Morgunblaðið - 16.08.1981, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. ÁGÚST 1981
5
Stiflusmiður heitir bresk mynd sem fjallar um lifnaðarhætti bjóranna
i Norður-Ameríku en bjórarnir eru ein af einkennisdýrategundum
þeirrar álfu.
Hljóövarp kl. 13.45 sunnudag
Líf og saga
Í daK kl. 14.00
verður fluttur 6.
þátturinn i fram-
haldsflokknum „Líf
ok saj{a“. Nefnist
hann „Trúarskáld
af tign“ og fjallar
um Matthías Joch-
umsson.
Vilmundur Gylfa-
son gerði handritið
og stjórnar jafn-
framt upptöku.
Flytjendur auk hans
eru Þorsteinn Ö.
Stephensen, Kristín
Steinsen, Einar Örn
Stefánsson, Helgi
Már Artúrsson og
Ævar Kjartansson.
Matthías Johannes-
sen les ljóð sitt um
skáldið. Flutningur
verksins tekur um
eina klukkustund.
Tæknimaður: Jón
Sr. Matthias
Örn Ásbjörnsson.
Byggt er á sögu-
köflum og bréfum
Matthíasar, svo og
ýmsum öðrum heim-
ildum, auk þess sem
höfundur setur fram
kenningar um áhrif
þau, er skáldið hafði
á samtíð sína og bók-
menntir seinni tíma.
Kann ýmsum að
finnast þær allnýst-
árlegar. Lesin eru
nokkur kvæði Matt-
híasar, bæði þau sem
margir þekkja og
þau sem heyrast
sjaldan eða aldrei.
Hljóðvarp kl. 17.i
Á ferð
Óli H. spjallar
við vegfarendur
„í þættinum í dag mun ég
leggja áherslu á við vegfarendur
að þeir minnki hraðann þegar
þeir koma úr strjálbýli í þétt-
býli." sagði Óli II. Þórðarson.
framkva'mdastjóri Umferðarráðs
og umsjónarmaður þáttarins „Á
ferð“. „bað er alls staðar gert ráð
fyrir því að dregið sé úr ferð
enda er þar meira fólk á ferð en í
strjálbýli.
Þá tek ég einnig fyrir klifur-
greinar en fólk misskilur og
merkið. Þar er jú mynd af flutn-
ingabíl, en í raun eiga allir bílar
að fara strax á hana þannig að öll
framúrumferð fari fram vinstra
megin en ekki hægra megin eins
og oft vill eiga sér stað,“ sagði Óli.
Akreinatafla, klifurrein
Glæpur Marteins heitir finnskt sjónvarpsleikrit sem sýnt verður í
sjónvarpinu annað kvöld. Leikurinn gerist nokkru fyrir fyrri
heimsstyrjöld og lýsir lífi finnskrar fjölskyldu.
Myndin sýnir Pehr-Olaf Sigren og Paava Pentikáinen í hlutverkum
sinum.
Sjónvarp kl. 20.45 sunnudag
Maður er nefndur -
Valur Gíslason leikari
í kvöld verður Jónas Jónasson
með þáttinn „Maður er nefndur-.
Að þessu sinni er það V’alur
Gíslason sem segir frá.
Valur hefur eflaust frá mörgu að
segja, sérstaklega frá íslenskri
leiklist, en hann var hinn 18.
janúar 1977 heiðraður fyrir 50 ára
leikafmæli og 75 ára afmæli.
Þau eru orðin mörg hlutverkin
og leikritin hjá Val á sviði Leikfé-
lagsins og síðar Þjóðleikhússins
þegar það var stofnað. Má þar
nefna Gullna hliðið, íslandsklukk-
an, Hedda Gabler 1942, „Orðið“
eftir Kaj Munk árið 1943, „Páll
Lange og Þóra Parsberg" árið 1944
eftir Björnsterne Björnsson,
Sjálfstætt fólk eftir Halldór Lax-
ness, „Ég man þá tíð“ eftir Eugene
O’Neill í hlutverki Nat Miller, Bárð
á Búrfelli í Pilti og stúlku eftir Jón
Thoroddsen og fleiri og fleiri.
Valur i hlutverki Bárðar á Búr-
felli i leikritinu Piltur og stúlka
eftir Jón Thoroddsen.
fiörfrdagarí
29.agúst-
Helgarferöimar til Irlands eru nú
komnar á dagskrána á nýjan leik.
Aö þessu sinni bjóðum viö fjögurra
daga ferö og minnum sérstaklega
á aö írska pundið hefur aldrei veriö
hagstæðara og aö sjálfsögöu eru
vetrarfötin og skólafatnaöurinn
kominn í allar verslanir
Verð frá kr. 2.480
Aðildarfélagsafsláttur
kr. 500
Innifalið í verði:
Flug, gisting á Royal Marineeöa
Burlington, írskurmorgunveröur
og íslenskfararstjórn.
ISamvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899