Morgunblaðið - 10.02.1984, Page 1
72 SÍÐUR
STOFNAÐ 1913
33. tbl. 71. árg.____________________________________FÖSTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1984 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Herstjórnin í Nicaragua:
Managua, 9. febrúar. AP.
KJÖRNEFND ríkisráðsins í Nicar-
agua hefur lagt fram frumvarp að
kosningalögum, sem felur í sér að
flokkar stjórnarandstæöinga fá að-
gang að ríkisfjölmiðlum og fjárveit-
ingar frá ríkinu til kosningabaráttu.
Carlos Nunes, forseti ríkisráðs-
Tilræði
í Aþenu
Aþenu, 9.febrúar. AP.
ÁÐUR óþekktur hópur öfga-
manna, sem segjast vera foringjar
í griska flughernum, sagðist í dag
hafa staðið fyrir fjórum spreng-
ingum í Aþenu í nótt. Tveir slös-
uðust.
Hópurinn krefst þess að yfir-
maður flughersins, Nicos Kour-
is hershöfðingi, segi af sér og
segir að að öðrum kosti verði
einnig unnin spellvirki á flug-
vélum.
Blaðsöluturn við eina af aðal-
götum Aþenu eyðilagðist í einni
sprengingunni og skemmdir
urðu á þremur nálægum síma-
klefum. Lögreglan telur að
sprengiefninu hafi verið stolið
frá heraflanum.
ins, segir að þessar tillögur séu
einn þáttur í þeirri byltingu sem
stendur yfir í landinu.
Umræður um tillöguna eiga að
fara fram í ríkisráðinu einhvern
tímann á næstu tveimur vikum.
Ráðið fer með hlutverk löggjafar-
þings í landinu.
Stjórnarandstæðingar hafa hót-
að því að leiða kosningarnar, sem
fyrirhugaðar eru árið 1985, hjá sér
ef hin vinstri sinnaða stjórn sand-
inista fellst ekki á að eiga viðræð-
ur við þá um umbætur í stjórnmál-
um landsins.
Stjórnarandstæðingar, fjórir
stjórnmálaflokkar, samtök kaup-
sýslumanna og nokkur verkalýðs-
félög hafa stofnað með sér Sam-
einaða lýðræðisráðið og gera kröf-
ur um að ritskoðun verði aflétt,
útifundir og aðrir fundir verði
leyfðir, lög um neyðarástand verði
afnumin og alþjóðlegt eftirlit verði
með hinum fyrirhuguðu kosning-
um til að hindra misferli yfirvalda.
Tilkynning ríkisráðsins í dag er
fyrsta svar herforingjastjórnar-
innar í Nicaragua við kröfum
stjórnarandstöðunnar. Ríkisráðið
er skipað herforingjum úr flokki
sandinista sem fara með hin
raunverulegu völd í landinu.
Hlaupið í skjól í Beirút. Tveir hermenn úr liði kristinna falangista hraða sér
í öruggt vígi til að verða ekki fyrir byssukúlum stjórnarhermanna og shíta
sem skiptust á skotum í nágrenninu.
Caspar Weinberger, varnarmálaráðherra Bandarfkjanna:
„Við erum ekki að
yfirgefa Líbanon“
Beirút, London, Tel Aviv, Wuhinfton, 9. feb. AP.
HERMENN drúsa og shíta héldu
áfram bardögum við stjórnarherinn
Sveinbarní Malaysíu fæðist með rófu
Þessi myndarlegi litli sveinn, sem er malayískur og heitir Zulkarnaini
Zulkifli, fæddist í Kuala Lumpur 27. desember sl. með þriggja þumlunga
rófu á afturendanum, en slík vansköpun er mjög sjaldgæf. Móðir piltsins,
sem er 17 ára gömul og heitir Maziah, telur að rófan sé fyrirboði um
merkilega framtíð barnsins.
á mörkum austur- og vesturhluta
Beirút í morgun, en þeim var hætt
síðar um daginn að hvatningu
Nabih Berni, leiðtoga shíta. Ut-
varpsstöðvar í borginni sögðu hins
vegar að drúsar hefðu haldið áfram
átökum við kristna falangista, og
síðdegis í gær staðfesti talsmaður
Bandaríkjahers að skotið hefði ver-
ið á fallbyssuhreiður drúsa í fjöll-
unum fyrir ofan Beirút úr bandar-
íska herskipinu Moosburger. Kvað
hann það gert í hefndarskyni fyrir
árásir á flóttamannabúðir í austur-
hluta borgarinnar. Þessar aðgerðir
hafa verið mjög gagnrýndar meðal
andstæðinga Reagans forseta í
Bandaríkjunum.
Fjöldi erlendra borgara hefur
farið frá Beirút undanfarna
daga, og sendiráð í borginni hafa
áætlanir á prjónunum um aðstoð
ef til frekari flutninga þarf að
koma.
„Við erum ekki að yfirgefa Líb-
anon,“ sagði Caspar Weinberger
varnarmálaráðherra Bandaríkj-
anna á fundi með utanríkisnefnd
fulltrúadeildar Bandaríkjaþings
í dag. Kvað hann fyrirætlanir
Bandaríkjamanna í Líbanon i
engu hafa breyst þrátt fyrir
tímabundinn brottflutning hluta
friðargæslusveita Bandaríkja-
manna í skip úti fyrir strönd
landsins. Bandaríska sendiráðið í
Beirút gaf jafnframt út fréttatil-
kynningu þar sem sagði að það
breytti engu um stefnu Banda-
ríkjastjórnar þótt múhameðstrú-
armenn hefðu vesturborgina á
valdi sínu, en sendiráðið hefur
haft skrifstofur sínar þar.
Framtíð Gemayels forseta Líb-
anons er nú í mikilli óvissu, og
hafa fréttaskýrendur jafnvel tal-
ið að hann eigi ekki eftir nema
mánuð í embætti þar sem ljóst sé
orðið að honum hafi mistekist að
koma á þjóðarsáttum í landinu.
E1 Salvador:
Skæruliðar felldu
29 stjórnarhermenn
San Salvador, 9. feb. AP.
SKÆRULIÐAR vinstri manna
felldu a.m.k. 29 hermenn stjórnar-
innar f E1 Salvador í hörðum átök-
um í norðausturhluta landsins í
gær. Fregnir hafa borist um mann-
fall f röðum óbreyttra borgara, en
ekki er nánar vitað um það.
Talsmaður stjórnarhersins
sagði að skæruliðar hefðu tekið
mennina af lífi með því að skjóta
í höfuð þeirra eftir að þeir gáfust
upp. Fréttamenn sem fóru um
átakasvæðið eftir bardagann
sögðu að aðeins sex hinna 29 virt-
ust hafa verið skotnir f höfuðið.
Jafnframt höfðu þeir eftir íbúa í
La Libertad-héraði, þar sem
átökin áttu sér stað, að sumir
hermannanna, en ekki allir,
hefðu verið leiddir fyrir aftöku-
sveit og skotnir.
Að sögn fréttamannanna féll
einn úr hópi skæruliða í bardag-
anum.
Lofar að virða
stjómarandstöðu