Morgunblaðið - 10.02.1984, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1984
5
eru í dag
og á morgun
gerðarmanna
FIMM tíma löngum samningafundi
í kjaradeilu Félags bókagerðar-
manna og Félags prentiðnaðarins
hjá ríkissáttasemjara lauk um hálf-
sjöleytið í fyrrakvöld.
Fundurinn var árangurslítill en
til nýs fundar hefur verið boðað á
mánudaginn kemur klukkan 15.00.
Leiðrétting
í RÆÐU Björns Bjarnasonar,
ÍGrrr.ar.n; Samtaka um vestræna
samvinnu, sem birtist nór í b’?ð-
inu í gær, voru nokkrar prentvill-
ur og skulu tvær þær meinlegustu
leiðréttar.
Upphaf 4. málsgreinar átti að
vera á þennan veg:
„Undanfarin misseri hefur verið
sótt að varnarsamstarfinu innan
Atlantshafsbandalagsins með
margvíslegum hætti, bæði í ein-
stökum aðildarríkjum og af öflum
utan bandalagsins."
Niðurlag 7. málsgreinar átti að
vera þannig:
„Við þurfum að fylgjast vel með
öllum þessum hræringum, ekki
síst þeim sem eiga sér stað innan
kirkjunnar og í skólunum — helg-
ustu véum frelsisins."
Ólafur Ragnar gerir Hannesi tilboð:
Búðanes GK
Árangurslaus
fundur í kjara-
deilu bóka-
og
hefur ekki efni
■ aö láta hana
fram hjá þér fara.
Beitum okkur fyrir
að fá Friedman og
Henry til landsins
Getum athugað með kappræöur eftir fund þeirra
„ÞAÐ ER mikil nauðsyn á því að
efla hér umræðu um þessar tölfræði-
legu falsanir sem Friedman er borið
á brýn og gera það á vitrænan og
skilmerkilegan hátt. Þess vegna geri
ég það formlega tilboð til Hannesar
að við beitum okkur að því að Mil-
ton Friedman og prófessor David
Henry verði boðið til landsins til að
fjalla um þessi mál. Við getum (
framhaldi af því athugað um kapp-
ræðufund okkar á milli,“ sagði Ólaf-
ur Ragnar Grímsson, er hann var
spurður hvort hann hefði gert upp
hug sinn varðandi áskorun Hannes-
ar Hólmsteins Gissurarsonar um
kappræðufund þeirra í milli um
kenningar Miltons Friedman.
Ólafur Ragnar sagði ennfremur:
„Hannes hefur nú svo góð sam-
bönd við Friedman, að hann ætti
að geta komið því í kring að bjóða
honum, og ég er reiðubúinn að
taka að mér að stuðla að því að
Henry verði boðið. Seðlabankinn
101 að ólögleg-
um veiðum
VÉLBÁTURINN Búðanes GK 101
var staðinn að ólöglegum veiðum í
gær, rétt austan Þjórsárósa, sam-
kvæmt upplýsingum sem Mbl. fékk
hjá Landhelgisgæslunni í gær.
Búðanesið var að veiðum um 2,5
sjómílur frá landi, og var því hálfa
sjómílu innan við fiskveiðimörkin,
en báturinn var að toga þegar
komið var að honum. Það var
flugvél Landhelgisgæslunnar,
TF-SYN, sem stóð bátinn að veið-
unum.
Reynt var að kalla bátinn upp,
en ekki tókst starfsmönnum gæsl-
unnar að ná sambandi við hann,
þar sem kalli var ekki svarað.
Málflutningur í málinu hófst í
Keflavík í gær og er málið nú til
skoðunar hjá ríkissaksóknara, er
líkur eru taldar á því, að ákæra
verði gefin út í dag. Dómsformað-
ur er Guðmundur Kristjánsson,
aðalfulltrúi bæjarfógetans í
Keflavík.
Síöustu
vetrarútsölunnar
væri til dæmis kjörinn aðili eða
viðskiptafræðideild háskólans til
að standa að þessum fundi, því
grein Henrys var gefin út af
Englandsbanka og Friedman hef-
ur kennt við hagfræðideildir. Þar
með verður Milton Friedman gefið
tækifæri til að svara fyrir sig.
Þetta finnst mér eðlilegt fyrsta
skref, áður en við förum að flytja
þetta inn á kappræðustig. Hvorug-
ur okkar er sérstakur fræðimaður
á þessu sviði, þó Hannes sé nú vit-
maður mikill og hafi verið boðið
að sitja og drekka te á kennara-
stofu í Oxford."
Búðanesið á togi skammt austan Þjórsárósa er þaó var staðió að ólöglegum
Yeidum. Morgunblaðiö/ Tómas Helgason
Lítill drengur
Jeitar lækninga
í BOSTON er lítill drengur frá
Akureyri þeirra erinda að leita
lækninga við slæmum nýrna-
sjúkdómi.
Þessi ferð og vera foreldr-
anna þar vestra frá því haustið
1983 og til vors 1984 er afar
kostnaðarsöm t.d. var flogið
með fólkið í sérstakri flugvél
frá Akureyri til Boston.
Þar sem barnið er af Vopn-
firskum ættum finnst okkur
eðlilegt að reyna að létta undir
ef hægt væri og höfum því
opnað gíróreikning no. 77370-0
vegna þessa.
Við vonumst svo sannarlega
til að sem allra flestir ljái
þessu lið og þökkum fyrirfram
fyrir þátttökuna.
F.h. Vopnfirðingafélagsins í
Reykjavík,
Anton Nikulásson, formaður.