Morgunblaðið - 16.08.1981, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. ÁGÚST 1981
27
Bergur Ólafsson og litlu stelpurn-
ar, Vala litla og Agla Marta,
þökkum allar góðu samverustund-
irnar, sem við nutum með henni.
Nú, þar sem ég veit að hún
Marta er búin að finna friðinn og
komin þangað, sem hún þráði
allra mest síðustu dagana, óska ég
henni guðs blessunar, og það
kemur að því að við hittumst öll
aftur og tökum gleði okkar saman
á ný.
Valgerður Gunnarsdóttir
+
Þökkum auðsýnda samúö við andlát og útför fööur okkar,
tengdafööur, afa og langafa,
JÓHANNS GUÐJÓNSSONAR,
Uppsölum, Eskifiröi,
Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum inniiega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför
móöur okkar
JÓNÍNU KRISTÍNAR JÓHANNSDÓTTUR
Krókatúni 1, Akranesi.
Börnin.
Mikill söknuður ríkir í huga
mínum og fjölskyldu minnar, því
hún Marta frænka, eins og við
kölluðum hana, er ekki lengur á
meðal okkar. Þegar ég hugsa til
æskuára minna, kemur afasystir
mín ávallt upp í huga mínum.
Marta frænka bjó í sama húsi og
við, borðaði með okkur, las fyrir
okkur sögur, kenndi okkur og
flutti með okkur kvöldbænirnar,
hjálpaði okkur við heimavinnuna.
Hún tók fullan þátt í líflegu
fjölskyldulífinu, en fjölskylda mín
var stór, foreldrar mínir, 6 börn
og Marta frænka. Ég efast ekki
um að Marta létti móður minni
mikið, með aðstoð sinni við allan
þennan barnahóp.
Marta var „amman" á heimil-
inu, þó við nefndum hana ekki svo.
Hún átti sína litlu, hlýlegu íbúð
uppi á lofti og ekki voru ófáar
ferðir okkar systkinanna upp til
hennar til að spjalla. Börn okkar
systkinanna voru fljót að átta sig
á því, að notalegt var að líta til
Mörtu, og komu þau varla í
heimsókn til afa og ömmu, að þau
brugðu sér ekki smástund upp til
hennar Mörtu frænku. Hún hafði
ávallt tíma til að tala við okkur.
Hún var sérlega félagslynd konar,
glaðvær og hafði mikinn áhuga á
tónlist. Píanóið hennar var mikið
notað hér fyrr á árum, og söng
rödd hennar var sérlega fögur.
Marta kenndi okkur börnunum
mörg gömul og falleg lög. Þá hafði
hún yndi af að fræða okkur um
ætt okkar og forfeður, og lærðum
við fljótt að meta gamla tímann.
Var oft kátt á hjalla heima hjá
okkur, því Marta hafði fjörlega og
skemmtilega frásagnargleði. Með-
an hún var hress, las hún mikið,
og tók því virkan þátt í umræðum
um daginn og veginn. Þótti mér,
eiginmanni mínum og börnum,
sérstaklega gaman að fá hana í
heimsókn, því eins og börnin
sögðu: „Hún Marta hefur frá svo
miklu að segja." Hún var í miklu
uppáhaldi hjá okkur.
Marta Ingibjörg Ólafsdóttir
fæddist 2. október 1895 að Hlöðu-
túni, Stafholtstungum. Hún var
dóttir hjónanna Valgerðar Ein-
arsdóttur og Ólafs Jónssonar,
lögregluþjóns í Reykjavík. Aðeins
18 ára gömul missti hún móður
sína, og tók þá við heimilishaldinu
fyrir föður sinn. Hún hugsaði
alúölega um hann þar til hann lést
háaldraður. Einnig stóð heimili
hennar opið fyrir móður minni,
sem var bróðurdóttir hennar, Val-
gerði Stefánsdóttur. Hún dvaldi
hjá henni langtímum saman, þá
sérstaklega á vetrum. Eftir að
langafi lést, fluttu foreldrar mín-
ir, Valgerður og Gunnar Ásgeirs-
son, í Garðastræti 25, þar sem
Marta bjó, og bjuggum við í því
húsi með Mörtu, þar til við
fluttumst í stærra húsnæði á
Starhaga 16. Þangað flutti Marta
frænka líka með okkur.
Marta vann um langt árabil í
bókaverzlunum. Fyrst í Eimreið-
inni og síðan í Bókabúð Æskunn-
ar. Ég man að hún las all flestar
bækur sem komu út á íslandi, „til
að geta betur frætt viðskiptavin-
inn um það sem á boðstólum var“,
var hún vön að segja. Óneitanlega
koma ótal margar hlýjar hugsanir
upp íhuga mínum, þegar ég nú
kveð frænku mína, en hún hefði
orðið 86 ára í haust. Hún bar
hlýjan hug til okkar allra. For-
eldrar mínir og systkinin 6 eigum
svo margar skemmtilegar minn-
ingar, þar sem hún er með. Ég,
persónulega, á henni margt að
þakka í gegnum árin. Allar þessar
minningar mun ég geyma. Hvíl í
friði.
Wrhildur Marta Gunnarsdóttir
+
Þökkum ínnilega auösýnda samúö viö andlát og útför sonar okkar
ÞORSTEINS G. INGOLFSSONAR
Þórufelli 14.
Ingólfur Arnar Jónaaon, Elín Þorateinadóttir.
+
Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför
fööur okkar
SIGURDAR EYJÓLFSSONAR
Fálkagötu 34.
Fyrir hönd systkina okkar og annarra vandamanna.
Gylfi K. Sigurösson,
Sigþór B. Sigurðsson.
+
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og
útför eiginkonu minnar og móöur okkar
HELGU KÁRADÓTTUR
Kaplaskjólsvegi 27.
Jón Sigurjónsson og börn.
+
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og hlýhug viö andlát móöur
minnar, fósturmóöur, tengdamóöur og ömmu,
RAGNHILDAR ÁSGEIRSDÓTTUR,
Sólvallagötu 51,
Ragnhildur Pála Ófeigsdóttir, Salóme Ósk Eggertsdóttir,
Vilhjálmur Egilsson, Hjalti Guðmundsson,
Anna Katrín Vilhjálmsdóttír, Ingibjörg Hjaltadóttír,
Bjarni Jóhann Vilhjálmsson, Ragnhildur Hjaltadóttir.
KARNABÆR
LAUGAVEGI 66 SÍMI 25999