Morgunblaðið - 10.02.1984, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1984
17
Kirkjubæjarklaustur:
Dvalarheimili aldr-
aðra tekið í notkun
Kirkjubæjarklauslri. 7. febrúar.
í JANIIAR sl. var sett á stofn dval-
arheimili fyrir aldraða á Kirkjubæj-
arklaustri, þar sem þjónusta verður
allan sólarhringinn. Það er starfrækt
í einbýlishúsi sem 5 sveitarfélög eiga
og er þar rúm fyrir 6 vistmenn.
Reksturinn er með þeim hætti að
sveitarfélögin láta í té, auk húsnæðis-
ins, rafmagn til Ijósa og hita en að
öðru leyti er það rekið á vegum ein-
staklinga. Það eru hjónin Salóme
Ragnarsdóttir og Hörður Davíðsson,
Efri-Vík, Kirkjubæjarhreppi, sem sjá
um reksturinn.
í tilefni stofnunarinnar var „opið
hús“ í dvalarheimilinu nokkru eftir
að fyrstu íbúarnir fluttu inn og
fólki gefinn kostur á að skoða húsa-
kynni og húsbúnað. Allur stofn-
kostnaður var gefinn af félög
einstaklingum og voru f
gjafirnar formlega afhen
þetta tækifæri.
Fáskrúðsfjörður:
Afli skuttog-
ara í fyrra
var svipað-
ur og 1982
AFLI skuttogaranna á Fáskrúðsfirði
á árinu 1983 var svipaður og árið
áður. Heildarafli Ljósafells var 3.100
lestir, en var árið 1982 3.220 lestir.
Afli Hoffells árið 1983 var 3.255 lest-
ir en árið 1982 var aflinn 3.202 lestir.
Bæði skipin fóru þremur veiðiferðum
fleira í fyrra en árið áður.
Heildarverð Ljósafells 1983 var
31,383 milljón kr. en árið 1982 var
verðmætið 17,107 milijónir. Heild-
arverðmæti Hoffells 1983 var
33,062 milljónir, en árið áður var
það 16,919 milljónir.
Frá áramótum hafa skipin aflað
473 lesta sem skiptast þannig að
Hoffell hefur landað 242 lestum,
en Ljósafell hefur landað 231 lest.
Vélbáturinn Þorri hóf róðra með
línu strax 2. janúar og hefur aflað
80 lesta. Er hann nú að taka net.
Sólborg Su hefur hafið veiðar með
net og hefur landað tvisvar, sam-
tals 72 lestum. Auk þess hefur Sæ-
björg stundað togveiðar og hefur
hún landað 56 lestum.
Atvinnuástandið á Fáskrúðsfirði
hefur verið þokkalegt frá áramót-
um, þó einhverjir hafi verið skráð-
ir atvinnulausir, einkum um ára-
mótin. Engin loðna hefur borist
hingað enn, en verið er að vinna að
lagfæringum í verksmiðjunni og
eru hugmyndir uppi um að taka á
móti loðnu fljótlega.
Tíðarfar hefur verið rysjótt það
sem af er vetri, skipst á frost og
þíða. Hér er tiltölulega lítill snjór
en mikill klaki.
— Albert
V erslu nar manna-
félag Árnessýslu:
79,3% félags-
manna með
minna en 15
þús. á mánuði
79,3% félagsmanna í Verzlunar-
mannafélagi Arnessýslu hafa 15.000
krónur eða lægri dagvinnutekjur á
mánuði, samkvæmt upplýsingum
sem blm. Mbl. fékk á skrifstofu fé-
lagsins.
Þá eru 35,5% félagsmanna sem
hafa undir 12.000 krónum í mán-
aðarlaun, en 6% félagsmanna eru
með 18.000 krónur eða meira í
mánaðarlaun, samkvæmt upplýs-
ingum skrifstofunnar.
Einnig eru á Kirkjubæjar-
klaustri 8 íbúðir fyrir aldraða sem
byggðar hafa verið á síðustu árum.
Á meðfylgjandi mynd sést Júlíus
Oddsson, form. Lionsklúbbsins
Fylkis, afhenda Þorsteini Gísla-
syni, form. stjórnar dvalarheimil-
isins, gjafabréf fyrir útvarpi og
sjónvarpi sem klúbburinn gaf
heimilinu.
HSH
órgerð
1984
Á síðasta ári setti ÍSFUGL rúllettur (úrbeinaða holdakjúklinga) á
íslenskan matvælamarkað í fyrsta sinn.
Rúlletturnar slógu þegar í gegn, enda afar Ijúffengar og sérstakar.
Nú bjóðum við árgerð 1984 af Rúllettum og eins og árgerð 1983
eru þær unnar úr úrvals holdakjúklingum, fylltar ýmsu góðgæti t.d.
sveskjum eða bacon.
RÚLLETTUR — veislumaturinn 1984
ísfugl
Fuglasláturhusid að Varmá
Reykjavegi 36 Mosfellssveit
Simar: 91-66103 og 66766