Morgunblaðið - 16.08.1981, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. ÁGÚST 1981
7
Umsjónarmaóur Gísli Jónsson
113. þáttur
„Skýtur þetta ekki í stúf
við stefnu Alþýðuflokksins?"
Þessi spurning var einu sinni
lögð opinberlega fyrir Bene-
dikt Gröndal, meðan hann
var formaður flokksins.
Flestir munu hafa skilið
spurninguna svo, sem gert
væri ráð fyrir því að efnið,
sem um var spurt, bryti í
bága við stefnu flokksins.
En hvað er þá að? Hér er á
ferðinni margnefndur sam-
runi. Tveimur orðtökum eða
orðum er blandað saman, og
hafa oft í þessum þáttum
verið tekin hláleg dæmi af
slíku. Nokkurn veginn er
ljóst hvað saman rennur í
upphafsspurningunni. Ann-
ars vegar að stinga í stúf
við, hins vegar að skjóta
skökku við, en það merkir
stundum hið sama. Þegar svo
stendur á, skapast skilyrði
fyrir samruna (contaminat-
ion). Einfalt innskotsdæmi:
Maður er sagður snauðugur.
Orðin snauður og auðugur
hljóma líkt og eru af sama
merkingarsviði, þótt andyrði
séu. Hins vegar veit enginn,
eftir þessar upplýsingar,
hvort maðurinn er ríkur eða
fátækur.
En hvað er þá að stinga í
stúf við eitthvað, og hvernig
verður þetta orðtak til? I
orðabók Menningarsjóðs seg-
ir að orðtakið merki tvennt:
að vera í mótsögn við eitt-
hvað og vera ólíkt einhverju.
Ekki er nema hnífsblað á
milli þessara merkinga. Al-
gengasta merking orðsins
stúfur er talin: „það sem
eftir er, þegar eitthvað er
skorið eða höggvið af, stubb-
ur.“
Ég stilli mig ekki um að
vitna í frábæran stað í Njálu.
Kolskeggur Hámundarson
frá Hlíðarenda hjó fót undan
Kol Egilssyni úr Sandgili, og
er svo sagt frá orðræðum
þeirra í önn bardagans:
Kolskeggur: „Hvort nam
þig eða eigi?“
Kolur: „Þess galt eg nú, að
eg var berskjaldaður," og
stóð nokkra stund á hinn
fótinn og leit á stúfinn.
Kolskeggur: „Eigi þarftu á
að líta, jafnt er sem þér
sýnist, af er fóturinn."
Ekki er þess getið, að
Kolur mælti fleira, enda féll
hann þá dauður niður.
En hvað er að stinga í stúf
í bókstaflegri merkingu? Ég
leita eins og oft áður til
Halldórs prófessors Hall-
dórssonar. Hann segir að
fyrr á öldum hafi þetta
orðtak, eða önnur nauðalík,
merkt annað en nú. Úr orða-
bók Björns Halldórssonar í
Sauðlauksdal hefur hann að
orðasambandið hér stingur í
stúf merki: hér er til einskis
erfiðað, og þessi merking er
einnig gefin í Blöndal. Þá
kemur fram í doktorsverki
Halldórs að gerðin nú sting-
ur í stúf fyrir mér merki: nú
stendur illa á fyrir mér eða
gengur illa fyrir mér. Hall-
dór til færir þýðingarbrot
eftir Jón Þorláksson á Bæg-
isá:
Hér stakk hann í stúf
<>K studdist lotinn.
harðla svipsvartur.
við svignað spjót.
Sú skýring fylgir, að það
kallist stungið í stúf, þegar
„snögglega tekur fyrir ný-
byrjaða ræðu eða hvað ann-
að“. Þá hefur Halldór enn
fundið dæmi þess að orðtakið
merki að breytast snögglega
til hins verra.
Nútímamerkingin, sem
fyrr er greind eftir orðabók
Menningarsjóðs, virðist ekki
komin í orðtakið fyrr en á 19.
öld. í Fjölni er sagt um menn
nokkra að það styngi í stúf
hversu ófimlegri þeir voru og
þunglamalegir í samjöfnuði
við aðra skipsmenn. Dæmi
Blöndalsorðabókar er svo:
„Þessar frjósömu sveitir
stinga mjög í stúf við eyði-
merkurnar í kring."
Niðurstaða prófessors
Halldórs um uppruna orð-
taksins er sú, að i stýri ekki
falli á orðinu stúfur, heldur
standi atviksorðslega. Stúf
er stungið í (eitthvað), sbr.
að stinga við fæti, en það
merkir eiginlega að stinga
fætinum við = á móti ein-
hverju.
Stúfur er ekki bara haft
um það „sem eftir er, þegar
eitthvað er skorið eða höggv-
ið af“, heldur getur það verið
hluti fyrir heild (pars pro
toto), þ.e. fóturinn allur. Við
förum stundum á stúfana,
þótt heilfættir séum, einkum
þegar ákveðinn tilgangur er
með brölti okkar.
Eftir alla þessa þvælu, er
það kannski afsakanlegt, að
menn séu orðnir svo ruglað-
ir, að þeir færu að tala um að
skjóta í stúf, eins og maður-
inn sem spurði Benedikt.
Samt þætti mér þá skjóta
nokkuð skökku við, ef svo
væri mælt, og stinga í stúf
við góða íslensku.
I orðabók Menningarsjóðs
er tilgreind fernskonar
merking í orðinu skafl. Þetta
kemur nákvæmlega heim við
gamla vísu sem rifjuð var
upp fyrir mér á dögunum.
Þar myndar orðið skafl inn-
rím í þessum hringhendu
stikluvikum:
Ilrannar skaflinn herðir smell.
hákarls skaflinn bítur.
hesthófs skaflinn hruflar svell.
hengjuskaflinn niður féll.
Skafl hrannar er faldur
öldunnar, skafl hákarlsins
tönn hans, hesthófs skafl er
broddur á skeifu (skafla-
skeifu) sem járnað var með í
hálku, og hengju skafl er
náttúrlega snjóskafl sem
hangir eða myndar hengju.
Þórir Áskelsson á Akur-
eyri minntist á sögnina að
skimpa. Ég þekkti hana ekki
beinlínis, en ályktaði af
nafnorðinu skimpingar að
hún þýddi að fara með spott
og spé eða hafa í háði. Það er
rétt. Einnig er sagt að
skimpast að einhverjum, og
sá sem það gerir, er skimp-
inn. Mér þykir reynar freist-
andi að skimpast að eftirfar-
andi máli:
„... að málið hefði gengið
alltof hægt fyrir sig, hefði
reyndar lítt þokast á þessu
liðlega ári, frá því að stofn-
unin opnaði málið.“
(Bréf Páls IV,2).
Ekki er að margfrægum
stofnunum að spyrja. Þær
bjaga ekki aðeins málið,
heldur opna þær málið líka.
Ef þær lokuðu málinu aftur,
mætti kannski sættast á þau
málalok. Fátt er svo illt að
einugi dugi.
GENGI VERÐBREFA 16. ÁGÚST 1981
VERÐTRYGGD VERÐTRYGGÐ
SPARISKÍRTEINI HAPPDRÆTTISLÁN
RÍKISSJÓÐS: Prak“ RÍKISSJÓÐS
1969 1. flokkur 6.944.05 Kaupgengi
1970 1. flokkur 6.464.28 pr. kr. 100.-
1970 2. flokkur 4.729,94 A — 1972 2.297.12
1971 1. flokkur '4.251,74 B — 1973 1.891,86
1972 1. flokkur 3.689.51 C — 1973 1 616,54
1972 2. flokkur 3.138,84 D — 1974 1.377.08
1973 1. flokkur A 2.328,83 E — 1974 948,23
1973 2. flokkur 2.145,42 F — 1974 948.23
1974 1. flokkur 1.480.88 G — 1975 635.07
1975 1. flokkur 1.211,98 H — 1976 607.07
1975 2. flokkur 912,82 I — 1976 464.84
1976 1. flokkur 864,73 J — 1977 433.93
1976 2. flokkur 698,99 Ofanskróö gengi er m.v. 4% ávöxtun
1977 1. flokkur 649,17 p.á. umfram verötryggingu auk vinn-
1977 2. flokkur 543,75 ingsvonar. Happdrættisbréfin eru gef-
1978 1. flokkur 443,16 in út á handhafa.
1978 2. flokkur 349,75 HLUTABRÉF
1979 1. flokkur 295,76
1979 2. flokkur 229,47 Eimskipafélag Kauptilboö
1980 1. flokkur 177,74 Islands óskast
1980 2. 140,18 Tollvöru- Kauptilboö
198T 1. flokkur 123.35 geymslan hf. óskast
Meöalávöxtun spariskírteina umfram verö- Skeljungur hf. Sölutilboö oskast
tryqqinqu er 3,25—6%. Fjarfestingarf. Solutilboö
Islands hf. óskast.
VEÐSKULDABRÉF VEÐSKULDABRÉF
MEÐ LÁNSKJARAVÍSITÖLU: ÓVERÐTRYGGO:
Kaupgengi m.v. nafnvexti Ávöxtun Kaupgengi m.v. nafnvexti
2Va % (HLV) umfram (HLV)
1 afb./ári 2 afb./ári verötr. 12% 14% 16% 18% 20% 40%
1 ár 97,62 98,23 5% 1 ár 68 69 70 72 73 86
2 ár 96.49 97,10 5% 2 ár 57 59 60 62 63 80
3 ár 95.39 96,00 5% 3 ár 49 51 53 54 56 76
4 ár 94,32 94.94 5% 4 ár 43 45 47 49 51 72
5 ár 92,04 92.75 5'/i% 5 ár 38 40 42 44 46 69
6 ár 89.47 90.28 6%
7 ár 86.68 87.57 6Vi%
8 ár 83.70 84.67 7%
9 ár 80,58 81.63 7V,% TÓKUM OFANSKRAÐ VERÐ-
10 ár 15 ár 77,38 78,48 69.47 70.53 8% 8V«% BRÉF í UMBOÐSSÖLU
nátfuniKflRrtiM íaaadj hp.
VERÐBRÉFAMARKAÐUR, LÆKJARGÖTU 12 R.
Iðnaðarbankahúsinu. Sími 28566.
Opiö alla virka daga frá kl. 9.30— 16.
Önnumst kaup og sölu allr almennra veöskuldabréfa
og ennfremur vöruvíxla. Getum ávallt bætt viö
kaupendum á viðskiptaskrá okkar.
Góð þjónusta. — Reynið viðskiptin.
Vcnllircfa-
A\arlia<luriiiii
Urkjatomi “ 12222
„Sesselon“
Falleg og vönduð vara.
Verð kr. 3.950,-
Takmarkaðar birgðir.
SENDUM GEGN PÓSTKRÖFU
ARMULI 4 SIMI82275