
Mfn.
Ármann
Grótta
1. Jens 1:0
3. 1:1 Björn
7. 1:2 Magnús
8. 1:3 Magnús
9. Hörður K. 2:3
15. Hörður H (v) 3:3
20. 3:4 Kristmundur
23. 3:5 Árni
24. Hörður H. 4:5
24. 4:6 Magnús
26. 4:7 Halldór
27. Björn 5:7
29. 5:8 Halldór (v)
30. Jón Á. (v) Hálfleikur 6:8
33. 6:9 Magnús
34. 6:10 Björn
35. 6:11 Björn
36. Björn 7:11
38. Björn 8:11
38. 8:12 Axel
41. Jón (v) 9:12
42. Jón (v) 10:12
45. Kristinn 11:12
46. Pétur (v) 12:12
51. Jón 13:12
LIÐ ÁRMANNS: Ragnar Gunnarsson 2, Stefán Hafstein 1,
Olfert Naabye 1, Björn Jóhannesson 2, Hörður Harðarson 2,
Pétur Ingólfsson 2, Jón Ástvaldsson 1, Kristinn Ingólfsson 1,
Jens Jensson 1, Hörður Kristinsson 3, Skafti Halldórsson 1.
LIÐ GRÖTTU: Kristmundur Ásmundsson 2, Björn Pétursson 2,
Þór Ottescn 1, Árni Indriðason 3, Halldór Kristinsson 2, Georg
Magnússon 2, Axel Friðriksson 1, Magnús Sigurðsson 3, Guð-
mundur Ingimundarson 3.
54.
56.
58.
59. Björn
60.
13:13 Magnús
13:14 Magnús
13:15 Þór
14:15
14:16 Árni
Mörk Ármanns: Jón Ástvaldsson 4, Björn
Jóhannesson 4, Hörður Harðarson 2, Jens
Jensson 1, Hörður Kristinsson 1, Kristinn
Ingólfsson 1, Pétur lngólfsson 1.
Mörk Gróttu: Magnús Sigurðsson 6, Björn
Pétursson 3, Árni Indriðason 2, Halldór
Kristjánsson 2, Kristmundur Ásmundsson 1,
Axel Friðriksson 1, Þór Ottesen 1.
Brottvísanir af velli: Halldór Kristjánsson
og Árni Indriðason, Gróttu í 2 mín.
Misheppnuð vftaköst: Ragnar Gunnarsson
varði vftakast frá Birni Péturssyni á 5. min.
og á 13. mfnútu og frá Halldóri Kristjánssyni
á 49. mín. Guðmundur Ingimundarson varði
vftakast Harðar Harðarsonar á 20. mfn. og
Péturs Ingólfssonar á 55. mín. Jón Ástvalds-
son skaut f stöng úr vítakasti á 59. mín.
Dómarar: Kristján Örn Ingibergsson og
Jón Friðsteinsson og dæmdu þeir undantekn-
ingalítið með miklum ágætum.
— stjl.
2. DEILD
Þróttur — Fylkir 23-17
Það er um það bil að verða bingó hjá Þrótti í 2. deildar keppninni í
handknattleik. Á sunnudaginn lögðu þeir hættulegan keppinaut að velli
þar sem Fylkir var, og nú er aðeins eitt skref óstigið hjá Þrótturum. Eru
það KR-ingar sem þeir eiga eftir að mæta og þarf varla að gera öðru skóna
en að sá leikur verði léttur fyrir Þróttarana.
Þróttararnir komu annas til leiksins i Laugardalshöllinni á sunnudaginn
beint frá „bingói aldarinnar" sem þeir gangast fyrir í Háskólabiói og
heppnaðist mjög vel á sunnudaginn. Þeim gekk lengi vel að hrista
Fylkismenn af sér og var það ekki fyrr en undir lok fyrri hálfleiksins að
Þróttur náði tveggja marka forystu, en staðan i hálfleik var 10—8, þeim i
vil.
Þjálfari Þróttaranna, Bjarni Jónsson, átti beztan leik þeirra á sunnudag
inn og naut þess vel að vera ekki með yfirfrakka nema litinn hluta af
leiknum. Einn er þó áberandi Ijóður á leik Bjarna. Hann tekur 4—5 skref
oft þegar hann er á hlaupum með knöttinn og virðist komast upp með það
1 það endalausa. Friðrik Friðriksson kom einnig vel frá leiknum á
sunnudaginn.
Beztur Fylkismanna var Einar Einarsson, en Birgir Guðjónsson og Örn
Jensson komu einnig vel frá leiknum, svo og Steinar Birgisson sem er
mjög vaxandi leikmaður.
Mörk Þróttar: Bjarni Jónsson 9, Friðrik Friðriksson 7, Konráð Jónsson
2, Halldór Bragason 2, Gunnar Gunnarsson 1, Björn Vilhjálmsson 1,
Jóhann Frimannsson 1.
Mörk Fylkis: Einar Ágústsson 5, Einar Einarsson 3, Birgir Guðjónsson
3, Örn Jensson 3, Guðmundur Sveinbjörnsson 2, Gísli Halldórsson 1.
Dómarar voru Hallur Hallsson og Ólafur Steingrimsson. Þeir dæmdu
vel, en hörfðu þó um of með blinda auganu á skrefin hjá Bjarna.
— stjl.
Keflavik - UBK17-18
Leikmenn Breiðabliks og Keflavíkur gengu að siðasta leik sinum i 2.
deildar keppninni í handknattleik, sem fram fór i Njarðvik á sunnudags-
kvöldið, með takmörkuðum áhuga. Úrslit leiksins skiptu raunar engu máli
fyrir liðin, þar sem bæði voru búin að tryggja áframhaldandi keppnisrétt
sinn i deildinni, eftir tvísýna botnbaráttu þar lengst af. Leikurinn var líka
heldur lélegur, þegar á heildina er litið. Það var helzt frammistaða
markvarða liðanna sem yljaði svoíitið, en þeir stóðu sig oft með mikilli
prýði.
Breiðablik náði fljótlega forystu i leiknum og náði mest 4 marka
forskoti er staðan var 6—2. Þá tóku Keflvíkingarnir hættulegasta mann
Breiðabliksliðsins, markakónginn Hörð Má Kristjánsson. úr umferð og við
það jafnaðist leikurinn verulega. í hálfleik var staðan 8—7 fyrir Breiða-
blik.
í seinni hálfleiknum var sami barningurinn uppi á teningnum. Breiða-
blik hafði yfirleitt forystuna, en Keflvikingar jöfnuðu. Þegar leiktimanum
var að Ijúka var staðan jöfn 1 7—1 7, en Breiðabliksmenn höfðu heppnina
með sér að þessu sinni og tókst að skora úrslitamarkið, þegar 10
sekúndur voru til leiksloka: 18—17.
Mörk ÍBK skoruðu: Þorsteinn Ólafsson 5, Sigurbjörn Gútsafsson 4 (2
viti). Sævar Halldórsson 2, Sigurður Sigurðsson 1, Einar Leifsson 1,
Steinar Jóhannsson 1.
Mörk Breiðabliks: Hörður Már Kristjánsson 8 (4 viti), Páll Eyvindsson
2, Magnús Steinþórsson 3, Þorsteinn 1, Sverrir 1.
stjl.