Morgunblaðið - 10.02.1984, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1984
Bandaríski kyikmyndaleikstjórinn John Waters:
„Til að skilja slæman
smekk verður maður
að hafa góðan smekk“
í skemmtilegri sjálfsævi-
sögu, Shock Valu, segir hinn
óhugnanlega frumlegi kvik-
myndagerðarmaður John
Waters, að hann hafi átt sér
þann æskudraum „að gera
mestu óþverramyndir í sögu
kvikmyndanna“. Að margra
dómi hefur honum tekist
það, og fyrir nokkrum árum
skrifaði kunnur gagnrýnandi:
„Ef þú sérð nafnið John Wat-
ers skaltu taka fyrir nefið og
forða þér.“
John Waters þessi er nú stadd-
ur hér á landi í tilefni af því að
þrjár mynda hans, Bleikir flam-
ingófuglar, Kvennaklandur og Ör-
væntingarlíf, eru meðal mynda á
VI. kvikmyndahátíð Listahátíðar,
sem haldin er í Regnboganum.
Misjafnt orðspor fer af leikstjór-
anum John Waters; fólk um heim
allan ýmist elskar myndir hans
eða hreinlega hatar; og því er
ekki úr vegi að ræða við kappann.
Blaðamaður Morgunblaðsins
hafði samband við John og féllst
hann fúslega á viðtal.
Sjúklegar myndir
Ég byrja á því að segja John að
myndir hans séu harla óvenju-
legar. Hann kinkar kolli, bros-
andi, segist vita það. En ég bið
hann að skilgreina myndir sínar
á sem einfaldastan hátt.
„Myndir mínar eru amerískar
kómedíur, sem fja.Ua um ófyndna
hluti, hluti sem eru hættulegir í
veruleikanum. Ég reyni að fá fólk
til að hlæja, helst að öllu, og best
er ef mér tekst að hneyksla ein-
hverja."
Féllstu á að kalla myndir þínar
„óþverra, óeðlilegar"?
„Er lífið ekki óþverri? Blessað-
ur vertu, þú mátt kalla þær hvað
sem er. Myndir mínar hafa verið
nefndar öllum nöfnum; ég er tal-
inn óeðlilegur fyrir að sýna eðli-
lega og óeðlilega hluti úr lífinu.
En var þá Hitchcock ekki eitt-
hvað skrýtinn líka? Hann gerði
ýmislegt sniðugt."
John Waters byrjaði að fikta
við 8 millimetra myndavél í
æsku. Þá keypti hann sér 16
millimetra vél, og á árunum 1964
til 1970 gerði hann myndirnar
Hag in a Biack Leather Jacket,
Roman Candles, Eat Your Makeup,
Mondo Trasho og Multiple Mani-
aca. Myndirnar voru teknar í átt-
högum hans í Baltimore og vinir
og kunningjar léku öll hlutverkin.
Faðir hans lánaði honum pen-
inga, en tók loforð af honum að
segja engum. John er sjálfmennt-
aður kvikmyndagerðarmaður,
hann hefur lítið gengið í skóla
nema skóla lífsins. (Að vísu leit
hann við inn í New York-háskól-
ann, en hann var rekinn eftir þrjá
mánuði fyrir fíkniefnaneyslu.)
John fann upp allnýstárlega
aðferð til að sýna mynd sína
Mondo Trasho. Hann gat ekki
sýnt hana í bíói, svo hann samdi
við presta og fékk að sýna hana í
kirkju. Það gekk svo vel að John
fékk inn fyrir kostnaði við mynd-
ina og vel það.
Næsta skref var Bleiku flam-
ingófuglarnir. Hann bað New
Line-fyrirtækið í New York að
dreifa myndinni. Forráðamenn
fyrirtækisins hikuðu í heilt ár.
John var peningalaus, en samdi
við einn bíóeigandann um að fá
að sýna myndina eitt kvöld. Um
100 manns borguðu sig inn. Hún
var sýnd aftur daginn eftir, 200
manns, og þannig koll af kolli.
Myndin var sýnd víða um Banda-
ríkin næstu tvö árin.
New York Magazine líkti
myndinni við „Andalúsíuhund"
Luis Bunuels og tímarit Andy
Warhols sagði hana „eina sjúk-
legustu mynd, sem gerð hefur
verið og eina þá fyndnustu".
Lokaatriðið, þegar aðalleikarinn
Divine étur hundaskit, naut
mestrar hylli, þó menn séu ekki á
eitt sáttir um gildi þess.
Loks hafði John næga peninga
til að fjármagna aðra stóru
kvikmynd sína, sem var Female
Trouble (Kvennaklandur). Mynd-
in segir sögu konu frá unglings-
árum þar til hún lendir í raf-
magnsstólnum.
Micahel White, sá sem gerði
„Rocky Horror Picture Show“,
lánaði John peninga fyrir þriðju
myndinni, Desperate Living (Ör-
væntingarlíf). í henni kynnti
John nýja stjörnu: Jean Hill, 200
kílóa blökkukonu. Myndin gerist í
Mortville, afdrepi fyrir misind-
ismenn sem stjórnað er af Carl-
ottu drottningu. í lokin er bylting
gerð og drottningin er grilluð
með epli í munhi og étin.
„Þessa gömlu góðu daga get ég
ekki endurlifað," segir John Wat-
ers. „Þá var gaman að lifa, skal
ég segja þér.“
Divine; „hann
er guðdómlegur“
Segðu mér eitthvað um Divine.
„Divine er 150 kílóa kynskipt-
ingur. Hann hét Glenn Milstead,
og við ólumst upp í sömu götu.
Raunar er hann ekki kynskipt-
ingur, hann klæðist bara kven-
mannsfötum ef vel er borgað, en
ætli hann sé ekki fegursta kona í
heimi. Hann er óttalega feiminn,
Hinn umdeildi kvikmyndaleikstjóri
John Waters.
alls ekki týpan sem hann leikur í
myndunum. Feiminn og frekar
vinafár. En hann er helvíti fynd-
inn. En nú er hann orðinn
rokkstjarna, hefur átt lög á
topplistanum og er farinn að
græða reiðinnar býsn af pening-
um. Svo hefur hann fengið sér
umboðsmann; skrýtið að semja
við og vinna með vini þegar pen-
ingar eru í spilinu. En það er auð-
velt að leikstýra honum."
í viðtali erlendis varstu spurð-
ur hvernig þér hefði tekist að fá
heilnæman mann eins og Tab
Hunter (lék í Polyester ásamt Di-
vine); þú sagðist hafa verið hepp-
inn að Tab hafði ekki sé neina
mynd eftir þig, annars ...
„Tab Hunter er hress náungi.
Ég hringdi í hann og bauð honum
hlutverk. Hann vildi lesa hand-
ritið og það var í góðu lagi, en ég
Fátækt fólk
Leiklist
Bolli Gústavsson í Laufási
Leikfélag Öngulsstaðahrepps
og Ungmennafélagiö Árroðinn.
Tobacco Road
eftir Erskine Caldwell
í íslenskri þýðingu
Jökuls Jakobssonar.
Leikstjóri:
Hjalti Rögnvaldsson.
Honum til aðstoðar:
Ágústína Haraldsdóttir.
Nokkuð hefur verið að því fund-
ið, að ekki gæti fjölbreytni í verk-
efnavali hjá því áhugasama fólki
úti um dreifðar byggðir landsins,
sem notar frÍ3tundir á vetrum, til
þess að setja á svið leikrit. Flest
skilar þetta fólk fullum vinnudegi,
áður en það kemur saman til leik-
æfinga, sem standa þá ósjaldan
fram á nótt. Því hefur þótt nauð-
synlegt að velja viðráðanleg verk,
helst létt og fyndin, svo áheyrend-
ur geti skemmt sér og hlegið, og
eigi þá að gera litlar kröfur fram
yfir það. Sem dæmi um viðfangs-
efni má nefna Spanskfluguna,
Hreppstjórann á Hraunhamri og
Leynimel 13, sem hafa um langt
skeið gengið á milli hreppa og vak-
ið kæti, enda til þess fallin fyrst
og fremst. Raunar er það ekkert
áhyggjuefni, þótt ennþá verði
gripið til þessara verka og ýmissa
annarra, sem ekki rista dýpra.
Ólíkt er þeim tómstundum betur
varið, sem notaðar eru tii undir-
búnings og sýninga þessara skop-
leikja, heldur en hinum, er líða í
algjöru aðgerðaleysi fyrir framan
sjónvarpið, sem mallar misjafnan
graut og matar unga og aldna
kvöld eftir kvöld.
En óneitanlega hlýtur það að
vekja meiri eftirvæntingu, þegar
fyrrgreint fólk ræðst á garðinn
þar sem hann er hærri og velur
vandasamari leikrit til sýninga í
félagsheimilinu eða skólahúsinu.
Á undanförnum árum hefur
gróska verið allmikil í leikstarf-
semi „frammí firði" eins og við
hér fyrir norðan nefnum gjarnan
byggðarlögin inn frá botni Eyja-
fjarðar. Á það ekki síst við um tvö
félög í Öngulsstaðahreppi, Leikfé-
lagið og Ungmennafélagið Árroð-
ann. Hafa þau í sameiningu unnið
að sýningum vandasamra leik-
bókmennta. í fyrravetur sýndu
þau Hitabylgju og nú í vetur setja
þau á svið Tobacco Road eftir
Erskine Caldwell.
Þær mannlífsmyndir, sem
dregnar eru upp í verkinu, eru eins
fjarlægar blómlegum hag ey-
firskra bænda og hugsast getur.
Lester-fjölskyldan á sér enga
hliðstæðu á Staðarbyggðinni.
Leiguliðarnir, sem Caldwell fjall-
ar um í kunnustu verkum sínum,
Tobacco Road (frá 1932) og Dag-
sláttu Drottins (frá 1933), eru
botnfall bandarískrar þjóðar,
hvítir fátæklingar í Suðurríkjun-
um, sem eru á lægra efnahags- og
menningarstigi en svertingjarnir,
sem þeir fyrirlíta. Sterkum drátt-
um dregur hann upp myndir af
tímanlegri og andlegri fátækt
þessa þjóðfélagshóps. Um líkt
leyti og fyrrgreind verk Caldwells
komu út, sagði Roosevelt, að al-
gjör menntunarskortur og dýrs-
legir lifnaðarhættir þessa vesæla
fólks væri mesta vandamál þjóð-
arinnar. í átakanlegum frásögn-
um með ívafi grófrar gamansemi
birtir Caldwell samfélagslega
hrörnun og dýrslega kynhegðun.
Þeim sem kynnast sögu hans um
Tóbaksveginn hlýtur að renna til
rifja dapurleg og algjör afsiðun
Lester-fjölskyldunnar, sem skríð-
ur í skarninu og getur varla sinnt
frumþörfum sínum. Á það hefur
verið bent, að í Tobacco Road
Caldwells og Þrúgum reiðinnar
eftir Steinbeck sé bíllinn aðalper-
sónan. Hann hafi verið mestur
byltingarvaldur í Bandaríkjunum
þá, tákn voldugrar vélvæðingar,
sem boðaði ótvíræðar framfarir,
en kom eigi að síður æðimörgum
leiguliðum og smábændum á kald-
an klaka um sinn. Sú staðreynd
fer ekki fram hjá þeim, sem sjá
Tobacco Road í Freyvangi, en
Hjalta Rögnvaldssyni, leikstjóra,
tekst vel að koma öllu til skila,
sem máli skiptir. í þessu tilviki
hlýtur það að vera viðkvæmast og
vandasamast fyrir leikstjóra, sem
hefur hvorki lærðum eða vönum
leikurum á að skipa, að þræða
mörkin milli ömurleika og gam-
ansemi. Það er freistandi fyrir
óvana leikara að vekja kátínu
meðal áhorfenda og ganga á það
lagið með sterkum viðbrögðum.
Hjalta hefur tekist ótrúlega vel að
forða því. Það auðveldar honum að
halda réttu horfi til enda, að einn
leikendanna hefur svo örgg tök á
hlutverki sínu, að sú frammistaða
væri samboðin kröfuhörðustu at-
vinnuleikhúsum. Emilía Baldurs-
dóttir, sem leikur ödu Lester hús-
freyju og móður sautján barna,
býr yfir frábærum innlifunar-
hæfileikum og mótar hlutverk sitt
af hárréttum skilningi, svo traust-
ur leikur hennar magnar sýning-
una, gefur henni sannferðugan
blæ þess fjarlæga ömurleika og
vonleysis kreppukjara leigulið-
anna í Suðurríkjunum forðum.
Jónsteinn Aðalsteinsson leikur
mann Ödu, Jeeter Lester. Þótt
hann skorti nokkuð á að geta tjáð
öldurmannleg þyngsl þessa
brotna, sauðþráa öreiga, þá er
hlutur hans allgóður. Aðrir leik-
endur leggja sig fram og er ástæða
til að nefna leik Sigríðar Krist-
jánsdóttur í hlutverki Elly May,
ungrar dóttur Lester-hjónanna,
sem hrjáð er af andlitslýti og
málhelti. Tekst henni vel að tjá
niðurlægingu og þjáningu oln-
bogabarnsins. Jóhanna Valgeirs-
dóttir er hressileg í hlutverki syst-
ur Bessi Rice og Ingólfur Jó-
hannsson og Stefán Guðlaugsson
fara báðir með allstór hlutverk og
komast vel frá þeim. Svo er og um
þá, sem leika minni hlutverk.
Sviðsmynd er vel við hæfi og hafa
þar margir lagt hönd að verki.
Leikfélag Öngulsstaðahrepps og
Ungmennafélagið Árroðinn hafa
sýnt þakkarvert áræði og staðist
eldraunina. Leikstjórinn hefur
sett sig vel inn í aðstæður, senni-
lega aldrei gleymt þvi, að hann
var að vinna með áhugafólki.
Koma mér þá í huga ummæli Jó-
hanns Ögmundssonar, þess gam-
alreynda leikstjóra á Akureyri,
sem sett hefur fjölmörg leikrit á
svið víðsvegar um landið. Hann
segir í endurminningum sínum, að
„leikstjóri megi aldrei gleyma því,
þegar hann vinnur með áhuga-
fólki, hve mikið það leggur á sig
við leiklistina, fyrir utan fulla
vinnu. Fólkið kemur oft þreytt á
æfingarnar, vinnur fram á nótt og
þarf í vinnu snemma næsta morg-
un. Þeir, sem setja sig á háan hest
gagnvart þessu fólki og skilja ekki
aðstöðu þess, eru búnir að tapa.“
Af samstilltri og vandaðri sýn-
ingu á Tobacco Road í Önguls-
staðahreppi má ljóst vera, að eng-
inn, sem þar leggur hönd að verki,
hefur tapað. En þeir, sem eiga
þess kost að sjá þessa sýningu og
láta hana eigi að síður fram hjá
sér fara, tapa óneitanlega góðu
tækifæri að njóta minnisstæðrar
leikhússferðar.