Morgunblaðið - 16.08.1981, Side 1
64 SÍÐUR
179. tbl. 68. árg.
SUNNUDAGUR 16. ÁGÚST 1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Týndi fallbyssubáturinn:
íranir ásaka
CIA um ránið
Beirút. Madrid. 15. áKÚst. AP.
UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ í íran upplýsti írönsku þjóðina í dag um,
að leyniþjónusta Bandarikjanna, CIA, hefði skipulagt ránið á íranska
fallbyssubátnum. sem var rænt í Miðjarðarhafi á föstudag. Andstæð-
ingar Khomeinis erkiklerks framkvæmdu ránið í landhelgi Spánar.
Valiollah Fallami, yfirhershöfð-
ingi íranska hersins, sagði í yfir-
lýsingu á föstudag, að stjórnvöld á
Spáni bæru ábyrgð á ráninu.
Hann gagnrýndi stjórnvöld fyrir
að hafa ekki tryggt öryggi þriggja
fallbyssubáta, sem voru á leið í
spánska höfn til að taka eldsneyti.
Einum bátnum var rænt og siglt í
átt að landhelgi Marokkó. Fallami
gaf út yfirlýsinguna eftir fund
öryggisráðsins, sem Mohammad
Ali Rajai, forseti íran stjórnaði.
Ekki er vitað með vissu, hvar
báturinn er niðurkominn. Farþeg-
ar á flugbát töldu sig hafa séð
hann í hafnarbænum Tangier í
Marokkó. En aðrir, sem hafa verið
á siglingum um svæðið og komu til
Gíbraltar á laugardag, sögðust
ekki hafa séð til bátsins. Stjórn-
völd í Marokkó harðneituðu, að
báturinn væri í landhelgi Mar-
okkó.
Salisbury skal
nefnd Harare
Salisbury. 15. áuiist. AP.
BORGARSTJORINN í Salis-
hury í Zimhahwe skýrði frá því
í dag i viðtali við blaðið The
Ilerald. að innan tíðar yrði
nafni borgarinnar breytt. í
stað Salisbury yrði borgin
nefnd Ilarare.
Það var á níunda tug síðustu
aldar, að brezkir landnemar
nefndu höfuðborg Rhódesíu Sal-
isbury, í höfuðið á Salisbury,
lávarði, þáverandi forsætisráð-
herra Bretlands. Þegar blökku-
menn komust til valda, tóku þeir
upp nafnið Zimbabwe í stað
Rhódesíu. Nú skal Salisbury
heita Harare, eftir höfðingja,
sem ríkti þegar brezkir land-
nemar reistu tjöld sín og drógu
brezka fánann að húni.
í Hrísey
.josmynd Snorri Snttrrason
Kania og Jaruzelski
farnir frá Krímskaga
Portúgal:
Flugum f erðarstjórar
með samúðaraðgerðir
Ussah<in. 15. ágÚKt. AP
PORTÚGALSKIR flugumferðar-
stjórar munu neita allri aðstoð við
vélar á leið til eða frá Bandarikjun-
um i 18 tima frá klukkan 1 á
mánudagsmorgun i samúðarskyni
við handaríska flugumferðarstjóra.
sem eru í vcrkfalli. Flugturninn á
Azor-eyjum. sem tilheyra Portúgal.
er einn mikilvægasti hlekkurinn á
syðri flugleiðinni yfir Atlantshafið
til Bandarikjanna.
Starfsmaður á vakt í flugturnin-
um í Lissabon sagði á laugardags-
morgun, að samtök portúgalskra
flugumferðarstjóra hefðu sent til-
kynningu um aðgerðirnar á alla
flugvelli á föstudag. Neyðar- og
hernaðarflugvélum verður veitt
nauðsynleg aðstoð.
Akvörðun var tekin um aðgerðirn-
ar eftir að könnun var gerð meðal
portúgalskra flugumferðarstjóra, en
þeir eru um 300 talsins. Alþjóða-
samtök flugumferðarstjóra fóru
fram á í vikunni að flugumferðar-
stjórar myndu ekki grípa til samúð-
araðgerða fyrr en 22. ágúst nk.
Moxkvu. Varsjá. 15. ágúst. AP.
STANISLAW KANIA. formað-
ur pólska kommúnistaflokksins,
og Wojciech Jaruzelski. forsætis-
ráðherra Póllands. sneru heim i
dag eftir tveggja daga fund með
lciðtogum Sovétrikjanna á Krím-
skaga. Ekki hefur verið grcint
frá. hvað leiðtogunum fór i milli.
en búist er við, að Sovétmenn hafi
lýst áhyggjum yfir vanmætti
pólskra stjórnvalda gegn almenn-
ingsaðgerðum i Póllandi. Frétta-
stofan Tass hefur sagt, að vænta
megi sameiginlegrar yfirlýsingar
leiðtoganna um fundinn.
Pólskir verkamenn héldu á föstu-
dag upp á eins árs afmæli samtaka
óháðu verkalýðsfélaganna, Sam-
stöðu. Öll umferð stöðvaðist í eina
mínútu í hafnarbænum Gdansk,
þar sem verkföll hafnarverka-
manna hófust 14. ágúst sl. Lech
Walesa, leiðtogi Samstöðu, hélt
ræðu og lofaði að þjóna þjóðinni en
ekki bylta stjórninni. „Við ætlum
okkur ekki að ná völdum," sagði
hann „eða mynda stjórnmálaflokk.
Við viljum aðeins þjóna þjóðinni."
Þúsundir manna söfnuðust sam-
an í iðnaðarborginni Czestochowa
á laugardag til að hlýða á Jozef
Glemp kardinála. Rómversk-
kaþólska kirkjan í Póllandi hefur
beðið verkamenn að gæta varúðar í
aðgerðum sínum gegn stjórninni.
Rússar gagnrýna
Mitterrand óspart
Moskvu. Paris. 15. áxúst. AP.
SOVÉTMENN hafa harðlega gagn-
rýnt varnarstefnu stjórnar Fran-
cois Mitterrands í Frakklandi og
sovéskir fréttaskýrendur hafa látið
að því liggja. að Mitterrand sé
leppur Bandaríkjanna. Það sem
angrar Sovétmenn er gagnrýni Mitt-
errands á SS-20 eldflaugar Sovét-
manna. svo og hörð gagnrýni á
innrás Sovétmanna i Afganistan.
Reagan og Brezhnev
skiptast á bréfum
W’ashington. Moskvu. 15. áffúst. AP.
Ronald Reagan. forseti Bandaríkjanna. og Leonid Brezhnev, forseti
Sovétríkjanna. hafa á undanförnum mánuðum skipst á bréfum. Hvor
um sig hefur sent fjögur eða fimm bréf. að því er tilkynnt var í Hvita
húsinu 1 gærkvöldi. Ronald Reagan skýrði frá þvi á fimmtudag, að
hann hefði lagt til að leiðtogarnir tveir hittust að máli.
Dean Fishcer, talsmaður utan-
ríkisráðuneytisins sagði, að tillaga
Reagans um toppfund þýddi ekki,
að stjórnvöld vestanhafs hefðu í
neinu breytt stefnu sinni gagnvart
Sovétríkjunum. „Bæði forsetinn
og Alexander Haig, utanríkisráð-
herra, hafa ítrekað lýst því yfir, að
þeir séu fylgjandi viðræðum við
Sovétmenn," sagði Fisher.
Fréttaskýrendum ber saman
um, að Reagan-stjórnin hafi mild-
að tón sinn gagnvart Sovét-
mönnum að undanförnu. Þessu til
áréttingar benda þeir á ræðu
Reagans á fimmtudag, er hann
hvatti til toppfundar um afvopn-
unarmál og ræðu Alexander Haigs
á þriðjudag er hann hvatti til
bættrar sambúðar.
Talið er, að Leonid Brezhnev
muni fagna tillögu Reagans um
toppfund, þrátt fyrir heilsubrest.
Benda má á, að Brezhnev stakk
sjálfur upp á toppfundi þann 23.
febrúar síðastliðinn. En hins veg-
ar hefur Brezhnev hvergi látið að
því liggja, að hann sé tilbúinn til
tilslakana. Deilumál ríkjanna eru
margvísleg. Sovétmenn hafa síður
en svo gefið í skyn, að þeir muni
draga herlið sitt frá Afganistan,
en þess hafa Bandaríkin krafist;
raunar gert að skilyrði fyrir
bættri sambúð. Víetnamskir her-
menn eru enn í Kambódíu með
stuðningi Sovétmanna. Þá má
benda á viðsjárvert ástand í Pól-
landi og yfirvofandi innrás Sovét-
manna i landið og staðsetningu
SS-20 eldflauga, sem beint er að
V-Evrópu. Á hinn bóginn má
benda á, að Bandaríkin hafa hafið
enduruppbyggingu varnarmáttar,
og Reagan hefur fyrirskipað fram-
leiðslu nifteindasprengjunnar.
Sovétmenn hafa gagnrýnt þetta
harðlega.
En þrátt fyrir djúpstæðan
ágreining, þá er ljóst að aðilar
hafa sýnt sáttfýsi að undanförnu.
Reagan
Brezhnev
Mildari tónn heyrist frá Wash-
ington. Á fimmtudag gagnrýndi
Tass harðlega ákvörðun Reagans
um að hefja framleiðslu nifteinda-
sprengjunnar. Tass sagði, að
Bandaríkin, en ekki Sovétríkin,
stæðu í vegi fyrir afvopnunarvið-
ræðum. Fréttaskýrendur segja
þessi ummæli merki þess, að
Sovétmenn séu reiðubúnir til
samningaviðræðna.
I»á hefur Mitterrand varað við
íhlutun Sovétmanna í Pólland.
Hins vegar virðast sovéskir
fréttaskýrendur telja, að Mitterrand
muni milda tón sinn gagnvart Sovét-
mönnum á næstunni. Mitterrand
muni, eins og forverar hans, láta af
gagnrýni sinni. Þó Mitterrand sé
sósíalisti og hafi útnefnt kommún-
ista í ráðherrastöður, þá drógu
Sovétmenn enga dul á, að þeir vildu
heldur Giscard í forsetastóli í
Frakklandi.
Talsmaður franska utanríkisráðu-
neytisins hefur vísað gagnrýni Sov-
étmanna á bug. Mitterrand hefur
oftsinnis haldið því fram, að Sovét-
menn hafi raskað hernaðarjafnvæg-
inu í Evrópu með staðsetningu SS-20
eldflauganna. Að Sovétmenn njóti
nú hernaðaryfirburða í álfunni og
NATO verði að grípa til gagnráð-
stafana.
Sex biðu bana í
hringekjuslysi
llamhorK. 15. ÚKÚst. AP.
SEX manns biðu hana þcgar hring-
ekja i tívolínu i Hamborg skall á
iHÍmu viðgerðarkrana. Hringekjan
snerist með miklum hraða og við
höggið beinlinis rifnuðu vagnar
hcnnar og fólkið kastaðist út.
Fimmtán manns slösuðust. þar af
fjórir lifshættulcga. Af hinum
látnu voru fimm konur.
Lögreglan lokaði tívolíinu þegar
eftir slysið og rannsókn stendur nú
yfir. Að sögn starfsmanna, skall
hringekjan á bómu krana, sem hafði
verið notaður til viðgerða á hring-
ekjunni.